Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 42
FRÉTTIR
42 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLUNNI 4-12, s. 800 6000
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG
Vorum að fá í einkasölu góða 99 fm
íbúð + ris, á 4. hæð til vinstri í þessu
fjölbýlishúsi sem stendur við KR-
völlinn. Stofa og tvö svefnherb. á
hæðinni og eitt stórt herb., gætu
verið tvö, í risi. Parket og dúkur á
gólfum. Nýlega endurnýj. baðherb.
Verð 12,8 millj. Áhv. 4 millj.
Þau Sveinn og Guðrún bjóða
ykkur velkomin til sín
í dag á milli kl. 14 og 16.
Kaplaskjólsvegur 37 - Við KR-völlinn
Kaplaskjólsvegur 37 - Við KR-völlinn
Vorum að fá í sölu góða 94 fm íbúð á 2. hæð til hægri í fjölbýlishúsi
sem stendur við KR-völlinn. Þrjú svefnherb. og stofa með suðursvöl-
um. Dúkur á gólfum. Góð eign á eftirsóttum stað! Verð 12,4 millj. Áhv.
3,3 millj.
Þau Gestur og Kristín bjóða ykkur velkomin til sín
í dag á milli kl. 14 og 16.
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26, FAX 552 0421, SÍMI 552 5099
ERTU AÐ KAUPA
Í FYRSTA SKIPTI?
KOMDU ÞÁ Í OPIÐ HÚS Í DAG HJÁ
FASTEIGNASÖLUNNI GIMLI
Í dag mun starfsfólk fasteignasölunnar Gimlis taka á móti öllum
þeim sem eru að huga að sínum fyrstu kaupum eða hafa ekki átt
í fasteignaviðskiptum nýlega. Ætlun okkar er að leiðbeina ykkur
sem eruð að kaupa í fyrsta skipti, gefa ykkur tíma til að hitta
okkur í notalegu umhverfi, aðstoða og veita ykkur upplýsingar
um allt það sem lýtur að fasteignakaupum. Erum með öll gögn í
greiðslumatið á staðnum. Sérstakt sjónvarps- og vídeóhorn fyrir
börnin.
Verið velkomin á milli kl. 13.00 og 16.00
ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður vinstri-
grænna og formaður BSRB, segir að grundvall-
arbreytingin sem gerð hafi verið á húsnæðislög-
gjöfinni í ársbyrjun 1998 feli í sér að nú eigi í
áföngum að hætta að niðurgreiða vexti og þar
með verði verkamannabústaðir úr sögunni og að
dregið verði stórlega úr stuðningi við aðila sem
reisa og reka félagslegt húsnæði. Til skamms
tíma hafi félagslegir aðilar fengið verðtryggð lán
með 1% vöxtum en nú sé stefnt að því að þessi lán
beri markaðsvexti og segir Ögmundur að mark-
aðurinn verði því grundvöllur húsnæðiskerfisins
með þeim vöxtum og sveiflum sem honum fylgja.
„Þannig að forsendur þessa félagslega kerfis eru
brostnar. Menn eru að fara inn í nýja hugsun, inn
í nýtt fyrirkomulag.“
Að mati Ögmundar er ljóst að enginn þeirra
sem sjái lágtekjufólki fyrir félagslegu húsnæði
muni ráða við markaðskjör á lánum og því þurfi
að koma til stuðningur frá opinberum aðilum,
hvort sem það verður í formi niðurgreiddra
vaxta, vaxtaendurgreiðslna til byggingaraðila
sem reisa félagslegt húsnæði eða stofnstyrkja.
„Hér þurfa verulegar fjárhæðir að koma til
sögunnar því staðreyndin er sú að framboð á
leiguhúsnæði er ekki í nokkru samræmi við þörf-
ina. Biðraðir eftir félagslegu húsnæði lengjast í
hverjum mánuði og ekki má gleyma því að þá er-
um við aðeins að tala um allra tekjulægsta fólkið.
Þeir sem hafa hærri tekjur, í Reykjavík er miðað
við 160 þúsund króna tekjur hjóna á mánuði,
komast ekki einu sinni inn á biðlista eftir félags-
legu húsnæði og þurfa að leita á rándýran leigu-
markaðinn eða kaupa sér húsnæði.“
Að sögn Ögmundar má lýsa ástandinu þannig
að dregið hafi verið úr möguleikum fólks með lág-
ar tekjur og meðaltekjur til að eignast húsnæði
og það gerist á sama tíma og stoðum sé kippt
undan félagslega húsnæðiskerfinu án þess að fyr-
ir hendi sé leigumarkaður sem boðið geti húsnæði
á viðráðanlegu verði. „Lausnin sem ég sé fyrir
mér er sú að leitað verði eftir samkomulagi við
lífeyrissjóðina um að beina fjármagni inn í upp-
byggingu húsnæðiskerfisins. Ég get ekki ímynd-
að mér tryggari, að ekki sé minnst á ábyrgari,
fjárfestingu en að reisa þak yfir fólk. Ef lífeyr-
issjóðirnir ábyrgjast að halda uppi markvissri eft-
irspurn eftir húsbréfum mætti koma í veg fyrir
þær sveiflur sem þar hafa orðið. Síðan kæmi
mjög vel til greina að lífeyrissjóðirnir fjárfestu
hreinlega í samvinnufélögum sem reisa og reka
leiguhúsnæði. Ríki og sveitarfélög myndu síðan
niðurgreiða kostnaðinn með tilteknum skilyrðum
en ríkið og sveitarfélögin gegna hér að sjálfsögðu
lykilhlutverki.“
Þá segir Ögmundur að tryggja þurfi einstak-
lingum sem taka þurfi lán stórauknar vaxtabætur
og að húsaleigubætur þyrftu einnig að stór-
hækka. Það væri í senn stuðningur við leigjendur
og þá sem reisa og reka leiguhúsnæði.
