Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 33

Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 33 margir feður hafa sótzt eftir því að eyða meiri tíma með börnum sínum, taka virkan þátt í upp- eldi þeirra og umönnun allt frá fæðingu og axla ábyrgð á heimilishaldinu til jafns við mæður þeirra. Karlar hafa ekki sízt lært að meta hið til- finningalega gildi náinna tengsla við börn sín, sem myndast strax á fyrstu vikum og mánuðum í lífi þeirra. Þeir hafa hins vegar til þessa oft mætt takmörkuðum skilningi á vinnustað sínum og til skamms tíma voru möguleikar þeirra til að taka sér orlof vegna fæðingar nýs fjölskyldumeðlims afar takmarkaðir. Jafn réttur til fæðingarorlofs Hvaða raunhæfar leiðir eru til út úr þessum vítahring launamunar, gamallar verkaskiptingar og viðhorfa, sem ekki taka mið af breyttum óskum og markmiðum fólks? Hvernig má tryggja að allir geti valið að skipta verkum á heimilinu eins og þeim þykir henta, og að bæði kyn séu metin á vinnumarkaðnum eftir menntun sinni og hæfileikum, en ekki eftir meira og minna úreltri mælistiku hins hefðbundna við- horfs til kynhlutverkanna? Stærsta skrefið, sem stigið hefur verið á und- anförnum árum til að jafna rétt og stöðu kynjanna, er samþykkt hinna nýju laga um fæð- ingarorlof á síðasta ári. Að tveimur árum liðnum verður fæðingarorlofið orðið níu mánuðir. Þar af verða þrír mánuðir bundnir föður, þrír móður og þremur geta foreldrar skipt á milli sín að vild. Greiðslur úr fæðingarorlofssjóði eru 80% af heildarlaunum, sem gerir jafnt feðrum og mæðr- um kleift að taka sér orlof án þess að fjölskyldan verði fyrir óbærilegum tekjumissi. Með þessari lagasetningu stökk Ísland úr einu vetfangi úr þeirri stöðu að vera aftarlega á mer- inni meðal Norðurlanda hvað varðar jafnrétti til fæðingarorlofs og komst í fremstu röð. Forsend- ur hafa nú skapazt fyrir því að foreldrar skipti fæðingarorlofi jafnt á milli sín og þannig verði vinnuveitendur að gera ráð fyrir fæðingarorlofi karla ekki síður en kvenna. Kynin verða að því leytinu álíka „óáreiðanlegur“ starfskraftur. Nú þegar má sjá að feður taki sér frí til jafns við mæður til að vera heima hjá veikum börnum og raunar eru margir vinnuveitendur farnir að gera kröfu til þess að pör skipti fjarvistum vegna veik- inda barna jafnt með sér. Til lengri tíma litið ætti þetta að hafa þau áhrif að minnka launamuninn. Auk þessa má búast við að jafnrétti til töku fæðingarorlofs hafi í för með sér að tengsl feðra og barna verði sterkari strax í upphafi, sem skili sér í því að þeir taki meiri þátt í uppeldi þeirra og umönnun upp frá því – og geri raunar kröfu um að fá tækifæri til þess, því að flestir feður sem hafa tekið sér fæðingarorlof eru sammála um að það hafi opnað þeim nýjar og eftirsóknarverðar tilfinningavíddir. Í þriggja til sex mánaða fæð- ingarorlofi má líka gera ráð fyrir að margir karl- ar upplifi í fyrsta sinn að bera meginábyrgð á heimilishaldinu og að þurfa að taka sjálfir stórar og smáar ákvarðanir sem snúa að búi og börnum á meðan makinn vinnur fyrir heimilinu. Efasemdir um að feður myndu nýta sér þenn- an nýfengna rétt sinn virðast hafa verið ástæðu- lausar. Á fyrstu vikum nýrrar aldar kom fram