Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 46
46 C ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Einbýli
STIGAHLÍÐ
Eitt af glæsilegri húsum borgarinnar er nú
til sölu og laust til ábúðar. Húsið er u.þ.b.
300 fm, m.a. með flísalagðri sólverönd og
sundlaug, tvöf. bílskúr og afar vönduðum
innréttingum og gólfefnum. Teikn. og
myndir á skrifstofu.
Rað- og parhús
HRÍSRIMI
Nýtt í sölu, vandað 180 fm parhús á 2
hæðum með innb. bílsk. Mögul. á 4 svh. á
e.h., svalir úr hjónaherb. Vandaðar innrétt-
ingar, innfelld halogen-lýsing á báðum
hæðum. Bráðab. gólfefni. Áhv. góð lán
samt. 9,2 millj.
VÍKURBAKKI - lækkað verð
Gott u.þ.b. 275 fm raðhús á þessum eftir-
sótta stað. Húsið er Steni-klætt, mikið end-
urnýjað utan sem innan. Möguleiki á allt að
8 svh., 2 stofum, 2 baðherb. o.fl. Áhv. 7,5
millj. hagst. lán.
4ra til 7 herb.
ÆSUFELL 4-5 herb.
Mjög góð 105 fm endaíbúð með sólríkum
svölum á 4. hæð í góðu lyftuhúsi. Nýleg
eldhúsinnrétting og góð gólfefni. Glæsilegt
útsýni. Ákveðin sala. Áhv. 3,4 millj.
3ja herb.
DALSEL - TVÍBÝLI
Nýkomin í sölu 78 fm ósamþykkt íbúð í kj.
með sérinngangi í góðu raðhúsi á þessum
rólega stað. Nýtt eldhús, nýtt baðherb., ný-
leg gólfefni að hluta til. Verð aðeins 7,6
millj. Ath. ýmis skipti t.d. í nágr. Rvíkur.
HÁALEITISHVERFI
Nýkomin í ákveðna sölu björt, falleg og
talsvert mikið endurnýjuð 94 fm endaíbúð á
2. hæð. M.a. nýl. eldh.innr. hvít/beyki,
AEG tæki, flísal. milli skápa. Tvö stór svh.,
mikið skápapláss. Stórt baðherb. flísal. í
hólf og gólf t.f. þvottavél. Bjartar stórar
samliggjandi stofur, með útsýni m.a. yfir
Sundin til Esjunnar. Nýl. flísar á holi og
eldh., nýl. parket á gangi, svh. og stofum.
Góðar suð-vestursvalir. Góð lóð með leik-
tækjum. Hús utan nýl. viðg. og málað. Verð
11,3 millj. Áhv. 5,1 millj. EKKI MISSA AF
ÞESSARI!
ÞANGBAKKI - MJÓDD
Nýkomin í einkasölu 83 fm íbúð í þessu eft-
irsótta húsi. Íbúðin snýr í suður og er með
stórum svölum. Opin og falleg íbúð með
parketi á gólfum. Hús og sameign í góðu
ástandi og hér er stutt í alla hugsanlega
þjónustu. Verð 10,5 millj. Afh. fljótlega.
FRAMTIÐIN
SÍÐUMÚLA 8 – 108 REYKJAVÍK
Sími 525 8800
Fax 525 8801
Gsm 897 3030
Þorsteinn Eggertsson hdl.,
og lögg. fasteignasali
Óli Antonsson
sölustjóri.
netfang:framtidin@simnet.is www.mbl.is/fasteignir/framtidin/
Landið
ESKIFJÖRÐUR
Nýkomið í sölu u.þ.b. 70 fm forskalað ein-
býlishús á 2 hæðum með steyptum kjall-
ara. Húsið stendur við Strandgötuna með
ágætu útsýni til sjávar. Á neðri hæð er m.a.
hol, baðherbergi, eldhús með nýl. góðri
innréttingu og stór stofa með parketi. Á efri
hæð eru m.a. 2 svh. og geymsla. Í kjallara
er þvottahús o.fl. með útg. á lóðina. Áhvíl-
andi húsbr. 1,3 millj. með 5% vöxtum.
