Vísir - 21.11.1978, Side 10
10
Þriftjudagur 21. nóvember 1978 VISIR
Otgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjdri: Davfð Guðmundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
úlafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri
erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón með Helgarblaði: Arni
Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind Asgeirsdóttir,Edda Andrésdóttir, Gisli
Baldur Garðarsson, Jónlna Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrin Páls-
dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Stefán Kristjáns-
son, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson.
Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Otlit og hönnun: Jón
Oskar Hafsteinsson, Magnús ölafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingarog skrifstofur:
Sfðumúla 8. Simar 86611 og 82260.
Afgreiðsia: Stakkholti 2-4 simi 86611.
Ritstjórn: Síöumúla 14 simi 86611 7 linur
Askriftargjald er kr. 2400,-
á mánuði innanlands.
Verð i lausasölu kr. 120 kr.
eintakið
Prentun Blaðaprent h/f.
Leita þarf að ástœðum
Mjög forvitnilegar f réttir um érangur skipulagsbreyt-
inganna í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli hafa birst í
Vísi í gær og i dag. Þar hef ur komið f ram, að gjaldeyris-
skil hafa aukist verulega og rýrnun minnkað um meira
en helming frá því að eftirlit var aukið og skipulagi
breytt í Fríhöfninni.
Rikisendurskoðun hefur mörg undanfarin ár gert at-
hugasemdir við óeðlilega lítil gjaldeyrisskil og óeðlilega
mikla rýrnun í þessari ríkisstofnun, en það var fyrst á
siðari hluta þessa árs, sem utanríkisráðuneytið, sem
hefur með höndum yfirstjórn málefna Fríhafnarinnar,
lét gera nauðsynlegar skipulagsbreytingar í stof nuninni.
I skýrslu, sem f járlaga- og hagsýslustofnun f jármála-
ráðuneytisins lét gera um rekstur Fríhaf narinnar í april
1974 , er talað um að óeðlilega mikil rýrnun hafi verið
vandamái, einkurh í þeirri verslun, sem selur útvörp, úr,
skartgripi, myndavélar, ilmvötn og fleira.
Astæða er til að ætla, að mun f yrr hefði verið hægt að
minnka rýrnunina með auknu aðhaldi, nákvæmara ef tir-
liti með peningakössum, og breyttu skipulagi eins og nú
hefur verið gert.
Þótt prósenturnar láti ekki mikið yfir sér og rýrnunin
haf i einungis orðið 0,9% á tímabilinu f rá mai til október
á þessu ári og 2,4% á sama tímabili í fyrra, er rétt að
menn hafi í huga, að veltan er áætluð tæplega átján
hundruð milljónir króna á þessu ári. Rýrnun sem er eitt
prósent af veltu nemur því átján milljónum króna.
Af þessum sökum vekur það f urðu, að ekki skuli hafa
verið lögð áhersla á að finna, hvaða ástæður væru fyrir
þessari rýrnun, sem ríkisendurskoðun hefur í mörg ár
talið óeðlilega.
Það er ekki nóg að koma hlutunum í lag og breyta um
rekstrar-fyrirkomulag, það verður líka að rannsaka
hvers vegna reksturinn hef ur ekki verið eins og hann átti
að vera.
Vonandi er yf irvöldum nú orðin Ijós alvara þessa máls
og ættu þau því að stuðla að umfangsmikilli rannsókn á
starfsemi Fríhafnarinnar eins og Vísir hefur talið þörf
á, en ekki að láta takmarkaða og lokaða rannsókn lög-
reglustjórans á Kef lavíkurf lugvelli nægja varðandi fri-
hafnarmálin.
Ekki aðeins í viku...
Slysavarnafélag Islands gengst nú fyrir vikuherferð til
varnar umferðarslysum. Þetta er þarft og lofsvert
framtak, sem gert er á 50. afmælisári félagsins. Nauð-
synlegt er að sem f lestir aðilar láti þessi mál til sín taka,
ekki síst vegna þess að samnefnara þeirra aðila, sem
um umf erð f jalla, umf erðarráði, er svo þröngur stakkur
skorinn f járhagslega, að upplýsingamiðlun hans verður
mjög takmörkuð.
Skilningsleysi opinberra ráðamanna á gildi fyrir-
byggjandi fræðslustarfs á sviði umferðarmála hefur
verið mjög mikið og á meðan svo er þurfa f jölmiðlar og
aðrir aðilar, sem lagt geta eitthvað af mörkum á þessu
sviði, að láta umferðarmálin til sín taka.
