Morgunblaðið - 18.02.2001, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss og Sten Embla
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Tönnes, Hvítanes og
Júlíus Geirmundsson
fara í dag. Selfoss kem-
ur á morgun.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 8.45 leikfimi, kl.
10 boccia, kl. 14 félags-
vist, kl. 12.30 baðþjón-
usta.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 pennasaumur og
harðangur, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30 félagsvist, kl. 13
opin smíðastofan, kl. 16
myndlist, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10 sam-
verustund, kl. 13
bútasaumur.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Leikfimi í íþróttasal á
Hlaðhömrum, þriðjud.
kl. 16. Sundtímar á
Reykjalundi kl. 16 á
miðvikud. Pútttímar í
Íþróttahúsinu á Varmá
kl. 10–11 á laugard. Kór-
æfingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í Mos.
á Hlaðhömrum á
fimmtud. kl. 17–19. Jóga
kl.13.30–14.30 á föstud. í
Dvalarheimili Hlað-
hömrum. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586-8014
kl. 13–16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554-1226.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað-
gerð og myndlist, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10–
13 verslunin opin, kl.
11.10 leikfimi, kl. 13
handavinna og föndur,
kl. 13.30 enska fram-
hald.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Á
morgun kl. 9 böðun, kl.
9.45 leikfimi, kl. 9 hár-
greiðslustofan opin.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
morgun mánudag verða
Púttæfingar í Bæj-
arútgerðinni kl. 10–12
Tréútskurður í Flens-
borg kl. 13. Félagsvist í
Hraunsel kl. 13.30 Leik-
húsferð laugardaginn
24. febr. Á sama tíma
síðar, aðgöngumiðar
seldir í Hraunseli á
mánudag, þriðjudag og
miðvikudag milli kl. 14
og 16. Hótel Örk,
Hveragerði, þátttak-
endur staðfestið pöntun
og greiðið rútugjald,
mánudag, þiðjudag og
miðvikudag í Hraunseli
kl. 14 til 16. Dansleikur
verður föstudaginn 23.
febr. kl. 20.30 Caprí
Tríóið leikur fyrir dansi.
Félagstarf aldraðra
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Fótaað-
gerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. nýtt
símanúmer 565-6775.
Bingó og skemmtikvöld
í Kirkjuhvoli 22. febrúar
kl. 19.30 á vegum Lions-
klúbbs Garðabæjar.
Rútuferðir samkvæmt
áætlun. Ferð í Þjóðleik-
húsið 24. febrúar kl. 20.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Félagsvist kl.
13.30 í dag. Dansleikur
kl. 20 Caprí-tríó leikur
fyrir dansi. Mánudagur:
Brids kl. 13 sveita-
keppni. Framsögn kl.
16.15. Danskennsla Sig-
valda kl. 19. fyrir fram-
hald og byrjendur kl.
20.30. Söngvaka kl.
20.30 undirleik annast
Sigurbjörg Hólmgríms-
dóttir. Þriðjudagur:
Skák kl. 13.30. Alkort
spilað kl. 13. Ath. Opn-
unartíma skrifstofu
FEB er frá kl. 10–16.
Uppl. í síma 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, frá
hádegi spilasalur opinn.
Fimmtud. 22. febrúar er
leikhúsferð í Þjóðleik-
húsið að sjá leikritið
„Með fulla vasa af
grjóti“, vegna forfalla
eru nokkrir miðar til.
Aðstoð frá Skattstofu
við skattframtöl verður
veitt miðvikudaginn 7.
mars, skráning hafin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Á morgun
kl. 9–16.30 opin vinnu-
stofa handavinna og
föndur, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 14 félagsvist.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun handa-
vinnustofan opin leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 9–17, kl. 9.30 gler og
postulínsmálun, kl. 13.30
lomber og skák, kl.
14.30 enska, kl. 17
myndlist. Myndlist-
arsýning frístundamál-
ara í Gjábakka stendur
yfir til 23. febrúar.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 postulínsmálun
og perlusaumur og
kortagerð, kl. 10.30
bænastund, kl.13 hár-
greiðsla, kl. 14 sögu-
stund og spjall.
