Vísir - 02.01.1979, Side 7
35 gráða frost í Moskvu
og kafaldsófœrð í Evrópu
Þessimynd var tekin IArhúsum
I gær af klakabrynjuöum segl-
skútum, sem biða sumars. Slik
er isingin á reiðanum, að það er
eins og skúturnar séu fyrir full-
um seglum, þótt reiðinn hafi
staðið ber.
Um alla Norður-Evrópu setti
veðrið sinn svip á áramótin með
kafaldsófærð og sjogangi, svo að
samgöngur til sjós og lands fóru
úr skorðum.
1 Eystrasalti lá við stórslysi,
þegar tveir rússneskir fiskibátar
strönduðu i' þessu veðri, en
sænskar og danskar herþyrlur
björguðu 57 sjómönnum úr liís-
háska.
I Póllandi hafa yfirvöld boöað
sérstakar ráöstafanir vegna
vandræða, sem stafa af ófærö-
inni, orkuskorti i kuldanum og
neyð fólks, sem nær ekki að hita
upp hýbýli sin. — Verksmiðjur
eiga þó að ganga fyrir við úthlut-
un kola og ollu. 1 Varsjá var 18
gráða frost I gær, og um 30% húsa
borgarinnar óupphituð.
Pólskt flutningaskip kom
danska oliuskipinu Anna Brater
til aðstoðar I hvassviðrinu á
Eystrasalti, og eftir nær niu
klukkutíma björgunaraðgerðir
tókst að bjarga 12 manna áhöfn
skipsins frá borði.en Anna Brater
strandaði.
A Skáni I Svlþjóö höfðu þyrlur
lögreglu og her i nógu að snúast
við að bjarga fólki tepptu i' bilum,
sem sátu fastir I sköflum. Hundr-
uð bila festust I ófæröinni.
Vlða I Bretlandi, Frakklandi og
Þýskalandi voru vegir tepptir
vegna snjóa , og var ófært yfir
landamæri Danmerkur og
Schleswig-Holsteins, þar sem lá
við borð að fólk yrði úti. Um 1.000
manns var bjargaö úr sjálfheldu
á þeim slóðum.
Hriðarkófiö gekk suður álfuna
yfir Alpana, en tveir vestur-þýsk-
ir skiðamenn fórust I snjóflóöi. —
Aðrir tveir V-Þjóðverjar urðu úti.
1 Frakklandi hafði lögreglan
mikinn viöbúnað vegna hálku á
vegum, en þar var að vænta mik-
illar umferðar á vegum, þegar
þúsundir Frakka kæmu heim úr
áramótaleyfi. 1 noröurhluta
landsins voru vegir allir lokaöir,
en einniakbraut var haldið opinni
milli noröurhlutans og vestur-
lands.
1 Austur-Þýskalandi uröuskafl-
arnir allt að fjögra metra háir, og
eru þetta einhver köldustu ára-
mót, sem menn þar hafa upplifað,
en frostið komst niöur I rninus
fimmtán gráöur.
Þetta voruköldustudagar, sem
komið hafa i heila öld I Moskvu.
Þar var frostið 23 gráöur á nýárs-
dag, en hafði komist niöur I 35
gráður á gamlársdag.
Flugvellirnir Heathrow og Gat-
wick i London lokuðust vegna
snjókomunnar, en það tókst aö
opna þá aftur til umferöar. En á
járnbrautarstöðvum himdi fólk
sumstaðar i Skotlandi i allt að nlu
klukkustundir meðan lestarnar
sátu fastar I sköflum.
Annarstaöar I álfunni var veður
fagurt og fólk brá á leik i snjón-
um. Berlinarbúar fóru á skíöum
eftir Kurfurstendamm, aðal-
verslunargötu borgarinnar, og
Júgóslavar, Grikkir og Italir böð-
uðu sig i sól.
Yfirgefur keisarinn land?
Shapur Baktiar, sem þykir Hk-
legastur til þess að verða næsti
forsætisráöherra Irans er sagt
hafamiðaðvel áfram yfir helgina
i stjórnarmyndunartilraunum
sinum.
Hinsvegar bólar ekki á neinni
lausn deilunnar um framtið
keisarans og enn er allt i hers
höndum i tran. — Hundruö út-
lendinga, sem eru að reyna aö
komast úr landi, sitja fastir á
Mehrabad-flugveíli vegna verk-
falís flugumferðarstjóra sem
krefjast þess að herlögunum
verði aflétt.
A vegum þess opinbera var
skýrt frá þvi i gær, að 106 manns
hefðu látið lifið I óeirðum i hinni
helgu borg, Mashhad. Stjórnar-
andstæðingar segja þó, að um 700
manns hafi látið lifið, þegar her-
menn hafi skotiö á andstæðinga
keisarans i mótmælagöngu.
forsætisráðherrann án samráðs
við þingið.
