Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 47

Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 47
 SAMÞYKKI MAKA – Samþykki maka þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan býr í eigninni.  GALLAR – Ef leyndir gallar á eigninni koma í ljós eftir afhend- ingu, ber að tilkynna seljanda slíkt strax. Að öðrum kosti getur kaup- andi fyrirgert hugsanlegum bóta- rétti sakir tómlætis. GJALDTAKA  ÞINGLÝSING – Þinglýsingargjald hvers þinglýsts skjals er nú 1.200 kr.  STIMPILGJALD – Það greiðir kaupandi af kaupsamningum og af- sölum um leið og þau eru lögð inn til þinglýsingar. Ef kaupsamningi er þinglýst, þarf ekki að greiða stimp- ilgjald af afsalinu. Stimpilgjald kaupsamnings eða afsals er 0,4% af fasteignamati húss og lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri milljón.  SKULDABRÉF – Stimpilgjald skuldabréfa er 1,5% af höfuðstóli (heildarupphæð) bréfanna eða 1.500 kr. af hverjum 100.000 kr. Kaupandi greiðir þinglýsingar- og stimpilgjald útgefinna skuldabréfa vegna kaupanna, en seljandi lætur þinglýsa bréfunum.  STIMPILSEKTIR – Stimpilskyld skjöl, sem ekki eru stimpluð innan 2ja mánaða frá útgáfudegi, fá á sig stimpilsekt. Hún er 10% af stimp- ilgjaldi fyrir hverja byrjaða viku. Sektin fer þó aldrei yfir 50%.  SKIPULAGSGJALD – Skipulags- gjald er greitt af nýreistum húsum. Af hverri byggingu, sem reist er, skal greiða 3‰ (þrjú pro mille) í eitt sinn af brunabótavirðingu hverrar húseignar. Nýbygging telst hvert nýreist hús, sem virt er til brunabóta svo og viðbyggingar við eldri hús, ef virðingarverð hinnar nýju viðbyggingar nemur 1/5 af verði eldra hússins. Þetta á einnig við um endurbætur, sem hækka brunabótavirðingu um 1/5. HÚSBYGGJENDUR  LÓÐAUMSÓKN – Eftir birtingu auglýsingar um ný byggingarsvæði geta væntanlegir umsækjendur kynnt sér þau hverfi og lóðir sem til úthlutunar eru á hverjum tíma hjá byggingaryfirvöldum í viðkom- andi bæjar- eða sveitarfélögum – í Reykjavík á skrifstofu borgarverk- fræðings, Skúlatúni 2. Skilmálar eru þar afhentir gegn gjaldi, ef til- búnir eru. Umsækjendur skulu fylla út nákvæmlega þar til gert eyðu- blað og senda aftur til viðkomandi skrifstofu. Í stöku tilfelli þarf í um- sókn að gera tillögu að húshönnuði en slíkra sérupplýsinga er þá getið í skipulagsskilmálum og á umsókn- areyðublöðum.  LÓÐAÚTHLUTUN – Þeim sem út- hlutað er lóð, fá um það skriflega tilkynningu, úthlutunarbréf og þar er þeim gefinn kostur á að stað- festa úthlutunina innan tilskilins tíma, sem venjulega er um 1 mán- uður. Þar koma einnig fram upplýs- ingar um upphæðir gjalda o.fl. Skilyrði þess að lóðaúthlutun taki gildi eru að áætluð gatnagerð- argjöld o.fl. séu greidd á réttum tíma. Við staðfestingu lóðaúthlut- unar fá lóðarhafar afhent nauðsyn- leg gögn, svo sem mæliblað í tví- riti, svo og hæðarblað í tvíriti og skal annað þeirra fylgja leyf- isumsókn til byggingarnefndar, auk frekari gagna ef því er að skipta.  GJÖLD – Gatnagerðargjöld eru mismunandi eftir bæjar- og sveit- arfélögum. Upplýsingar um gatna- gerðargjöld í Reykjavík má fá hjá borgarverkfræðingi en annars staðar hjá byggingarfulltrúa. Að auki koma til heimæðargjöld. Þessi gjöld ber að greiða þannig: 1/10 innan mánaðar frá úthlutun, síðan 30% sex mánuðum eftir úthlutun, 30% tólf mánuðum eftir úthlutun og loks 30% átján mánuðum eftir úthlutun.  