Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 47
SAMÞYKKI MAKA – Samþykki
maka þinglýsts eiganda þarf fyrir
sölu og veðsetningu fasteignar, ef
fjölskyldan býr í eigninni.
GALLAR – Ef leyndir gallar á
eigninni koma í ljós eftir afhend-
ingu, ber að tilkynna seljanda slíkt
strax. Að öðrum kosti getur kaup-
andi fyrirgert hugsanlegum bóta-
rétti sakir tómlætis.
GJALDTAKA
ÞINGLÝSING – Þinglýsingargjald
hvers þinglýsts skjals er nú 1.200
kr.
STIMPILGJALD – Það greiðir
kaupandi af kaupsamningum og af-
sölum um leið og þau eru lögð inn
til þinglýsingar. Ef kaupsamningi er
þinglýst, þarf ekki að greiða stimp-
ilgjald af afsalinu. Stimpilgjald
kaupsamnings eða afsals er 0,4%
af fasteignamati húss og lóðar, þ.
e. 4.000 kr. af hverri milljón.
SKULDABRÉF – Stimpilgjald
skuldabréfa er 1,5% af höfuðstóli
(heildarupphæð) bréfanna eða
1.500 kr. af hverjum 100.000 kr.
Kaupandi greiðir þinglýsingar- og
stimpilgjald útgefinna skuldabréfa
vegna kaupanna, en seljandi lætur
þinglýsa bréfunum.
STIMPILSEKTIR – Stimpilskyld
skjöl, sem ekki eru stimpluð innan
2ja mánaða frá útgáfudegi, fá á sig
stimpilsekt. Hún er 10% af stimp-
ilgjaldi fyrir hverja byrjaða viku.
Sektin fer þó aldrei yfir 50%.
SKIPULAGSGJALD – Skipulags-
gjald er greitt af nýreistum húsum.
Af hverri byggingu, sem reist er,
skal greiða 3‰ (þrjú pro mille) í
eitt sinn af brunabótavirðingu
hverrar húseignar. Nýbygging telst
hvert nýreist hús, sem virt er til
brunabóta svo og viðbyggingar við
eldri hús, ef virðingarverð hinnar
nýju viðbyggingar nemur 1/5 af
verði eldra hússins. Þetta á einnig
við um endurbætur, sem hækka
brunabótavirðingu um 1/5.
HÚSBYGGJENDUR
LÓÐAUMSÓKN – Eftir birtingu
auglýsingar um ný byggingarsvæði
geta væntanlegir umsækjendur
kynnt sér þau hverfi og lóðir sem
til úthlutunar eru á hverjum tíma
hjá byggingaryfirvöldum í viðkom-
andi bæjar- eða sveitarfélögum – í
Reykjavík á skrifstofu borgarverk-
fræðings, Skúlatúni 2. Skilmálar
eru þar afhentir gegn gjaldi, ef til-
búnir eru. Umsækjendur skulu fylla
út nákvæmlega þar til gert eyðu-
blað og senda aftur til viðkomandi
skrifstofu. Í stöku tilfelli þarf í um-
sókn að gera tillögu að húshönnuði
en slíkra sérupplýsinga er þá getið
í skipulagsskilmálum og á umsókn-
areyðublöðum.
LÓÐAÚTHLUTUN – Þeim sem út-
hlutað er lóð, fá um það skriflega
tilkynningu, úthlutunarbréf og þar
er þeim gefinn kostur á að stað-
festa úthlutunina innan tilskilins
tíma, sem venjulega er um 1 mán-
uður. Þar koma einnig fram upplýs-
ingar um upphæðir gjalda o.fl.
Skilyrði þess að lóðaúthlutun taki
gildi eru að áætluð gatnagerð-
argjöld o.fl. séu greidd á réttum
tíma. Við staðfestingu lóðaúthlut-
unar fá lóðarhafar afhent nauðsyn-
leg gögn, svo sem mæliblað í tví-
riti, svo og hæðarblað í tvíriti og
skal annað þeirra fylgja leyf-
isumsókn til byggingarnefndar, auk
frekari gagna ef því er að skipta.
GJÖLD – Gatnagerðargjöld eru
mismunandi eftir bæjar- og sveit-
arfélögum. Upplýsingar um gatna-
gerðargjöld í Reykjavík má fá hjá
borgarverkfræðingi en annars
staðar hjá byggingarfulltrúa. Að
auki koma til heimæðargjöld. Þessi
gjöld ber að greiða þannig: 1/10
innan mánaðar frá úthlutun, síðan
30% sex mánuðum eftir úthlutun,
30% tólf mánuðum eftir úthlutun
og loks 30% átján mánuðum eftir
úthlutun.