TILBOÐ ÓSKAST/ATH. ÝMIS SKIPTI.
2ja herb.
BLIKAHÓLAR
Ertu að leita að íbúð með út-
sýni? Nýkomin í einkasölu 60 fm íbúð á
efstu (7.) hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er talsv.
endurnýjuð, m.a. nýl. innr. að hluta, gólfefni
o.fl. Feykilega gott útsýni yfir Sundin og
Flóann. Áhv. 3,4 millj.
Í smíðum
JÖRFAGRUND - Raðhús
Nýtt, rúmlega fokhelt 176 fm endahús á
einni hæð. Búið er m.a. að leggja í gólf,
reisa milliveggi, einangra þak og klæða.
Áhv. húsbr. til 40 ára kr. 7,8 millj. Til afh.
strax - teikn. á skrifstofu.
VANTAR * VANTAR
FYRIR ÁKVEÐNA KAUPENDUR OG/EÐA Í SKIPTUM
HAFIÐ SAMBAND STRAX
* Í VOGUM - HEIMUM - raðh. eða hæð
* Í BÖKKUM - einbýlis- eða raðhús
* Í SELJAHVERFI - einbýlis- eða raðhús
* Í GRAFARVOGI - raðhús og einbýlishús
* Í HRAUNBÆ - 2ja herb. einstaklingsíbúð
* Í MOSFELLSBÆ - 4ra-5 herb. íbúð í skiptum fyrir 170 fm
nýl. raðhús
* SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI - 100-150 FM ÓSKAST Í
MIÐBORGINNI FYRIR MARKAÐSMENN
HÁALEITISHVERFI
Nýkomin í ákveðna sölu björt, falleg
og talsvert mikið endurnýjuð 94 fm
endaíbúð á 2. hæð. M.a. nýl. eldhús-
innr. hvít/beyki, AEG-tæki, flísal. milli
skápa. Tvö stór svefnh., mikið skápa-
pláss. Stórt baðherb. flísal. í hólf og
gólf og t.f. þvottavél. Bjartar, stórar
samliggjandi stofur, með útsýni m.a. yfir Sundin til Esjunnar. Nýl. flísar á
holi og eldh., nýl. parket á gangi, svh. og stofum. Góðar suðvestursvalir.
Góð lóð með leiktækjum. Hús að utan nýl. viðg. og málað. Verð 11,3 millj.
Áhv. 5,1 millj. EKKI MISSA AF ÞESSARI!
SELJENDUR
SÖLUSAMNINGUR – Áður en
fasteignasala er heimilt að bjóða
eign til sölu, ber honum að ganga
frá sölusamningi við eiganda henn-
ar um þjónustu fasteignasala á þar
til gerðu samningseyðublaði. Eig-
andi eignar og fasteignasali stað-
festa ákvæði sölusamningsins með
undirritun sinni. Allar breytingar á
sölusamningi skulu vera skriflegar.
Í sölusamningi skal eftirfarandi
koma fram:
TILHÖGUN SÖLU – Koma skal
fram, hvort eignin er í einkasölu
eða almennri sölu, svo og hver
söluþóknun er. Sé eign sett í einka-
sölu, skuldbindur eigandi eign-
arinnar sig til þess að bjóða eign-
ina aðeins til sölu hjá einum
fasteignasala og á hann rétt til um-
saminnar söluþóknunar úr hendi
seljanda, jafnvel þótt eignin sé seld
annars staðar. Einkasala á einnig
við, þegar eignin er boðin fram í
makaskiptum. – Sé eign í almennri
sölu má bjóða hana til sölu hjá
fleiri fasteignasölum en einum.
Söluþóknun greiðist þeim fast-
eignasala, sem selur eignina.
AUGLÝSINGAR – Aðilar skulu
semja um, hvort og hvernig eign sé
auglýst, þ. e. á venjulegan hátt í
eindálki eða með sérauglýsingu.
