Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 43

Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 43
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 43 BORGIR Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 F A S T E I G N A S A L AF A S T E I G N A S A L A NÚPALIND 6 - GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 13.00 - 15.00 Sölumenn á Borgum fasteignasölu verða með opið hús í dag sunnudag frá kl. 13.00 - 15.00 í Núpalind 6. Kynntar verða glæsilegar íbúðir af öllum stærðum. Íbúðirnar skilast full- búnar með vönduðum innréttingum, án gólfefna. Að utan skilast húsið fullfrágengið, klætt með viðhaldslitlu lituðu áli. Afhending á flestum íbúðunum getur orðið við kaupsamning. Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali Grandavegur - 3ja herb.m. bílskúr Falleg ca 90 fm íbúð í lyftublokk. Forstofa, hol, frá holi er gott sjónvarpshorn. Góð stofa m. suðursvölum og ágætu útsýni. Eldhús með vönduðum innréttingum og borðkrók. Þvottahús og búr innaf eldhúsi. Á sérgangi eru tvö góð svefnherbergi. Góður ca 23 fm bílskúr. Verð 14,4 millj. OPIÐ HÚS í DAG KL. 14-16 DIGRANESVEGUR 38 Kóp. F A S T E I G N A S A L A SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK SÍMI 533 1616 FAX 533 1617 netfang: lundur@f-lundur.is heimasíða:www.f-lundur.is Opið á Lundi í dag milli kl. 12 og 14 Rúmgóð 94 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi. Góðar innréttingar. Parket og flísar á gólfum. Suðurgarður. Verð 11,6 millj. MAJA OG ÓSKAR SÝNA ÍBÚÐINA Í DAG MILLI KL.14 og 16. Hraunteigur 10 Góð 3-4ra herbergja íbúð í kjallara í tvíbýlishúsi. Tvö her- bergi innan íbúðar og aukaherbergi í sameign. Nýlegt þak, dren o.fl. Frábær staðsetning. Laus 1. mars. V. 9,0 m. Áhv. 4 m. 4599. Hanna og Tómas taka á móti gestum í dag frá kl. 14-16. Áhugasamir velkomnir. Kleppsvegur 30 - við Brekkulæk Nýkomin í einkasölu falleg talsvert endurnýjuð 55 fm íb. í kjallara í góðu viðgerðu fjölbýli. Nýlegt baðherbergi o.fl. Mjög góð staðsetning. V. 7,4 m. Áhv. 3,2 m. 4362 Kristján og Elín taka á móti áhugasömum í dag frá kl. 14-16. Opið hús í dag - Opið hús í dag Síðumúla 27 sími 588 4477 fax 588 4479 Heimasíða: valholl.isF A S T E I G N A S A L A VA L H Ö L L GIMLI GIMLI FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26, FAX 552 0421, SÍMI 552 5099 Vorum að fá í sölu bjarta og fallega 3ja herb. 72 fm íbúð í kjallara í góðu fjölb. Rúmgóð herb. og stofa. Fata- herb. innaf hjónaherb. Baðherbergi endurnýjað. Flísar á gólfum. Sameign nýl. tekin í gegn að utan. Áhv. 4 millj. Verð 8,9 millj. (brunab.mat 9 millj.) Bryndís og Guðni sýna eignina frá kl. 14–17 í dag, sunnudag. Vorum að fá í sölu glæsilegt 220 fm einb. á einni hæð á fallegum útsýnis- stað á Álftanesinu. 4 rúmg. svefnher- bergi. Rúmgóðar stofur. Parket og flísar á gólfum. Húsið er fullbúið m. bráðab.innr. í eldhúsi. Innb. 30 fm bílskúr. Gísli og Sæunn sýna húsið frá kl. 14–17 í dag, sunnudag. KOMDU Í OPIN HÚS Í DAG ÁLFTAMÝRI 4 SJÁVARGATA 4 – ÁLFTANESI Vilhjálmur Bjarnason sölumaður Haraldur R. Bjarnason sölumaður Elvar Gunnarsson sölumaður Jóhanna Kr. Guðmundsdóttir skjalafrágangur Nanna Dröfn Harðardóttir ritari Salómon Jónsson löggiltur fasteignasali Opið hús á eftirtöldum stöðum sunnudaginn 18. febr. milli kl. 14 og 17 Sjávargrund 9b, Garðabæ Einstaklega fallegt 191,4 fm raðhús með innbyggðri bíl- geymslu. 4 herb. og stofur. Jatoba-parket og falleg eldhúsinn- rétting úr lútuðum ask. Tvennar svalir. Húsið er gott og skilast nýmálað. Falleg og skemmtileg eign. Áhv. 9 m. Verð 18,4 m. Elfa og Sveinbjörn taka á móti ykkur milli kl. 14 og 17 í dag. Stangarholt 34, Reykjavík 6-7 herb. íbúð á efri hæð og risi í tvíbýlishúsi. 