í fréttum að fjórir af hverjum fimm nýbökuðum feðrum höfðu sótt um greiðslu vegna fæðing- arorlofs. Þetta er gífurleg breyting; á árinu 1994 fengu t.d. 5.500 mæður greiðslur frá Trygginga- stofnun í fæðingarorlofi en sextán feður! Þetta kann að vera vísbending um að fótunum verði kippt undan hinu hefðbundna viðhorfi til kyn- hlutverkanna hraðar en margur bjóst við, þótt nauðsynlegt sé að meiri reynsla komist á þetta fyrirkomulag. Að nýta mannauðinn Fjöldinn allur af fyr- irtækjum hefur nú jafnframt tekið upp nýja stefnu í starfs- mannamálum, sem miðar að því að jafna hlutfall kynjanna í stjórnunarstöðum og öðrum ábyrgð- arstöðum og jafnframt að auðvelda starfsfólki að samræma starf og fjölskyldulíf. Ýmis fyrirtæki og stofnanir hafa tekið upp starfsmat, sem bygg- ir á því að meta verðmæti starfa, óháð einstak- lingunum sem gegna þeim og reyna þannig að útiloka hið lífseiga, gamla verðmætamat á vinnu- framlagi kynjanna sem áður var nefnt. Fyrirtæki geta haft margar ástæður fyrir slíkri stefnu og flestar byggjast þær á eiginhags- munum eins og eðlilegt er í fyrirtækjarekstri, fremur en að fyrirtækin einblíni á bókstaf jafn- réttislaga eða annarra reglusetninga. Æ fleiri fyrirtæki átta sig t.d. á því að skortur á konum í ábyrgðarstöðum hefur í för með sér að þau nýta mannauðinn ekki sem skyldi, ekki sízt þá miklu fjárfestingu samfélagsins sem liggur í menntun. Það hlýtur t.d. að vekja athygli að í könnun Félagsvísindastofnunar á kjörum VR-fólks kem- ur fram að á heildina litið hafa konurnar meiri menntun en karlar en þær eru síður í stjórnunar- og sérfræðingsstörfum og eru mun líklegri til að vera í hlutastarfi en karlar. Það bendir til að at- vinnulífið sé ekki að nýta menntun þeirra til fullnustu. Verkefni eins og Auður í krafti kvenna, sem Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Íslandsbanki auk Morgunblaðsins, Deloitte&- Touche og Háskólans í Reykjavík standa að, miða að því að auka þátt kvenna í verðmæta- sköpun samfélagsins. Önnur ástæða er sú að í stað þess að bera kon- ur og karla saman og kvarta undan því að konur séu ekki eins og karlar, hafa fyrirtæki í auknum mæli komið auga á kosti þess að blanda saman mismunandi aðferðafræði og stjórnunarstíl kvenna og karla; telja að þannig sé hægt að tryggja betri stjórnun og búa til skemmtilegri vinnustaði. Í þriðja lagi sækjast fyrirtæki núorðið gjarnan eftir fólki, sem hefur reynslu af foreldrahlut- verkinu, sem talið er auka fólki innsæi, sveigj- anleika og skipulagshæfni svo vitnað sé til um- fjöllunar um þessi mál í fylgiblaði Morgunblaðsins, Daglegu lífi, í gær, föstudag. Loks telja mörg fyrirtæki það einfaldlega nauðsynlegt í síharðnandi samkeppni um starfs- fólk að koma til móts við sívaxandi kröfur, ekki sízt bezt menntaða fólksins, um sveigjanleika í starfi og aukið frjálsræði varðandi vinnutíma. Í viðskiptablaði Morgunblaðsins fyrir rúmri viku var fjallað um verkefnið Hið gullna jafnvægi, sem unnið er í samstarfi Reykjavíkurborgar, Gallup og nokkurra fyrirtækja. Haft er eftir Hildi Jónsdóttur, jafnréttisfulltrúa borgarinnar, að hugsunin að baki verkefninu sé að skoða þarf- ir fyrirtækisins og starfsfólksins saman og finna réttu lausnina; skapa