Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 8

Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Námskeið í lífupplýsingafræði Rannsóknum fleygir ört fram ÁMORGUN hefstnámskeið á vegumEndurmenntunar- stofnunar Háskóla Íslands í lífupplýsingafræði (bio- enformatics). Aðalfyrirles- ari og umsjónarmaður er Daníel Óskarsson tölvun- arfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Ásamt honum hafa tekið þátt í undirbúningi námskeiðs- ins Helga M. Ögmunds- dóttir læknir hjá Krabba- meinsfélagi Íslands og Þórunn Rafnar sameinda- líffræðingur. Hún var spurð fyrir hvaða hóp þetta námskeið væri hald- ið? „Markhópurinn er meistaranemar í lækna- deild, líffræðingar, tölvun- arfræðingar og aðrir sem hafa áhuga á þessu nýja sviði. Einnig hafa þeir vafalaust gagn af þessu sem eru að vinna við úrvinnslu á líffræðilegum upplýsingum, t.d. hjá líftæknifyrirtækjum eða öðr- um rannsóknarstofnunum.“ – Hvað er lífupplýsingafræði? „Lífupplýsingafræði er sú grein þar sem menn þróa aðferðir til þess að vinna úr hinu gífurlega magni líffræðilegra upplýsinga sem stöðugt berast. Sem dæmi um þetta má nefna að langt er komið að raðgreina allt erfða- mengi mannsins og úrvinnsla úr þeim gögnum fer fram með að- ferðum lífupplýsingafræði.“ – Er þetta ný grein hér á Ís- landi? „Já, þetta er grein sem hefur verið stunduð innan háskóla og líf- tæknifyrirtækja hér á landi en þörfin hefur aukist gífurlega að mennta fólk á þessu sviði. Fjöl- margir eru að vinna við gagnaöfl- un og úrvinnslu án þess að hafa hlotið formlega þjálfun á þessu sviði.“ – Er þetta einhverskonar sam- spil tölvufræði og líffræði? „Margar greinar koma að þessu – líffræði, tölvunarfræði, læknis- fræði, stærðfræði og tölfræði.“ – Hver er þá haldbesta undir- stöðumenntunin undir lífupplýs- ingafræði? „Fram til þessa hefur fólk farið í þessa grein sem framhaldsnám, fólk getur farið í líffræði eða hvaða aðra af fyrrnefndum grein- um sem það vill og síðan sér- menntað sig á sviði lífupplýsinga- fræði. Ég vil gjarnan benda á að stærðfræðiskor Háskóla Íslands mun á næsta hausti bjóða upp á sérstaka námsbraut innan stærð- fræðinnar í lífupplýsingafræði þar sem líffræðinám verður hluti af námsbrautinni.“ – Hvað mun verða tekið fyrir á námskeiðinu sem hefst á morgun í Háskóla Íslands? „Farið verður í hvaða líffræði- legu gagnagrunnar eru til á Net- inu. Farið verður í grunnatriði að UNIX og forritunarmálinu PERL. Þá verður fjallað um hug- búnaðarlausnir, tækni- nýjungar og siðfræði tengda lífupplýsingum, genaleit með tölvum, annars og þriðja stigs uppbyggingu sameinda og samanburð raða. Að lokum verður fjallað um svokölluð Hidden Markov Models og genatjáningu í heilkjörnungum.“ – Hvaða fyrirlesarar verða á námskeiðinu auk Daníels Óskars- sonar? „Auk hans verða fyrirlesarar Deborah Simon, Helgi Briem Magnússon og Arnaldur Gylfa- son, sem öll starfa hjá Íslenskri erfðagreiningu.“ – Kalla allar þær rannsóknir sem nú fara fram á Íslandi í samb- andi við líftækni á mjög breytt vinnubrögð? „Þessar rannsóknir allar og úr- vinnsla úr þeim kalla á mjög öfl- uga tölvuvinnslu. Bara í erfða- mengi mannsins eru þrír milljarðar af basapörum (grunn- einingum erfðaefnis). Það gefur augaleið að það þarf afar öflug forrit til þess að vinna úr þessum upplýsingum því hluti af erfða- menginu er gen og hluti eitthvað annað.“ – Hverjir standa að þessu nám- skeiði? „Að námskeiðinu stendur, í samvinnu við Endurmenntunar- stofnun Háskóla Íslands, rann- sóknarnámsnefnd læknadeildar HÍ.“ – Hver er aðdragandi þessa? „Þeir sem vinna á sviði sam- eindalíffræði, t.d. framhaldsnáms- nemar við HÍ og líffræðingar sem luku námi á árum áður, hafa margir hverjir ekki haft nægileg tækifæri til að kynna sér þessa nýju grein og námskeiðið er sér- staklega sniðið fyrir þetta fólk.“ – Hver eru helstu tíðindin af sviði sameindalíffræði nú um stundir? „Stærstu tíðindin eru náttúr- lega framfarirnar sem hafa orðið við kortlagningu og raðgreiningu erfðamengis mannsins. Þetta er það sem er efst á baugi núna, en í framhaldi af þessu er ófyrirsjáanlega mikil vinna við að skilgreina og skilja hvað í þessum upplýsingum felst.