Morgunblaðið - 18.02.2001, Síða 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 23
BMW 525iX
Nýskr. 4.1994, 2500cc vél,
5 dyra, sjálfskiptur, grænn, ekinn 108 þús.
Topplúga, ABS, álfelgur o.m.fl.
Verð 1.790 þús.
Ólafur Þór Ólafsson
leiðbeinandi
*Þú getur gert, átt eða verið það sem þú vilt.
Brian Tracy
Upplýs. og skráning
s. 533 5522
Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 22. febrúar kl. 18 á Hótel Loftleiðum. Nokkur sæti laus.
Námskeið til árangurs
www.markmidlun.is
Náðu árangri og Phoenix
Frábær námskeið í sjálfsrækt og markmiðasetningu
sem færa þér lyklana að þinni eigin velgengi í lífi og starfi.
Ath. frí netbók á heimasíðu
Sérstakt verðtilboð einungis á þetta námskeið
SÝNING er hafin á myndvefnaði
Sveinbjargar Vigfúsdóttur í Þjón-
ustumiðstöð aldraðra á Dalbraut 27.
Sveinbjörg er 97 ára og býr á þjón-
ustumiðstöðinni. Hún byrjaði á
myndvefnaði fyrir tveimur árum
undir handleiðslu Hönnu Ragnars-
dóttur vefnaðarkennara.
Myndvefn-
aður á
Dalbraut
HÁDEGISFUNDUR Sagnfræð-
ingafélagsins verður á þriðjudag í
fundarsal Norræna hússins kl. 12.05
til 13. Orri Vésteinsson fornleifa-
fræðingur heldur fyrirlestur sem
hann nefnir „Fornleifar, heimildir og
samtíminn“.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um
heimildargildi fornleifa og mögu-
leika á nýjum sjónarhornum á ís-
lenska fortíð.
Í fréttatilkynningu segir m.a. að
heimildargildi fornleifa geti haft
fjárhagslegt gildi (málmverð) og list-
rænt eða fagurfræðilegt gildi, en
heimildargildið er ekki alltaf jafn-
augljóst, sér í lagi ekki þegar um er
að ræða fornleifar frá tímabilum sem
ritheimildir eru einnig til um.
Orri Vésteinsson er doktor í sagn-
fræði frá Lundúnaháskóla (1996) en
hafði áður lokið mastersprófi í forn-
leifafræði frá sama skóla. Hann hef-
ur verið forstöðumaður rannsókna-
og kennslusviðs Fornleifastofnunar
Íslands frá stofnun hennar 1995 en
auk þess stjórnað fornleifaskráningu
á hennar vegum.
Fornleifafyrirlestur
FIMMTI árgangur af Ritmennt,
ársriti Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns, er kominn út. Í
ritinu er um einn tugur greina og
frásagnarþátta.
Fremst í ritinu er grein sem rituð
er af bónda norður í Eyjafirði, Birgi
Þórðarsyni. Þar er um að ræða heim-
ildakönnun sem tengist tveimur 19.
aldar handritum, minnisbók og broti
úr dagbók, eftir Eggert Ó. Gunn-
arsson, mikinn framkvæmda- og
hugsjónamann, sem að lokum varð
landflótta vegna skulda. Átjánda öld-
in á sína fulltrúa í ritinu – lærða
grein um heimildanotkun Hálfdánar
Einarssonar í hinu latneska riti hans
um íslenskar bókmenntir; grein um
Eggert Ólafsson og hugmyndafræð-
ina í kveðskap hans; í þriðja lagi er
umfjöllun um Hagþenki Jóns Ólafs-
sonar úr Grunnavík. Birt er, ásamt
skýringum, kvæði á ensku, hið fyrsta
sem Íslendingur yrkir á þeirri tungu
að því er best er vitað. Höfundur er
Lárus Sigurðsson frá Geitareyjum,
hollvinur Jónasar Hallgrímssonar og
mikill efnismaður, sem lést mjög
ungur.
Nýjung er að grein þar sem rakið
er eftir frumheimildum lífshlaup
tveggja frænda sem stunduðu prent-
nám í Reykjavík seint á 19. öldinni.
Í tilefni af aldarminningu Jóhann-
esar úr Kötlum er lítil grein um hið
sívinsæla kver hans, Jólin koma, sem
komið hefur út nær tuttugu sinnum.
Stutt frásögn af því er innsigli af
kassa með gögnum Erlends í Unu-
húsi var rofið í Landsbókasafni í
upphafi menningarársins.
Ritmennt er 160 bls. Ritstjóri er
Einar Sigurðsson, en í ritnefnd eru
Kristín Bragadóttir, Þorleifur Jóns-
son og Ögmundur Helgason.
Tímarit
ATVINNA mbl.is