FRAMKVÆMDIR – Áður en unnt
er að hefjast handa um fram-
kvæmdir þarf framkvæmdaleyfi. Í
því felst byggingaleyfi og til að fá
það þurfa bygginganefndarteikn-
ingar að vera samþykktar og
stimplaðar og eftirstöðvar gatna-
gerðargjalds og önnur gjöld að
vera greidd.
Einnig þarf að liggja fyrir bréf um
lóðarafhendingu, sem kemur þegar
byggingarleyfi er fengið og nauð-
synlegum framkvæmdum sveit-
arfélags er lokið, svo sem gatna-
og holræsaframkvæmdum.
Í þriðja lagi þarf að liggja fyrir
staðsetningarmæling bygginga á
lóð en þá þarf einnig bygging-
arleyfi að liggja fyrir, lóðarafhend-
ing að hafa farið fram og meistarar
að hafa skrifað upp á teikningar hjá
byggingarfulltrúa. Fylla þarf út
umsókn um vinnuheimtaugarleyfi
til rafmagnsveitu og með þeirri
umsókn þarf að fylgja bygging-
arleyfi, afstöðumynd sem fylgir
byggingarnefndarteikningu og um-
sókn um raforku með undirskrift
rafverktaka og húsbyggjanda.
Umsækjanda er tilkynnt hvort
hann uppfyllir skilyrði rafmagns-
veitu og staðfestir þá leyfið með
því að greiða heimtaugargjald.
Fljótlega þarf að leggja fram
sökklateikningar hjá byggingarfull-
trúa og fá þær stimplaðar en að því
búnu geta framkvæmdir við sökkla
hafist. Þá þarf úttektir á ýmsum
stigum framkvæmda og sjá meist-
arar um að fá byggingafulltrúa til
að framkvæma þær.
FOKHELT – Fokheldisvottorð,
skilmálavottorð og lóðasamningur
eru mikilvæg plögg fyrir húsbyggj-
endur og t.a.m. er fyrsta útborgun
húsnæðislána bundin því að fok-
heldisvottorð liggi fyrir.
Byggingarfulltrúar gefa út fokheld-
isvottorð og skilmálavottorð og til
að þau fáist þarf hús að vera fok-
helt, lóðarúttekt að hafa farið fram
og öll gjöld, sem þá eru gjaldfallin
að hafa verið greidd. Skrifstofur
bæja- og sveitarfélaga (í Reykjavík
skrifstofa borgarstjóra) gera lóð-
arsamning við lóðarleigjanda að
uppfylltum ýmsum skilyrðum, sem
geta verið breytileg eftir tíma og
aðstæðum. Þegar lóðarsamningi
hefur verið þinglýst, getur lóð-
arhafi veðsett mannvirki á lóðinni.
HÚSBRÉF
HÚSBRÉFALÁN – Lán innan hús-
bréfakerfisins eru svokölluð hús-
bréfalán. Þau eru veitt til kaupa á
notuðum íbúðum, til nýbygginga
einstaklinga, nýbygginga bygging-
araðila og til endurbóta á eldra
húsnæði. Annars vegar er um að
ræða fasteignaveðbréf, sem gefin
eru út af íbúðarkaupanda, hús-
byggjanda eða íbúðareiganda, og
eru þau skuldaviðurkenningar
þessara aðila. Húsbréfin sjálf koma
kaupanda ekki beint við. Seljendur
aftur á móti eignast húsbréf með
því að selja Íbúðalánasjóði fast-
eignaveðbréfin.
Þar með losna seljendur við að inn-
heimta afborganir af fast-
eignaveðbréfunum og geta notað
húsbréfin á þann hátt, sem þeir
kjósa; ýmist með því að selja þau á
verðbréfamarkaði, eiga þau sem
sparnað eða nota húsbréfin til að
greiða með annaðhvort við kaup,
eða upp í skuldir sínar. Hér að neð-
an er birt dæmi um þann feril, sem
á sér stað við kaup á notaðri íbúð.
Frekari upplýsingar ásamt al-
mennri fjármálaráðgjöf í tengslum
við lánveitinguna veita bankar og
sparisjóðir.
KAUP Á NOTAÐRI ÍBÚÐ
Frumskilyrði fyrir húsbréfaláni,
er að umsækjandi verður að
sækja um skriflegt mat á
greiðslugetu sinni hjá banka eða
sparisjóði.
Þegar mat þetta er fengið, gildir
það í sex mánuði.
Umsækjandi skoðar sig um á
fasteignamarkaðnum í leit að
notaðri íbúð.
