Morgunblaðið - 18.02.2001, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.02.2001, Qupperneq 1
MORGUNBLAÐIÐ 18. FEBRÚAR 2001 41. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 30 FLJÚGANDI FLUTNINGS- MIÐLUN BAÐDAGURINN MIKLI Fjölmennasta hátíð sögunnar / B 11  B Fíkniefni og for- varnir í deiglunni 26 KOSIÐ VERÐUR UM FORGANGSRÖÐUN I 10 ÍRAKAR sögðust í gær ætla að hefna flugskeytaárása sem banda- rískar og breskar herflugvélar gerðu á skotmörk nálægt Bagdad í fyrra- dag. Þeir sögðu að tveir saklausir borgarar hefðu beðið bana og tutt- ugu aðrir særst í árásunum. „Bandaríkjamönnum og Bretum verður refsað fyrir þennan svívirði- lega glæp og við látum þessa ekki óhefnt,“ sagði í forystugrein á for- síðu Qadissiya, málgagns írösku stjórnarinnar. „Við látum nýju stjórnina í Bandaríkjunum fá að kenna á heilögu stríði og staðfestu múslíma,“ bætti blaðið við. Íraskir fjölmiðlar birtu opinbera yfirlýsingu þar sem skýrt var frá því að flugvélarnir hefðu skotið flug- skeytum á skotmörk við útjaðar Bagdad. Yfirlýsingin var gefin út eft- ir fund Saddams Husseins Íraksfor- seta og fleiri ráða- manna í Bagdad. „Við ætlum að berjast við þá í lofti, á láði og legi og þeir gjalda að- eins afhroð með því að vera með þennan yfirgang,“ sagði m.a. í yfir- lýsingunni. Stjórnvöld í Kúv- eit og Sádi-Arabíu voru einnig gagn- rýnd fyrir að sjá Bandaríkjamönnum og Bretum fyrir flugvöllum. Íraska ríkissjónvarpið sagði að þetta væru fyrstu árásirnar á Bagd- ad frá því í desember 1998. Íraska heilbrigðisráðuneytið sagði að átján ára kona og karlmaður á fertugsaldri hefðu beðið bana í árásunum. Qadissiya sagði að ráðist hefði verið á borgaraleg skotmörk en bandaríska varnarmálaráðuneytið sagði að aðeins hefði verið skotið á ratsjár- og loftvarnastöðvar. 24 bandarískar og breskar flugvélar hefðu skotið flugskeytum á fimm skotmörk um 8–32 km frá Bagdad. Frakkar krefjast skýringa Geoff Hoon, varnarmálaráðherra Bretlands, sagði að árásirnar hefðu verið nauðsynlegar til að vernda líf bandarískra og breskra flugmanna sem framfylgja flugbanni yfir suður- hluta Íraks. George W. Bush Bandaríkjafor- seti tók í sama streng og sagði að stjórn sín myndi grípa til „viðeigandi aðgerða“ ef Írakar framleiddu ger- eyðingarvopn. Rússnesk stjórnvöld fordæmdu árásirnar í gær og sögðu þær sanna að Bandaríkjamenn og Bretar væru staðráðnir í að beita hervaldi og sneiða hjá Sameinuðu þjóðunum í deilunum við Íraka. Sergej Prikhodkovo, aðstoðar- skrifstofustjóri Rússlandsforseta, sagði að Rússar myndu mótmæla öll- um slíkum árásum sem nytu ekki af- dráttarlauss stuðnings öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Stjórnvöld í Kína fordæmdu einn- ig árásirnar og lýstu þeim sem broti á alþjóðlegum reglum um samskipti ríkja og óvirðingu við fullveldi Íraks. Franska utanríkisráðuneytið sagði að árásirnar vektu ýmsar spurningar og krafði Bandaríkja- stjórn skýringa á aðgerðunum. Franskir stjórnarerindrekar sögðu að Bandaríkjamenn og Bretar hefðu hvorki haft samráð við stjórn Frakk- lands né skýrt henni frá árásunum. Rússar og Kínverjar mótmæla loftárásum Bandaríkjamanna og Breta Írakar hóta að grípa til hefndaraðgerða Bagdad, London, Moskvu. Reuters. Saddam Hussein BANDARÍSKA geimferjan Atlantis hélt áleiðis til jarð- ar í gær eftir að hafa komið fyrir háþróaðri rannsókn- arstofu á alþjóðlegu geimstöðinni Alfa. Gert er ráð fyrir því að Atlantis lendi í Kennedy- geimferðamiðstöðinni í Flórída í kvöld. Alþjóðlega geimstöðin sést hér yfir Kaliforníu á mynd sem tekin var úr Atlantis skömmu áður en geimferjan lagði af stað til jarðar. AP Geimstöðin Alfa yfir Kaliforníu LARS Walløe prófessor, ráðgjafi norsku stjórnarinnar í hvalveiðimál- um, kveðst vera hissa á þeirri ákvörðun norska sjávarútvegsráðu- neytisins að hafna útflutningi á hval- rengi til Íslands. Walløe sagði í samtali við Aften- posten að hann undraðist að ráðu- neytið skyldi ekki hafa heimilað Steinar Bastesen að flytja út hval- rengi til Íslands. Ráðuneytið sendi lögmanni Bastesens bréf á fimmtudag þar sem honum er skýrt frá því að hann geti ekki gert ráð fyrir því að fá heimild til útflutningsins. Ástæðan sé sú að á Íslandi fari ekki fram DNA-skráning á hvölum sem stend- ur. Norðmenn undirbúa nú slíka skráningu til að hægt sé að tryggja að aðeins séu fluttar út afurðir hvala sem leyft hafi verið að veiða. Norska stjórnin segir að innflutningslandið þurfi einnig að geta gert DNA-rann- sóknir á hvölum. Walløe kveðst vera hissa á þeim rökum sem stjórnin færir fyrir ákvörðuninni. „Á Íslandi eru ekki stundaðar neinar hvalveiðar og Íslendingar hafa því að sjálfsögðu ekki slíkar DNA-skrár. Þeir þurfa þess heldur ekki til að hefja DNA-rannsóknir,“ sagði prófessorinn. Hann bætti við að Íslendingar hefðu næga sérfræði- þekkingu á þessu sviði til að geta hafið slíkar rannsóknir á hvölum. Lögmaður Bastesens, Magnus Stray Vyrje, segir að norska sjáv- arútvegsráðuneytið hafi enga heim- ild til að hafna útflutningi á hval- rengi til Íslands. „Ég get ekki séð að ráðuneytið geti sett ný DNA-skilyrði fyrir út- flutningi til Íslands samkvæmt nú- gildandi reglugerðum,“ sagði hann í samtali við Aftenposten. Norskt hvalrengi ekki flutt til Íslands Undrast rök stjórnarinnar Ósló. Morgunblaðið. Bush og Fox lofa auknu samstarfi GEORGE W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, var í Mexíkó í gær í sinni fyrstu heimsókn erlendis og átti viðræður við Vicente Fox, forseta landsins. Forsetarnir lof- uðu auknu samstarfi á sviði við- skipta og í baráttunni gegn eitur- lyfjasmygli, auk þess sem þeir sögðust vilja stemma stigu við miklum fólksstraumi frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Viðskipti land- anna hafa þrefaldast síðan NAFTA, Fríverslunarsvæði Norð- ur-Ameríku, kom til sögunnar. Bush og Fox eru hér við flugvél bandaríska forsetans á alþjóða- flugvellinum í Leon í Mexíkó áð- ur en Bush hélt til Bandaríkj- anna. AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.