Vísir - 17.04.1979, Blaðsíða 31

Vísir - 17.04.1979, Blaðsíða 31
Umsjón : Sigurður , Sigurðarson Útvarp í kvðid kl. 19.30 Hryðlu- verkin í Kam- bódfu „Þetta er viðtal sem ég átti við póiskan blaðamann sem var ný- kominn frá Kambódíu,og frásögn frá blaðamannafundi sem þessi maður hélt um ástandið i Kambódiu á timum rauðu Khmerana,” sagði Ólafur Gisla- son i viðtali við Visi, en hann er meö þátt eftir fréttir i kvöld og fjallar þar um fjöldamorðin i Kambódiu. „Þetta er lýsing á ástandinu og stjórnarfarinu meöan Pol Pot sat við stjórnvöllinn. Þessi blaðamaður sagðist muna ofsóknir nasista i Póllandi á striðsárunum.hannhafði veriö i Indónesiu i borgarastriðinu þar 1958, I Egýptalandi 1956 og i Kambódiu hafði hann verið fimm sinnum áður. Hann sagöist hafa séð mörg hryðjuverk um dagana en aldrei þessu likt. ..... — A þessari mynd sést félagiChen Yung-kuei I fylgd með félaga Hu Kuo-feng skoða uppskeru á akri einum i Kina, en landbúnaður hefur i lengri tima veriö aðalatvinnuvegur Kínverja. Slónvarp l kvöld ki. 21.50 FRAMFARIRNAR í KÍNA litla innsýn í daglegt líf manna i Kina,” sagði Bogi Amar Finnboga- son, þýðandi myndar- innar „Stærsta þjóð heimsins sækir á bratt- ann”, en sú mynd verð- ur sýnd i sjónvarpinu i kvöld. „Komið er viöa við og brugöiö upp ýmsum myndum af þjóðlif- inu, m.a. er stjórnmálabróunin rakin i stórum dráttum og ýmsir menn teknir tali. Ég held aö hér sé reynt á hlut- lægan hátt að fræða okkur um framandlegt og merkilegt þjóð- félag sem við þekkjum nánast aö- eins af vondri afspurn,” sagði Bogi Arnar Finnbogason. ,í»etta er athyglisverð sem frændur okkar, og fróðleg mynd þar Danir, gefa okkur svo- A stjórnartimum Rauðu Khmeranna i Kambódiu voru þúsundir manna reknar úr borgum og bæjum og látnar vinna við land- búnaðarstörf. Hundruðum þúsunda margfalt fleiri kom- ust ekki neitt og létu lifið útvarp 8.00 Fréttir. 8.05 Morgunandakt 11.00 Messa i Frikirkjunni Prestur: Séra Kristján Róbertsson. Organleikari: Sigurður Isólfsson. 12.15 Dagskráin. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.25 „Vetrarferðin”, sfðari hluti lagaf lokksins eftir Franz Schubert. (Fyrri hluta var ótv. 14.00 Matur er mannsins megin 14.30 Miðdegissagan: „Sú nótt gleymist aldrei” eftir VValter Lord GisB Jónsson menntaskólakennari les þýðingu siná (2). 15.00 Miðdegistónleikar 16.00 Fréttir. Tilkynningar. ( 16.15 Veðurí'regni r). Tónleikar. 16.30 Lagið mitt: 17.20 Ctvarpssaga barnanna: ..Leyniskjalið" 17.40Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki 19.35 Daglegt mál 19.40 tslenskir einsöngvarar og kórar syngja 20.00 Leikrit: „Ævintýri á gönguför” eftir C. Hostrup Þýðendur: Jónas Jónsson frá Hrafnagili, Lárus Sigurbjörnsson og Tómas Guðmundsson. Aður útv. 1971. Leikstjóri: GIsli Halldórsson. Persónur og leikendur: Svale assessor/ Arni Tryggvason, Lára dótt- ir hans/ Helga Þ. Stephen- sen, Jóhanna, bróðurdóttir hans/ Soffia Jakobsdóttir, Kranz kammerráð/ Þor- steinn O. Stephensen, Helena, kona hans/ Margrét ólafsdóttir, Vermundur skógfræöingur/ Gisli Halldórsson, Herlöv/ Þórhallur Sigurðsson, Ejbæk ...stúdentar/ Jón Gunnarsson, Hans Morten- sen, kallaöur Skrifta-Hans/ Jón Sigurbjörnsson, Pétur, bóndi/ Guðmundur Pálsson 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Víösjá Umsjónarmaður: Hermann Sveinbjörnsson 23.05 AfangarUmsjónarmenn: Asmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Sameign Framsöknar og fögetavaidiö Formannaskiptin I Fram- sóknarflokknum ætla aö verða erfið, ef marka má valdahópinn i kringum fyrrverandi formann flokksins hér í Reykjavík. Ligg- ur nú viö aö