Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 34
34 C ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Opið virka daga frá kl. 8-12 og 13-17
Magnús Leópoldsson
lögg. fasteignasali
BÚJARÐIR
Á söluskrá FM eru núna yfir 40 sumarhús
og um 100 jarðir af ýmsum stærðum.
Póstsendum söluskrár um land allt.
Hæðir
BRÆÐRABORGARSTÍGUR
Mjög áhugaverð hæð ásamt risi í
eldra tvíbýlishúsi í Vesturbænum.
Íbúðin hefur tvo sérinnganga. Á
hæðinni er eldhús, hol, samliggjandi
stofur og eitt svefnh. og uppi eru tvö
herb. og baðherb. Parket á gólfum á
hæðinni. 5448
4ra herb. og stærri
KÓPALIND
Til sölu mjög glæsileg fullbúin
fjögurra herb. 123 fm íbúð á jarðhæð
í glæsilegu litlu fjölbýli við Kópalind.
Vandaðar innréttingar og gólfefni.
Stór sólpallur. Eign sem vert er að
skoða. Verð 16,2 m. 3707
3ja herb. íbúðir
STANGARHOLT
Áhugaverð íbúð í þessum vinsælu
húsum við Stangarholt. Íbúðin er
samtals um 91 fm, hæð og ris. Á
aðalhæð er eldhús, stofur, svefnher-
bergi og baðherbergi. Í risi eru tvö
herb. ásamt óinnréttuðu rými. 2997
ÞINGHÓLSBRAUT
Glæsileg þriggja herb. íbúð á fyrstu
hæð í nýlegu þríbýlishúsi í vesturbæ
Kópavogs. Sérinngangur og sólrík
verönd fyrir utan stofu. Þvottahús í
íbúð. Vandaðar innréttingar í eldhúsi,
forstofu og herb. Flísalagt baðherb.
með innréttingu. Parket og flísar á
gólfum. Verð 13,3 m. 2959
2ja herb. íbúðir
GRETTISGATA
Skemmtileg tveggja herb. ósam-
þykkt íbúð á 2. hæð í bakhúsi. Húsið
er steinhús, byggt 1921. Hátt er til
lofts í íbúðinni, um 2,80 m. Eldhúsið
er með eldri málaðri viðarinnréttingu.
Baðherbergið er með litlu baðkari
undir súð, með hvítum tækjum og
gólfborðum á gólfi. Í stofu og herb.
eru falleg gólfborð. 1732
Atvinnuhúsnæði
HAFNARSTRÆTI
Til sölu eða leigu glæsileg húseign
við Hafnarstræti. Húsið hefur allt
verið endurnýjað að utan og að hluta
að innan. Stærð 745 fm. Hús sem
gefur mikla notkunarmöguleika.
Teikningar og nánari uppl. á skrif-
stofu. TILBOÐ ÓSKAST. 9343
VOGAR - REYKJAVÍK
Vorum að fá í sölu áhugavert stein-
steypt iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði
á tveimur hæðum, í framhúsi, sam-
tals 1.100 fm, þar af um 220 fm milli-
loft, sem innréttað er sem skrifstofur.
Húsnæðið hefur verið mikið endur-
nýjað bæði að innan og utanhúss,
og lítur vel út. Á baklóð er 181 fm
stálgrindarhús auk 30 fm millilofts,
fulleinangrað og upphitað hús.
Byggingarréttur á baklóð. Góð að-
koma er að báðum húsunum, stórar
innkeyrsludyr. Eign sem gefur mikla
möguleika. Teikningar og nánari
uppl. á skrifstofu. 9411
FISKISLÓÐ - FJÁRFESTAR
Til sölu 347 fm áhugavert atvinnu-
húsnæði við Fiskislóð. Húsnæðið er
á tveimur hæðum. Efri hæðin er inn-
réttuð fyrir skrifstofur, neðri hæðin
innréttuð sem afgreiðsla og lager.