Gullsmári, Gullsmára
13. Málverkasýning
Jóns Páls Ingibergs-
sonar er í Listahorninu í
Gullsmára, opið virka
daga frá kl. 9–17. Á
veggblaðinu er ljóð eftir
Valdimar Lárusson.
Vesturgata 7. Á morg-
un, kl. 9 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12.15 dans-
kennsla framhald, kl.
13.30 danskennsla byrj-
endur, kl. 13 kóræfing.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun,
fótaaðgerðir, keramik,
tau- og silkimálun og
klippimyndir, kl. 10
boccia, kl. 13 spilað.
Norðurbrún 1. Á morg-
un, fótaaðgerðarstofan
opin frá kl. 9–14, bóka-
safnið opið frá kl. 12–15,
kl. 10 ganga.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smiðjan og hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir, kl. 13
handmennt, kl. 13. leik-
fimi, kl. 13 spilað.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK í Gullsmára
bíður alla eldri borgara
velkomna að brids-
borðum í félagsheim-
ilinu að Gullsmára 13 á
mánudögum og fimmtu-
dögum. Mæting og
skráning kl. 12.45. Spil
hefst kl. 13.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12. Á
morgun kl. 19 brids.
GA-fundir spilafíkla,
eru kl. 18.15 á mánudög-
um í Seltjarnar-
neskirkju (kjallara), kl.
20.30 á fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA, Síðu-
múla 3–5, og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laug-
ardögum kl. 10.30.
Samtök kynferðislegs
ofbeldis fundir á mánu-
dögum kl. 20 í húsi
Húsmæðraskólans í
Reykjavík við Sól-
vallagötu. Unnið er eftir
12 sporakerfi AA-
samtakanna.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús þriðjudag frá kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fræðsla. Verið
velkomin.
Seyðfirðingafélagið.
Sólarkaffi Seyðfirðinga
verður haldið í dag,
sunnudag, kl. 15 í Gjá-
bakka í Fannborg 8,
Kóp. Mætið vel í Sólar-
kaffi.
Kristniboðsfélag karla.
Fundur verður í Kristni-
boðssalnum, Háaleit-
isbraut 58–60, mánu-
dagskvöldið 19. febrúar
kl. 20. Sr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson sér um fund-
arefnið og talar um
sköpunarsöguna. Allir
karlmenn velkomnir.
Kvenfélagið Keðjan
heldur aðalfund í Húna-
búð, Skeifunni 11,
mánudaginn 19. febr. kl.
20.30. Mætið vel.
Hana-nú, Kópavogi.
Spjallstund verður á
Bókasafni Kópavogs
mánudaginn 19. febrúar
á Lesstofu Bókasafns
Kópavogs kl. 16. Fund-
arefni myndir, minn-
ingar, dagbókarbrot og
frumort ljóð úr sögu
Hana-nú. Allir velkomn-
ir.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Nán-
ari uppl. á skrifstofu GÍ,
s. 530-3600.
Í dag er sunnudagur 18. febrúar,
49. dagur ársins 2001. Biblíudag-
urinn, konudagurinn. Orð dagsins:
Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar
mun og hjarta yðar vera.
(Lúk. 12, 34.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 hnífar, 4 slöngu, 7
gangi, 8 svipað, 9 ófætt
folald, 11 axlaskjól, 13
skrifa,
14 mannsnafn, 15 kögur,
17 háð, 20 fugls, 22 votur,
23 grefur, 24 deila, 25
skánin.
LÓÐRÉTT:
1 kröfu, 2 hillingar, 3
sleit, 4 málmur, 5 hagn-
aður, 6 búa til, 10 var-
gynja,
12 bein, 13 á húsi, 15
baggi, 16 ilmur, 18 smá-
seiðið, 19 skrifið, 20
grama, 21 sárt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 steinsnar, 8 sýpur, 9 eimur, 10 afl, 11 rýrar, 13
lánið, 15 músar, 18 stert,
21 ann, 22 slöku, 23 aftur, 24 ökutækinu.
Lóðrétt: 2 tapar, 3 iðrar, 4 skell, 5 arman, 6 ósar, 7 bráð,
12 aða, 14 átt,
15 mysa, 16 skökk, 17 rautt, 18 snakk, 19 ertin, 20 tóra.
