Morgunblaðið - 18.02.2001, Síða 30

Morgunblaðið - 18.02.2001, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þ órður kynntist flutn- ingamálum töluvert sem fiskútflytjandi og í viðskiptafræðináminu í Háskólanum en hann segir það hafa verið hálfgerða til- viljun að hann hóf sjálfur rekstur flutningsmiðlunar. Hann komst í kynni við eiganda erlendrar flutn- ingsmiðlunar, sem vildi hasla sér völl á Íslandi, og í sameiningu ákváðu þeir að stofna Fraktlausnir haustið 1997. Hefur flutningamarkaðurinn ekki breyst töluvert á þessum tíma? „Það má segja að þessi markaður hafi tekið gífurlegum breytingum á síðustu tíu árum eða svo. Áður var þetta mjög einfalt. Innflytjendur gátu valið á milli tveggja skipa- félaga, Eimskips og Samskipa, eða flugfraktar með Flugleiðum ef þeim lá á. Á síðustu árum hafa fleiri að- ilar bæst í hópinn, sérstaklega í flugfrakt, og samkeppnin er sífellt að aukast. Verðmunur milli skipa- og flugflutninga mjókkar með hverju árinu sem líður og það verð- ur æ hagkvæmara að taka þyngri sendingar með flugi. Vegna mikilla framfara í flutningatækni hafa ís- lensk fyrirtæki skorið niður lager- hald sitt hér heima og treysta á að geta pantað vörur og varahluti með skjótum hætti frá Evrópu eða Am- eríku.“ Hvernig gengur ykkur að afla viðskiptavina? Eru íslenskir heild- salar ekki vanastir því að sjá um þessi mál sjálfir, t.d. tollskýrslu- gerð og samskipti við farmflytjend- ur? „Því er ekki að neita að starfsem- in fór hægt af stað en síðan hefur stöðugur straumur legið til okkar. Í byrjun litu margir á þennan kost sem óþarfan millilið í samskiptum sínum við farmflytjendur og tolla- yfirvöld og það kom manni á óvart hvað „milliliðafóbían“ var sterk á flutningamarkaðnum. Við vorum þó fljótir að byggja upp traustan hóp viðskiptavina. Margir þeirra voru vanir því að sjá um þessa vinnu sjálfir en það verður sífellt erfiðara að hafa yfirsýn yfir alla kosti í flutningum. Þá má geta þess að frá og með næstu mánaðamótum verða tollskýrsluskil einungis á rafrænu formi og ekki lengur möguleiki að skila inn tollskýrslum á pappír. All- ar þessar breytingar gera það að verkum að þeir heildsalar, sem eru með tiltölulega fáar sendingar á ári, hagnast á því að láta sérhæfðan að- ila eins og okkur sjá um þetta.“ Þið leggið mikla áherslu á ráð- gjafaþáttinn. Geturðu útskýrt hann nánar? Markaðurinn vill heildarlausnir „Markmið fyrirtækisins er að finna ætíð hagkvæmustu og greið- ustu leiðina fyrir viðskiptavini og því leggjum við mikla áherslu á heiðarlega ráðgjöf. Þess vegna þurfum við að hafa góða þekkingu á markaðnum og vera upplýstir um ferðir og tímaáætlanir allra farm- flytjenda. Þegar menn leita upplýs- inga hjá okkur reynum við að finna besta kostinn og sú leit leiðir ekki alltaf til viðskipta við okkur. Stund- um getur verið betra fyrir menn að snúa sér beint til farmflytjendanna sjálfra og þá bendum við á það.“ Fyrirtækið leggur áherslu á heildarlausnir fyrir viðskiptavini sína að sögn Þórðar en í því felst að það sér um flutning vöru frá upp- hafi til enda. Það sækir vöruna til sendanda og kemur henni í hendur farmflytjanda, sér um að útbúa farmbréf, tollskýrslur og önnur skjöl og fylgist með vörunni allt þar til hún kemst í hendur viðtakanda. En eru stóru flutningafyrirtækin ekki einmitt farin að veita slíkar heildarlausnir? Hvaða þjónustu veita Fraktlausnir sem stóru fyr- irtækin veita ekki? „Það er rétt að stóru fyrirtækin hafa aukið þjónustu sína á síðustu árum og leggja áherslu á heildar- lausnir. En það má ekki gleyma því að þessi fyrirtæki hugsa að sjálf- sögðu eingöngu um að selja sína þjónustu og fylla sínar flugvélar eða sín skip. Þegar sendandi lætur vöru í hendurnar á skipafélagi, er hann um leið bundinn af áætlun þess. Við einbeitum okkur hins vegar að því að finna þá flutningsleið sem hentar viðskiptavininum best hverju sinni. Við miðlum vörunni en látum flutningafélög sjá um flutn- inginn á henni. Við gerum ekki upp á milli flutningafélaga heldur velj- um það félag og þann flutningsmáta sem best liggur við hverju sinni. Í þessu liggur stóri munurinn á okk- ur og stóru flutningafélögunum. Vara sem við tökum að okkur getur því verið flutt með skipafélögunum Eimskipum, Samskipum, Atlants- skipum, nú eða með flugi Flugleiða, Íslandsflugs, Bláfugli eða Cargolux svo eitthvað sé nefnt. Við leggjum mikla áherslu á að hafa ætíð yfirsýn yfir ferðir allra farmflytjenda sem sjá um ferðir til og frá landinu og veljum þá leið sem best hentar hverju sinni. Fyrir nokkrum árum voru aðeins fjórir farmflytjendur sem sinntu þessum markaði en nú eru þeir um tíu talsins og hver með sína tímaáætlun. Þarna aðstoðum við menn að finna besta kostinn og með þessu vinnulagi tryggjum við að hagur viðskiptavinarins sé ætíð í fyrirrúmi.