Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 41

Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 41 ✝ Sigríður Sigurð-ardóttir fæddist í Reykjavík 30. apríl 1920. Hún andaðist á Landspítalanum í Fossvogi 12. febrú- ar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigurður Sigurðs- son, f. 20.6. 1891, d. 19.6. 1943, skip- stjóri og útgerðar- maður í Reykjavík, og k. h., Ágústa Jónsdóttir, f. 19.2. 1893, d. 27.8. 1991, húsfreyja. Systkini Sigríðar eru: Þórarinn Ingi, f. 4.4. 1923, d. 28.8. 1999; Jón Gunnar, f. 14.7. 1924; Vilborg, f. 21.4. 1926, d. 22.11. 1974; Ásgeir, f. 27.3. 1929; Sigurður, f. 27.3. 1929. arkennari. Synir þeirra eru Helgi Þór, f. 17.12. 1970, kerfisfræð- ingur, Einar Geir, f. 18.6. 1974, háskólanemi, kvæntur Sigríði Völu Þórarinsdóttur, synir þeirra eru Jón Karl og Einar Geir, Daði, f. 2.5. 1979, háskólanemi. 3) Jó- hann, f. 8.10. 1951, jarðfræðing- ur, maki Þórhildur Guðrún Egils- dóttir, félagsráðgjafi. Börn þeirra eru Jökull, f. 27.11. 1992, og Anna Sigríður, f. 7.2. 1996. 4) Helgi Sæmundur, f. 22.6. 1953, viðskiptafræðingur, maki Stein- unn Gunnarsdóttir, meinatæknir. Börn þeirra eru Ingi Úlfar, f. 28.5. 1981, Stella Björk, f. 13.7. 1983, Gunnar Geir, f. 20.6. 1989, og Herdís Helga, f. 2.3. 1993. Sigríður er fædd á Brekkustíg 11 í Reykjavík. Sigríður og Helgi bjuggu lengst af á Hagamel 19 en eftir það í Skerjafirði. Hún var húsmóðir en vann hin síðari ár á basar Thorvaldsensfélagsins. Útför Sigríðar fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, mánu- daginn 19. febrúar, og hefst af- höfnin klukkan 13.30. Hinn 10. júlí 1945 giftist Sigríður Helga J. Sveinssyni, f. 7.11. 1918, d. 22.6. 1999, bókara og gjaldkera hjá LÍÚ. Hann er son- ur hjónanna Sveins Jónssonar, verka- manns, f. 13.10. 1893, d. 9.6. 1944, og Önnu Sigríðar Guðjóns- dóttur, húsfreyju, f. 5.9. 1894, d. 19.3. 1969. Börn Sigríðar og Helga eru: 1) Sigurð- ur, f. 1.5. 1946, rekstrarhagfræðingur, maki Peggy Oliver Helgason iðjuþjálfi. 2) Sveinn Gunnar, f. 28.10. 1947, viðskiptafræðingur. 3) Ágústa, f. 17.5. 1949, hjúkrunarfræðingur, maki Jón Karl Einarsson, tónlist- Elsku besta mamma mín. Þakka þér fyrir allt elsku mamma mín. Þakka þér fyrir allar okkar samverustundir. Þú hefur verið mér svo góð og blíð. Þú verndaðir mig og huggaðir þegar ég var lítil. Þú hvattir mig og varst alltaf hreykin af mér. Þið pabbi reyndust mér svo vel hvenær sem ég þurfti á ykkur að halda. Þú ert alltaf nálægt mér sama hversu langt er á milli okkar. Þú ert mín helsta fyrirmynd. Hve ég dáist að þér fyir hve sterk þú varst þegar síðasta áfallið kom, Alzheimerinn. Þú ætlaðir ekki að láta hann buga þig og hélst áfram að sinna öllum þínum störf- um. Þú þáðir hjálp við einföld verk þegar þú fannst að þú réðir ekki við þau lengur. Þú gerðir grín að sjálfri þér þegar þú gerðir mistök. Þú leyfðir mér að vera mamma þín, eins og þú sagðir svo oft hlæjandi þegar hlutverkin voru svolítið farin að snúast við. Þegar á leið og erf- iðleikarnir jukust og pabbi líka orð- inn mikið veikur reyndirðu samt að berjast á móti Alzheimernum. Erfiðast var að fara á hjúkrunar- heimili og láta aðra annast þig. Þér fannst þú alveg geta séð um þig sjálf, en þú gast það ekki, elsku mamma mín. Ég tók varla eftir því þegar þig fór að vanta æ fleiri orð, vegna þess að ég skildi nær alltaf hvað þú varst að reyna að segja. Svo hættu orðin alveg að koma en þú gast samt glaðst yfir góðu minn- ingunum þegar við rifjuðum upp gömul atvik. Þú fagnaðir mér alltaf þegar ég kom til þín, búin