Fátt er vitaö um áætlanir
keisaransenheyrst hefur aðhann
hafi samið við dr. Baktiar um að
yfirgefa um stundarsakir landið
nokkrum dögum eftir myndun
nýrrar stjórnar.
Flóttafólkið
bíður um borð
Einn af vietnömsku flótta-
mönnunum um borð i flutninga-
skipinu Huey Fong frá Taiwan
andaðist I morgun, en yfirvöld i
Hong Kong standa fast á þeirri
ákvörðun sinni að meina þeim
2.700 flóttamönnum, sem um borö
eru að fara þar i land.
Skipið hefur nú legið I ellefu
daga undan Hong Kong en á
meðan hafa nltján manns fengið
að fara i land til þess að leggjast
undir læknishendur. Núna siðast i
nótt 43 ára gamall maður og
kornabarn.
Isiðustu viku barst boðfrá yfir-
völdum i Frankfurt um að 250
manns af skipinu væri boöið aö
koma þangað til að setjast að.
Hinum hefur ekki boðist heimili
enn, né heldur þeim 3.500 flótta-
mönnum sem enn eru i Kong
Kong.
Við Manila á Filipseyjum er
annað skip með 2.300 flóttamenn
innan borðs sem ekki hefur verið
leyft að fara i land. Frá lokum
Indókinastriðsins hafa um 7.000
flóttamenn borist þangað frá
Víetnam.
Hinum 63 ára gamla
frjálslynda stjórnarandstæðing.dr
Baktiar, mun hafa oröið vel
ágengt I könnun möguleika á
stjórnarmyndun og er að velja
sér ráðherraefni. Búist er við þvi
að báðar deildir þingsins muni
stinga upp á honum við keisarann
undir lok þessarar viku til mynd-
unarborgaralegrar stjórnar, sem
leyst gæti herstjórnina af hólmi.
Hingað til hefur keisarinn valið
Af óeiröunum I Mashhad berast
þær fréttir að skrill hafi unniö hin
verstu grimmdarverk á opinber-
um embættismönnum. Af 7 lög-
reglustöðvum borgarinnar er að-
eins 1 uppistandandi. Múgurinn
kveikti í hinum. Skrillinn er
sagður hafa hengt einstaka menn
á almanna færi, barið aðra til
dauöa, limlest enn aðra og
blindað. Eru lýsingar á aðförun-
um hinar hroðalegustu.
„Draugaskip" með 160 þ
tonn of olíu innanborðs
Eins og „draugaskip” þjóö-
sagnanna sigldi laskað risaollu-
skip mannlaust frá Spánarströnd
I morgun á leið út á Atlantshaf.
Spánverjar anda léttar, vegna
þess að afstýrt sýnist 1 bili hrika-
legri oliumengun við strendur
þeirra, hvað sem verður siöar. —
Þó skildi griska olluskipiö,
Andros Patria, eftir I sjónum við
norðvesturströnd Spánar um
50.000 smálestir af hráollu, sém
láku úr þvi á gamlársdag, þegar
leki kom að skipinu og kviknaði i
þvi.
Skipið siglir nú fyrir eigin
vélarafli á vestlægri stefnu með
fjögurra mflna hraöa, þótt englnn
standi i brúnni. Sjálfstýringin
hefur verið stillt á.
Vélstjórinn, sem var meðal
þriggja þeirra siöustu, sem yfir-
gáfu skipið, setti vélarnar af staö,
áður en hann yfirgaf skipið I
þyrlu. — Skipstjórinn er hinsveg-
ar talinn af og með honum 28
manns, sem fóru I björgunarbát-
ana. Mjög illt var I sjó.
Sjógangurinn ber oliuflekkinn
frá ströndu, og ekki hætta á að
hún reki upp á fjörur i bili. En
slysið vildi til undan strönd
Galicia, þar sem eru fiskimið
auðug. — A þeim slóðum varð
einmitt hrikaleg ollumengun 1976,
þegar risaolluskip strandaði
nærri höfninni I La Coruna og
110.000 smálestir af ollu runnu i
sjóinn.
Það er talið, að sprunga hafi
komiö i Andros Patria I brælunni,
en slðan fylgdi sprenging og upp
kom eldur, sem gæti hafa orðið
vegna skammhlaups. Flestir af
áhöfn skipsins yfirgáfu það þá, en
síðan slokknaði eldurinn af sjálf-
um sér.
7
Audi 100 Avant
OPIÐ FRÁ KL. 8-6.
HEKLA HF.
Smurstðð
Laugavegi 172
— Simar 21210 — 2124«.