Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 40
40 C ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Bragi Björnsson
lögmaður
Börkur Hrafnsson
lögmaður
Magnús Ingi
Erlingsson
lögmaður
Sveinn
Guðmundsson
lögmaður – lögg.
fasteignasali
EINBÝLISHÚS
ARNARNES - GLÆSILEGT Einstök
eign fyrir fjársterka fagurkera. Höfum í
einkasölu eitt glæsilegasta einbýlishús-
ið í Arnarnesinu. Húsið er 420 fm, þar
af u.þ.b. 70 fm tvöfaldur bílskúr. Húsið
hefur allt verið endurgert á vandaðast-
an hátt. Gegnheilt dökkt parket eða
vandaðar ítalskar flísar á gólfum. Sér-
smíðaðar innréttingar í eldhúsi og
baði. Jafnframt hefur öll lýsing verið
sérhönnuð. Á neðri hæð er falleg
tveggja herbergja íbúð með Alno-eld-
húsi. Stórar suðursvalir og mjög stór
sólverönd. Nánari uppl. veitir Bragi.
KALDASEL - FALLEGT Glæsilegt 285
fm einbýli, auk 34 fm bílskúrs með
tveimur íbúðum. Á aðalhæð eru fjögur
svefnherbergi, öll parketlögð. Eldhús
með vandaðri eikarinnréttingu. Sam-
liggjandi stofa og borðstofa. Baðher-
bergi og gestasnyrting eru flísalögð í
hólf og gólf. Á neðri hæð er falleg og
rúmgóð 3ja herbergja íbúð. Fallegur
garður með nuddpotti. Bílskúr býður
upp á ýmsa möguleika.
RAÐHÚS
GRAFARHOLT HÖFUM Í EINKASÖLU
ÚRVAL TVEGGJA HÆÐA RAÐHÚSA Í
GRAFARHOLTI. HÚSIN ERU UM 200
FM MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR.
HÚSUNUM VERÐUR SKILAÐ FULL-
FRÁGENGNUM AÐ UTAN EN FOK-
HELDUM AÐ INNAN. GRÓFJÖFNUÐ
LÓÐ. NÁNARI UPPL. OG TEIKNINGAR
Á SKRIFSTOFU.
4-5 HERBERGJA
STANGARHOLT Skemmtileg efri sér-
hæð og ris með tveimur stofum og
möguleika á 4 svefnherbergjum. Á að-
alhæð eru bjartar stofur með parketi,
baðherbergi flíslagt í hólf og gólf, eld-
hús með snyrtilegri eldri innréttingu
og parketlagt hjónaherbergi með góð-
um skápum. Á efri hæð eru þrjú svefn-
herbergi sem eru undir súð, öll með
góðum gluggum. Að auki er gengið út
á góðar suðursvalir úr einu herberg-
inu. Stór og góður bílskúr með raf-
magni, heitu og köldu vatni. Verð 13,8
millj.
Fagleg þjónusta lögmanna tryggir örugg viðskipti
FASTEIGNASALA
FAXAFENI 5
SÍMI 533 1080 FAX 533 1085
VANTAR
EINSTAKLINGSÍBÚÐ Íbúð á verðbilinu 5-8 millj.
SELTJARNARNES Sérbýli á verðbilinu 24–30 millj.
ÁRBÆR Raðhús, parhús eða einbýli í Ártúnsholti.
VESTURBÆR Sérbýli á verðbilinu 14–30 millj.
FOSSVOGUR Einbýlis- og/eða raðhús. BAKKASTAÐIR - GRAFARVOGI
Glæsileg 125 fm íbúð með sérinngangi
á efri hæð í litlu fjölbýli á góðum út-
sýnisstað. Gegnheilt dökkt parket á öll-
um gólfum nema eldhúsi og baði sem
er flísalagt. Eldhúsinnrétting vel hönn-
uð og falleg. Þrjú stór og björt svefn-
herbergi auk eins lítils herbergis sem
hægt væri að nota sem barnaherbergi.
Góður bílskúr með geymslulofti. Verð
15,6 millj.
KAPLASKJÓLSVEGUR - VESTUR-
BÆR Góð 4ra herbergja íbúð á besta
stað í Vesturbænum. Gagngerar end-
urbætur utanhúss eru langt á veg
komnar. Íbúðin er vel skipulögð. Stofa,
borðstofa, sjónvarpshol og 3 svefnher-
bergi. Gott útsýni. Góðar svalir beggja
vegna húss. Sameign er mjög snyrti-
leg. Þvottahús á hæðinni. Verð 12,9
millj.
