Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 14

Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 14
14 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ greiðslunnar nemur yfir 30 milljónum króna, þar af er kostnaður vegna sjálfrar atkvæða- greiðslunnar um 18 milljónir kr. og 12-15 millj- ónir kr. vegna kynningarefnis. Sameiningar og hundahald Mjög erfitt er að spá um hver kjörsókn kann að verða, en borgarstjóri væntir þess að hún kunni að verða talsvert mikil í ljósi þeirra miklu umræðna sem fram hafa farið um málið að und- anförnu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins hefur verið unnið út frá 30% kjörsókn við skipulag atkvæðagreiðslunnar. Í almennum sveitarstjórnarkosningum er kjörsókn vel yfir 80% í Reykjavík, en hún hefur verið mun minni í kosningum um einstök málefni. Aðeins þrí- vegis áður hefur verið efnt til borgarakosninga um einstök málefni, þar af hefur tvisvar verið kosið um sameiningar í bindandi kosningum og einu sinni um hundahald í leiðbeinandi kosn- ingu. Síðast var kosið 21. júní 1997 um tillögu um sameiningu Reykjavíkur við Kjalarnes- hrepp og var kjörsóknin aðeins 9,63%. Þann 20. nóvember 1993 var kosið um sameiningu Reykjavíkur, Seltjarnarness, Mosfellsbæjar, Kjalarneshrepps og Kjósarhrepps og reyndist kjörsóknin þá vera 24,1%. Loks er að geta kosningar um hundahald í Reykjavík sem fram fór dagana 24.-30. október 1988 sem 12,8% tóku þátt í. Víðtæk kynning hafin Víðtækt kynningarátak er nú þegar hafið vegna atkvæðagreiðslunnar á vegum Reykja- víkurborgar sem og annarra samtaka, sem eru ýmist með eða á móti flugvelli í Vatnsmýri. Opnaður hefur verið upplýsingavefur á Netinu undir heitinu „flugvollur.is“ sem jafnframt er vettvangur skoðanaskipta um Reykjavíkur- flugvöll. Reykjavíkurborg mun kynna valkost- ina á vefnum og þar er einnig að finna þau gögn sem unnin hafa verið um málið. Hagsmuna- aðilar eiga þess kost að kynna viðhorf sín á vefnum og einstaklingar geta sent inn fyrir- spurnir og fengið svör við þeim. Opinn borgarafundur verður um framtíðar- nýtingu Vatnsmýrar og framtíð flugvallar í Ráðhúsinu í dag kl. 14.00 og verður honum sjónvarpað beint um land allt. Fundarstjórar verða Stefán Jón Hafstein og Brynhildur Þór- arinsdóttir. Eftir kynningu á flugvallakostum og ávarp borgarstjóra munu sérfræðingar og hagsmunaaðilar, flytja stutt erindi um málið frá sínum bæjardyrum séð og síðan munu þeir taka þátt í pallborðsumræðum þar sem fjórir borgarfulltrúar, tveir frá minnihluta og tveir frá meirihluta, verða spyrlar. Þátttakendur í umræðunum verða Friðrik Pálsson formaður Hollvina Reykjavíkurflugvallar, Þorkell Sigur- laugsson frá samtökunum 102 Reykjavík, Steinunn Jóhannesdóttir frá Samtökum um betri byggð á höfuðborgarsvæðinu, Þorgeir Pálsson flugmálastjóri, Trausti Valsson skipu- lagsfræðingur og Kristján Þór Júlíusson bæj- arstjóri á Akureyri. Í lok fundarins munu svo borgarstjóri og samgönguráðherra takast á um málið. Þá er stefnt að kynningarviku um atkvæðagreiðsl- una í Tjarnarsal Ráðhússins 8.