Vísir - 05.05.1979, Page 4

Vísir - 05.05.1979, Page 4
Laugardagur 5. mal 1979. 4 Texll: illugi Jökulsson ..STOÐVIÐ ÞJÚFIHNI’’ - Helgarblaðið athugar viðbrdgö fólks er upp kemst um búðarpjóf Afgreiðslumaöurinn hefur tekið eftir þjófnum sem tekur til fótanna og afgreiðslumaðurinn á hæla honum. Uppi varð fótur og fit i Vöru- markaðinum við Ármúla á dög- unum er fráneygur afgreiðslu- maður tók eftir grunsamlegum ungum manni sem virtist önnum kafinn við að stinga inn á sig baukum af Estragon-kryddi. Hann vék sér að þjófnum, ábúð- armikill á svip, en þá greip slikur ótti hinn seka að hann tók til fót- anna og reyndi að komast undan. Upphófst nú mikill eltingaleikur uns tveir viðskiptavinir komu af- greiðslumanninum til hjálpar og reyndu að góma þjófinn. En slik- ur var ótti hans að honum tókst að rifa sig lausan og komast út úr búðinni og slapp við svo búið. Ljósmyndarar Visis voru af til- viljun á staðnum og tóku myndir af öllu saman. Ekki var þó allt með felldu. Það kom sem sé i ljós er upp var stað- iö að bæði þjófurinn og af- greiðslumaöurinn fráneygi voru blaðamenn Helgarblaðs Visis, og ljósmyndararnir voru þarna aldeilis ekki af tilviljun. Helgar- blaðið var þarna að gera vett- vangskönnun á viðbrögðum starfsfólks og viðskiptavina stór- verslunar við þjófi sem gerði til- raun til undankomu. Og niður- stöðurnar hljóta að vera harla já- kvæðar — fyrir búðarþjófa vel að merkja. „Þjófurinn” fékk nefnilega að rása óhindrað um búðina lengi vel og virtist sem fólk tryði ekki þvi sem var að gerast. Loks tóku sig til áðurnefndir tveir menn og komu „afgreiðslumanninum” til hjálpar en þó tókst „þjófnum” að sléppa og út, án þess að frekari tilraunir væru gerðar til að hand- sama hann. Starfsfólk verslunar- innar hreyfði hvorki hönd né fót til að gripa þjófinn og var þó alls ekki kunnugt um þetta fyrirfram. Svo virðist, sem aðstæður til búð- arþjófnaðar séu ákjósanlegar hér á landi. i.j. Þjófurinn, grunsamlegur I hStterni^skoðar kryddið sem freistaði hans. Þjófurinn reynir, ekki ýkja iþróttamannslega, að komast undan. Einn hinna raunverulegu afgreiðslumanna horfir á eftir honum og rótar sér ekki, viðskiptavinirnir ekki heldur. „Haldið manninum. Svona, haltu honum! Hvaöer þetta! Vertu rólegur, þetta er allt I lagi....” Þjófurinn virðist yfirbugaður. Gervi-afgreiöslumaðurinn og tveir viðskiptavinir reyna að halda honum.... Myndir: fiunnar V. Andrésson og Þðrlr Guðmundsson

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.