Húsnæðið er í góðri leigu, undir
snyrtilegan rekstur. Nánari uppl. á
skrifstofu. 9410
Landsbyggðin
FREYSNES II SKAFTÁRHREPPI
Til sölu nýlegt 100 fm einbýlishús á
þessum frábæra stað. Einstakt um-
hverfi. Hagstæð lán áhvílandi. Mynd-
ir og nánari uppl. á skrifstofu. Verð
9,8 m. 11154
TJARNARKOT
Til sölu jörðin Tjarnarkot í Húnaþingi
vestra. Byggingar á jörðinni eru m.a.
íbúðarhús, fjárhús, hlaða og hesthús.
Greiðslumark í sauðfé 166 ærgildi.
Jörðin selst án bústofns og véla.
Nánari uppl. á skrifstofu. 10731
FLÚÐIR
Til sölu fasteignin Akurgerði 6 í
Hrunamannahreppi í Árnessýslu. Um
er að ræða hús byggt 1995. Stein-
steypt á einni hæð og klætt að utan
með Steni-klæðningu að hluta.
Húsið er 129 fm að stærð og lóðin er
1.400 fm. Húsið hefur verið notað
sem afgreiðsla og vinnuaðstaða fyrir
póst og síma á svæðinu og getur
auðveldlega nýst áfram fyrir annars
konar starfsemi. Húsið er inn í íbúð-
arhverfi og gæti einnig nýst sem
íbúðarhús. Lóðin er stór, 1.400 fm,
öll frágengin með gróðri og stéttum
með hitalögnum og lýsingu. Mjög
gott aðgengi er að húsinu og mörg
bílastæði við það. 14288
GRINDAVÍK
Til sölu gott 117 fm hús ásamt 11 fm
geymslu. Húsið er timburhús byggt
1973. Ágætt ástand. Laust fljótlega.
Verð 9,0 m. 14296
LAUGARVATN - SUMARHÚS
Myndarlegt sumarhús í landi Úteyjar
í Laugardalshreppi. Heitt og kalt
vatn. Góð staðsetning. Eignarlóð.
Verð 7,0 m. 13498
BORGARFJÖRÐUR - SUMAR-
HÚS
Vorum að fá í sölu sumarhús við
Ölver í Leirár- og Melárhreppi. Stærð
55 fm. Húsið er byggt 1980 og
þarfnast lagfæringar. Verðhugmynd
2,5 m. 13488
KIRKJULAND - KJALARNESI
Til sölu smábýlið Kirkjuland á Kjalar-
nesi, (tilheyrir nú Rvík). Um er að
ræða mjög áhugaverða eign t.d. fyrir
hestamenn. Byggingar eru myndar-
legt íbúðarhús, steinsteypt á einni
hæð, ásamt góðum bílskúr. Auk
þess er stórt hesthús og vinnuað-
staða með stórum innkeyrsludyrum,
en hús þetta má nýta á ýmsan hátt.
Einnig skemmtilegur torfbær sem
hefur verið innréttaður sem hesthús.
Stórt vel útbúið hestagerði. Hita-
veita. Landstærð um 7 ha, að stórum
hluta tún. Kirkjuland stendur undir
Esjunni á frábærum útsýnisstað. Hér
er um að ræða mjög spennandi eign.
Myndir og nánari uppl. á
skrifstofu.11095
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
SÍÐUMÚLI - HEIL HÚSEIGN
Til sölu mjög gott skrifstofuhús-
næði við Síðumúla. Húsnæðið,
sem er kjallari og þrjár hæðir, er
byggt 1983 og er um 1.000 fm.
Húsið hýsir í dag stóra verk-
fræðistofu. Allur aðbúnaður og
skipulag mjög gott. Húsið getur
verið laust seinni hluta árs 2002 og kemur til greina að leigja hús-
ið af væntanlegum kaupanda, a.m.k. til þess tíma. Nánari upplýs-
ingar á skrifstofu. 9400
FOSSHÁLS 27
Til sölu mjög vel staðsett hús-
næði á götuhæð í þessu mynd-
arlega húsi. Stærð rúmir 1.000
fm. Umtalsverður byggingarrétt-
ur mögulegur, teikningar fyrir-
liggjandi. Mikil lofthæð og hægt
að hafa margar innkeyrsludyr. Eign sem gefur mikla möguleika.
