Morgunblaðið - 09.01.2001, Qupperneq 44
44 C ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
FASTEIGNASALA
Sö lus t jó r i : Ó la fu r G. V ig fússon.
Sölum.: Bynjól fur J. Garðarsson og Magnús Geir Pálsson.
S igu rbe rg Guð jónsson, hd l . l ögg . fas te ignasa l i .
Sæmundur H. Sæmundsson f ramkvæmdast jó r i .Félag fasteignasala
Sími 588 8787 — Suðurlandsbraut 16
Opið mánud. - fim. kl. 9-18, fös. 9-17, símatími laugard. frá kl. 12 - 14
www.h-gaedi.is - netfang: sala@h-gaedi.is
Sölustjóri: Ólafur G. Vigfússon.
Sölufulltrúar: Oddur Þór Sveinsson.
Þjónustufulltrúi: Guðrún Þ. Hallgrímsdóttir.
Sigurberg Guðjónsson hdl., lögg. fasteignasali.
Sæmundur H. Sæmundsson, frkv.stjóri.
Jarðir
Jörð í Skilmannahreppi Vorum að
fá í sölu um 106 hektara jörð, þar af um 20
hektarar ræktað land, ásamt íbúðarhúsi og
útihúsum. Meðal annars hesthús fyrir um
20 hross og hægt að stækka það um
helming með litlum tilkostnaði. Aðeins er
um 30 mínútna akstur frá Reykjavík að
þessu landi. Allar nánari upplýsingar á
skrifstofu.
Einbýli
Draumastaður við Elliðavatn
Vorum að fá í einkasölu draumastað við
Elliðavatn fyrir hestamenn og náttúruunn-
endur. Einbýlishús, stór bílskúr og 12-15
hesta hesthús á 2.000 fm landi við Elliða-
vatn. Frábær staður, einstakt tækifæri.
Einbýli - Kjalarnesi Í einkasölu ein-
býlishús sem er kjallari, hæð og ris, sam-
tals um 205 fm. Húsið er ekki fullbúið.
Áhvílandi um kr. 6,9 m. Nánari upplýsing-
ar á skrifstofu.
Rað- og parhús
Hlíðarás - Mosfellsbæ Höfum í sölu
195 fm parhús á tveimur hæðum með inn-
byggðum bílskúr. Neðri hæðin er steypt,
en efri hæðin er timbur. Húsið skiptist eftir-
farandi. Efri hæð: forstofa, hol, stofa, borð-
stofa, eldhús og snyrting. Neðri hæð: sjón-
varpshol, fjögur svefnherbergi, baðherbergi
og þvottahús/geymsla. Góð eign. Glæsi-
legt útsýni. Verð 16,2 m.
Selbrekka - Kópavogi Í einkasölu
fallegt tveggja hæða hús með tveimur
íbúðum. Heildarstærð er 191 fm auk 36,3
fm bílskúrs. Eign í mjög góðu standi, ný-
málað að utan, sólstofa, falleg lóð, heitur
pottur í garði. Góð staðsetning og mikið
útsýni. Verð 22,9 m.
Vantar
Ertu í söluhugleiðingum
Vantar 2ja íbúða hús í hverfi 109 eða 111.
Brynhildi vantar litla risíbúð í hverfi 104, 105 eða 108.
Jóhönnu vantar 3ja-4ra herb. íbúð í hverfi 104, verð allt að 11 m.
Vantar 2ja íbúða hús á verðbilinu 18-21 m.
Vantar 4ra-5 herb. íbúð eða sérbýli með bílskúr í Hamra- eða Foldahverfi,
verð allt að 17 m.
Mundu H-Gæði í þína þágu
Vættaborgir Í sölu parhús á tveimur
hæðum með tveimur íbúðum. Þetta er
endahús innst í götu með fallegri lóð, að
mestu frá náttúrunnar hendi. Heildarstærð
m. bílskúr er um 210 fm. Verð 20,9 m.
4ra til 7 herb.
Lækjargata - Hafnarfirði LAUS
FLJÓTLEGA. Íbúðin er öll endurnýjuð,
með nýjum gólfefnum, innréttingum og
tækjum. Það yrði of langt mál að telja upp
kosti íbúðarinnar. Fáðu að skoða og það
strax í dag!
3ja herb.
Rekagrandi Í einkasölu falleg 81,3 fm
3ja herb. íbúð á 3. hæð, (2. hæð frá bíla-
stæði) suður- og norðurútsýni, tvennar
svalir. Parket á öllu, stutt í alla þjónustu.