3JA HERBERGJA
FLYÐRUGRANDI - VESTURBÆR
Falleg og vel skipulögð íbúð á annarri
hæð í þessari vinsælu blokk í hjarta
Vesturbæjarins. Parket á gólfum. Gott
baðherbergi. Rúmgott hjónaherbergi
og barnaherbergi. Stórar svalir. Þvotta-
hús á hæðinni. Góð eign á góðum
stað. Verð 10,7 millj.
HJALLABREKKA – KÓPAVOGI
Björt og rúmgóð 71 fm þriggja her-
bergja íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi.
Rúmgott hjónaherbergi og bjart barna-
herbergi. Góð stofa. Stór geymsla sem
gæti nýst sem skrifstofa. Verð aðeins
9,9 millj.
MIÐBÆR Lítið smekklegt parhús á
tveimur hæðum við Njálsgötu. Húsið
er í alla staði smekklega innréttað.
Mjög stór hjónaherbergi og gott auka-
herbergi. Fallegt flísalagt baðherb..
Vönduð ný eldhúsinnr. Stór og björt
stofa. Úr henni gengið út á sólv. Sér-
stök eign á rólegum stað. Verð 11,1
millj.
VALLENGI - GRAFARVOGI Falleg 92
fm íbúð á jarðhæð með sérinng. í litlu
fjölb. Beykiparket á öllum gólfum
nema á baðherb. sem er flísal. í hólf og
gólf og forstofa sem einnig er flís-
alögð. Hjónaherb. stórt með góðum
skápum og barnaherb. bjart, einnig
með góðum skápum. Eldh. er með
vandaðri beykiinnr. Stofa stór og björt.
Úr stofu gengið út í garð. Leyfi til að
halda hunda og ketti í húsinu.V.11,9 m.
HRAFNHÓLAR - BREIÐHOLT Ný-
standsett 3ja herbergja íbúð á 2. hæð á
þessum vinsæla stað. Húsið er klætt að
utan. Sameign er öll til fyrirmyndar.
Lyfta. Góður bílskúr fylgir íbúðinni.
Verð 11,5 millj.
VITASTÍGUR - MIÐBÆR Falleg íbúð
á annarri hæð í virðulegu steinhúsi.
Tvær samliggjandi stofur og gott
svefnherbergi. Upprunaleg gólfborð.
Verð 8,9 millj.
2JA HERBERGJA
VÍFILSGATA Björt kjallaraíbúð á ró-
legum stað. Góð stofa með parketi.
Rúmgott svefnherbergi með skápum.
Flísalagt baðherbergi með baðkari. Lít-
ið eldhús með eldri innréttingu. Þvotta-
hús á hæð. Góð eign á góðu verði.
Verð aðeins 6,3 millj.
LEIGUHÚSNÆÐI
FAXAFEN Gott u.þ.b. 600 fm atvinnu-
húsnæði á annarri hæð á besta stað.
Laust strax. Nánari uppl. á skrifstofu.
LÓÐIR
LÓÐIR Vegna mikillar eftirspurnar
vantar okkur allar gerðir lóða á skrá,
bæði fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnu-
húsnæði.
LANDSBYGGÐIN
AKUREYRI - MIÐBÆR Falleg 52 fm 2
herbergja íbúð á annarri hæð í hjarta
Akureyrar. Parket og flísar á gólfum.
Alno-eldhúsinnr. Hentar sérstaklega
vel sem orlofsíbúð. V. aðeins 6 m.
ATVINNUHÚSNÆÐI
KJÖRGARÐUR - FJÁRFESTING
Góð fjárfesting – öruggar leigutekjur.
Til sölu þetta þekkta hús við Laugaveg.
Húsið er byggt 1961 og hefur verið vel
viðhaldið. Húseignin er samtals 3.824,2
fm skv. fasteignamati. Möguleiki að fá
keyptan byggingarrétt að blönduðu at-
vinnu- og/eða íbúðarhúsnæði sem
snýr að Hverfisgötu, samtals 803 fm.
Möguleiki á samtengingu við aðal-
byggingu. Húsið er allt í útleigu. Allar
nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu.
VEXTIR af viðbótarlánum,lánum til leiguíbúða ogöðrum peningalánumÍbúðalánasjóðs, sem fjár-
mögnuð eru með sölu húsnæð-
isbréfa, hafa verið hækkaðir. Hins
vegar hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hækkun á almennum
húsbréfalánum enda gilda önnur
lögmál um vaxtaákvörðun þeirra
lána.
Vextir af viðbótarlánum hafa verið
ákvarðaðir 5,7% á árinu 2001 en
vextir af lánum til leiguíbúða hafa
verið ákvarðaðir 4,9%. Vextir ann-
arra peningalána hafa verið
ákvarðaðir 5,7% fyrir árið 2001.