“ Smæðin er styrkur Hvernig gengur ykkur að keppa við stóru flutningafélögin? „Skipafélögin tvö, Eimskip og Samskip, hafa lagt mikla áherslu á að ná sem allra lengst inn á mark- aðinn, þau vilja hafa sem flesta þætti flutninganna á sínum snær- um. Liður í því er rekstur flutn- ingsmiðlana í eigin nafni og eiga þau meirihluta í tveimur stóru flutningsmiðlunum hér á landi. Nú eru tvær ráðandi blokkir á þessum markaði og veikleiki okkar liggur vissulega í því hve erfitt er að eiga í samkeppni við flutningsmiðlanir í eigu þeirra. Við höfum ekki bol- magn til að keppa við þessa aðila í verði heldur með því að veita há- marksþjónustu og það hafa við- skiptavinir okkar kunnað að meta. Metnaður okkar liggur í því að veita þriðja valkostinn á markaðn- um. Smæðin er því vissulega veik- leiki en hún er einnig okkar helsti styrkur.“ Hvernig getur smæðin verið styrkur? „Sem smáfyrirtæki getum við oft á tíðum veitt betri þjónustu en stóru flutningafyrirtækin. Við leggjum mikla áherslu á persónu- lega þjónustu og snögg viðbrögð. Mikið er lagt upp úr því að klára verkefni dagsins eða a.m.k. setja þau af stað þótt varan komist ekki af stað samdægurs. Þú heyrir að aðalmálið er að láta vöruna ekki bíða, heldur koma henni strax af stað. Það gefur því auga leið að hér er oft unnið fram á kvöld og um helgar.“ Og tekst ykkur ævinlega að leysa hvers manns vanda? „Nei, því miður tekst það ekki alltaf ef mönnum liggur mikið á. Það getur t.d. orðið handagangur í öskjunni þegar dýr tæki, t.d. skip, flugvélar eða jafnvel virkjanir, standa óvirk vegna þess að einn varahlut vantar. Ég man t.d. eftir því þegar hringt var í mig á sunnu- dagsmorgni frá skipafélagi og spurt hvort ég sæi einhverja leið til að koma varahlut, eitt tonn að þyngd, með hraði til Boston þar sem alvar- leg vélarbilunhafði orðið í einu skipa félagsins. Þannig vildi til að ég var sjálfur á leið vestur um haf, til New York, með vél frá Cargolux sem átti að millilenda í Keflavík eft- ir stutta stund. Ég sagði manninum að senda hlutinn strax af stað til Keflavíkur en hófst sjálfur handa við að útbúa farmbréfið og kanna símleiðis hvort pláss væri fyrir hlutinn um borð. Það gekk og á leiðinni út á flugvöll hafði ég sam- band við samstarfsaðila minn í New York þannig að hann yrði til taks á flugvellinum þegar vélin lenti. Um leið og vélin var lent var gengið frá tollafgreiðslu og flutningabíll feng- inn til að flytja hann að skipshlið. Þangað var varahluturinn kominn rétt rúmum hálfum sólarhring eftir að beiðnin barst. Þarna tel ég að kostir fyrirtækisins hafi vel komið í ljós þótt örlítil heppni hafi einnig haft sitt að segja. Þannig tekst með réttu samspili ólíkra þátta ótrúlega oft að bjarga hlutum fyrir horn þótt stundum muni mjóu.“ Verkefnaflutningur vinnur á Fraktlausnir hafa sérhæft sig í svokölluðum verkefnaflutningi eða „project cargo“ en hann felst í heildarlausn fyrir ákveðið verkefni, t.d. hljómleika eða kvikmyndagerð. Þórður segir að þetta séu oft viða- mikil verkefni og yfirleitt unnin undir mikilli tímapressu. „Stærsta verkefnið af þessu tagi réðumst við í sl. haust þegar við tókum að okkur umsjón með öllum flutningi á vörum og fólki fyrir Paramount British Pictures við gerð myndarinnar Tomb Raider sem var að hluta til tekin upp hér- lendis í samvinnu við Saga Film. Við sáum um flutning á öllum tækj- um og búnaði til og frá Bretlandi með flugi og skipum og var hluti Morgunblaðið/Golli Þórður Björn Pálsson, framkvæmdastjóri Fraktlausna ehf. FLJÚGANDI FLUTNINGS- MIÐLUN „Markmið fyrirtæk- isins er að finna ætíð hagkvæmustu og greiðustu leiðina fyrir viðskiptavini og því leggjum við mikla áherslu á heiðarlega ráðgjöf.“  Þórður Björn Pálsson fæddist 28. september 1967. Hann ólst upp í Njarðvík og í Vesturbænum í Reykjavík og tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1987. Hann lauk prófi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands árið 1995 og lagði þar einnig stund á framhaldsnám í sjáv- arútvegsfræðum. Að loknu námi stundaði Þórður sjálf- stæðan rekstur á sviði fiskútflutnings um hríð en árið 1997 stofnaði hann flutningsmiðlunina Fraktlausnir ehf. og hefur verið framkvæmdastjóri hennar síðan. eftir Kjartan Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.