Upphituð bílgeymsla í kjallara. Áhv. byggsj.
og húsbr 4,2 m. Verð 11,5 m.
Breiðavík Höfum í einkasölu glæsi-
lega 110 fm íbúð á þessum vinsæla stað.
Vandaðar innréttingar og gólfefni. Stórt
og fallegt eldhús með viðarinnréttingu.
Góðar suðursvalir. Toppeign, þar sem
stutt er í alla þjónustu. Verð kr. 13,0 m.
Álfheimar Erum með í einkasölu á
þessum vinsæla stað, stóra 115 fm 4ra
herbergja íbúð. Eignin er í góðu ástandi,
stórt eldhús með flísum á gólfi, stórar
stofur með parketi, rúmgóð svefnher-
bergi. Eign á toppstað, þar sem stutt er í
alla þjónustu. Áhv. 5,1 m. Verð 12,8 m.
2ja herb.
Laugavegur Vorum að fá í sölu nýupp-
gerða 55 fm íbúð á jarðhæð á þessum vin-
sæla stað. Nýjar innréttingar og ný gólfefni.
Eignin verður tilbúin til afhendingar í janúar
2001. Verð 7,7 m.
Atvinnuhúsnæði
Hlíðasmári - SALA/LEIGA Vel stað-
sett verslunar- og skrifstofuhúsnæði á fjór-
um hæðum. Selst eða leigist í heilu lagi
eða í 10 einingum. Teikningar á skrifstofu.
Borgartún - Atvinnuhúsnæði
Vorum að fá í einkasölu skrifstofuhúsnæði
á 3. hæð, sem er um 450 fm. Húsnæðið
gæti losnað um næstu áramót eða góður
leigusamningur fylgt til eins árs. Eignin er í
góðu ástandi bæði úti og inni. Áhvílandi
um 16,5 m. Allar nánari uppl. á skrifstofu.
Hlíðasmári - Jarðhæð Vorum að
fá í sölu 75 fm verslunarhúsnæði á jarð-
hæð við Hlíðasmára. Góðir sýningar-
gluggar. Glæsilegt húsnæði sem er allt
að því viðhaldsfrítt. Flísalagt gólf, góð
snyrting. Hér er hægt að byrja strax með
alls konar rekstur. Nánari uppl. á skrif-
stofu.
Brekkuhús Glæsilegt 165 fm verslun-
arhúsnæði í nýrri verslunarmiðstöð í
Grafarvogi. Leigusamningur til 8 ára.
Allar nánari uppl. á skrifstofu.
Í smíðum
Núpalind
Vorum að fá 2ja, 3ja og 4ra
herb. íbúðir og glæsilega „pent-
house“-íbúð í nýju lyftuhúsi í
Kópavogi. Húsið er klætt að utan
með varanlegri klæðningu. Íbúð-
irnar afhendast fullfrágengnar að
innan með vönduðum innrétting-
um en án gólfefna. Hér er t.d.
kjörið tækifæri fyrir stéttarfé-
lög að fjárfesta í orlofsíbúðum
á afar hentugum stað, mið-
svæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Verð:
2ja herb. 10,8 m. 3ja herb. frá 13,4 m.
4ra herb. frá 14,3 m. „Penthouse“-íbúð 19,0 m.
Afhending verður í febr.-mars 2001
Starfsfólk H-Gæði óskar landsmönnum gleðilegs árs
og þakkar viðskiptin á liðnu ári
❋
❋
❋
❋ ❇
❇
❇
❇
❇
❇
❇
N
Ú stendur yfir farandsýn-
ing á verkum Buckmin-
sters Fullers (1895–1983)
í Bauhaus í Dessau. Til-
efni sýningarinnar var upphaflega
100 ára minningarár Fullers árið
1995. Síðan þá hefur sýningin komið
víða við, m.a. í Zürich og London. En
áður en lengra er haldið nokkur orð
um sýningarstaðinn:
Bauhaus var upphaflega skóli fyrir
hönnun og listir stofnaður af Walter
Gropius árið 1919 í Weimar. Þetta
var framúrstefnustofnun sem hafði
mikil áhrif á þýska menntun á þessu
sviði bæði fyrir og eftir seinni heims-
styrjöldina. Árið 1925 var stjórn-
málaástandið í landinu orðið þannig
að skólinn neyddist til að flytja til
Dessau.