Þegar hann hefur í höndum sam-
þykkt kauptilboð, kemur hann
því til Íbúðalánasjóðs ásamt
greiðslumatskýrslu og öðrum
fylgigögnum
Meti stofnunin kauptilboðið
lánshæft, fær íbúðarkaupandinn
afhent fasteignaveðbréfið til
undirritunar og hann getur gert
kaupsamning.
Fasteignaveðbréfið er síðan af-
hent seljanda eftir undirskrift.
Því næst lætur kaupandi þing-
lýsa kaupsamningi og kemur af-
riti til seljanda.
Seljandi lætur þinglýsa fast-
eignaveðbréfinu, útgefnu af
kaupandanum, sem Íbúðal-
ánasjóður síðan kaupir og greið-
ir fyrir með húsbréfum. Af-
greiðsla þeirra fer fram hjá
Íbúðalánasjóði.
Stofnunin sér um innheimtu af-
borgana af fasteignaveðbréfinu.
LÁNSKJÖR – Fasteignaveðbréfið
er verðtryggt. Lánstími er 25 eða
40 ár og ársvextir eru nú 5,1%.
Þeir eru fastir og breytast því ekki
á lánstímanum. Gjalddagar á nýj-
um fasteignaveðbréfum eru nú
mánaðarlega eða ársfjórðungslega
og afborganir hefjast á 3ja reglu-
lega gjalddaga frá útgáfu bréfsins,
sé um mánaðarlega gjalddaga að
ræða og öðrum reglulega gjald-
daga sé um ársfjórðungslega
gjalddaga að ræða.
Á allar greiðslur, bæði vexti og af-
borganir, eru jafnan reiknaðar
verðbætur í samræmi við neyzlu-
vísitölu. Lántökugjald er 1%. Mán-
aðarleg greiðslubyrði af 1 millj.
króna láni til 25 ára er í dag 5.924
kr.
ÖNNUR LÁN – Íbúðalánasjóður
veitir einnig fyrirgreiðslu vegna
byggingar leiguíbúða eða heimila
fyrir aldraða, meiriháttar end-
urnýjunar og endurbóta eða við-
bygginga við eldra íbúðarhúsnæði.
Margir lífeyrissjóðir veita einnig
lán til félaga sinna vegna húsnæð-
iskaupa, svo að rétt er fyrir hvern
og einn að kanna rétt sinn þar.
Möguleikar á lánum til kaupa á
íbúðarhúsnæði kunna einnig að
vera fyrir hendi hjá bönkum og
sparisjóðum.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 C 47HeimiliFasteignir
mbl.is/fasteignir/fi
habil.is/fi
VESTURBÆRINN - LAUS
Vorum að fá í einkasölu mjög góða 3ja
herb. íb. á 2. hæð í fjórbýli (sambyggð hús).
Glugar og gler nýlegt. Endurnýjað rafmagn.
Stór sérgeymsla m. gluggum í kj. Laus
fljótlega. Verð 8,2 millj.
GRAFARVOGUR - VÖNDUÐ
Vorum að fá sérstaklega fallega og rúm-
góða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð ásamt
stæði í bílskýli í litlu fjölbýli. Stór og rúmgóð
stofa. Fallegt parket á gólfum og vandaðar
innréttingar. Sérgarður. Áhv. 6,7 millj. í hús-
bréfum. LAUS FLJÓTLEGA.
4-6 herbergja
KLEPPSVEGUR - AUKAHERB.
Vorum að fá í sölu góða 4ra herb. íb. á 4.
hæð í fjölbýli. Suðursvalir, fallegt útsýni.
Gluggar og gler endurnýjað. Aukaherbergi
m. sam. snyrtingiu í risi. Áhvíl. eru hagstæð
langtímalán tæpar 5 millj. Verð 9,9 millj.
NÝ SÉRHÆÐ Í KÓPAVOGI Vorum
að fá í sölu glæsilega 4ra herb. neðri sér-
hæð í nýju fjórbýli í Salahverfi. Vandaðar
mahóní-innréttingar, flísar og parket. Suð-
urverönd. Áhv. 6,3 millj. húsbréf m. 5,1%
vöxtum. Verð 14,5 millj.
HÓLAR M. BÍLSKÚR - SKIPTI Á
3JA Vorum að fá í einkasölu mjög góða
og bjarta 5 herbergja íbúð á 1. hæð í litlu
fjölbýli. Stofa með hurð út í sérsuður-garð.