nýja fyrirtækjamenningu þar sem umboð fólks til athafna sé aukið og áhrif þess á eigið vinnuskipulag og vinnutíma með markmið bæði fyrirtækisins og starfsfólksins í huga. „Lögð er áherzla á að atvinnurekandi for- gangsraði ekki þeim mismunandi þörfum sem fólk getur haft. Það er ekki atvinnurekandans að segja fyrir um hvað af þörfum starfsmannsins er merkilegt og hvað ekki. Það er starfsmannsins sjálfs. Þess vegna er talað um sveigjanleika og samræmingu starfs og einkalífs, sem getur inni- falið fjölskylduna, menntun, áhugamál, trúnað- arstörf og ýmislegt fleira. En á sama hátt er það skylda starfsmannsins að taka mið af starfsemi fyrirtækisins. Með þessu minnkar áherzlan á tímaeftirlit en meiri áherzla er hins vegar á verk- efnalausnir og árangursmat,“ segir Hildur Jóns- dóttir. Fyrirmyndir eru mikilvægar Í vinnuumhverfi af þessu tagi er líklegra að bæði kyn fái notið sín til fulls og séu met- in að verðleikum heldur en í því hefðbundna um- hverfi sem við þekkjum, þar sem viðvera og vinnutími eru meðal mikilvægustu mælikvarða á frammistöðu. Málið er þó ekki alveg svo einfalt. Sum störf krefjast einfaldlega mikillar viðveru og langs vinnutíma. Fjarskiptatæknin hefur gert heimavinnu og fjarvinnu mögulega og þannig aukið á sveigjanleikann. Slíkt vinnulag hentar þó ekki öllum og getur verið tvíeggjað vopn; krefst a.m.k. mikils aga og skipulagningar, eigi mörkin á milli vinnu og einkalífs ekki að þurrkast út. Í mörgum samböndum og hjónaböndum, þar sem fólk hefur ákveðið að skipta verkum jafnt, eiga innihaldsríkar stundir með fjölskyldunni og standa sig jafnframt í síharðnandi samkeppn- isumhverfi vinnumarkaðarins, er sólarhringur- inn oft þrautskipulagður en virðist samt ekki endast sem skyldi. Spyrja má hvort boginn sé stundum spenntur of hátt og hvort niðurstaðan verði sú að a.m.k. tímabundið dragi annar hvor sig í hlé frá vinnumarkaðnum eða minnki við sig vinnu til að sinna börnum og heimili. En þá skipt- ir a.m.k. miklu að fólk eigi raunverulegt val um hvort það er karlinn eða konan sem tekur það hlutverk að sér og m.a. þess vegna er mikilvægt að leita allra leiða til að útrýma launamuninum á vinnumarkaðnum. Umræðan um fyrirmyndir er fyrirferðarmikil þegar rætt er um jafnréttismál, einkum þá að stúlkur og ungar konur skorti fyrirmyndir; kon- ur sem hafa náð langt í viðskiptalífi eða stjórn- málum. En það er ekki síður mikilvægt að karlar taki að sér að vera fyrirmyndir; að t.d. fyrirtækj- astjórnendur og stjórnmálamenn úr hópi karla nýti sér nýfenginn rétt til fæðingarorlofs. Þegar allt kemur til alls er það fyrst og fremst undir hverjum og einum komið að breyta þeim lífseigu viðhorfum, sem viðhalda launamun og þvingaðri verkaskiptingu og eitra þannig út frá sér. Morgunblaðið/Ásdís Sól og skuggar. Forsendur hafa nú skapazt fyrir því að foreldrar skipti fæð- ingarorlofi jafnt á milli sín og þannig verði vinnuveit- endur að gera ráð fyrir fæðingarorlofi karla ekki síður en kvenna. Kynin verða að því leytinu álíka „óáreið- anlegur“ starfs- kraftur ... Til lengri tíma litið ætti þetta að hafa þau áhrif að minnka launamun- inn. Laugardagur 17. febrúar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.