Morgunblaðið - 18.02.2001, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 18.02.2001, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ A TKVÆÐAGREIÐSLA um framtíðarnýtingu Vatnsmýr- arsvæðis hinn 17. mars nk. snýst um forsendur skipulags á borgarsvæðinu eftir að nú- verandi skipulagstímabili lýk- ur árið 2016. Þar með er skipu- lag Vatnsmýrarinnar fyrsta skipulagsmálið, sem lagt verður fyrir íbúa borgarinnar og er á borgarstjóra að heyra að framhald kunni að verða á, takist vel til nú. „Með atkvæðagreiðslunni er brotið blað í ís- lenskri stjórnmálasögu og ég er sannfærð um að með henni mun þeirri lýðræðiskröfu aukast ásmegin að í mikilvægum samfélagsmálum fái þjóðin sjálf að móta sér framtíð en þurfi ekki nauðsynlega að lúta forræði stjórnmálaflokk- anna,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og bætir við að það sé sín skoðun að hér á landi sé rík þörf fyrir öflug borgaraleg samtök, sem veiti stjórnmálaflokkunum aðhald og komi í veg fyrir að þeir taki sér drottnunarvald, enda væri pólitísk valdþjöppun óvíða jafnmikil og hérlendis. Frá einræði til lýðræðis Aðkoma almennings að skipulagi borga hef- ur farið vaxandi í grannríkjunum á síðustu ára- tugum, en við skipulag borga og sveitarfélaga er notast við þrjár ólíkar aðferðahefðir, eins og fram kemur í skýrslu Stefáns Ólafssonar, for- manns undirbúningsnefndar um atkvæða- greiðsluna. Í fyrsta lagi felur hin hefðbundna aðferð í sér að sérfræðingar og fulltrúar stjórnvalda ákvarða bæði markmið og leiðir. „Þeir skilgreina viðfangsefni eða vandamál sem leysa á, skilgreina viðmið fyrir árangur, safna gögnum sem lögð eru til grundvallar við mat á valkostum og velja loks milli endanlegra kosta. Slík aðferð við skipulagningu borga og sveitarfélaga tengist tæknihyggju og jafnvel forræðishyggju. Aðkoma borgaranna sjálfra að stefnumótun og forgangsröðun er lítil sem engin þegar þessari aðferð er beitt. Í Evrópu hefur verið talað um þetta sem hina einræð- islegu aðferð. Í öðru lagi er aðferð, sem kölluð er skref fyr- ir skref-skipulagning og tengist meira frjáls- lyndisstefnu í stjórnmálum og markaðs- hyggju,“ segir Stefán. „Hún felur í sér almenna fyrirvara gagnvart heildstæðri og stjórnlyndri áætlanagerð eða skipulagningu á vettvangi miðlægra stjórn- valda og sérfræðinga þeirra. Í staðinn er að- ilum í samfélaginu, svo sem fyrirtækjum, land- eigendum og sveitarfélögum, gefið meira svigrúm til að þróa umhverfið á eigin vegum, oft með smáskammtaaðgerðum í markaðs- og samkeppnisumhverfi. Borgaryfirvöld koma síðan meira að málum til að leysa sameiginleg vandamál, svo sem er tengjast samgöngum, öflun vatns og orku, frágangi lagnamála og ýmsum sérstökum en sameiginlegum vanda- málum. Þetta er stundum kallað klassíska am- eríska leiðin í skipulagsmálum og er t.d. bent á að Los Angeles svæðið hafi þróast að miklu leyti á þennan máta á fyrri hluta 20. aldarinn- ar. Við slíka skipan verða áhrif landeigenda og fyrirtækja oft mjög mikil á mótun borgarum- hverfis og lífshátta borgaranna. Áhrif al- mennra borgara eru að sama skapi minni við þessa skipan. Þriðja aðferðin, lýðræðisleg skipulagning, hefur átt vaxandi fylgi að fagna á Vesturlönd- um á síðustu áratugum, einnig og ekki hvað síst í sumum ríkjum og borgum Bandaríkj- anna, sérstaklega eftir 1960. Skilningur á mik- ilvægi þess að almenningur ætti aðild að ákvörðunum sem móta umhverfi hans og hafa áhrif á verðmæti fasteigna jókst mjög um þær mundir auk þess sem andóf gegn skipulags- áformum jókst víða mikið og leiddi þetta m.a. til þess að bandarísk stjórnvöld settu í lög ákvæði um rétt almennings til að tjá sig um skipulagsáform.