Ögmundur Jónasson segir forsendur félagslega húsnæðiskerfisins brostnar
Lífeyrissjóðir beini fjármagni
í uppbyggingu kerfisins
Hellnum - Klæðning ehf. vinnur nú
að vegagerð í Axlarhyrnu á Útnes-
vegi á Snæfellsnesi. Gísli Eysteins-
son verkstjóri segir að verkinu hafi
miðað mjög vel áfram og að veðrið
hafi hjálpað mikið til í vetur. Síðast-
liðinn vetur vann sama fyrirtæki að
vegagerð um Fróðárheiði við svo-
kallað Heiðarkast þar sem vegurinn
um Fróðárheiði og Útnesvegur
mætast.
Um fimmtán manns vinna við
vegagerðina í Axlarhyrnu á ellefu
daga vöktum með þriggja daga fríi
inni á milli. Gísli segir þetta allt vana
vegagerðarmenn og uppistaðan í
hópnum hafi unnið hjá fyrirtækinu í
ellefu til tólf ár. Þeir eru nokkuð á
áætlun með verkið og verði tíðin
jafngóð það sem eftir er vetrar og
verið hefur hingað til segir hann að
þeir muni leggja bundið slitlag á
veginn sem þeir unnu síðastliðið
haust í Breiðuvík á Útnesvegi í byrj-
un júní og að í júlí á þessu ári megi
vænta þess að lagt verið bundið slit-
lag á veginn í Axlarhyrnunni.
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Stór vegavinnutæki í Axlarhyrn-
unni með Stakkfell í baksýn.
Vegagerð í
Axlarhyrnu
Fernando Hipolito, framkvæmda-
stjóri stærstu ferðaskrifstofunnar í
Algarve, kynnti við þetta tækifæri
hugmyndina um sölu á Íslandsferð-
HUGMYNDIR eru uppi um að hefja
innan skamms sölu á skipulögðum
ferðum fyrir portúgalska ferðamenn
til Íslands. Þetta kom fram þegar
Victor Clemente, varaborgarstjóri
Albufeira í Algarve-héraði í Portú-
gal, heiðraði íslenska ferðamenn fyr-
ir að vera hlutfallslega flestir sem
koma frá einu og sama landinu til
borgarinnar. Það var aðstoðarmaður
samgönguráðherra, Jakob Falur
Garðarsson, sem tók við viðurkenn-
ingunni fyrir hönd íslenskra ferða-
manna sem hafa sótt borgina heim
undanfarin ár.
um frá Portúgal. Hann sagði að tíu ár
væru liðin frá því að ferðaskrifstofan
Úrval-Útsýn hóf beint leiguflug til
Portúgals og þar sem flogið væri
nokkrum sinnum í viku í beinu leigu-
flugi þangað væri verið að kanna
möguleikana á að bjóða Portúgölum
að ferðast til Íslands um leið og Ís-
lendingar fara í sólina í Portúgal.
Úrval-Útsýn fékk æðstu viður-
kenningu hóteleigenda í Algarve-
héraði fyrir brautryðjandastarf við
skipulagningu sólarlandaferða til
Portúgals. Alls hafa um 60.000 Ís-
lendingar farið með ferðaskrifstof-
unni til Portúgal síðan leiguflug
þangað hófst fyrir tíu árum. Nú fara
að jafnaði um 10.000 Íslendingar til
Algarve á ári hverju.
Íslenskir ferðamenn heiðraðir af borgaryfirvöldum í Albufeira í Portúgal
Portúgalar
áforma að selja
ferðir til Íslands
STURLA Böðvarsson, sam-
gönguráðherra, opnaði sl. föstudag
nýjan upplýsingavef Lánstrausts
hf. um lögfræði, Réttur.is. Vefurinn
er ætlaður almenningi jafnt sem
löglærðum og er engin gjaldtaka
fyrir þá þjónustu og upplýsingar
sem þar er veittar.
Stærsti einstaki hluti efnis á
Réttur.is er Netlögbókin sem er
nýtt verk byggt á riti Björns Þ.
Guðmundssonar, Lögbókin þín,
sem var fyrst gefin út 1989 og er nú
nánast ófáanleg. Á vefnum verður
einnig tekið á þeim atriðum sem
líklegast er að almenningur þurfi
upplýsingar um og er sérstök
áhersla lögð á að textinn sé ritaður
á máli sem allir skilja. Reglulega
verða birtir pistlar eftir lögfræð-
inga eða aðra áhugamenn um lög-
fræði þar sem tekið verður á mál-
um sem eru í brennidepli og reynt
að láta andstæð sjónarmið koma
fram. Lögfræðingur í fullu starfi
mun svo hafa það verkefni að
greina og skýra lögfræðilegar hlið-
ar á málum sem eru í fréttum. Sig-
urður Líndal prófessor er formaður
ritnefndar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðherra opnaði lögfræðivefinn Réttur.is sem ætlaður er almenningi jafnt sem löglærðum.
Tekið á málum sem
eru í umræðunni
Upplýsingavefur um lögfræði opnaður
Golfkúlur 3 stk. í pakka
aðeins 850 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is