Auglýsingakostnaður skal síðan
greiddur mánaðarlega samkv.
gjaldskrá dagblaðs. Öll þjónusta
fasteignasala þ. m. t. auglýsingar
er virðisaukaskattskyld.
GILDISTÍMI – Sölusamningurinn
er uppsegjanlegur af beggja hálfu
með fyrirvara (hámark 30 dagar)
og gera þarf það skriflega. Ef
einkasölusamningi er breytt í al-
mennan sölusamning þarf einnig
að gera það með skriflegum hætti.
Sömu reglur gilda þar um uppsögn.
ÖFLUN GAGNA/SÖLUYFIRLIT –
Áður en eignin er boðin til sölu,
verður að útbúa söluyfirlit yfir
hana. Seljandi skal leggja fram
upplýsingar um eignina, en í mörg-
um tilvikum getur fasteignasali
veitt aðstoð við útvegun þeirra
skjala sem nauðsynleg eru. Fyrir
þá þjónustu þarf að greiða, auk
beins útlagðs kostnaðar fast-
eignasalans við útvegun skjalanna.
Í þessum tilgangi þarf eftirfarandi
skjöl:
VEÐBÓKARVOTTORÐ – Þau
kosta nú 900 kr. og fást hjá sýslu-
mannsembættum. Opnunartíminn
er yfirleitt milli kl. 10.00 og 15.00.
Á veðbókarvottorði sést hvaða
skuldir (veðbönd) hvíla á eigninni
og hvaða þinglýstar kvaðir eru á
henni.
GREIÐSLUR – Hér er átt við
kvittanir allra áhvílandi lána, jafnt
þeirra sem eiga að fylgja eigninni
og þeirra, sem á að aflýsa.
FASTEIGNAMAT – Hér er um að
ræða matsseðil, sem Fasteignamat
ríkisins sendir öllum fasteignaeig-
endum í upphafi árs og menn nota
m.a. við gerð skattframtals. Fast-
eignamat ríkisins er til húsa að
Borgartúni 21, Reykjavík sími
5155300.
FASTEIGNAGJÖLD – Sveit-
arfélög eða gjaldheimtur senda
seðil með álagningu fasteigna-
gjalda í upphafi árs og er hann yf-
irleitt jafnframt greiðsluseðill fyrir
fyrsta gjalddaga fasteignagjalda ár
hvert. Kvittanir þarf vegna
greiðslu fasteignagjaldanna.
BRUNABÓTAMATSVOTTORÐ –
Vottorðin fást hjá því trygginga-
félagi, sem eignin er brunatryggð
hjá. Vottorðin eru ókeypis. Einnig
þarf kvittanir um greiðslu bruna-
iðgjalda. Ef fá þarf nýtt brunabóta-
mat á fasteign, þarf að snúa sér til
Fasteignamats ríksins og biðja um
nýtt brunabótamat.
HÚSSJÓÐUR – Hér er um að
ræða yfirlit yfir stöðu hússjóðs og
yfirlýsingu húsfélags um væntan-
legar eða yfirstandandi fram-
kvæmdir. Formaður eða gjaldkeri
húsfélagsins þarf að útfylla sér-
stakt eyðublað Félags fasteigna-
sala í þessu skyni.
AFSAL – Afsal fyrir eign þarf að
liggja fyrir. Ef afsalið er glatað, er
hægt að fá ljósrit af því hjá við-
komandi sýslumannsembætti og
kostar það nú kr. 100. Afsalið er
nauðsynlegt, því að það er eign-
arheimildin fyrir fasteigninni og
þar kemur fram lýsing á henni.
KAUPSAMNINGUR – Ef lagt er
fram ljósrit afsals, er ekki nauð-
synlegt að leggja fram ljósrit kaup-
samnings. Það er því aðeins nauð-
synlegt í þeim tilvikum, að ekki hafi
fengist afsal frá fyrri eiganda eða
því ekki enn verið þinglýst.
EIGNASKIPTASAMNINGUR –
Eignaskiptasamningur er nauðsyn-
legur, því að í honum eiga að koma
fram eignarhlutdeild í húsi og lóð
og hvernig afnotum af sameign og
lóð er háttað.