Reist 1926
Þar var síðan sjálf Bauhaus-bygg-
ingin reist árið 1926 eftir teikningum
Gropiusar. Árið 1933 lokuðu nasist-
arnir svo skólanum og byggingin var
í rúst eftir stríðið. Árið 1996 var svo
þessi merkilega bygging í endurgerð
tekin á skrá UNESCO um heims-
menningarverðmæti.
Það er merkilegt til þess að hugsa
að um svipað leyti og Bauhaus-bygg-
ingin er fullgerð stendur 32 ára gam-
all maður á stönd Michigansvatnsins
og íhugar sjálfsmorð. Hann er þó
eitthvað óákveðinn og gengur hægt
af stað og upplifir þá í sviphendingu
eins konar Nirvana-ástand: Honum
finnst hann ganga í lausu lofti í
skjannabirtu og heyrir rödd sem seg-
ir: „Héðan í frá skalt þú aðeins taka
mark á því sem þú sjálfur hugsar.“
Þetta nægir til þess að Bucky
hættir snögglega við fyrri áform – en
starfar einbeittur áfram í fimmtíu og
sex ár – síðustu tuttugu og fimm árin
sem íbúi geimskipsins Jarðar í verki.
En ástand hennar og ranghugsanir
valdhafa hennar vill hann leiðrétta
með skynsemina að vopni. Niður-
stöðu þessa starfs er einmitt að sjá á
Bauhaus-sýningunni.
Bucky kom síðast til Íslands árið
1979 þannig að heil kynslóð Íslend-
inga hefur aldrei heyrt hans getið.
Flestir setja enn nafn hans í sam-
band við svokölluð stórhringjahvolf-
þök – geodesic domes – eða kúluhús á
því „ylhýra“. En leið Fullers að því
marki var löng og ströng og hann lét
heldur ekki þar við sitja við að
„hugsa allt upp á nýtt“.
Þessar þekktustu byggingar hans
geta spannað allt það rými sem hver
maður þarf til einkanota, á hag-
kvæman hátt. Já með gagnsæjum
efnum ef svo ber undir þannig að
himinninn verður sjáanlegur inni:
Einkahiminn þinn...
Þegar árið 1929 – um tveim árum
eftir Michiganævintýrið – kynnir
hann sína fyrstu sögulegu hönnun:
Dymaxion-húsið.
Algjör bylting
Ef Bauhaus-byggingin var fram-
úrstefna árið 1926 þá er þessi ný-
hugsun hans algjör bylting. Markmið
hans hér var að gera ódýrt fjölda-
framleitt hús – Volkswagen í hús-
formi – sem var m.a. 95% léttara en
hús þess tíma. Undirstaða hússins er
um einn fermetri en húsið sjálft um
150 fermetrar.
Þetta næst með því að líkja eftir
tré: Húsið stendur á miðsúlu með
lyftu inní og hangir allt á súlunni. Allt
efnið í húsið tilbúið til samsetningar
kemst inn í rör sem er rúmur metri í
þvermál og tæpir fjórir metrar á
lengd.
Til þess að gera þessa byggingar-
tækni enn ódýrari hannar hann
nokkrum árum seinna háhýsi sem er
svipað að gerð. Hann minnkar vind-
álag þess og dregur þar með úr kæl-
ingu með hringlaga glerhjúpi sem er
settur umhverfis bygginguna og
hann snýst með vindinum. Loftskip
flytur burðargrind hússins á bygg-
ingarstað í heilu lagi og menn planta
því eins og tré úr lofti.
Rökin á bak við þessar byggingar
voru mjög lágur byggingarkostnaður
og skynsamleg lausn á sameiginlegu
vandamáli fjöldans.
Þetta var í samræmi við iðnfram-
leiðslumöguleika og -stefnu þess
tíma sem hafði hagrætt lífi almenn-
ings á flestöllum sviðum nema í húsa-
gerð. Mótrökin voru hefðin – og hefð-
in sigraði hér skynsemina sem oftast
fyrr og síðar. En þó byggði Hugo
Junkers eitt Dymaxionhús fyrir sig
árið 1930.
Árið 1947 er svo byggð svokölluð
Einkahiminn þinn
Fyrrverandi blómabörn sitja nú líka á valdastóli á Ís-
landi, segir Einar Þorsteinn hönnuður. Þessi far-
andsýning í Þýskalandi um ævistarf R. Buckminsters
Fullers ætti að höfða til þeirra og þar með eiga erindi
hingað.
Borg í risakúlu.
Líkan af Wichita-húsinu í
Kansas og fleira.
Tensergity kúla Buckys svífur yfir innganginum í Bauhaus Dessau.