FRAMKVÆMDIR – Áður en unnt er að hefjast handa um fram- kvæmdir þarf framkvæmdaleyfi. Í því felst byggingaleyfi og til að fá það þurfa bygginganefndarteikn- ingar að vera samþykktar og stimplaðar og eftirstöðvar gatna- gerðargjalds og önnur gjöld að vera greidd. Einnig þarf að liggja fyrir bréf um lóðarafhendingu, sem kemur þegar byggingarleyfi er fengið og nauð- synlegum framkvæmdum sveit- arfélags er lokið, svo sem gatna- og holræsaframkvæmdum. Í þriðja lagi þarf að liggja fyrir staðsetningarmæling bygginga á lóð en þá þarf einnig bygging- arleyfi að liggja fyrir, lóðarafhend- ing að hafa farið fram og meistarar að hafa skrifað upp á teikningar hjá byggingarfulltrúa. Fylla þarf út umsókn um vinnuheimtaugarleyfi til rafmagnsveitu og með þeirri umsókn þarf að fylgja bygging- arleyfi, afstöðumynd sem fylgir byggingarnefndarteikningu og um- sókn um raforku með undirskrift rafverktaka og húsbyggjanda. Umsækjanda er tilkynnt hvort hann uppfyllir skilyrði rafmagns- veitu og staðfestir þá leyfið með því að greiða heimtaugargjald. Fljótlega þarf að leggja fram sökklateikningar hjá byggingarfull- trúa og fá þær stimplaðar en að því búnu geta framkvæmdir við sökkla hafist. Þá þarf úttektir á ýmsum stigum framkvæmda og sjá meist- arar um að fá byggingafulltrúa til að framkvæma þær.  FOKHELT – Fokheldisvottorð, skilmálavottorð og lóðasamningur eru mikilvæg plögg fyrir húsbyggj- endur og t.a.m. er fyrsta útborgun húsnæðislána bundin því að fok- heldisvottorð liggi fyrir. Byggingarfulltrúar gefa út fokheld- isvottorð og skilmálavottorð og til að þau fáist þarf hús að vera fok- helt, lóðarúttekt að hafa farið fram og öll gjöld, sem þá eru gjaldfallin að hafa verið greidd. Skrifstofur bæja- og sveitarfélaga (í Reykjavík skrifstofa borgarstjóra) gera lóð- arsamning við lóðarleigjanda að uppfylltum ýmsum skilyrðum, sem geta verið breytileg eftir tíma og aðstæðum. Þegar lóðarsamningi hefur verið þinglýst, getur lóð- arhafi veðsett mannvirki á lóðinni. HÚSBRÉF  HÚSBRÉFALÁN – Lán innan hús- bréfakerfisins eru svokölluð hús- bréfalán. Þau eru veitt til kaupa á notuðum íbúðum, til nýbygginga einstaklinga, nýbygginga bygging- araðila og til endurbóta á eldra húsnæði. Annars vegar er um að ræða fasteignaveðbréf, sem gefin eru út af íbúðarkaupanda, hús- byggjanda eða íbúðareiganda, og eru þau skuldaviðurkenningar þessara aðila. Húsbréfin sjálf koma kaupanda ekki beint við. Seljendur aftur á móti eignast húsbréf með því að selja Íbúðalánasjóði fast- eignaveðbréfin. Þar með losna seljendur við að inn- heimta afborganir af fast- eignaveðbréfunum og geta notað húsbréfin á þann hátt, sem þeir kjósa; ýmist með því að selja þau á verðbréfamarkaði, eiga þau sem sparnað eða nota húsbréfin til að greiða með annaðhvort við kaup, eða upp í skuldir sínar. Hér að neð- an er birt dæmi um þann feril, sem á sér stað við kaup á notaðri íbúð. Frekari upplýsingar ásamt al- mennri fjármálaráðgjöf í tengslum við lánveitinguna veita bankar og sparisjóðir.  KAUP Á NOTAÐRI ÍBÚÐ  Frumskilyrði fyrir húsbréfaláni, er að umsækjandi verður að sækja um skriflegt mat á greiðslugetu sinni hjá banka eða sparisjóði.  