að sætta þig að einhverju leyti við hlutskipti þitt. Svo kom tækifærið sem þú nýttir strax, til að losna úr viðjunum. Þó ég eigi eftir að sakna þín sárt elsku mamma mín þá get ég svo vel unnt þér að fara. Hvíldu í friði mamma mín. Þín Gústa. Nú þegar ég kveð hana Stellu, tengdamóður mína, hinsta sinni þá leitar margt á hugann. Fyrst og fremst þakklæti fyrir að hafa feng- ið að kynnast henni og eiga samleið með henni í rúm tuttugu ár. Hún var glæsileg kona og mynd- arleg. Heimilið og fjölskyldan voru henni allt. Hún var alltaf til staðar tilbúin að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Frá fyrstu tíð var mér vel tekið, allt tal um ráðríkar, afskiptasamar tengdamæður var svo fjarlægt henni Stellu minni. Ég birtist fyrst óvænt í heim- sókn með yngsta syninum og þau hjónin voru að taka til í geymslunni og þarna tróðst ég inn til þeirra til að heilsa. Við hlógum oft að því hvað þetta var eitthvað neyðarlegt en þetta braut ísinn. Þau voru ófá skiptin sem ég labbaði með krakkana til ömmu Stellu og afa Helga í heimsókn. Við sátum oft með handavinnuna við stofugluggann þar sem útsýnið yfir Skerjafjörðinn var svo fallegt að maður gat bara setið og horft, lengi, lengi. Hún Stella var mikil handa- vinnukona, alltaf að prjóna lopa- peysur eða sauma út. Húm var líka mikil blómakona og oft fórum við í skoðunartúr í garðinn að dást að bóndarósinni eða burknunum sem voru svo fallegir. Þau hjónin ferðuðust mikið og sólarferðirnar til Flórída haust hvert voru fastur liður ár hvert. Þau undu sér vel í hitanum, á ströndinni og keyrðu um allt í stóru „mallin“ því það var svo gott að versla í henni Ameríku. Þegar heim kom voru litlu jólin því allir fengu eitthvað fallegt. Hún Stella var einstaklega barn- góð og barnabörnin nuta góðs af því. Bakkelsið hennar ömmu var svo gott og afi Helgi átti alltaf kók í ísskápnum. Þau voru líka mikið á ferðinni og litu oft í heimsókn. Þau voru ófá matarboðin sem haldin voru í Gnitanesinu þar sem þau bjuggu á meðan heilsan leyfði. Þá var oft glatt á hjalla, borðið svign- aði undan krásunum og krakkarnir að ærslast í kringum ömmu og afa sem voru þeim svo kær. Takk fyrir allt sem þú varst mér og mínum, minningin þín lifir með okkur um ókomin ár. Þín tengdadóttir, Steinunn. Hún Stella tengdamóðir mín er öll. Oft hefur hvarflað að mér að setja á blað minningar eða þanka um vini eða ættinga sem fallnir eru frá, en aldrei hef ég fundið mig til þess knúinn fyrr en nú. Þau orð sem fyrst koma í huga minn er lýst geta Stellu eins og ég sá hana er fórnfýsi, trygglyndi og máttur, bæði andlegur og líkamlegur. Stella ól upp fimm börn sem fædd voru á innan við tíu árum. Heimilið var stórt og á fjórum hæðum. Þá voru líka þeir tímar að meiri út- sjónarsemi þurfti við heimilishald, þar sem einn aflaði tekna og ég veit til þess að oft hófst drýgsti vinnu- tíminn hjá henni þegar aðrir voru gengnir til svefns. Þau Helgi voru reyndar mjög samhuga í öllum sín- um góðu verkum og þannig bættu þau oft við vinnudag sinn og út- gjöld að Stella fór og hjálpaði til á heimilum úti í bæ ef henni fannst að þar þyrfti liðsinnis við. Þeir eru margir sem standa í þakkarskuld við Stellu fyrir aðstoð og alúð sem hún gaf svo ríkulega án þess nokkru sinni að ætlast til þakklætis eða hróss. Ég tók eftir því að þegar ég í fyrstu skiptin gaf henni kompliment fyrir veislurnar henn- ar eða annan garpskap að hún kunni lítt að taka því, hélt kannski að ég væri að gantast í sér. Ég veit samt að Stellu þótti vænt um þegar ég eða strákarnir okkar