UMBOÐ – Ef eigandi annast ekki
sjálfur sölu eignarinnar, þarf um-
boðsmaður að leggja fram umboð,
þar sem eigandi veitir honum um-
boð til þess fyrir sína hönd að und-
irrita öll skjöl vegna sölu eign-
arinnar.
YFIRLÝSINGAR – Ef sérstakar
kvaðir eru á eigninni s. s. forkaups-
réttur, umferðarréttur, viðbygging-
arréttur o. fl. þarf að leggja fram
skjöl þar að lútandi. Ljósrit af slík-
um skjölum fást yfirleitt hjá við-
komandi fógetaembætti.
TEIKNINGAR – Leggja þarf fram
samþykktar teikningar af eigninni.
Hér er um að ræða svokallaðar
byggingarnefndarteikningar. Vanti
þær má fá ljósrit af þeim hjá bygg-
ingarfulltrúa.
KAUPENDUR
ÞINGLÝSING – Nauðsynlegt er að
þinglýsa kaupsamningi strax hjá
viðkomandi sýslumannsembætti.
Það er mikilvægt öryggisatriði. Á
kaupsamninga v/eigna í Hafn-
arfirði þarf áritun bæjaryfirvalda
áður en þeim er þinglýst.
GREIÐSLUSTAÐUR KAUPVERÐS
– Algengast er að kaupandi greiði
afborganir skv. kaupsamningi inn á
bankareikning seljanda og skal
hann tilgreindur í söluumboði.
GREIÐSLUR – Inna skal allar
greiðslur af hendi á gjalddaga.
Seljanda er heimilt að reikna drátt-
arvexti strax frá gjalddaga. Hér
gildir ekki 15 daga greiðslufrestur.
LÁNAYFIRTAKA – Tilkynna ber
lánveitendum um yfirtöku lána.
LÁNTÖKUR – Skynsamlegt er að
gefa sér góðan tíma fyrir lántökur.
Það getur verið tímafrekt að afla
tilskilinna gagna s. s. veðbók-
arvottorðs, brunabótsmats og
veðleyfa.
AFSAL – Ef skjöl, sem þinglýsa á,
hafa verið undirrituð samkvæmt
umboði, verður umboðið einnig að
fylgja með til þinglýsingar. Ef eign
er háð ákvæðum laga um bygging-
arsamvinnufélög, þarf áritun bygg-
ingarsamvinnufélagsins á afsal
fyrir þinglýsingu þess og víða utan
Reykjavíkur þarf áritun bæjar/
sveitarfélags einnig á afsal fyrir
þinglýsingu þess.
MINNISBLAÐ
Byggingaframkvæmdir standa nú
sem hæst við ExCel-ráðstefnuhöll-
ina í London, sem á að verða stærsta
ráðstefnu- og sýningarhöll Bret-
lands.
Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir
90.000 ferm. húsnæði, en ætlunin er
að höllin verði alls 270.000 ferm.,
þegar upp er staðið. Byggingin
stendur í miðju gamla hafnarhverf-
isins Docklands við hina sögufrægu
bryggju Victoria Dock og þar með
skammt frá Canary Wharf.
Hugmyndina að þessari byggingu
á Iain Shearer, sem græddi stórfé á
því að koma upp verzlunarmiðstöð í
Berlín, eftir að múrinn hrundi.
Shearer styðst þar að auki við ýmsa
alþjóðlega fjárfesta, þar á meðal í
Malasíu. ExCel-byggingin er hönn-
uð af Moxley-arkitektum.
(Heimild: Börsen)
Ráð-
stefnuhöll
ExCel í
London
ExCel-ráðstefnuhöllin í London á að
verða stærsta ráðstefnu- og sýning-
arhöll Bretlands. Í fyrsta áfanga er
gert ráð fyrir 90.000 ferm. húsnæði,
en ætlunin er að höllin verði alls
270.000 ferm., þegar upp er staðið.
Fagleg vinna fyrir þína
framtíð