Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 21
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
Lífrænar jurtasnyrtivörur
Hálskremið — hálskremið
BIODROGA
COEN-bræður hafa ætíð verið
lunknir við að skapa nokkuð ýktar og
absúrd persónur. Hinn mælski Ulys-
ses Everett McGill og vitgrönnu
félagar hans Delmar og Pete eru
engin undantekning á því, né aðrar
persónur í þessari mynd. Það gefur
tóninn fyrir þessa léttfáránlegu
mynd sem er mjög lauslega byggð á
Ódysseifskviðu Hómer heitins.
Myndin gerist á þriðja áratug
seinustu aldar. Þeir félagarnir brjót-
ast út úr fangelsi í leit að fjársjóði, og
á leiðinni lenda þeir í ýmsum ævin-
týrum, eru dregnir á tálar af dular-
fullum konum og plataðir af eineygð-
um risa, svo eitthvað sé nefnt.
Handritið er engin snilld. Það
sækir hugmyndir til Hómers til að
ganga út frá og þær síðan misgáfu-
lega tengdar saman til að mynda
heild, sem á stundum verður jafnvel
langdregin. Myndin er því saman-
safn uppákoma án þess að eiginleg
þróun eigi sér stað. Þannig þjónar
sagan meira hugmyndinni að aðlög-
un Ódysseifskviðanna í stað þess að
þær þjóni því sem þeir bræður vilja
koma á framfæri, sem er alls ekki
augljóst. Ég býst við að þeir hafa
bara viljað skapa stemmningarsögu
frá þessu tímabili í sögu Bandaríkj-
anna.
Það sem ég fílaði svo vel í The
Hudsucker Proxy var hversu stjórn-
uð hún var. Kvikmyndatakan var út-
hugsuð, leikstíllinn ýktur en bæði
snilldarlega góður og í fullu í sam-
ræmi við kvikmyndir teknar á þeim
tíma sem myndin gerist á. Glæsilega
vel stjórnað verk af hendi þeirra
bræðra. Hér slá þeir aðeins slakar
við við stjórnvölinn, þar sem bæði
leikstíllinn og grínið fara alltaf aðeins
yfir strikið, sem er synd.
Leikararnir standa sig samt ágæt-
lega. George Clooney er býsna
skemmtilegur í sínu, stundum af-
káralega, hlutverki sem Ulysses
Everett. John Turturro er sömuleið-
is fínn sem Pete, en senuþjófurinn er
hinn lítt þekkti Tim Blake Nelson
sem er hreinlega frábær. Hann er
yndislega aulalegur og þess virði að
horfa sérstaklega á allan tímann.
Tónlistin er stór hluti þessarar
kvikmyndar og er það vel. Hún er
skemmtileg þessi sveitalega banda-
ríska „bluegrass“ tónlist og hún set-
ur svo sannarlega réttu stemmn-
inguna í myndina og er alveg í takt
við húmorinn. Þótt innihaldið sé frek-
ar tómlegt, þá er myndin fínasta af-
þreying og mjög vönduð sem slík. Og
sumar uppákomurnar og hugmynd-
irnar alveg einstakar, að hætti þess-
ara frumlegu bræðra sem vonandi
verða aðeins gáfulegri í næstu mynd.
Lúðulakar
í leiðangri
KVIKMYNDIR
H á s k ó l a b í ó
Leikstjórn: Joel Coen. Handrit:
Ethan Coen, Joel Coen og Hómer.
Aðalhlutverk: George Clooney,
John Turturro, Tim Blake Nelson,
John Goodman, Holly Hunter og
Charles Durning. Working Title
Films 2000.
O BROTHER, WHERE
ART THOU? Hildur Loftsdótt ir
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
Lífrænar jurtasnyrtivörur
24 stunda dag- og næturkrem
BIODROGA