Morgunblaðið - 18.02.2001, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 18.02.2001, Blaðsíða 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sími 551 5103C a r l o s SALSA með Carlos Nýtt námskeið hefst 23. febrúar Algjört verðhrun Síðasti dagur útsölunnar á morgun, mánudag. Allt á að seljast! UNGIR djassarar ætla að leyfa landanum að njóta hæfileika sinna á hverju sunnudagskveldi á neðri hæðinni á Ozio. Tónleikararnir munu hefjast kl. 21.30, inngangs- eyrir er 600 krónur og í honum innifalinn drykkur. „Þannig að ef maður ætlar að fá sér bjór á annað borð, borgar sig að koma og þá fær maður tónleika ókeypis. Eða þannig,“ útskýrir Sigurjón Al- exandersson djassgítaristi, en hann, og Eyjólfur Þorleifsson saxó- fónleikari, sjá um að útvega hljóm- listarfólk til að koma fram. Aukið framboð á djassi Eyjólfur: Það er verið að koma ungum upprennandi listamönnum á framfæri án þess þó að útiloka þá eldri og reyndari. Sigurjón: Það verður meira stíl- að inn á yngri spilara en ekki endi- lega yngri áhorfendur. – Verður stemmningin og tón- listin öðruvísi hjá ykkur en hjá Múlanum? Eyjólfur: Það verður kannski af- slappaðri stemmning og meira frelsi fyrir áheyrendur. Þá má tala. Sigurjón: Við erum samt alls ekki í neinni samkeppni við Múl- ann. Það er frekar að við séum að vinna saman að auknu framboði á djasstónlist. – Er alltaf fleira yngra fólk að hlusta á djass? Sigurjón: Það er náttúrulega að koma svo mikið af ungum djass- spilurum fram, sem gerir að áheyr- endur verða yngri. Eyjólfur: Það eru svo margar tónlistarstefnur að mætast. Sá sem hefur áhuga á fönki og sýrudjassi hlustar þar af leiðandi á djass. Hann er farinn að tengjast meira almennri tónlist. Strákarnir eru í djasskvintettin- um Penta sem ætlar að ríða á vaðið í kvöld. Með þeim er ágætis hryn- sveit, en hana skipa: Þorgrímur Jónsson á kontrabassa, Eyþór Kol- beins básúnuleikari og Helgi Sv. Helgason trommari. Eyjólfur: Við erum að spila ýmsa þekkta og óþekkta standarda. Það bíður upp á ýmsa möguleika að hafa tvo blásara. Við komum víða við og dagskráin er mjög fjöl- breytt. Sigurjón: Við tökum t.d tvö lög eftir Sonny Rollins, „Biji“ og „Al- fiés Theme“. Einnig tvö eftir pí- anóleikarann Cedar Walton. Eyjólfur: Það verður mjög frjáls og notaleg stemmning hjá okkur. Sigurjón: Og á næstu sunnu- dagskvöldum má búast við að heyra alls konar djasstónlist á Ozio. Allt frá standard djasstónlist, jafnvel rokkaðan djass og allt út í sýrudajass. Það verður allur skal- inn tekinn. Allur skalinn tekinn „Í KVÖLD verður tekið á þremur málum sem öll tengjast einum manni, Þórhalli Ölver,“ svarar Björn Brynjúlfur Björnsson framleiðandi sjónvarpsþáttanna Sönn íslensk sakamál aðspurður. „Fyrst var hann fórnarlamb í máli sem barn. Síðar var hann þekktur hér undir nafninu „Vatnsberinn“ vegna þess að hann átti fyrirtæki sem bar sama nafn. Það fyrirtæki ætlaði sér umfangs- mikinn vatnsflutning frá Íslandi til Ameríku en það reyndist spilaborg sem hrundi og hann lenti í miklum málarekstri vegna skattsvika og við- líka hluta. Síðan varð hann Agnari Agnarssyni að bana á Leifsgötu árið 1999.“ Hvernig takið þið á málinu? „Það er m.a. rætt við Þórhall sjálf- an í þættinum og svo er byggt á heimildum sem til eru frá sama tíma, bæði úr fréttum sjónvarpsins, mynd- um í fórum fólks sem þessu tengist og gögnum sem tengjast rannsókn málsins. Rætt er við fólk sem varð vitni að þessum atburðum, þátttak- endur og rannsóknaraðila. Þetta er formið sem við fylgjum í gerð allra þáttanna.“ Fór mikill tími í rannsóknarvinnu? „Það fór upp undir ár í rannsókn- arvinnu og handritagerð þáttanna. Þessi mál eru náttúrlega öll mjög viðkvæm. Bæði gagnvart fólkinu sem tók þátt í þessum atburðum og ekki síður aðstandendum þeirra, hvort sem þeir voru gerendur eða þolendur í þessum málum. Þannig að þetta þarf að vinna mjög vel, það er ekki hægt að vaða um þetta eins og fíll í postulínsbúð.“ Af hverju þessi sakamál frekar en einhver önnur? „Þetta er unnið þannig að við er- um með miklu fleiri mál sem við skoðum, þau eru eitthvað um 20 – 30. Svo er þeim smám saman fækkað. Það eru margir þættir sem ráða því hvaða mál verða að sjónvarpsþátt- um. Það þurfa að vera einhverjir endar á málinu, út frá rannsókn málsins eða sögu þeirra sem að komu. Bæði þarf málið að vera spennandi og að hafa einhvern sam- félagslegan vinkil sem er athyglis- verður. Við erum t.d. með tvö mál sem eru óupplýst. Annað er rán á peningarsendingu hjá Skeljungi, þar sem tvær stúlkur sem voru í pen- ingaflutningum fyrir fyrirtækið voru rændar. Hitt er rán í Búnaðarbank- anum á Vesturgötu. Við vinnum þessi mál í mjög góðu samstarfi við lögregluna og þetta er ákveðin til- raun okkar að sjá til hvort það sem við sýnum geti orðið til þess að fram komi einhverjar nýjar upplýsingar sem leitt geta til þess að málin upp- lýsist. Það þekkist erlendis með þætti af svipuðum toga og því verður spennandi að sjá hvort eitthvað kem- ur upp úr því hér.“ Sönn íslensk sakamál eru í Sjónvarpinu á sunnudögum „Ekki hægt að vaða um eins og fíll í postulínsbúð“ Morgunblaðið/Jim Smart Hugsjónafólk. Frá vinstri: Gunnar Páll Ólafsson klippari, Einar Magnús Magnússon leikstjóri, Björn Brynjúlfur Björnsson framleiðandi, Kjartan Björgvinsson handritshöfundur og Guðrún Helga Arnarsdóttir framkvæmdastjóri. Úr þættinum. Helgi, Sigurjón, Þorgrímur, Eyþór og Eyjólfur eru hressir djassarar. Morgunblaðið/Golli Sunnudagsdjass á Ozio
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.