Bleiku góðæris-
gleraugun
SAGT hefur verið að góð-
æri svífi hér um, sveipað
bláum dulum. Er það stað-
reynd eða smíðað í drauma-
verksmiðju stjórnvalda?
Sagt er líka að fátæktin
flakki víða um núna, en það
er engu líkara að hún sé
með huliðshjálm, því marg-
ir bara sjá hana alls ekki.
En öryrkjar, láglaunafólk
og fleiri finna fyrir hennar
hvössu klóm, svo undan
svíður. Það væri kannski
ráð fyrir stjórnvöld að láta
þetta fólk fá bleik góðæris-
gleraugu, svo það missi
ekki af dýrðinni og minna
svíði, því ekki sýnist mér að
þeir sem hér stjórna hafi
mikinn áhuga á að bæta
kjör þessa fólks. Örvænting
og vanlíðan þessa fólks
eykst stöðugt. Mánaðamót-
in eru algjör martröð, því
þessar fáu krónur sem
þetta fólk fær duga ekki
fyrir nauðsynlegum út-
gjöldum, né heldur fyrir
mat út mánuðinn.
Halla Hansdóttir
varaform. samtaka
gegn fátækt.
Rautt eðalginseng
frá Kóreu
FYRIR um rúmum 10 ár-
um las ég um rannsókn sem
gerð var á breskum hjúkr-
unarfræðingum með inn-
töku á kóresku ginsengi.
Rannsóknin fólst í því að
kannað var atgervi og ásig-
komulag hjúkrunarfræð-
inganna eftir því hvort þeir
voru á dagvöktum eða
skiptivöktum. Í ljós kom að
þeir sem voru á næturvökt-
um voru undir meira álagi
en þeir sem voru á dagvökt-
um. Með ginsengneyslu
minnkaði munur á hópun-
um tveimur. Neysla gin-
sengs virtist því draga úr
streitu og auka aðlögunar-
hæfni þeirra sem voru und-
ir álagi. Þetta varð til þess
að ég fór að nota Rautt eð-
alginseng frá Kóreu, sem
ég hef notað síðan með góð-
um árangri.
Þá langar mig að nefna
aðra rannsókn með „Kor-
ean Red Ginseng Heaven
Grade“ (tvöföld blindprufa)
sem framkvæmd var á vist-
mönnum á St. Francis-spít-
alanum í London, undir
stjórn dr. Phd. Stephen
Fulder. Rannsóknin var
samþykkt af stjórn King-
sjúkrahúskeðjunnar. 50
sjúklingar með væg elli-
glöp, s.s. þrekleysi, minnis-
leysi og þunglyndi voru
valdir í tilraunina en 49 luku
henni. Niðurstaðan sýndi
ótvírætt afgerandi aukn-
ingu á viðbragðsflýti og
ákvarðanatöku þátttak-
enda, sem tóku rautt eðal-
ginseng. Hinsvegar virtist
líðan sjúklinganna almennt
batna þótt niðurstaðan væri
ekki jafnafgerandi og meiri
breytileiki milli sjúklinga
en hvað varðaði viðbragðs-
flýtinn. Rétt er þó að benda
á að sumir geta fundið fyrir
svefntruflunum fyrstu 2 til
4 dagana þegar líkaminn
finnur fyrir nýjum auka-
krafti. Þegar frá líður eykst
streituþol og flestir hvílast
betur. Rautt eðalginseng er
því góður kostur fyrir
marga.
Helga Eiríksdóttir,
hjúkrunarfræðingur.
Kattaplága í Linda-
hverfi í Kópavogi
ÉG vil beina orðum mínum
til kattareiganda í Galtalind
og nágrenni að halda dýr-
um sínum inni á nóttinni,
því ég hef þrásinnis orðið
fyrir ónæði af köttum, sem
smeygja sér inn um rifur á
gluggum á neðri hæð. Við í
fjölskyldunni höfum of-
næmi fyrir kattarhárum og
svo skilja dýrin för eftir á
húsgögnum og glugga-
bekkjum. Varla er ætlast til
að við sofum við lokaða
glugga eða kostum upp á
netramma á alla glugga.
Þótt fólk hafi húsdýr
(mér að meinalausu), væri
æskilegt fyrir alla, að hafa
dýrin inni á nóttinni, til þess
að lifa áfram í sátt við ná-
granna sína.