4-5 herb., 2 stofur. Nýtt parket að mestu. Bílskúrsréttur. Falleg lóð. Góð staðsetning. Íbúðin er laus fljótlega. Verð 12,6 m. Björn sýnir íbúðina milli kl. 14 og 17. - heilshugar um þinn hag Suðurlandsbraut 50  108 Reykjavík  sími 533 4300  Fax 568 4094 Mjög skemmtileg 3-4ra herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) í litlu fjölbýli (6 íbúðir) á þessum frábæra stað. Gott hjónaherbergi með skápum. Barna- herbergi, sem voru tvö herbergi, auðvelt að breyta aftur. Góð stofa með frábæru útsýni. Mjög góð eign sem vert er að skoða. Kristín Helga sýnir í dag, sunnudag, milli kl. 17 og 19. Opið hús Efstaland 20 STJÓRN Félags grunnskólakenn- ara mótmælir harðlega áformum meirihluta bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar um að bjóða út kennslu við nýjan grunnskóla í Áslandi sem einkaframkvæmd. Í ályktun stjórnar félagsins segir að slíkt útboð sé brot á lögum um grunnskóla og varað við því að skólastarf sé boðið út á mark- aðstorgi gróðahyggju eins og komist er að orði. Ályktun stjórnar er svo- hljóðandi: „Stjórn Félags grunnskólakenn- ara mótmælir harðlega áformum meirihluta bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar um að bjóða út kennslu við nýjan grunnskóla í Áslandi sem einkaframkvæmd og telur slíkt út- boð brjóta í bága við lög. Stjórnin leggur áherslu á að það er lögbundin skylda sveitarfélaga að reka grunnskóla. Grunnskólinn er skyldunám og er hverju sveitarfélagi skylt að sjá öllum börnum á aldr- inum 6–16 ára sem þar eiga lögheim- ili fyrir skólavist. Sveitarfélagi er óheimilt að framselja til einkaaðila skyldur sem lagðar eru á það í lögum um grunnskóla. Stjórn FG vekur athygli á að hér er um að ræða áform um að bjóða út venjulegan hverfisskóla sem sveitar- félagið ber lögum samkvæmt fulla ábyrgð á, grunnskóla sem á að vera opinn öllum nemendum í viðkomandi hverfi, þar sem allir nemendur eiga rétt á námi og námstækifærum við hæfi. Þó að lög um grunnskóla og aðal- námskrá veiti sveitarfélögum og skólum verulegt svigrúm til að skipuleggja nám í samræmi við þarf- ir og aðstæður á hverjum stað er engin heimild fyrir því í lögum að menntamálaráðherra geti veitt und- anþágu frá grunnskólalögum til út- boðs á framkvæmd skólastarfs til einkaaðila. Félag grunnskólakennara telur að ákvæði grunnskólalaga um tilrauna- skóla geti ekki átt við um þessa áformuðu einkaframkvæmd. Í ljósi þessa fær stjórn FG ekki séð hvern- ig menntamálaráðherra geti veitt sveitarfélagi undanþágu frá því að sinna þeirri lögbundnu skyldu sinni að reka grunnskóla. Þá vekur stjórn FG athygli á því að Hafnarfjarðarbær er aðili að ný- gerðum kjarasamningi Kennara- sambands Íslands og Launanefndar sveitarfélaga fyrir grunnskóla. Áform um að bjóða út kennslu við grunnskólann í Áslandi vekur m.a. upp þá spurningu hvort bæjarfélagið sé að reyna að koma sér undan því að fjármagna þann samning, en launa- kostnaður vegna kennara og skóla- stjórnenda er langstærsti útgjalda- liður í rekstri hvers grunnskóla. Stjórn FG varar við öllum hug- myndum um einkavæðingu á grunn- menntun þjóðarinnar. Athygli vekur að í tilboðsgögnum vegna útboðs á kennslu og stoðverkefnum við grunnskóla í Áslandi í Hafnarfirði er tekið fram að tilboðsverðið eigi að fela í sér nægilegan hagnað og allan kostnað, meðal annars vegna launa, launatengdra gjalda, skatta eftir því sem við á, stjórnunar, fjármögnunar, rekstrar o.s.frv. Með öðrum orðum er gert ráð fyrir því að einkaaðili taki að sér rekstur skólastarfs, þ.m.t. kennslu, sem skili honum hagnaði. Hagsmunir nemenda eru ekki hafðir að leiðarljósi, heldur hagnaðarsjón- armið. Sameiginlegt markmið beggja samningsaðila með nýgerðum kjara- samningi fyrir grunnskólann er að bæta skólastarf með það fyrir aug- um að gera skólann samkeppnisfær- an og kennarastarfið eftirsóknar- vert. Því markmiði verður ekki náð ef sveitarfélög víkja sér undan ábyrgð sinni og bjóða skólastarfið út á markaðstorgi gróðahyggju.“ Stjórn Félags grunnskólakennara ályktar Útboð skólastarfs brýtur í bága við lög ATVINNA mbl.is BISKUP Íslands hefur skipað séra Jónu Hrönn Bolladóttur í embætti miðborgarprests frá 1. janúar sl. Um er að ræða samstarfsverkefni á veg- um biskups Íslands, Reykjavík- urprófastsdæma vestra og eystra, Dómkirkju-, Hallgríms- og Nes- sókna ásamt Miðborgarstarfi KFUM og K. Miðborgarpresti er ætlað að sinna fræðslu, helgihaldi og sálgæslu í miðborginni. Einnig er miðborgar- prestur framkvæmdastjóri miðborg- arstarfs KFUM og K og mun sinna sjómannaþjónustu sem fyrirhuguð er á þessu ári á vegum kirkjunnar. Hér er um frumkvöðlastarf að ræða. Miðborgarprestur var settur inn í embætti í Kolaportinu 10. feb. sl. af séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni pró- fasti í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Skipuð miðborg- arprestur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.