Vísir - 29.01.1979, Blaðsíða 23
vtsm Mánudagur 29. janúar 1979
Fullkominn hreinsibúnoður ó Grundartanga:
27
Minna ryk út í loftið en
af stuttum
Eflaust hafa fáir gert sér þaö
ljóst, að það er meiri rykmengun
af liðlega kflómeterslöngum veg-
arspotta heldur en verksmiðjunni
á Grundartanga. Þetta er engu að
siður staöreynd eða svo segir dr.
Jón Hálfdánarson verkfræðingur
á Grundartanga.
Hann er forstöðumaður rann-
sóknarstofu járnblendiverk-
smiðjunnar og greindi frétta-
mönnum frá mengunarvörnum
verksmiðjunnar i skoöunarferð
fjölmiðlamanna til Grundar-
tanga.
Tvær risastórar viftur sjilga til
sin allt þaðrykiblandaða loftsem
stigur upp Ur ofni verksmiðjunn-
ar. Þvf er siöan jrýst inn i 1600
poka sem eru meira en mannhæð-
arháir og hleypa loftinu I gegn en
halda eftir langmestum hluta af
rykinu.
Loftið sem kemur frá ofninum
er um 900 stiga heitt og þvi er
nauösynlegt að kæla þaö áður •
enþaðfer I pokasiurnar. Til þess
var reist mikið kælivirki sem
stendur milli ofnhUss og siuhúss.
Gerter ráð fyriraðþegar báðir
ofnar verða komnir I notkun I
járnblendiverksmiðjunni falli til
um 12 þúsund tonn af ryki árlega.
Af þvi munu aðeins 0,2% sleppa I
Kælivirkið á Grundartanga.
gegnum pokana en þar sem
hreinsibúnaðurinn þarf eðlilegt
viðhaid ogviögerðir má búast við
að taka þurfi hann úr sambandi
örfáa daga á ári. Þvi má búast við
aö 1% af þvi ryki sem til fellur á
Grundartanga fari Ut i andrUms-
,loftið, en það er um 120 tonn.
Þetta sýnist vera talsvert
magn svona fljótt á litið. En Jón
Hálfdánarson gerði samanburð á
hvað mikiö ryk fer Ut i loftið frá
vegakerfi landsins og þá fer nú
litið fyrir rykinu frá Grundar-
tanga.
Samkvæmt skýrslu samgöngu-
ráðherra um framkvæmd vega-
áætlunar voru bornir 655.000 rúm-
metrar af möl á malarvegi hér-
lendis á siðasta ári. Ef gert er ráð
fýrir að 30% af þessari möl sé
vegunum til styrktar en 70% fari i
raunverulegt viöhald, til aö fylla
upp fyrir það sem hefur horfið,
kemur i ljós að 780 þúsund tonn
hverfa úr íslenskum vegum á ári.
Vegakerfið hérlendis mun vera
Dr. Jón Hálfdánarson t.h. sýnir
kisilryk I fötu.
(Visism. SG)
um8.300kmogþvieruþaðum 100
tonn á hverjum km sem hverfa Ut
I loftið.
Ef þessar meðaltölur eru látnar
gilda fyrir vegarspottann frá
þjóðveginum til Akraness að
Grundartanga og gert ráö fyrir aö
helmingur ofaniburðarins rjUki
upp I loftin kemur I ljós aö frá
þessum kafla kemur talsvert
meira ryk en frá verksmiðjunni.
Dýr búnaður
Miklar rannsóknir hafa verið
gerðar i Noregi á notkunargildi
ryks frá járnblendiverksmiðjun
og vilja menn fá eitthvaö upp i
kostnað við hreinsunina.
Reykhreinsivirkið á Grundar-
tanga kostar nú 22 milljónir
norskra króna og kögglunarstöðin
6 milljónir. Fyrir hinn oftiinn þarf
að byggja annað hreinsivirki og
verður þá heildarfjárfesting i
hreinsibúnaöi járnblendiverk-
smiðjunnar 50 milljónir norskra
króna eða yfir þrjá milljarða
islenskra króna.
Sementsverk^jniðjan á Akra-
nesiog hefur upp á siðkastiö gert-
tilraunin með að blanda kisilryki I
sement og lofa þær tilraunir mjög
góðu. Styrkleiki steypu úr þessu
sementi viröist vera mun meiri
en venjulegs portlandssements
með 10% llpariti.
Þaðeru þvi góðar vonir um að
hægt verði að slá tvær flugur i
einuhöggi hvað viðkemur rykinú.
Koma þvi i verð og framleiða
betra sement. _
vegarspotta
I frumskógi umferðarinnar ereinn,
sem lœtur sig litlu skipta, þótt hann fnri um mnlnruegi.
Yfir stokka og steina fer sá hinn trausti Allegro. Hann er lipurt og sterkt "dýr” af þeirri tegund, sem
spjarar sig viö ótrúlega erfiðar aðstæöur, án þess að missa "fótfestu”.
"Hydragas", er eindæma góð vökvafjöðrun, sem tryggir að hjólbarðarnir hafa stöðugt og öruggt tak
á veginum. Það er þess vegna ástæðulaust að hristast og skakast á holóttum malarvegum landsins.
Um Allegro má segja þetta: Hann er meö framhjóladrif, sem tryggir liprar beygjur um leið og hjólbarð-
arnir hafa öruggt tak á veginum, jafnvel á erfiöum vetrarbrautum. Undir vélarhllfinni
malar þverliggjandi vél með hitastýrðri kæliviftu (hún er sterk, en drynur ekki). Fimm
stiga girkassi (1500-gerðin) eykur sparneytni og ánægju við akstur.
"Tannstangar” stýring tryggir öruggar og liprar hreyfingar. Sérstak-
lega styrktir diskahemlar á framhjólum auövelda snögga hemlun,
ef nauðsyn krefur.
Það eina, sem sparað hefur verið í Allegro, er
reksturskostnaðurinn. Varahlutir fást fyrir hóflegt
verö; sama má segja um viðgeröaþjónustu og
Allegro lætur sér nægja tæplega
8 lítra á hverja 100 kílómetra.
Fáir gætu trúað að óreyndu,
hve þetta hlaupadýr er ódýrt.
^■nusTin
HLLECR0
P. STEFÁNSSON HF.
SIÐUMULA 33 SIMI 83104 83105
VERKSMIÐJUSALAN
MIKIÐ ÚRVAL AF BARNABUXUM, ENNFREMUR AÐRAR
BUXUR, PEYSUR, SKYRTUR OG VINSÆLU EFNISBÚTARNIR.
ALLT MJÖG ÓDÝRT.
BUXNA-OG BUTAMARKAÐURINN, SKULAGÖTU 26