Morgunblaðið - 18.02.2001, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
E
INN alræmd-
asti hópur
herskárra
umhverfis-
verndarsinna
í Bandaríkj-
unum er sam-
tökin Earth
Liberation Front, eða Frels-
issamtök jarðarinnar. Sam-
tökin hafa lýst tugum
skemmdarverka á hendur sér
á undanförnum árum og er
tjónið metið á um 37 milljónir
dollara, eða um 3,2 milljarða
króna. Mest varð tjónið þegar
félagar í samtökunum kveiktu
í samtals sjö húsum og skíða-
lyftum á því fræga skíðasvæði
Vail í Colorado haustið 1998.
Tjónið þar var metið á um
einn milljarð króna. Forstjóri
bandarísku alríkislögreglunn-
ar FBI, Louis J. Freeh,
nefndi Earth Liberation
Front sérstaklega í skýrslu
sinni fyrir nefnd öldunga-
deildar Bandaríkjaþings og
benti á að samtök af þessum
toga yrðu sífellt hættulegri
eftir því sem þekking þeirra á
hryðjuverkum yrði meiri.
Earth Liberation Front,
eða ELF, á rætur að rekja til
Englands árið 1992. Þar störf-
uðu samtökin Earth First!, en
þau samtök klofnuðu þegar
meirihlutinn ákváð að halda
baráttu sinni í umhverfismál-
um innan ramma laga. Árið
1994 ákvað Earth First! einn-
ig að hasla sér völl innan
Bandaríkjanna án þess að
beita ólöglegum aðferðum, en
samhliða spruttu upp ELF-
samtök þar. ELF hafði þá
þegar hafið samvinnu við Ani-
mal Liberation Front, eða
ALF, en þau samtök voru orð-
in alræmd fyrir þá iðju sína í
Bretlandi og Bandaríkjunum
að brjótast inn í minka- og
refabú og sleppa dýrunum
lausum, fjarlægja dýr af til-
raunastofum og fleira í þeim
dúr.
ELF beitir gjarnan íkveikj-
um til að vekja athygli á mál-
stað sínum. Í Bandaríkjunum
lýsti ELF í fyrsta skipti
verknaði á hendur sér í októ-
ber 1996, þegar kveikt var í
bifreið í eigu bandarísku
skógræktarinnar í Oregon.
Tilraun til að kveikja í húsi
skógræktarinnar tókst ekki.
Tveimur dögum síðar brann
miðstöð skógarvarða í Oregon
til kaldra kola.
Árið 1997 héldu íkveikjurn-
ar áfram og enn voru þær í
Oregon. Þær beindust að op-
inberri landvörslu og kjöt-
vinnslu í einkaeigu. Þá voru
einnig negldir langir stálnagl-
ar í tré á vinnslusvæði sögun-
armyllu, til að gera þau óhæf
til vinnslu. Skýringar á verk-
unum voru oftast á þá leið, að
þau væru unnin til að koma í
veg fyrir spillingu lands og
gæða.
MINKAR, HESTAR,
BÆNDUR OG GAUPUR
Fyrstu árin voru skemmd-
arverkin unnin í samvinnu
ALF og ELF. Það má t.d. sjá
af vali á verkefnum árið 1998,
en þau fólust m.a. í að sleppa
minkum úr búrum og villtum
hestum úr girðingum, líkt og
ALF hafði nánast sérhæft sig
í. Skemmdarverkin voru einn-
ig farin að dreifast víðar um
Bandaríkin, þótt vestur-
ströndin, aðallega Oregonríki,
yrði oftast fyrir valinu. Fyrsta
verk ELF, án atbeina dýra-
vinanna í ALF, var að sprauta
rauðri málningu á sendiráð
Mexíkó í Boston til að mót-
mæla meðferð mexíkóskra yf-
irvalda á bændum í Chiapas-
héraði.
ELF vakti fyrst verulega
athygli við íkveikjurnar á
skíðasvæðinu í Vail í október
1998. Fjórar skíðalyftur eyði-
lögðust, veitingahús og tvö
hús önnur. Í fréttatilkynningu
frá ELF sagði að sístækkandi
skíðasvæðið væri óðum að
leggja undir sig búsetusvæði
gaupunnar, rándýrs af katta-
ætt sem telst í útrýmingar-
hættu.