Vísir tók umferðarmálin sérstaklega fyrir nú í haust
og birti meðal annars röð viðtala við fólk, sem hlotið
hafði örkuml af völdum umferðarslysa, og kom í Ijós, að
þetta efni vakti marga til umhugsunar um afleiðingar
umferðarslysanna. Þótt dauðaslysin séu alvarleg, þá
blasa einnig við mörg hörmuleg dæmi um afleiðingar
slysa i umferðinni, þar sem fólk í blóma lífsins er svipt
bjartri framtíð, þótt það haldi lífi.
Vísir væntir þess að landsmenn taki ábendingum
Slysavarnarfélagsins vinsamlega og leggi sig fram um
að stuðla að bættri umferðarmenningu í landinu, ekki
einungis á meðan varnarvikan gegn umferðarslysum
stendur yfir, heldur á næstu árum.
Það vakti athygli að
hinar hryggilegu fréttir
af f lugslysinu í Sri Lanka
voru ekki fluttar í
íslenzka ríkisútvarpinu
fyrr en í hádegi á
fimmtudag, eftir að síð-
degisblöðin voru komin út
með f regnum af slysinu á
forsíðu. Tæpum tólf tím-
um áður höfðu alþjóðleg-
ar fréttastofur sent
skeyti um allan heim með
frásögnum af þessum
hörmulega atburði, út-
varpsstöðvar austan hafs
og vestan höfðu skýrt frá
honum, en einn helzti
fjölmiðill okkar hér
heima, sem fréttirnar
snertu hvað nánast, þagði
um þær í rúmar fimm
klukkustundir eftir að
hann hóf útsendingu á
fimmtudagsmorguninn.
Afstaða forráðamanna
Flugleiða, sem lögðu
áherzlu á að hafa
persónulegt samband við
ættingja Islendinganna í
flugvélinni, áðuren frétt-
in yrði birt í útvarpi, er
mjög skiljanleg. Engu að
síður er eðlilegt að þessi
atburður veki almenning,
og þá fyrst og fremst
starfsfólk blaða og út-
varps, til umhugsunar
um meðferð frétta af
atburðum sem þessum.
Lágt lagst
Einn starfandi fjölmiölamaö-
ur, Einar Karl Haraldsson, rit-
stjóri Þjóöviljans, hefur þegar
kvatt sér hljóös af þessu tilefni I
blaöi sinu, en gerir þaö meö
þeim endemum aö ég fæ ekki
oröa bundizt.
t stuttu máli rifjar Einar Karl
þaö upp, aö fréttin af flugslysinu
hafi veriö „fyrsta frétt” helztu
útvarpsstööva erlendis þegar
kl. 1 aöfaranótt fimmtudags og
aö útvarpsstöö bandariska
varnarliösins á Keflavikurflug-
velli hafi skýrt frá slysinu i
fréttum sinum aöfaranótt
fimmtudags og þá flutt samtöl
viö talsmenn Flugleiöa i New
York. Ég heyröi ekki þessar
fréttir en geri ráö fyrir aö um
endurvarp á fréttatimum
bandariskra útvarpsstööva hafi
veriö aö ræöa. Einar Karl kemst
aö þeirri niöurstööu, aö útvarp
varnarliösins sé sökudólgur i
þessu máli, þaö hafi rofiö þann
þagnarmúr um flugslysiö, sem
hér hafi átt aö standa og þvi beri
Andrési Björnssyni útvarps-
stjóra aö gefa fyrirmæli um aö
f-----—v----------\
Nútímatækni í fjöl-
miðlun greið fjar-
skiptasambönd innan-
lands og við útlönd
auka á vanda starfs-
manna íslenskra fjöl-
miðla í meðferð vá-
legra tíðinda sem
snerta einstaklinga og
fjöiskyldur á islandi
segir Markús örn
Antonsson sem skrifar
hér I tilefni af fréttum
af flugslysinu i Sri
Lanka.
útvarpssendingum af Keflavik-
urflugvelli veröi hætti þegar I
staö!
Þjóöviljamenn hafa oft lagzt
lágt i málflutningi sinum þegar
bandariska varnarliöiö er ann-
ars vegar. En öllu neöar en
þetta veröur tæplega komist.
Hér er á fáránlegan og meö
afbrigöum ósmekklegan hátt
veriö aö blanda saman persónu-
legum harmi margra meöborg-
ara okkar, reyndar hinnar
islenzku þjóöarfjölskyldu i
heild, og starfseminni á Kefla-
vikurflugvelli, sem liggur þungt
á sinninu á þeim Þjóövilja-
mönnum eins og alþjóö veit.