4 góð herbergi. Góður bílskúr. Áhv. um 5,2
millj. byggsj. og húsbréf. BEIN SALA EÐA
SKIPTI Á 3-4RA HERBERGJA Í HÓLUN-
UM.
Hæðir
VIÐ AUÐARSTRÆTI Vorum að fá í
sölu mjög góða 5 herbergja 130 fm hæð í
góðu steinhúsi. Stofa og borðstofa, 3
svefnherbergi. Endurnýjað gler, nýl. þak.
Verð 13,5 millj.
OPIÐ 9-18
Þjónustuíbúðir
FYRIR ELDRI BORGARA Vorum
að fá í einkasölu fallega 73 fm 2ja herb. íb.
á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi á Seltjarnarnesi.
Mjög góð sameign, stutt í alla þjónustu.
Íbúðin er fyrir 60 ára og eldri. Nánari uppl.
á skrifstofu.
2ja herbergja
GULLENGI - GRAFARVOGI Vor-
um að fá í einkasölu nýlega 2ja herb. íbúð
á þessum eftirsótta stað. Eignin er um 66
fm og skiptist í góða stofu m. suðvestur-
svölum. Eldhús m. fallegum innréttingum.
Rúmgott svefnh. m. skápum. Baðh. m.
baðkari, flísalagt. Þvottahús er í íbúðinni.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI. Verð 8,7 millj.
KÓPARVOGUR Vorum að fá í sölu 2-
3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinn-
gangi í góðu þríbýli. Áhvílandi um 4,7 millj.
húsbréf með 5,1% vöxtum. Verð 8,2 millj.
3ja herbergja
HÓLAR MEÐ BÍLSKÚR Vorum að
fá í einkasölu mjög góða 3ja herb. íb. í
lyftuhúsi sem nýlega er búið að klæða að
utan. Sameign nýl. máluð og teppalögð að
innan. Útsýni. Góður bílskúr.
Haukur Geir Magnea Albert
Einbýli-parhús-raðhús
GARÐABÆR - RAÐHÚS Vorum að
fá í einkasölu fallegt raðhús á 2 hæðum m.
innb. bílskúr. Stofa, 4 svefnherb., sjón-
varpshol og 2 endurn. baðherbergi. Suð-
urgarður. Áhv. um 3,5 millj. Verð 19,2 millj.
ÁLFTANES - EINBÝLI/TVÍBÝLI
Vorum að fá í einkasölu einbýli á einni hæð
ásamt bílskúr, samtals um 250 fm. Húsið
skiptist m.a. í stofur, sólskála, 3 herbergi,
sjónvarpsherbergi og baðherbergi. Einnig
er búið að útbúa sér 2ja herbergja íbúð.
Áhv. sala, skipti athugandi.
VOGAHVERFI
Vorum að fá í einkasölu mjög gott raðhús á
2 hæðum ásamt bílskúr. Stofa, borðstofa,
nýlegt eldhús, 4 svefnherbergi. Hús og þak
nýlega yfirfarið og málað. Áhv. hagstæð
langtímalán. Verð 16,9 millj.
GARÐABÆR - FLATIR Mjög gott
einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr og
góðum herbergjum þar inn af sem henta
t.d. sem vinnuaðstaða. Stutt í skóla og
þjónustu. Rólegur staður. Ákveðin sala.
Atvinnuhúsnæði
FAXAFEN Vorum að fá í sölu um 500
fm verslunarhúsnæði á jarðhæð og um
1.400 fm iðnaðarhúsnæði á 2. hæð með
vörulyftu, á þessum vinsæla stað. Góð
staðsetning og góð bílastæði. Möguleiki að
selja í minni einingum. Nánari uppl. gefur
Haukur Geir.
HAFNARFJÖRÐUR - NÝTT Vor-
um að fá í einkasölu atvinnuhúsnæði á
jarðhæð með innkeyrsludyrum. Skiptist í 4
einingar, hver um 165 fm. Afhendist fljót-
lega rúmlega tilbúið undir tréverk eða sam-
kvæmt samkomulagi. Teikningar og nánari
uppl. á skrifstofu.
SUÐURLANDSBRAUT Vorum að
fá í sölu gott 160 fm verslunarhúsnæði á
jarðhæð með góðum gluggafronti. Endur-
nýjað rafmagn, nýlegur gólfdúkur, nýlegt
þak. Áhv. um 10 millj. langtímalán. Ásett
verð 17,5 millj.
Farsæl
fasteignaviðskipti
= þekking og
reynsla
Hafðu öryggi
og reynslu í
fyrirrúmi
þegar þú
kaupir eða
selur fasteign
Lægri vextir létta
fasteignakaup
Skiptið við
fagmann