sá valdahópur telji sig alveg sérstaka Framsóknar- menn, sem ráöi fjármálum nokksins IReykjavik alveg utan viö flokkinn, þótt eölilegt sé að allt fjárhald flokksins fari fram iReykjavik, sjóðir hans séu þar staðsettir og sumir þeirra af eðlilegum ástæðum á nafni full- trúaráös flokksins i borginni. Hér hafa hinar raunverulegu fjársafnanir flokksins farið fram, og umtalsverðar eignir hans eru staösettar I Reykjavik. Eftir að Glaumbær brann og tryggingarfé hafði verið greitt, komst flokkurinn yfir umtals- veröar fasteignir, og eignaðist raunar peninga i fyrsta sinn. Fór þá saman að kominn var til sögunnar mikill fjármála- spekúiant i skjóli ólafs Jó- hannessonar, sem bráölega yfirtók umsjón með þessum eignum,, enda þttu f þá daga engin fjármálaráð ráðin nema spekúlantinn segði fyrir um málsmeðferö. Hann hafði traust I bönkum og var i bankaráði Landsbankans og stundaöi raunar nokkur bankaviðskipti úr tösku sinni, hjálpsamur mað- ur og greiðugur, ogtöldu margir um tima að enginn maður væri ráðinn svo i opinbert starf aö hann hefði ekki um fjallað — jafnvel I bankastjórastöður. Þannig fór þessu fram í for- mannstiö ólafs Jóhannessonar, upp komst myndarlegur hús- sjóður og flokkurinn keypti ja fn vel hótel Hof, sem var rekið af slíkum þrifnaði, aö rúm voru t.d. ekki höfö breiðari en svo að gestir urðu að sofa meö annað læriö úti á gólfi. Timinn naut sérstakrar náðar þessa valda- hóps i kringum ólaf Jóhannes- son, en hann tapaði sextiu og fimm milljónum króna á sl.ári. Skuldir hans frá fyrri árum eru meiri. Abyrgðarmenn á þessum sextlu og fimm milljóna króna lausaskuldum eru sagðir vera ólafur Jóhannesson og Kristinn Finnbogason. Og svo einn dag var ölið af könnunni. A siðasta flokksþingi var Steingrimur Hermannsson kjörinn formaður flokksins. Valdahópurinn i Reykjavik taldi að nú yrði að herða tökin á þeirri aðstöðu, sem hann hafði komið sér upp I skjóli ólafs Jó- hannessonar. Að visu hafði Steingrimur verið liðsmaður þeirra, en var nú i afturbata. Þegarhorfur voruá þviaðkjósa ætti annan formann hússjóðs i stað Jóns Aöalsteins kaun- manns, var nýja formanninum einfaldlega tilkynnt, aöyröium slíka breytingu að ræða myndi fógeti kailaður til og hann beð- inn að skipta sameigninni, þ.e. sameign flokks og fulltrúaráðs. Stein grlmi mun ekki h afa litist á slikar striðsaðgeröir, enda var Jón Aðaisteinn endurkjörinn samkvæmt sérstökum tiimæl- um hins nýja formanns. Þegar siðan átti aö freista þess að koma lausaskuldum Timans i föst lán, og orðað var að mega nota fasteign fiokks- ins fyrir veð, kom upp sama fógetataliö i gömlu valdaklik- unni I Reykjavik, sem telur að hún, en ekki fiokkurinn eigi einn þriöja I Hofi. Þeir hörðustu I fulltrúaráðinu telja jafnvel sjálfsagt að fulltrúaráðið bjóði fram sérstaklega I næstu kosn- ingum. Yrði það nokkur eftir- máli við formennsku ólafs Jó- hannessonar fyrir flokknum. Framkvæmdastjóri Timans hverfur nú frá sextlu og fimm miiljóna króna lausaskuldum, og er harður viðskiptis i þeirri stöðu. Virðist ekki á viðbrögð- um hans að sjá, að nokkuö þurfi að kvarta yfir einveidisstjórn hans á blaðinu siöustu árin, enda hefur hann sér tii fulltingis framtaldar útistandandi skuld- ir, m.a. i margra ára óinn- hcimtum biaðagjöldum, sem kunnugir vita hve tryggar eru. Liklegt er að kaupendatala Timans I Reykjavtk hangi aö einhverju ieyti uppi á vinsæld- um framkvæmdastjórans meö: al fyrirgreiðslufólks, en þess er jafnframt að vænta að það segi Tfmanum upp, þegar hann hverfur úr starfi, kannski þús- und manns. Svarthöfði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.