Þegar mat þetta er fengið, gildir það í sex mánuði.  Umsækjandi skoðar sig um á fasteignamarkaðnum í leit að notaðri íbúð.  Þegar hann hefur í höndum sam- þykkt kauptilboð, kemur hann því til Íbúðalánasjóðs ásamt greiðslumatskýrslu og öðrum fylgigögnum  Meti stofnunin kauptilboðið lánshæft, fær íbúðarkaupandinn afhent fasteignaveðbréfið til undirritunar og hann getur gert kaupsamning.  Fasteignaveðbréfið er síðan af- hent seljanda eftir undirskrift.  Því næst lætur kaupandi þing- lýsa kaupsamningi og kemur af- riti til seljanda.  Seljandi lætur þinglýsa fast- eignaveðbréfinu, útgefnu af kaupandanum, sem Íbúðal- ánasjóður síðan kaupir og greið- ir fyrir með húsbréfum. Af- greiðsla þeirra fer fram hjá Íbúðalánasjóði.  Stofnunin sér um innheimtu af- borgana af fasteignaveðbréfinu.  LÁNSKJÖR – Fasteignaveðbréfið er verðtryggt. Lánstími er 25 eða 40 ár og ársvextir eru nú 5,1%. Þeir eru fastir og breytast því ekki á lánstímanum. Gjalddagar á nýj- um fasteignaveðbréfum eru nú mánaðarlega eða ársfjórðungslega og afborganir hefjast á 3ja reglu- lega gjalddaga frá útgáfu bréfsins, sé um mánaðarlega gjalddaga að ræða og öðrum reglulega gjald- daga sé um ársfjórðungslega gjalddaga að ræða. Á allar greiðslur, bæði vexti og af- borganir, eru jafnan reiknaðar verðbætur í samræmi við neyzlu- vísitölu. Lántökugjald er 1%. Mán- aðarleg greiðslubyrði af 1 millj. króna láni til 25 ára er í dag 5.924 kr.  ÖNNUR LÁN – Íbúðalánasjóður veitir einnig fyrirgreiðslu vegna byggingar leiguíbúða eða heimila fyrir aldraða, meiriháttar end- urnýjunar og endurbóta eða við- bygginga við eldra íbúðarhúsnæði. Margir lífeyrissjóðir veita einnig lán til félaga sinna vegna húsnæð- iskaupa, svo að rétt er fyrir hvern og einn að kanna rétt sinn þar. Möguleikar á lánum til kaupa á íbúðarhúsnæði kunna einnig að vera fyrir hendi hjá bönkum og sparisjóðum. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 C 47HeimiliFasteignir mbl.is/fasteignir/fi habil.is/fi VESTURBÆRINN - LAUS Vorum að fá í einkasölu mjög góða 3ja herb. íb. á 2. hæð í fjórbýli (sambyggð hús). Glugar og gler nýlegt. Endurnýjað rafmagn. Stór sérgeymsla m. gluggum í kj. Laus fljótlega. Verð 8,2 millj. GRAFARVOGUR - VÖNDUÐ Vorum að fá sérstaklega fallega og rúm- góða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð ásamt stæði í bílskýli í litlu fjölbýli. Stór og rúmgóð stofa. Fallegt parket á gólfum og vandaðar innréttingar. Sérgarður. Áhv. 6,7 millj. í hús- bréfum. LAUS FLJÓTLEGA. 4-6 herbergja KLEPPSVEGUR - AUKAHERB. Vorum að fá í sölu góða 4ra herb. íb. á 4. hæð í fjölbýli. Suðursvalir, fallegt útsýni. Gluggar og gler endurnýjað. Aukaherbergi m. sam. snyrtingiu í risi. Áhvíl. eru hagstæð langtímalán tæpar 5 millj. Verð 9,9 millj. NÝ SÉRHÆÐ Í KÓPAVOGI Vorum að fá í sölu glæsilega 4ra herb. neðri sér- hæð í nýju fjórbýli í Salahverfi. Vandaðar mahóní-innréttingar, flísar og parket. Suð- urverönd. Áhv. 6,3 millj. húsbréf m. 5,1% vöxtum. Verð 14,5 millj. HÓLAR M. BÍLSKÚR - SKIPTI Á 3JA Vorum að fá í einkasölu mjög góða og bjarta 5 herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli. Stofa með hurð út í sérsuður-garð. 4 góð herbergi. Góður bílskúr. Áhv. um 