Gústu föðmuðum hana svolítið í þakklæt- isskyni fyrir eitthvað eða bara til að fagna henni þegar hún leit í heimsókn. Það eru fallegar minn- ingar sem ég á og geymi af Stellu hlæjandi innilega að ærslum eða bulli strákanna minna. En einmitt þegar Stella og Helgi áttu að geta farið að njóta næðis og gleðjast yfir ævistarfi og velgengni afkomenda sinna þurftu þau að láta í minni pokann fyrir hrörnunarsjúkdóm- um, sem svo eru nefndir. Helgi dó fyrir tæpum tveim árum og nú er Stella farin, hetjan mín sem allt virtist geta staðið af sér hlaut að lúta fyrir þeim ágenga fanti Alz- heimersjúkdómnum. Blessuð sé minning hennar. Jón Karl. Við bræðurnir viljum þakka ömmu fyrir okkur, því við lærðum svo margt af henni um fjölskyldur og böndin sem þær tengja. Við heyrðum stundum vini okkar tala um ættarmót í sínum fjölskyld- um. Ættarmót voru okkur fram- andi fyrirbæri og að okkar mati óþörf enda vanir því að allt okkar sifjalið hittist reglulega á heimili ömmu okkar, því þar var vettvang- ur stórafmæla ýmissa ættingja, fermingarveislna og auðvitað jóla- boða. Þá virtist okkur sem amma Stella hefði ekkert fyrir viðlíka veisluhöldum. Við stóðum satt að segja í þeirri trú langt fram eftir aldri að flestar konur gætu snarað fram veisluföngum fyrir tugi manns í hjáverkum. Amma gerði meira en að baka kökur. Þeir sem hana þekktu muna eftir því hvað hún var innileg í gleði sinni. Enda gladdist hún á annan hátt en margir, sérstaklega þegar börn áttu í hlut. Þegar full- orðna fólkið brosti góðlátlega að uppátækjunum hló amma og gladd- ist á sama hátt og barnið sjálft. Og þannig munum við áfram gleðjast með fjölskyldum okkar eins og hún hefur kennt okkur. Helgi Þór, Einar Geir og Daði. Elsku langamma mín, takk fyrir að leyfa mér að fá að kynnast þér og að keyra þig í hjólastólnum þín- um. Þér þótti alltaf svo vænt um okkur Einar Geir, okkur um þig. Guð geymi þig, þín langömmubörn, Vertu yfir og allt um kring með eilífðri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Jón Karl og Einar Geir. Kveðja frá Thorvaldsensfélaginu Okkar kæra félagskona Sigríður, eða Stella eins og hún var kölluð, er nú kvödd. Stella gekk til liðs við Thorvaldsensfélagið fyrir tuttugu og sex árum og var alla tíð vel virk í starfi. Hún var gjöful á tíma sinn og það er mikils virði fyrir góðgerð- arfélag að eiga slíka félagskonu. Um árabil var hún í stjórn Barna- uppeldissjóðs Thorvaldsensfélags- ins. Þar er mikil vinna í sambandi við útgáfu jólamerkjanna, dreifingu þeirra og sölu, ásamt öðrum störf- um sem tilheyra þeirri stjórn. Þar var Stella góður liðsmaður og lét ekki sitt eftir liggja. Á Thorvald- sensbazarnum vann hún einnig sjálfboðastörf í mörg ár og átti þar sína föstu vinnudaga en var samt alltaf boðin og búin að taka auka- daga ef illa stóð á. Stella bar hag félagsins fyrir brjósti og henni var mjög umhugað um að Bazarinn gengi vel. Hún var sönn félagskona sem tók þátt í fundum og störfum félagsins af heilum hug. Thorvald- sensfélagið á henni mikið að þakka og við félagskonur kveðjum nú góða og trausta vinkonu með söknuði og minnumst hennar með þakklæti og virðingu. Innilegar samúðarkveðjur til barna og annarra ástvina. Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir. Kæra amma, Það var einu sinni sagt við mig að þú værir „ömmulegasta amma í heimi“ og fyrir mér varst þú sú eina sanna. Þú varst konan sem átti bara ein- ar síðbuxur og það var álíka erfitt fyrir fjögurra ára gamlan strák að skilja eins og að þú hefðir einhvern tímann verið fjögurra ára líka. Þú varst húsmóðir af guðs náð, þú bak- aðir bestu kleinur í heimi, saumaðir teppi og peysur af öllum stærðum og gerðum en kunnir þó ekki að keyra bíl en þú hafðir líka svo góð- an bílstjóra. Þegar ég gekk inn í fyrsta húsið í Skerjó þá var það eins og að vera kominn í annan heim með fótbolta- velli, risa feluleikjasvæði (kjallar- inn) og fjöruna þaðan sem við frændurnir, tveir, komum heim með gimsteina frá öðrum hnöttum. Og alltaf þegar við komum beiðstu með tvær tegundir af kæfu og sprite inni í ísskáp eða bara það sem mann langaði í. Eina vinnan utan heimilisins, sem ég sá þig vinna, var auðvitað á Thorvaldsen-basar, hvaða staður gat hentað þér betur? Sjálfselska var ekki til í þínu risastóra hjarta, alltaf að hugsa um hvort nokkur væri svangur, nokkrum væri kalt eða hvort hlutirnir mættu ekki bet- ur fara. Nú ertu komin til afa og ég kveð því, elsku amma Stella, og fyrir- gefðu að við frændurnir tíndum öll blómin í garðinum í óvitaskap, það var eina skiptið sem þú varðst reið við okkur. Þinn Ingi Úlfar (Úlli). Frænku mína, Sigríði Sigurðar- dóttur, þekkti ég í upphafi aðeins sem Stellu, en það var gælunafn hennar. Hún var mér og mörgum öðrum góð frænka, gegndi mikil- vægu hlutverki sem þróaðist á lífs- leiðinni. Heimili Stellu var eins konar út- víkkun á mínu eigin heimili í bernsku. Þar bjó hún með Helga J. Sveinssyni og fimm börnum. Að auki bjuggu í húsinu mæður þeirra hjóna. Á þessum tíma var stutt á milli heimilis míns og heimilis Stellu og Helga. Samgangur var mikill, enda höfðu Stella og móðir mín verið nánar í bernsku og héld- ust sterk tengsl meðan báðar lifðu. Fyrstu æskuárin var ég tíður gest- ur fjölskyldunnar, jafnt á heimilinu sem í ferðum um landið, en Helgi átti ætíð góðan bíl og hafði yndi af því að keyra og lét okkur njóta þess. Stella sinnti fjölskyldu sinni og venslafólki af mikilli hlýju og alúð, ekki síst ef erfiðleikar steðjuðu að, til dæmis veikindi eða dauðsföll. Hún sýndi þá umhyggju sína í verki og naut þar stuðnings Helga manns síns. Eftir dauða föður míns vorum við móðir mín fastagestir hjá fjöl- skyldunni á jólum og kæmi upp vandi vegna veikinda eða annarra erfiðleika vissi ég að þar ættum við trausta bakhjarla. Fleirum sýndi hún ekki síðri umhyggju, en ég nefni aðeins það sem sneri að mér. Eftir að ég hafði eignast eigin fjölskyldu hélt Stella áfram að vera okkur mikilvæg. Piret, kona mín, er Stellu þakklát fyrir þann hlýhug og vináttu sem hún sýndi þegar Piret settist hér að í framandi landi. Stella gladdist með okkur yfir stækkandi fjölskyldu og voru þau Helgi mjög kærkomnir gestir á meðan heilsa þeirra leyfði. Síðustu árin tóku veikindi hennar sinn toll og Helga mann sinn missti hún fyrir rúmu einu og hálfu ári. Erfiðleikar hennar með að tjá sig í orðum fóru vaxandi. En til síðustu stundar gat hún miðlað með hlýju handtaki því sem orð gátu ekki lengur tjáð. Þótt fjölskylda Stellu þurfi nú að glíma við sorg við fráfall hennar er fjölskyldan samt rík af því að hafa átt Stellu að. Við Piret samhryggjumst fjölskyldunni og munum ætíð minnast Stellu með hlýju. Sigurður Emil Pálsson. SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR                                    !       !   "    #          $% !   "# $% &''#"   & ()" "#'#" &  *# +," "#-.  " ( -&''#" /," ! "#-.  01 & 2 3 #''#" 4 !'+ &5," "#-.  / 0 -. '''#" "- (1 "-.  ("   ''#"  6. "'#" 0&& "'#" 4 !" 01 '-.  7" " 8."''#" " 01 ''#" 4-- ()/ /'-.  &""/ 35''#" "#  " /''#" ( "- * '-.  #/ +"+"+)"2 Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.