ELF lýsti ábyrgð sinni á
þremur íkveikjum árið 1999,
þar á meðal á rannsóknar-
stofu Michigan-háskóla þar
sem samtökin sögðu háskól-
ann hafa tekið þátt í þróun
erfðabreyttra matvæla með
það fyrir augum að þvinga
þróunarlönd til að rækta
erfðabreyttar matjurtir.
Á síðasta ári lét ELF mjög
mikið að sér kveða, kveikti í
einbýlishúsum í byggingu til
að mótmæla útþenslu borga,
skemmdi vinnutæki skógar-
höggsmanna, hjó niður tré
sem samtökin sögðu vera
erfðabreytt og kveikti í höf-
uðstöðvum repúblikana í Ind-
íana til að mótmæla gerð
hraðbrautar í ríkinu.
Litlar líkur eru á að ELF
dragi saman seglin á næst-
unni. Fyrsta dag ársins var
kveikt í skrifstofubyggingu
sögunarmyllu í smábæ í Oreg-
on. Myllan var í eigu skógar-
höggsfyrirtækis í Idaho, sem
hafði fært út kvíarnar til Ore-
gon og nýlega undirritað
samning um samstarf við fyr-
irtæki í Chile. Í fréttatilkynn-
ingu frá ELF sagði m.a., að
samtökin vonuðust til að slík-
um aðgerðum gegn auðvaldi
og iðnaði fjölgaði á árinu 2001.
ELF hefur einnig látið að
sér kveða í Evrópu, t.d. sendu
samtökin sprengjuhótanir á
staði McDonald’s-veitinga-
keðjunnar í Hollandi árið 1999
og vörpuðu eldsprengju að
einum þeirra. Systursamtökin
ALF réðust að litlum verslun-
um sem selja fisk og franskar
í Bretlandi, enda sagði tals-
maður samtakanna þar að
sjávarútvegurinn væri mjög
grimmdarlegur atvinnuvegur.
Þegar mennirnir myrtu spen-
dýr og fugla létu þeir a.m.k.
sem drápið væri mannúðlegt,
en fiskar væru dregnir úr hafi
í framandi umhverfi þar sem
þeir dræpust hægt og kvala-
fullt.
EYÐILEGGJA ORÐSPORIÐ
Ýmis umhverfisverndar-
samtök, þar á meðal Earth
First!, hafa fordæmt íkveikj-
ur ELF. Þessi samtök segja
hryðjuverk af þessu tagi að-
eins eyðileggja orðspor um-
hverfisverndarsinna. Hins
vegar hafa sum umhverfis-
verndarsamtök neitað að for-
dæma verknaðina og því er
stundum haldið fram að þau
styðji í raun slíkar aðgerðir,
en þori ekki að ganga svo
langt að lýsa við þau stuðningi
opinberlega af ótta við að al-
menningsálitið snúist gegn
þeim.
Bent hefur verið á að Earth
First! notaði sprengiefni til að
skemma skíðalyftur í Arizona
árið 1988 og ALF notaði röra-
sprengjur árið 1998 til að
eyðileggja bíla á loðdýrabú-
um. Fréttatilkynningar þess-
bregðast við ef FBI kemur í
heimsókn, en þau eiga sér
engan talsmann og engar höf-
uðstöðvar. Þar af leiðandi
virðist vonlaust verk fyrir lög-
regluna að koma sínum manni
í raðir þeirra. Bakari í Oreg-
on, þekktur umhverfisvernd-
arsinni, hefur komið fréttatil-
kynningum samtakanna á
framfæri, en hann neitar að
gefa upp hvort þær berast
honum með pósti, tölvupósti
eða símleiðis. FBI gerði hús-
leit á heimili hans og vinnu-
stað, en virðist ekki hafa haft
neitt upp úr krafsinu.
Þá hefur verið á það bent,
að lögreglan hafi verið sein að
átta sig á tengslum skemmd-
arverka víða um landið. Hún
hafi ekki haft yfirsýn yfir þau,
bæði vegna þess að ekki var
til gagnabanki á landsvísu til
að skrá öll tilvik og vegna þess
að margir voru tregir til að
kæra skemmdarverk, nema
skaðinn væri þeim mun meiri.