Með kveðju,
Íbúi við Galtalind.
Hvar eru
Friðjón og Birna?
GUÐRÚN hafði samband
við Velvakanda vegna korts
sem sent var heim til henn-
ar. Kortið er stílað á Frið-
jón og Birnu en hún kann-
ast ekkert við fólkið.
Sendendur kortsins eru Jón
Örn og Brynhildur í Nor-
egi. Friðjón og Birna eru
beðinn að hafa samband við
Guðrúnu í síma 553- 9198.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kannast einhver við fólkið?
Myndin er tekin við olíustöðina Klöpp við Skúlagötu á
stríðsárunum. Hverjir eru á myndinni? Hvað heitir
drengurinn og maðurinn? Vinsamlegast hafið samband
í síma 515-1118 eða 894-8920 eða sendið upplýsingar á
netfangið halli@olis.is.
Víkverji skrifar...
HVAÐ ætlarðu að gera í kvöld?sagði móðir við unglinginn, son
sinn, svo Víkverji heyrði á dögunum.
„Ég ætla bara að vera heima og tjilla
feitt,“ var svarið. Eftir að svarið var
túlkað fyrir móðurina og Víkverja
kom í ljós hvað drengurinn meinti.
Hann ætlaði sem sagt að hafa það
mjög náðugt. Að „tjilla“ er víst kom-
ið af enska orðinu chill, sem þýðir
kuldi og í þessu sambandi notað um
að vera freðinn, liggja á ís, sem ung-
lingarnir nota í merkingunni að gera
ekki neitt. „Og það sem er feitt er
mikið, ekki satt?“ sagði „túlkurinn“
og brosti. Víkverji sannfærðist end-
anlega um það þetta kvöld, að hann
þarf ekki að hafa minnstu áhyggjur
af íslenskri tungu...
x x x
VÍKVERJI hreifst af hugmynda-auðgi og krafti foreldra pilt-
anna í 6. flokki Þórs á Akureyri í
knattspyrnu. Þeir héldu tónleika fyr-
ir viku í Glerárkirkju, þar sem marg-
ir þekktustu tónlistarmenn Norður-
lands komu fram, og aðsóknin var
svo góð að tónleikarnir voru endur-
teknir um kvöldið. Víkverji heyrði þá
sögu að feður tveggja drengja í
hópnum hefðu hist á förnum vegi, og
fjáröflun vegna Shell-mótsins í Eyj-
um og annarra keppnisferða í sumar
borið á góma. Annar spurði þá hvort
viðmælandinn vildi frekar steikja
kleinur og selja eða halda tónleika,
og ekki mun hafa staðið á svari, enda
viðkomandi kunnur söngvari og einn
þeirra sem komu fram á tónleikun-
um... Það er gaman þegar fólk í
íþróttahreyfingunni fær hugmyndir
að nýstárlegum fjáröflunum sem
þessari, að ekki sé talað um þegar
þær verða að veruleika.
x x x
VÍKVERJA hefur borist eftirfar-andi bréf frá Ingólfi Ármanns-
syni, menningarfulltrúa Akureyrar-
bæjar:
„Í pistli þínum í Morgunblaðinu
um helgina 3.–4. febrúar sl. var vin-
samleg ábending um að betri upplýs-
ingar um tilboð menningarstofnana
vantaði á vefsíðu Akureyrarbæjar.
Við viljum gjarnan þakka fyrir
þessa ábendingu. Nú er búið að
bregðast við og tengja heimasíðu
Leikfélagsins við vefsíðu Akureyrar-
bæjar, www.akureyri.is/, undir
menningarmál. Þar á því núna að
vera hægt að nálgast upplýsingar
um allar þær menningarstofnanir
sem tengjast beint eða óbeint starf-
semi bæjarins. Er það von okkar að
bæði heimafólk á Akureyri og vænt-
anlegir gestir til bæjarins geti þá
betur nýtt sér þessa þjónustu eða
mjög aðgengilegar upplýsingar um
það sem er í boði á Akureyri í hverj-
um mánuði, sem nú er verið að setja
upp á vefsíðunni www.eyjafjord-
ur.is/.“
Víkverji lýsir ánægju sinni með
góð viðbrögð Akureyrarbæjar og
efast ekki um að ferðamenn á leið
norður taka undir.