Vísir - 16.12.1978, Blaðsíða 7
VISIR Laugardagur 16. desember 1978
7
George Lucas
Stjörnustríð
Logi geimgengill ögraði stormsveitar-
mönnum fjarlægs stjörnukerfis í hættu-
legri sendiför — þar sem lífsmáttur varð
að dauðaorku. Með hugrekki sitt eitt að
vopni ásamt geislasverði því, sem verið
hafði í eigu föður hans, lendir Logi í
grimmilegasta geimstríði, sem háð hefur
verið — og á þá í höggi við öflugasta virki
fjandmannanna, Helstirnió.
Óstytt útgáfa — engu sleppt og engar
endursagnir. Æsilegasta vísindaskáld-
saga sem samin hefur verið.
Hammond Innes
Gulldíki
Gulldíki gerist í Astralíu. Gjaldþrota
breskur námuverkfræðingur á flótta
undan réttvísinni kemst á snoðir um
gamla gullnámu. Spennan í sögunni
magnast stig af stigi um leið og atburðir
fortíðarinnar skýrast. Gullþorsti. Nikkel-
æði. Og græðgin nær yfirhöndinni. Fáum
höfundum er eins lagið og Hammond
Innes að gefa sannfærandi lýsingar af
staðháttum og atburðum í sögum sínum.
Gulldíki hefur til að bera alla kosti þessa
vel metna höfundar.
SIÐASTA HERFÖRIN
DAVIDMORRELL
MacLean Svartagull
Á vissum stööum og hjá vissu fólki var nafniö Sænornin
mjög illa séö. En aö langmestu leyti beindist andúöin aö
Worth nokkrum lávaröi og milljónamæringi, sem var eig-
andi olíuborpallsins Sænornarinnar...
Æsispennandi skáldsaga um átök og spillingu í fjármála-
heiminum — átök sem kunna aö kosta líf milljóna. Hér er
barist um auð og völd — og engum hlíft. Höfundurinn,
Alistair MacLean, kann þá list aö halda lesandanum í
spennu fram á síóustu blaösíöu — og taugum lesandans
er ekki heldur hlíft í þessari bók hans, sem er ein sú
magnaöasta sem hann hefur látið frá sér fara.
David Morrell
Síðasta
herförin
Mexíkanskur skæruliðaforingi og upp-
reisnarseggur rænir bandaríska landa-
mærastöó. Bandaríkjamenn gera út refsi-
leiðangur á hendur honum, gegn vilja
mexíkanskra yfirvalda. Það er engin misk-
unn í Síðustu herförinni eftir höfund bók-
anna í greipum dauðans og Angist sem
seldúst upp jafnskjótt og þær komu út.
Síöasta herförin hefur af bandarískum
gagnrýnanda verið kölluð langbesta verk
Morrells.
ÍTiírJv
Hln ■i llíllll 1
Brian Cailison
Banvænn
farmur
Okkur er hrint inn í æsilegustu atburði
síóasta áratugs, þar sem samviskulausir
ofstækismenn hafa tekið gerlavopn í
þjónustu sína. Kaupskip klýfur öldur Mið-
jarðarhafsins hlaðið átta þúsund tonnum
af eitri. Atburóarásin veldur andköfum hjá
lesandanum. í Banvænum farmi er líf
heillar þjóðar lagt að veði og áhættan er
eftir því.
Brian Callison varð víðfrægur fyrir bók
sína Hin feigu skip. Menn veltu því fyrir
sér hvort honum tækist að skrifa aðra bók
sem jafnaðist á við hana. Honum tókst
það. Og miklu meira en það.
BfílAN CALLISON
Bræöraborgarstíg 16 simi 12923-19156