“ – Breytir þetta miklu fyrir rannsóknarumhverfið hér á Íslandi? „Á Íslandi hafa verið mjög öfl- ugar rannsóknir á þessu sviði og þeim fleygir fram við þessa nýju þekkingu, hér auðvitað sem ann- ars staðar. Þess vegna er rík þörf á námskeiði eins og þessu.“ Þórunn Rafnar  Þórunn Rafnar fæddist 25. janúar 1958 á Akureyri. Hún tók stúdentspróf frá Menntaskól- anum á Akureyri 1978, próf í líf- fræði frá Háskóla Íslands 1982 og doktorsprófi lauk hún frá há- skólanum í Norður-Karolínu í Bandaríkjunum 1990. Hún hefur starfað sem líffræðingur við Johns Hopkins-háskólann í Balti- more, var um tíma starfsmaður HÍ hjá Krabbameinsfélaginu en er nú forstöðumaður krabba- meinsrannsókna hjá Urði, Verð- andi, Skuld. Þórunn er gift Karli Ólafssyni lækni og eiga þau þrjú börn. Lífupplýs- ingafræði – aðferðir til að vinna úr líf- fræðilegum upplýsingum Varaformannskandídatinn hefur hug á að merki Framsóknarflokksins verði breytt úr kornaxi í hvítan hest til að undirstrika að enn ríða hetjur um héruð. ÖRN Friðriksson, formaður Félags járniðnaðarmanna, segir að ekki sé hægt að ráða annað af svari Ríkiskaupa við fyrirspurn félags- ins, en að ekki hafi verið tekið tillit til þjóðhagslegrar hagkvæmni þess að láta viðgerð á tveimur varðskip- um Landhelgisgæslunnar fara fram hér innanlands við saman- burð á tilboðum frá innlendum og erlendum aðilum. Þegar tillit sé tekið til forsendna Þjóðhagsstofn- unar hvað það varði sé engin spurning að hagkvæmra sé að láta innlenda aðila annast viðgerðir á varðskipunum. Hann segir jafn- framt að ánægjulegt sé hversu fljótt stofnunin hafi brugðist við fyrirspurn félagsins og að stofn- unin sé tilbúin til þess að ræða al- mennt hvernig að þessum tilboðs- málum sé staðið. Félag járniðnaðarmanna beindi nokkrum spurningum til Ríkis- kaupa efir að stofnunin ákvað að ganga til viðræðna við pólska skipasmíðastöð um viðgerðir á tveimur varðskipum Landhelgis- gæslunnar. Ríkiskaup svaraði bréf- inu í vikunni. 22% af kostnaðarverði koma til baka Örn sagði að af sjö spurningum sem félagið hefði beint til Ríkis- kaupa væri þremur ekki svarað, þ.e.a.s. spurningum varðandi það hvort áætlað sé að einhverjar lag- færingar þurfi að fara fram á skip- unum eftir að þau komi til Íslands aftur og hvort Ríkiskaup hafi lagt mat á þjóðhagslega hagkvæmni þess, við samanburð á tilboðum, að láta innlenda aðila framkvæma verkið. Út úr svarinu sé ekki hægt að lesa annað en að það hafi ekki verið gert. Það þýði samkvæmt forsendum Þjóðhagsstofnunar að hagkvæmara sé í það heila tekið, þ.e. að teknu tilliti til þjóðhags- legrar hagkvæmni, að láta fram- kvæma verkið hér innanlands, en samkvæmt reiknimódeli Þjóðhags- stofnunar skili skipaviðgerðir og endurbætur innanlands um það bil 22% af kostnaðarverði til baka í formi skatta á fyrirtæki, launa- tengdra gjalda, beinna skatta ein- staklinga og óbeinna skatta. „Það er ekki hægt að lesa annað út úr bréfi Ríkiskaupa annað en að það hafi ekkert verið lagt mat á þjóðhagslegan hagnað þess að vinna verkið hér heima og þess vegna sé ekkert tillit tekið til þess við ákvörðun um það hvaða tilboði verði tekið,“ sagði Örn. Í bréfinu til Félags járniðnaðar- manna bjóða Ríkiskaup fulltrúum félagsins og hlutaðaeigandi inn- lendum bjóðendum til fundar þar sem farið verður yfir tilhögun til- boðsgerða og útboða. Örn sagði að það væri góðra gjalda vert. Það væri ánægjulegt hvað Ríkiskaup brygðust fljótt við og svöruðu fyr- irspurnunum félagsins og að stofn- unin væri tilbúin til þess að ræða almennt hvernig að þessum til- boðsmálum er staðið. Formaður Félags járniðnaðarmanna um svar Ríkiskaupa Ekki tekið tillit til þjóð- hagslegrar hagkvæmni ♦ ♦ ♦ LÖGREGLAN í Kópavogi handtók í aðfaranótt laugardags konu sem ók undir áhrifum fíkniefna á Kringlu- mýrarbraut. Konan, sem er á miðjum aldri, var réttindalaus. Lög- reglumaður veitti óvenjulegum akstri konunnar athygli og var hún látin stöðva bíl sinn. Konan var að sögn lögreglu í annarlegu ástandi, undir áhrifum fíkniefna, en í bílnum fundist ætluð fíkniefni og tæki og tól til neyslu þeirra. Réttinda- laus og í annarlegu ástandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.