Vísir - 29.01.1979, Blaðsíða 1

Vísir - 29.01.1979, Blaðsíða 1
__• Mánudagur 29. janúar 1979 23. tbl. 69. árg. Sími Visís er 86611 Játar aó hafa hrínt stúlkunni 17 ára piltur úrskurðaður i 59 daga gœsluvarð- hald vegna dauða 21 árs stúlku í Reykjavík Sautján ára gamall piltur hefur verið úrskurðaður i allt að 59 daga gæslu- varðhald vegna gruns um að hafa vald- ið dauða 21 árs gamalli stúlku. Hann hefur viðurkennt að hafa hrint stúlkunni en neitar að hafa barið hana og tekur skýrt fram að hafi hann orðið henni að bana þá hafi það ekki verið viljandi gert. Atburöur þessi átti sér staö viö Safamýri um klukkanfjögur aöfaranótt laugardags. Kallaö var á lögreglu úr húsinu vegna manns sem talinn var hafa ráöist á stúlku. Þeg- ar lögreglan kom á staöinn sást maöur á hlaupum frá húsinu og var hann handtekinn. Stúlkan lá viö húsiö, blóöug og illa til reika. Hún var flutt á Borgar- spítalann þar sem hún lést klukkan 10.05 á laugardaginn. Pilturinn sem var handtekinn heitir Sigurður Jónsson til heimilis aö Skúlagötu 64, fæddur 26. júli 1961. Ekki þekkti hann nafn stúlk- unnar og tók nokkurn tima aö komast aö þvi hver hún var. Hún hét Sunna Hildur Svavars- dóttir til heimilis aö Ira- bakka 8, fædd 15. desem- ber 1957. Hittust i Klúbbnum Viö yfirheyrslur hjá Rannsóknarlögreglu rikisins sagðist Siguröur hafa hitt stúlkuna á dans- Sunna Hildur Svavarsdóttir. leik i Klúbbnum um nótt- ina. Hann hafi siöan fengiö hana til aö koma meö sér i hús viö Háa- leitisbraut þar sem hann taldi hægt aö komast i gleöskap hjá kunningja- fólki sinu. Þegar þau komu i um- rætt hús voru þau bæöi ölvuð og sofnaöi stúlkan þar inni. Þar dvöldu þau alllengi ásamt fleiri gest- um. Rétt fyrir klukkan fjög- ur um nóttina fóru gestir aö búast á brott en Sunna Hildur fór ein á undan. Hún sagöist eiga heima i næstu götu, Safamýri en þá var ekki vitaö um nafn hennar né heimilisfang. Siguröur fór á eftir henni og sagöist ætla aö fylgja henni heim. Þegar hitt fólkiö fór rétt á eftir ók þaö i kringum húsiö til aö svipast um eftir þeim en sá hvorugt og engan á ferli. Aður en Sunna fór úr húsinu haföi fólkiö boöist til aö aka henni heim en hún þáði þaö ekki. Stóð yfir stúlkunni Skömmu seinna varö fólk I húsi viö Safamýri ööru húsi frá umræddu húsi við Háaleitisbraut, vart viö dynki og óhljóö og fór maöur aö athuga hvaö gengi á. Hann sá þá pilt standa yfir stúlku sem lá i opinni geymslu fyrir ruslatunn- ur hússins. Maðurinn sagöist ætla aö hringja á lögregluna en pilturinn baö hann aö hringja I leigubil. Hringt var til lögreglu en á meöan tók pilturinn stúlkuna og byrjaöi aö bera hana meöfram húsinu. Gekk það seint og datt hann einu sinni meö hana. Rétt i þessu kom lögreglan á vettvang. Rannsóknarlögreglan vann aö rannsókn máls- ins fram á kvöld laugar- dags og allan gærdag. Seinnipartinn I gær var kveöinn upp gæsluvarö- haldsúrskuröur yfir Siguröi i Sakadómi Reykjavikur aö kröfu Rannsóknarlögreglunn- ar. Ofangreindar upp- lýsingar fékk Visir hjá Niröi Snæhólm yfirlög- regluþjóni og sagði hann aö enn væri ekki hægt aö fullyröa um dánarorsök en krufning fer fram I dag. —SG Verkföll og veður stöóva fíugið fldcert fflug til Vestffjarða á margun vegna verk- fallsaðgerða flugmanna Verkföll og veður munu halda flugi Flugfélags íslands i lágmarki þessa viku og eru vandræði þegar orðin töluverð. Vegna veðurs var ekki hægt að fara nema eina ferð út á land á laugardag og i gær var svo verkfall. I dag veröur flug meö eölilegum hætti ef veöur leyfir og I morgun var fært um allt land. A morgun verða Vestfiröingar fyrir baröinu á flugmannadeil- unni þá veröur ekki flogiö til ísafjaröar. Miövikudaginn 31. verður ekki flogið til Glas- gow og Kaupmannahafnar og heldur ekki til Horna- fjaröar og Vestmannaeyja. Fimmtudaginn 1. veröur ekki flogiö til London, Egilsstaöa og Noröfjaröar. Föstudaginn 2. veröur ekkert millilandaflug meö Boeing 727 og ekki flogiö til Akureyrar, Sauöárkróks og Húsavikur. Laugardaginn 2. febrúar leggst svo niður allt flug Flugfélags Islands frá þvi kl. sjö á laugardagskvöld til kl. átta á þriðjudags- morgun. —ÓT Flug hófst i morgun eftir verkfall helgarinnar. Hér sést einni Fokker-vélanna ýtt lit úr flugskýli. Vfsismynd: GVA Járnblondi- verksmiðjan Góðar mark- aðs- horfur S|á bls. 14 og 27 Starffsemi Hagstofu íslands S|á bls. 28 Allt í plati? S|á bls. 31 Onnur við- horff á Suð- urnesjum en I Rvk Rætt viö Harald Gisla- son, framkvæmda- stjóra nýstofnaöra Samtaka sveitarfé- laga á Suöurnesjum. S|ó bls. 2 Vatns- veitan f Eyjum Guölaugur Gislason, fyrrverandi alþingis- maöur, skrifar grein i tilefni af ummælum Magnúsar H. Magnús- sonar, ráöherra, i VIsi. S|á bls.10-11 FAST EFNI: Vísir spyr 2 - Svqrthöfdi 2 - Fólk 6 - Myndosögur 6 - Lesendabréf 7 - Erlendar fréttir 8,9 - Leiðari 10 íþróttir 15,16,17,18 - Bi'larnir og við 19 - Dagbók 21 - Líf og list 22, 23 - Útvarp og sjónvarp 24,25 - Sandkorn 31

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.