“ Fram kemur hjá Stefáni að atkvæðagreiðsla meðal borgaranna sé aðeins ein af mörgum leiðum, sem þróaðar hafa verið á síðustu árum til að greiða fyrir aðild almennings að stefnu- mótun og ákvarðanatöku á sviði skipulags- mála. „Atkvæðagreiðslum er handhægt að beita við val milli einstakra kosta eða við val um forsendur skipulags á einstökum svæðum eða borgarhlutum. Kostur slíkra atkvæða- greiðslna er einkum sá að með því að hafa þær formlegar þá fylgir þeim gjarnan viðamikil kynning valkosta og möguleika, sem stuðlar að aukinni virkni borgaranna og virkar jafnframt hvetjandi á þróun nýrra valkosta, t.d. með því að margir eiga aðkomu að ferlinu á fundum, kynningarmessum og með framsetningu efnis á Netinu og á vettvangi félagasamtaka og hagsmunaaðila,“ segir Stefán. Reykvíkingum stillt upp andspænis afarkostum Yfirvöld flugmála og samgöngumála hafa alla tíð haldið því fram að aðeins væri um tvo kosti að ræða, Reykjavíkurflugvöll á sínum stað eða flutning miðstöðvar innanlandsflugs- ins til Keflavíkur. Val á milli þessarra tveggja kosta er afar erfitt vegna þess að flutningur flugsins til Keflavíkurflugvallar hefur mjög neikvæðar hliðar, svo neikvæðar að ráðamenn í Reykjavíkurborg treysta sér ekki til að leggja það til, þótt þeir vilji gjarnan losa Vatnsmýrina að hluta til eða helst að öllu leyti svo þar sé hægt að byggja upp. Í grein í Morgunblaðinu á dögunum líkir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri þessu áliti samgönguráðherra og undirstofnana hans í fluginu við að Reykvík- ingum sé stillt upp andspænis afarkostum, til þess að reyna að tryggja að flugvöllurinn verði áfram óbreyttur í Vatnsmýrinni. „Með þessum málflutningi er ráðherrann að freista þess að hafa áhrif á kjósendur í Reykjavík og þvinga þá til fylgilags við óbreytt ástand. Borgaryf- irvöld hafa því lagt allt kapp á að sýna fram á að fleiri kosta sé völ og hefur verið lagt í veru- lega vinnu við það á vegum embættismanna borgarinnar og í vinnu á vegum svæðisskipu- lags höfuðborgarsvæðisins. Eftir þá vinnu Morgunblaðið/Árni Sæberg KOSIÐ VERÐUR UM FORGANGSRÖÐUN Umræðan um framtíð flugvallarins hefur nú í auknum mæli beinst að skipulagi Vatnsmýr- arinnar eftir að ljóst varð að aðeins yrði kosið um hvort flugvöllurinn ætti að vera eða fara af svæðinu. Mikið kynningarstarf er nú hafið á vegum borgaryfirvalda, sem og annarra samtaka sem stofnuð hafa verið með og á móti flug- velli, en hér er um að ræða fyrsta skipulagsmálið sem lagt er fyrir íbúana í borgaralegri kosningu. Líklegt er að tekist verði á um framtíð Reykjavíkurflugvallar í næstu kosningum til borgarstjórnar, að því er fram kemur í lokagrein Jóhönnu Ingvarsdóttur og Helga Bjarnasonar, í flokki greina Morgunblaðsins um skipulag Vatnsmýrar og framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.