Morgunblaðið - 18.02.2001, Síða 35

Morgunblaðið - 18.02.2001, Síða 35
þjálfuðu lögregluliði, dómstólum og góðri stjórnsýslu, að mennta og launa allt það starfslið sem til þarf, reisa dómhús, stjórnsýslubyggingar og fangelsi. Okkur Íslendingum er engin vorkunn að leggja í þann kostnað, en hann er ennþá mörgum fátækum ríkjum ofviða, einkum ný- lendunum fyrrverandi sem sátu uppi að fengnu sjálfstæði fyrir aðeins 35– 40 árum svo til allslausar og hafa síð- an átt við margháttaða innbyrðis erf- iðleika að etja. Það kostar líka sitt að halda lýðræðislegar kosningar fjórða hvert ár. Það er því mikil einföldun að tala um að skyldur ríkisins í þess- um efnum séu útgjaldalausar taum- haldsskyldur eins og gjarnan er á tönnlast í umræðum um mannrétt- indi; borgaralegum og stjórnmála- legum réttindum fylgja einnig marg- víslegar jákvæðar skyldur býsna kostnaðarsamar. Á merkilegum fundi þjóðréttar- fræðinga, sem haldinn var árið 1986 í Limburg-háskólanum í Maastricht í Hollandi, voru samþykktar svo- nefndar Limburg-reglur – the Lim- burg principles – þar sem skýrðar voru skyldur ríkja samkvæmt SÞ- samningnum um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Þar segir meðal annars, að aðildar- ríkjunum sé skylt að hefjast þegar í stað handa um ráðstafanir eða að stíga skref í þá átt að efna réttindin sem samningurinn kveður á um – og þeim sé skylt, hvernig svo sem efna- hag þeirra sé háttað, að tryggja öll- um lágmarksréttindi (minimum sub- stance right) – þeim beri að leggja sérstaka áherslu á að bæta lífsskil- yrði hinna fátæku og annarra sem standa höllum fæti í samfélaginu. Þessar reglur voru aftur ræddar og endurskoðaðar á sama stað árið 1997 í ljósi þeirrar þróunar, sem orðið hafði á sviði þessara réttinda. Á fundinum voru samþykktar svo- nefndar „Maastricht-leiðbeiningar um brot á efnahagslegum, félagsleg- um og menningarlegum réttindum“ þar sem lögð var áhersla á, að óum- deilt væri orðið, að öll mannréttindin væru óaðskiljanleg, samtvinnuð og hvert öðru háð og jafnmikilvæg virð- ingu manneskjunnar; þar af leiðandi bæru ríki jafnríka ábyrgð á brotum á þessum réttindum og á borgaraleg- um og stjórnmálalegum réttindum. Limburg-reglurnar og Maastricht- leiðbeiningarnar eru vitaskuld ekki bindandi fyrir einn eða neinn en þær eru mikilvæg vísbending um mat færustu sérfræðinga á því hvernig að réttindum þessum skuli unnið. Eins og áður sagði er ríkjum ætlað að efna réttindin með lagasetningu þar sem þess er þörf og séu sett lög verður að gæta jafnræðisreglunnar, bæði við gerð þeirra og framkvæmd, sbr. 2. mgr. 2. gr. samningsins. Fræðimenn hafa um árabil rætt og ritað um hugsanlegar leiðir til að knýja fram efndir þessara réttinda fyrir atbeina dómstóla og hafa þá m.a. rennt aug- um til jafnræðisreglunnar sem far- vegs sem e.t.v mætti feta sig eftir í tengslum við fyrirliggjandi löggjöf hvers ríkis. Sum ríki hafa enga lög- gjöf sem hægt er að tengja þannig, hvorki jafnræðisreglu né nokkur önnnur lög er varða þessi réttindi; önnur ríki hafa ýmiss konar lög, þar á meðal Ísland. Sum ríki hafa ákvæði um þessi réttindi í stjórnarskrám sínum (í mismiklum mæli), önnur ekki. Við höfum slíkt ákvæði, t.d. í 76. gr. stjórnarskrárinnar, svo og skráða almenna jafnræðisreglu í 65. gr. og úr því að við erum komin svo langt í lagasetningu um þessi rétt- indi sem raun ber vitni ber okkur að beita þeim lögum, sem sett hafa ver- ið með hliðsjón af jafnræðisreglunni og dómstólum ber að beita öllum til- tækum ráðum til að knýja fram efnd- ir þeirra mannréttinda, sem þar er kveðið á um. Hæstiréttur Íslands sinnti þeirri skyldu í dómnum frá 19. desember sl. Þar hefði vissulega mátt færa rök að annarri íhaldssam- ari niðurstöðu, sem þá hefði einnig mátt túlka sem „pólitískt“ mat, en dómarar meirihlutans sýndu það hugrekki og þá framsýni að leggjast á sveif með mannréttindum, túlka fyrirliggjandi lög þeim í hag og nið- urstaðan mun verða þeim til ævar- andi sóma. Höfundur er lögfræðingur LL.M. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 35

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.