Morgunblaðið - 18.02.2001, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 29
Á SVIÐI framleiðslu kvikmynda
sjónvarps- og margmiðlunarefnis
hefur Evrópusambandið rekið sér-
stakar áætlanir undir heitinu
MEDIA og höfum við Íslendingar
haft aðild að þeim frá árinu 1993. Um
síðustu áramót rann MEDIA II áætl-
unin skeið sitt á enda og hafði hún
staðið yfir frá ársbyrjun 1996. Heild-
arfjárveiting til hennar voru tæpir 25
milljarðar króna og fór stærstur hluti
þess fjármagns til undirbúnings, þró-
unar og dreifingar kvikmynda- og
sjónvarpsefnis. Einnig voru styrkir
veittir til þjálfunar og endurmennt-
unar fagfólks á umræddu sviði.
Frá því að þátttaka Íslands í
MEDIA hófst hafa þrjátíu íslensk
fyrirtæki fengið lán eða styrki til
dreifingar á evrópskum kvikmyndum
og myndböndum hér á landi. Jafn-
framt hafa átta fyrirtæki fengið
styrki til dreifingar á evrópskum
kvikmyndum og myndböndum á Ís-
landi og erlendir dreifingaraðilar
hafa fengið lán eða styrki til að sýna
íslenskar kvikmyndir í allt að sex
Evrópulöndum. Þar að auki má nefna
að tvö íslensk sjónvarpsverkefni hafa
fengið víkjandi lán til að undirbúa
dreifingu til evrópskra sjónvarps-
stöðva og tvö kvikmyndahús hafa
hlotið árlegan styrk síðastliðin sex ár
til að sýna evrópskar kvikmyndir.
Einnig má nefna að margmiðlunar-
fyrirtækið Gagarín hefur hlotið út-
hlutun upp á u.þ.b. 19 milljónir til til-
raunaverkefnis við markaðssetningu
margmiðlunarleiks í Evrópu. Frá því
að Íslendingar hófu þátttöku í Media
hefur á fjórða hundrað milljónum
króna verið úthlutað hingað til lands
á sama tíma og aðildargjöld okkar
hafa verið rúmar 24 milljónir.
Í byrjun þessa árs hófst formlega
næsta stig MEDIA-áætlunarinnar,
MEDIA-plus, sem standa mun yfir
til ársloka 2005. Megináherslur og
markmið munu áfram verða þau
sömu þótt um smávægilegar breyt-
ingar verði að ræða. Áhersla verður
lögð á menntun fagfólks og undirbún-
ing verkefna og stutt verður við fyr-
irtæki á sviði framleiðslu og dreifing-
ar myndefnis. Í flestum tilfellum er
þessi stuðningur í formi vaxtalausra
og skilyrtra lána en í sumum tilfellum
er einnig um beina fjárstyrki að
ræða. Heildarfjárframlög verða jafn-
framt hækkuð í tæplega 32 milljarða
króna. Vonast Evrópusambandið til
að fjölga störfum í evrópskri sjón-
varps- og kvikmyndaframleiðslu um
300 þúsund á þessu fimm ára tímabili
en reiknað er með að hún veiti þegar
um einni milljón manns atvinnu í álf-
unni.
Sérstakar upplýsingaþjónustur
fyrir MEDIA-áætlunina eru reknar í
hverju þátttökuríki og hafa það hlut-
verk að veita upplýsingar um alla þá
starfsemi sem heyrir undir hana. Þar
fá umsækjendur aðstoð við útfyllingu
umsókna um lán og styrki í tengslum
við áætlunina, sem og upplýsingar
um stofnanir og samtök sem tengjast
henni. Þeir sem vilja afla sér frekari
upplýsinga um MEDIA-áætlunina er
bent á að setja sig í samband við upp-
lýsingþjónustuna og skoða upplýs-
ingasíðu hennar á slóðinni
www.centrum.is/mediadesk/.
Á fjórða hundrað milljóna til
kvikmyndagerðar og dreifingar
SÖLUSTAÐIR:
Kosmeta
Síðumúla 17 • 108 Reykjavík
Sími: 588 3630 • Fax: 588 3731
Netfang: kosmeta@islandia.is
REYKJAVÍK:
Glæsibæ • Domus Medica • Austurveri • Háteigsvegi
Melhaga • Kringlunni, 1. og 3. hæð • Mjódd
Fjarðarkaupum, Hafnarfirði
LANDIÐ:
Hafnarstræti, Akureyri • Hveragerði • Þorlákshöfn
Kirkjubraut 5, Akranesi
Dalvíkur-Apótek • Apótekið Ólafsfirði
Apótek Sauðárkróks • Apótek Vestmannaeyja
Apótekið Siglufirði • Apótek Ólafsvíkur
Apótek Ísafjarðar • Apótek Austurlands
Stykkishólmsapótek • Lyfjaútibúið Grundarfirði
Lyfsalan Patreksfirði • Árnes Apótek, Selfossi
Grafarvogs Apótek, Hverafold 1-2 • Árbæjarapótek
Amon-Ra, Hraunbergi 4 • Garðs Apótek, Sogavegi 108
Lónið, Þórshöfn • Hjá Maríu, Amaróhúsinu, Akureyri
Pétursbúð, Ránargötu 15 • Verslunin Áskjör, Ásgarði 22
Verslunin Kjötborg, Ásvallagötu 19
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga
Kjöthöllin, Háaleitisbraut 58-60
Hárgreiðslustofan Evíta, Starmýri 2
Þverholti 2, Mosfellsbæ • Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi
Smáratorgi 1, Kópavogi • Spönginni 13, Reykjavík
Kringlunni 8-12, Reykjavík • Fjarðargötu 13-15, Hafnarfirði
Iðufelli 14, Reykjavík • Smiðjuvegi 2, Kópavogi
Njarðvík
Nei, það er alveg á hreinu að það
kaupir enginn köttinn í sekknum
sem skellir sér á amerísku úrvals
hárvörurnar CITRÉ SHINE!
Þær eru fyrsta flokks, ódýrar,
standa í engu að baki dýrari hár-
snyrtivörum og eru einstaklega
drjúgar í notkun.
Af CITRÉ SHINE er ferskur ilmur sítrusávaxtanna,
appelsína, sítróna og greipaldinna, sem þær eru að hluta
til framleiddar úr, auk þess sem safi og börkur ávaxtanna
gefa hárinu skínandi glans, lifandi og heilbrigt útlit.
Fást um gjörvöll Bandaríkin, Suður-Ameríku, Kanada,
Ástralíu, Evrópu, í Austurlöndum og núna um mest allt
Ísland!
Melabúðin, Hagamel 39
Köttur
í
sekknum
???
G
A
U
K
U
R