Þeir munu hafa óttast enn
harkalegri aðgerðir, leituðu
þeir til lögreglunnar, eða ótt-
ast að fleiri fengju svipaðar
hugmyndir að skemmdar-
verkum, væri frá þeim skýrt
opinberlega.
Þrátt fyrir að illa hafi geng-
ið að hafa uppi á skemmdar-
vörgunum hefur lögreglan nú
tvo menn í haldi. Annar er 17
ára piltur sem sakaður er um
skemmdarverk og að hafa
kveikt í, eða gert tilraun til að
kveikja í, alls 19 íbúðarhúsum
í byggingu í New York-ríki. Á
húsin var m.a. ritað með
málningu: „Ef þið byggið þau
munum við brenna þau.“ Lög-
reglunni þykir ólíklegt að pilt-
urinn hafi verið einn að verki.
Hinn maðurinn í haldi lög-
reglu er 26 ára. Hann er sak-
aður um að hafa neglt mörg
hundruð nagla í tré í Indíana
til að koma í veg fyrir skóg-
arhögg.
MESTA HRYÐJU-
VERKAÓGNIN
Bandarískur almenningur
virðist lítt þekkja til Earth
Liberation Front og fjöl-
miðlaumfjöllun er ekki mikil.
Þetta áhugaleysi má að líkind-
um rekja til þess að samtökin
hafa aðallega beitt sér gegn
fyrirtækjum og stofnunum og
hingað til hefur enginn slasast
í árásum þeirra. Það kemur
þó ekki í veg fyrir að banda-
ríska alríkislögreglan lýsi
ELF sem „hryðjuverkasam-
tökum“ og líki þeim við öfga-
hópa sem varpa sprengjum að
læknastofum þar sem fram-
kvæmdar eru fóstureyðingar.
ELF er, að mati FBI, ein
mesta hryðjuverkaógnin sem
steðjar að í Bandaríkjunum
og lögreglan hefur skorið upp
herör gegn samtökunum.
Miðað við yfirlýsingar ELF
í byrjun ársins um fjölgun
árása á auðvald og iðnað er
líklegt að lögreglan muni hafa
í nógu að snúast.
ara samtaka eru gjarnan
keimlíkar. Þær raddir hafa
því heyrst að í raun séu meira
eða minna sömu félagsmenn í
þessum samtökum, en þeir
sveipi sig ólíkum skikkjum
eftir því sem við eigi. Aðrir
segja að ELF komi umhverf-
isverndarsinnum ekkert við,
þetta séu samtök sem fremji
skemmdarverk til þess eins
að eyðileggja orðspor um-
hverfisverndarsinna hvar-
vetna.
Lögreglunni gengur illa að
hafa uppi á félagsmönnum
ELF. Þær skýringar hafa
m.a. verið gefnar, að þetta sé
mjög óformlegur félagsskap-
ur og í raun séu aðgerðirnar
meira og minna einstaklings-
framtak. Hver félagsmaður
þekki í mesta lagi til örfárra
annarra, eins og títt sé um
hryðjuverkasamtök. Samtök-
in eru nýbúin að opna heima-
síðu á Netinu, þar sem m.a.
eru kenndar aðferðir við
íkveikjur og hvernig eigi að
Mesta hryðjuverkaógn
sem steðjar
að Bandaríkjunum
AP
Steve Swanson, forstjóri
Superior Lumber Co. í Glen-
dale í Oregon, kannar
skemmdir eftir að félagar í
ELF kveiktu í skrifstofum
fyrirtækisins.
Stuðningsmenn ELF mót-
mæla fyrir utan alríkisdóms-
húsið í Portland í Oregon í
síðustu viku.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa vaxandi
áhyggjur af herskáum hópum umhverf-
isverndarsinna, sem skirrast ekki við að
vinna spellvirki til að vekja athygli á mál-
stað sínum. Ragnhildur Sverrisdóttir
segir að illa gangi að koma lögum yfir slíka
hópa, sem bandaríska alríkislögreglan
segir mestu hryðjuverkaógn í landinu.
Bandar íska a l r ík is lögreg lan berst v ið herskáa umhver f i sverndars inna