5,2 millj. byggsj. og húsbréf. BEIN SALA EÐA SKIPTI Á 3-4RA HERBERGJA Í HÓLUN- UM. Hæðir VIÐ AUÐARSTRÆTI Vorum að fá í sölu mjög góða 5 herbergja 130 fm hæð í góðu steinhúsi. Stofa og borðstofa, 3 svefnherbergi. Endurnýjað gler, nýl. þak. Verð 13,5 millj. OPIÐ 9-18 Þjónustuíbúðir FYRIR ELDRI BORGARA Vorum að fá í einkasölu fallega 73 fm 2ja herb. íb. á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi á Seltjarnarnesi. Mjög góð sameign, stutt í alla þjónustu. Íbúðin er fyrir 60 ára og eldri. Nánari uppl. á skrifstofu. 2ja herbergja GULLENGI - GRAFARVOGI Vor- um að fá í einkasölu nýlega 2ja herb. íbúð á þessum eftirsótta stað. Eignin er um 66 fm og skiptist í góða stofu m. suðvestur- svölum. Eldhús m. fallegum innréttingum. Rúmgott svefnh. m. skápum. Baðh. m. baðkari, flísalagt. Þvottahús er í íbúðinni. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. Verð 8,7 millj. KÓPARVOGUR Vorum að fá í sölu 2- 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinn- gangi í góðu þríbýli. Áhvílandi um 4,7 millj. húsbréf með 5,1% vöxtum. Verð 8,2 millj. 3ja herbergja HÓLAR MEÐ BÍLSKÚR Vorum að fá í einkasölu mjög góða 3ja herb. íb. í lyftuhúsi sem nýlega er búið að klæða að utan. Sameign nýl. máluð og teppalögð að innan. Útsýni. Góður bílskúr. Haukur Geir Magnea Albert Einbýli-parhús-raðhús GARÐABÆR - RAÐHÚS Vorum að fá í einkasölu fallegt raðhús á 2 hæðum m. innb. bílskúr. Stofa, 4 svefnherb., sjón- varpshol og 2 endurn. baðherbergi. Suð- urgarður. Áhv. um 3,5 millj. Verð 19,2 millj. ÁLFTANES - EINBÝLI/TVÍBÝLI Vorum að fá í einkasölu einbýli á einni hæð ásamt bílskúr, samtals um 250 fm. Húsið skiptist m.a. í stofur, sólskála, 3 herbergi, sjónvarpsherbergi og baðherbergi. Einnig er búið að útbúa sér 2ja herbergja íbúð. Áhv. sala, skipti athugandi. VOGAHVERFI Vorum að fá í einkasölu mjög gott raðhús á 2 hæðum ásamt bílskúr. Stofa, borðstofa, nýlegt eldhús, 4 svefnherbergi. Hús og þak nýlega yfirfarið og málað. Áhv. hagstæð langtímalán. Verð 16,9 millj. GARÐABÆR - FLATIR Mjög gott einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr og góðum herbergjum þar inn af sem henta t.d. sem vinnuaðstaða. Stutt í skóla og þjónustu. Rólegur staður. Ákveðin sala. Atvinnuhúsnæði FAXAFEN Vorum að fá í sölu um 500 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð og um 1.400 fm iðnaðarhúsnæði á 2. hæð með vörulyftu, á þessum vinsæla stað. Góð staðsetning og góð bílastæði. Möguleiki að selja í minni einingum. Nánari uppl. gefur Haukur Geir. HAFNARFJÖRÐUR - NÝTT Vor- um að fá í einkasölu atvinnuhúsnæði á jarðhæð með innkeyrsludyrum. Skiptist í 4 einingar, hver um 165 fm. Afhendist fljót- lega rúmlega tilbúið undir tréverk eða sam- kvæmt samkomulagi. Teikningar og nánari uppl. á skrifstofu. SUÐURLANDSBRAUT Vorum að fá í sölu gott 160 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð með góðum gluggafronti. Endur- nýjað rafmagn, nýlegur gólfdúkur, nýlegt þak. Áhv. um 10 millj. langtímalán. Ásett verð 17,5 millj. Farsæl fasteignaviðskipti = þekking og reynsla Hafðu öryggi og reynslu í fyrirrúmi þegar þú kaupir eða selur fasteign Lægri vextir létta fasteignakaup Skiptið við fagmann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.