-15. mars. Bás- um verður úthlutað til hagsmunaaðila þeim að kostnaðarlausu og málstofur haldnar milli kl. 17.00 og 18.00 alla dagana auk þess sem kynn- ingarefni hefur verið dreift inn á öll heimili í borginni um málið. Kjósendur þurfa að vega og meta hagsmuni „Í grundvallaratriðum snýst valið aðeins um það hvort völlurinn eigi að fara eða vera, eins og ég hef alltaf sagt. Það er aftur á móti ekki á valdi Reykvíkinga að ákveða hvert flugvöllur- inn verður fluttur, ef Reykvíkingar vilja Vatns- mýrina undir annað en flugstarfsemi eftir 2016,“ segir borgarstjóri. Að undanförnu hafa bæði kostir og gallar verið kynntir við ýmsar flugvallarhugmyndir, sem bent hefur verið á, og segir Ingibjörg Sólrún nauðsynlegt að þær athuganir hafi farið fram þar sem Reykvíking- um sé nauðsynlegt að vita að ýmissa kosta sé völ í báðum tilvikum. Ef menn kysu að hafa völlinn áfram í Vatnsmýri, væru tveir kostir í stöðunni, annars vegar að flugvöllur yrði þar í nokkuð breyttri mynd, með tveimur flugbraut- um í stað þriggja nú og hinsvegar að flugvöllur yrði áfram en með eina braut á landi og aðra braut á uppfyllingu í Skerjafirði. Hinsvegar væru þrír kostir í stöðunni vildu menn völlinn burt, í fyrsta lagi flugvöllur í Hvassahrauni í Vatnsleysustrandarhreppi, í öðru lagi flugvöll- ur á Lönguskerjum og í þriðja lagi flutningur til Keflavíkur. Þrátt fyrir að borgaryfirvöld og borgarbúar kunni að hafa ákveðinn skilning á hagsmunum landsbyggðarinnar hvað flugsamgöngur varð- ar, þýðir það ekki endilega að þeir hagsmunir séu ofar skipulagshagsmunum Reykvíkinga, segir borgarstjóri. Íbúum borgarinnar sé vel treystandi til þess að vega og meta hagsmuni við kjörborðið. ÍBÚUM Reykjavíkur gefst kostur á að veljamilli tveggja kosta í atkvæðagreiðslu umframtíðarnýtingu Vatnsmýrar sem framfer laugardaginn 17. mars nk. Spurt verð- ur: „Vilt þú að flugvöllur verði í Vatnsmýri eftir árið 2016 eða vilt þú að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýri eftir árið 2016?“ Á kjörskrá verða um 85 þúsund manns, 18 ára og eldri, og verður kosningin bindandi fyrir borgaryfirvöld taki að minnsta kosti þrír fjórðu hlutar atkvæðisbærra manna þátt eða ef einsýnt verður að helmingur atkvæðisbærra manna greiðir öðrum hvorum kostinum, sem kosið verður um, atkvæði sitt. Kjósa má í Kringlunni Atkvæðagreiðslan verður rafræn og kjör- skrá miðlæg sem þýðir að greidd verða atkvæði á tölvu og kjósandi er ekki bundinn af tiltekinni kjördeild, líkt og í almennum kosningum held- ur getur nýtt hverja þá kjördeild sem best hentar. Hér er um nýmæli að ræða þar sem ekki hefur áður verið boðið upp á rafræna kosningu hér á landi í svo stórri og almennri at- kvæðagreiðslu. Þeir sem ekki sjá sér fært að kjósa á sjálfan kosningadaginn eða vilja kjósa með skriflegum hætti, geta kosið utankjörstað- ar í Ráðhúsinu vikuna fram að kjördegi. Á sjálf- an kosningadaginn verður Ráðhúsið sömuleiðis aðalkjörstaðurinn með tíu kjördeildir. Í þrem- ur skólum höfuðborgarinnar, Laugarnesskóla, Seljaskóla og Engjaskóla, verða 4-5 kjördeildir og í Kringlunni verða settar upp sex kjördeild- ir. Gunnar Eydal, skrifstofustjóri borgar- stjórnar, segir umfang kosninganna heldur minna en tíðkast í alþingis- og sveitastjórnar- kosningum. Samtals sé um að ræða 30 kjör- deildir og tæplega 100 kjörklefa. „Ef við sjáum að það stefni í mjög mikla kjörsókn þennan dag verður hægt að auka viðbúnaðinn með tiltölu- lega skömmum fyrirvara. Kostnaður borgarsjóðs vegna atkvæða- Atkvæðagreiðsla um framtíðarnýtingu Vatnsmýrarsvæðisins fer fram 17. mars BORGARBÚAR KJÓSA MILLI TVEGGJA KOSTA TENGLAR .......................................................... Greinaflokkurinn birtist einnig á Morgunblaðsvefnum: www.mbl.is Morgunblaðið/Þorkell FRAMTÍÐ FLUGVALLAR  Koma má ábendingum vegna greinaflokksins til annars höfundarins, Jóhönnu Ingvarsdóttur: join@mbl.is og Skapta Hallgrímssonar: skapti@mbl.is, vegna fjarveru hins höfundarins, Helga Bjarnasonar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.