Vextir af fasteignaveðbréfum
skiptanlegum fyrir húsbréf eru
enn óbreyttir eða 5,1%
Vaxtaákvörðun
lögbundin
Lögum samkvæmt skal stjórn
Íbúðalánasjóðs árlega ákvarða
vexti af viðbótarlánum, lánum til
leiguíbúða og öðrum lánaflokkum
Íbúðalánasjóðs annarra en hús-
bréfalána. Vextir húsbréfalána eru
hins vegar ekki ákvarðaðir árlega,
heldur er ákvörðun tekin fyrir út-
gáfu hvers húsbréfaflokks fyrir
sig. Þeir húusbréfaflokkar, sem nú
er afgreitt úr, voru settir á lagg-
irnar árið 1998. Við vaxtaákvörðun
ber stjórn Íbúðalánasjóðs að taka
mið af þeim lánskjörum sem
Íbúðalánasjóði bjóðast hverju
sinni við sölu húsnæðisbréfa.
Viðbótarlán eru fjármögnuð
með sölu húsnæðisbréfa og hefur
ávöxtunarkrafa þeirra í þremur
útboðum sjóðsins á árinu 2000 að
meðtalinni söluþóknun verið
5,35%.
Íbúðalánasjóður áskilur sér
0,35% álag til að standa undir
kostnaði við rekstur þessa lána-
flokks svo og til að mæta sveiflum
í ávöxtunarkröfu húsnæðisbréf-
anna en hún hefur að undanförnu
farið hækkandi. Samkvæmt því
skulu vextir af viðbótarlánum á
árinu 2001 vera 5,7%
Lán til leiguíbúða eru einnig
fjármögnuð með sölu húsnæð-
isbréfa og skulu vextir af þeim
vera breytilegir. Stjórn sjóðsins
hefur því ákveðið að vextir skuli
taka mið af meðalávöxtunarkröfu
húsnæðisbréfanna fyrir árin 1999
og 2000.
Í sjö útboðum á þessu tímabili
er ávöxtunarkrafa þessi að með-
talinni söluþóknun 4,74%. Íbúða-
lánasjóður áskilur sér einnig
vaxtaálag á lán til leiguíbúða til að
standa undir rekstri, sveiflum í
ávöxtunarkröfu og framlagi í sér-
stakan ábyrgðarsjóð.
Stjórn Íbúðalánsjóðs hefur upp-
fyllt lagaskilyrði um markaðsvexti
af lánum til leiguíbúða með því að
hækka vextina í áföngum. Vextir
voru ákveðnir 3,2% árið 1999 og
3,9% árið 2000. Fyrir árið 2001
munu vextir af lánum til leigu-
íbúða verða 4,9%.
Tekið skal fram að þar sem ekki
er gert ráð fyrir framlögum til
Íbúðalánasjóðs í fjárlögum fyrir
árið 2001, er ekki gert ráð fyrir
sérstökum lánaflokki til leiguíbúða
á árinu 2001 með 1% vöxtum svo
sem verið hefur. Er sá lánaflokkur
því felldur niður.
Aðrir
lánaflokkar
Lánaflokkar þessir eru fjár-
magnaðir með sama hætti og við-
bótarlán og lán til leiguíbúða, þ.e.
með sölu húsnæðisbréfa. Í reglu-
gerð um lánaflokkana er kveðið á
um að vextir skuli ákvarðast með
sama hætti og vextir viðbótarlána.
Meðalávöxtunarkrafa húsnæð-
isbréfanna að meðtalinni sölu-
þóknun var á árinu 2000, svo sem
fram hefur komið, 5,35%.
Þar sem Íbúðalánasjóður áskil-
ur sér 0,35% álag til að standa
undir rekstri, sveiflum í ávöxt-
unarkröfu og framlagi í sérstakan
ábyrgðarsjóð munu vextir af lán-
um þessum á árinu 2001 vera
5,7%.
Um er að ræða eftirfarandi lána-
flokka:
Lán til heimila og dagvist-
arstofnana fyrir aldraða.
Lán til byggingar leikskóla fyr-
ir börn.
Aukalán, lán til einstaklinga
með sérþarfir.
Viðgerðarlán til utanhúss-
viðhalds félagslegra eignaríbúða.
Lán til meiri háttar utanhúss-
viðhalds innlausnaríbúða.
Lán til tækninýjunga og ann-
arra umbóta í byggingariðnaði.
Lán til byggingar eða kaupa á
vistheimilum fyrir börn og ung-
linga.
Vextir af viðbótarlánum hækka
Höfundur er yfirmaður gæða- og
markaðsmála Íbúðalánasjóðs.
Markaðurinn
eftir Hall Magnússon,
/hallur@ils.is