Nánari uppl. á skrifstofu. 9417
Agnar Gústafsson hrl.
Eiríksgötu 4
Málflutnings-
og fasteignastofa
551 2600
552 1750
!
!" #
$ %&
'
"
#
$%&
'
$ #
$
(
#
)*
Ofnar eru ekkert sérstaklega al-
gengir í stofum á heimilum hér,
frekar í sumarbústöðum. En svona
ofnar eru mjög notalegir og hita
vel, ekkert síður en arnar.
Í kuldum er
gott að hafa
góðan ofn
Falleg og einföld
borðskreyting
MIKILL uppgangur var í efna-
hagslífi Rússa í fyrra og er talað
að neyslan hafi aukist um 9%, hag-
vöxturinn um 7% og fjárfestingar
um 18%, segir í Herald Tribune.
Nú þegar ljóst er að slagkraftur
er aftur í efnahagslífinu eftir tvö
mögur ár er ljóst að Rússar þurfa
að taka á óleystu vandamáli sem
skapaðist við hrun Sovétríkjanna
árið 1991, þ.e. verndun eignarrétt-
arins og að framfylgja lögum um
hann.
Skortur á eftirfylgni á þessu
sviði er talinn vera einn helsti
hemillinn á hagvöxt til langs tíma
og aukna erlenda fjárfestingu sem
Rússar þurfa þó mjög á að halda.
Öldum saman hefur lagasetning
verið í ólestri og Rússar hafa sjálf-
ir á orði að lögin séu eins og uxa-
kerra, hana megi draga í hvað átt
sem er.
Nota kerfið til þess að
klekkja á keppinautunum
Í stað þess að einfalda lagakerf-
ið og framfylgja lögunum með
festu hafa stjórnvöld í Moskvu í
reynd leyft héraðsstjórnum og
áhrifamiklum mönnum í atvinnulíf-
inu á hverjum stað að fara sínu
fram að miklu leyti.
Fyrirtæki sem starfa þar sem
lögum um eignarrétt og viðskipti
er illa framfylgt geta því lent í
miklum vandræðum. Þá halda
stjórnendur sumra fyrirtækja því
fram að keppinautar sem hafi
tengsl við stjórnvöld hafi fengið
saksóknara í viðkomandi héraði til
þess að reka mál á hendur þeim,
oft vegna lítilla sem engra saka.
Lög um eignarétt
vantar
Ásakanir af þessu tagi og skort-
urinn á að grunnviðir markaðshag-
kerfisins, þ.m.t. talin lög um eign-
arrétt, séu í lagi í góðu lagi leiðir
til óstöðugleika og óvissu sem fæla
burt erlenda fjárfesta. Anatoli
Chubais, forstjóri stærsta raforku-
fyrirtækis í Rússlandi, segir að
eftir hrun Sovétríkjanna hafi hrein
frumskógarlögmál gilt í viðskipta-
lífinu. „Þetta var hreinlega spurn-
ing að drepa eða vera drepinn. Nú
er þetta liðin tíð en í staðinn er
það orðið æ algengara að fyrirtæk-
in noti pólitísk eða efnahagsleg
tengsl til þess að láta saksóknara,
skattstjóra eða öryggislögregluna
klekkja á keppinautunum.“
Fælir burt er-
lenda fjárfesta
Ótryggt lagaumhverfi í Rússlandi
Morgunblaðið/Einar Falur
Frá Moskvu. Skorturinn á að grunnviðir markaðshagkerfisins, þ.m.t. talin lög
um eignarrétt, séu í góðu lagi leiðir til óstöðugleika og óvissu sem fælir burt er-
lenda fjárfesta.