Að stöðva fréttir
Þjóöviljinn er aö notfæra sér
þennan sorglega atburö sem
áróöurstæki i viöureign sinni viö
herinn. Ekkert er þeim jarö-
vöölum á Þjóöviljanum heilagt.
Einar Karl Haraldsson hefur
veriö formaöur i Blaöamanna-
félagi Islands. Hann hefur af
einhverjum veriö skipaöur til
þess trúnaöarstarfs aö sitja i
stjórn norræns blaöamanna-
námskeiös fyrir íslands hönd.
Maöur myndi þvi ætla, aö Einar
Karl heföi einhvern snefil af
hæfileika til aö skoöa svo aug-
ljóst vandamál I störfum
islenzkra blaöamanna sem um-
fjöllun um válegustu atburöi frá
öörum stæöilegri sjónarhól en
sorphaugnum á Þjóöviljanum.
Þáttur útvarpsins á Keflavik-
urflugvelli er ekkert aöalatriöi
þessa máls. Hann er aöeins til
frekari áréttingar þvi aö Island
er ekki lengur einangraö land.
Islandi veröur ekki lokaö fyrir
fréttum utan úr heimi þótt Ein- -
ar Karl telji aö svo eigi aö vera.
Stöövun fréttaflutnings til Is-
lands eöa frá landinu veröur
ekki beitt svo lengi sem Island
er frjálst land.
Margar leiðir
Erlendar fréttastofur senda
fregnir úr öllum heimshornum,
allan sólarhringinn, til fjölmiöla
á tslandi. Islendingar geta
óhindraö hlustaö á fréttasend-
ingar erlendra útvarpsstööva og
gera þaö margir þótt komiö sé
fram yfir miönætti. I þessum
hópi eru ýmsir starfshópar, sem
vinna aö næturlagi. Hér er einn-
ig fjöldi áhugamanna, sem fæst
viö fjarskipti viö fjarlæg lönd i
tómstundum sinum. Siminn er
opinn til útlanda. Eftir öllum
þessum leiöum haföi Islending-
um borizt fréttin af flugslysinu i
Sri Lanka snemma aöfaranótt
fimmtudagsins og hún gekk þá
þegar á milli manna. Árla
morguns á fimmtudag var.hún
oröin umtalsefni stórs hóps
Reykvikinga. Fánar voru I hálfa
stöng viö skrifstofur Flugleiöa.
Menn spuröu um tilefniö og
fengu svör. Crt um borgina fóru
aö berast upptalningar á nöfn-
um tslendinga, sem meö flug-
vélinni voru, óstaöfestar og á
margan hátt villandi, eins og ég
varö sjálfur vitni aö.
Munnmælasagan
Þaö er einmitt þessi þáttur i
islenzkri fjölmiölun, munn-
mælasagan I samfélagi fámenn-
is og kunningsskapar, sem gerir
viöbrögö Islenzkra blaöa og
rikisfjölmiöla viö ótiöindum
mjög vandráöin. Ég þekki þaö
sem fréttamaöur, hvernig beöiö
hefur veriö meö frásagnir af
slysförum vegna þess aö ekki
haföi náöst til nákomins ætt-
ingja, sem var einhvers staöar á
feröalagi. Á meöan fór sagan
sem eldur i sinu, meira og
minna brengluö I meöförum.
Hún olli óvissu og ugg hjá
fjöldamörgum, sem reyndust
hins vegar ekki hafa ástæöu til
aö kviöa neinu. Aö lokum þótti
nauösyn vegna sögusagna aö
skýra frá staöreyndum málsins
opinberlega þótt vitað væri, aö
ekki heföi náöst til allra, sem
aöilar málsins vildu aö fengju
ööru visi en úr fjölmiölum.
Birting
Sú krafa skal gerö til þeirra,
sem stjórna fjölmiölum aö þeir
umgangist fréttir af voveifleg-
um atburöum af skilningi og
samúö meö ættingjum og vina-
hópi. En á þeim hvilir jafnframt
sú skylda að meta sjálfstætt og
á raunsæjan hátt hvort aöstæö-
ur krefjastbirtingar.Um leiöir i
þessu efni er eölilegt aö yfir-
menn og aðrir starfsmenn fjöl-
miöla ræöi af einurö, þvi aö ég
veit aö i þeirra hópi eru uppi
misjafnar skoöanir á málinu.
En sú umræöa veröur vonandi
málefnalegri en þetta fyrsta
framlag, sem birzt hefur frá
hendi ritstjóra Þjóðviljans.
Munnmœli
eða staðfest-
ar fréttir?