Morgunblaðið - 18.02.2001, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 18.02.2001, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÉG ER algjörlega sammála bréfrit- ara í Velvakanda í Morgunblaðinu laugardaginn 27. jan. sl. um frum- varp til laga um að opnað verði fyrir smásöluverslun með áfenga drykki í almennum matvöruverslunum og er það með öllu óskiljanlegt hvað geng- ur þessum háttvirtum þingmönnum til að flytja slíkt vanhugsað frum- varp miðað við það mikla ófremdar- ástand sem ríkir í áfengismálum og öðrum fíkniefnamálum þjóðarinnar. – Þó er afstaða og áhugi Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Verslunarráðs, kannski skiljanleg, honum finnst það skylda sín að hygla skjólstæðingum sínum í verslunar- rekstri, að auka fjölbreytni og fram- boð í vöruúrvali, ekki af beinni nauð- synjavöru, heldur frjálsari aðgang að áfengi til viðbótar við tóbak sem er mikið fíkniefni og áfengið er ekk- ert annað en „löglegt“ fíkniefni. Ég á mun erfiðara með að skilja afstöðu og áhuga hinna ágætu þingkvenna Ástu Möller hjúkrunarfræðings og Þorgerðar K. Gunnarsdóttur. Ég mundi ætla að Ásta væri fyrst og fremst málsvari heilbrigðisstéttanna með áherslu á bætt heilbrigði og líf- erni og mjög á móti öllu sem skaðar og er í andstöðu við slíkan lífsmáta. Þorgerði K. Gunnarsdóttur hef ég alltaf litið á sem sanna ímynd æsku- manneskjunnar, málsvara æskunnar og hollrar félagshreyfingar, enda til þeirra að telja er hafa verið leiðandi afl og í fararbroddi á því sviði um árabil. Einn flutningsmanna frumvarps- ins Vilhjálmur Egilsson viðurkennir að ef það nær fram að ganga muni aukast sala á áfengi. Hvað þýðir það? Jú, það er viðurkennd staðreynd að neysla sterkra fíkniefna kemur í kjölfar áfengisneyslu. Kannanir hafa sýnt að auðveldara aðgengi að áfengi leiðir af sér meiri neyslu og afleið- ingarnar eru skelfilegar eins og áð- urnefndur greinarhöfundur lýsir í grein sinni: Niðurbrot fjölskyldna, glæpir, sjálfsvíg o.s.frv. Ég skora á og hvet alla sómakæra og háttvirta þingmenn, hvar í flokki sem þeir standa, að sporna við að þetta óheillafrumvarp fái brautar- gengi en verði fellt á Alþingi. Einnig ættu kjósendur um allt land að tjá sig um þetta mál. – Ég held að þær tvær ágætu þingkonur, Ásta og Þor- gerður, hefðu átt að skoða hug sinn betur, áður en þær ákváðu að vera flutningsmenn að slíku vanhugsuðu frumvarpi og snúa sér heldur að mun þarfari og brýnni þjóðþrifamálum sem sífellt kalla á atorku og mála- fylgju þingmanna til góðra verka og úrlausnar hverju sinni. Með vinsemd og virðingu. GUÐMUNDUR J. MIKAELSSON, verslunarmaður, Hvassaleiti 8, Reykjavík. Óheillafrumvarp Frá Guðmundi J. Mikaelssyni: FÁ mál hafa valdið jafn miklum taugatitringi í þjóðfélaginu og ör- yrkjadómurinn og það sem honum hefur fylgt. Sjálfsagt er of snemmt að gera það dæmi upp og meta hver áhrifin verða á samfélagið og þróun þess. Ég get þó ekki varist þeirri hugsun að allt þetta mál muni hafa alvarlegar og neikvæðar afleiðingar í meira mæli en æskilegt er. Ég held að þegar upp verður staðið hafi allir tapað á þessu máli. Ég ætla hér á eft- ir að rökstyðja þessa skoðun mína í örstuttu máli. Ef ég skil dóminn rétt þá er það brot á stjórnarskrá að skerða bætur til öryrkja vegna tekna maka, ef skerðingin miðast við tekjur umfram einhverja óskilgreinda upphæð, sem er væntanlega einhvers staðar í ná- munda við framfærslumörk einstak- lings. Stjórnskipulagið gerir ráð fyrir að ríkisvaldið eigi að fylgja dóminum eftir. Dómsvaldið er einn af þremur hornsteinum þjóðfélagsins ásamt löggjafar- og framkvæmdavaldinu. En að dóminum föllnum var fjandinn laus. Allir aðilar að málinu og margir fleiri hafa tjáð sig og flest af því virð- ist mér ekki standast neina skyn- semi. Öryrkjabandalagið með for- mann þess og lögmann hafa farið svo offari að vandséð er að stuðningur al- mennings þann góða málstað, sem þeir vinna að, haldist. Forsætisráð- herra hefur viðhaft svo sterk um- mæli um Hæstarétt að hann þarf að leggja sig allan fram um að sannfæra landsmenn um að hann aðhyllist þrátt fyrir allt þrískiptingu ríkis- valdsins eins og stjórnarskrá okkar og annarra vestrænna ríkja gerir ráð fyrir. Stjórnarandstaðan þarf að gera grein fyrir af hverju hugsjónir jafnaðarmennskunar – að þeir sem helst þurfa aðstoð samfélagsins eigi að sitja fyrir – eigi að víkja af því þeirri einföldu ástæðu að andstæð- ingurinn liggur vel við höggi. Alþingi þarf virkilega að hugsa sinn gang og átta sig á að samskipti þess við aðrar meginstoðir ríkisvaldsins þurfa að standast lágmarks kröfur. Hæsti- réttur þarf einnig að átta sig á að bréf send út í hans nafni eiga ekki að þjóna markmiðum, sem liggja utan verkefna hans. Síðast en ekki síst þarf Jón Steinar og aðrir lögspeking- ar, sem maður vill gjarnan taka mark á, að átta sig á að það er góð regla að telja upphátt upp í þúsund áður en maður tjáir sig um hluti, sem hafa valdið manni uppnámi. Ég er bara almennur þegn þessa lands. Þeir sem ég hnýti í hér eru mér eðlilega misjafnlega að skapi. Þeir hafa hins vegar allir fallið á próf- inu. Ég sætti mig ekki við að við lifum í jafn miklu bananalýðveldi og ör- yrkjadómurinn og afleiðingar hans virðast bera með sér. Við höfum öll tapað á þessu máli og ég ætlast til að þetta mál verði til þess að ábyrgir að- ilar í þjóðfélaginu hugsi sinn gang og komi umræðunni á hærra plan. PÉTUR BJARNASON, Vanabyggð 6e, 600 Akureyri. Töpuðu ekki allir á öryrkjadómnum? Frá Pétri Bjarnasyni: BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.