Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 64

Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. Á HEIMSMÆLIKVARÐA S: 569 7700 VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR HÚS speglast í rúðu og renna sam- an í eitt og drengur hjólar út úr myndinni. Þarna hefur næmt auga ljósmyndarans náð að skapa nýja töfraveröld. Morgunblaðið/RAX Töfraveröld í speglun Í BRUNANUM í húsi Ísfélags Vestmannaeyja þann 9. desember sl. varð eitt mesta ef ekki mesta einstaka brunatjón í sögu bruna- mála á Íslandi. Tjónið er nú áætlað um 1.300 m. kr. og svarar til tæp- lega meðaltals heildarbrunatjóna í landinu á tveggja ára tímabili, að því er fram kemur í bráðabirgðatöl- um frá Brunamálastofnun. Fram kemur að miðað við bráða- birgðatölur tryggingafélaga hafa brunatjón síðastliðins árs numið alls rúmlega 2,4 milljörðum króna, eða ríflega fjórföldu tjóni í með- alári undanfarin 20 ár. Tjónið hjá Ísfélaginu áætlað um 1.300 milljónir Fram að brunanum í Ísfélags- húsinu var mesta brunaár sögunn- ar 1989 þegar Krossanesverksmiðj- an í Eyjafirði og Gúmmí- vinnustofan á Réttarhálsi í Reykjavík brunnu en hvort tjónið samsvaraði um 75% heildartjóna í meðalári. Áætlað er að tjónið vegna brunans í Ísfélaginu í Vestmanna- eyjum hafi verið um 1.300 milljónir króna. Fram kemur hjá Brunamála- stofnun að árangursríkasta aðferð- in til að ná niður brunatjónum sé sú að koma í veg fyrir bruna í stórum og meðalstórum byggingum og þá með vörnum í byggingunum sjálf- um. Hér á landi eru brunatjón og manntjón í eldsvoðum með því lægsta sem gerist ef miðað er við nágrannalöndin. Íkveikja orsök 36% bruna Árin 1994-1996 varð tjónið sem svarar til 0,13% af vergri þjóðar- framleiðslu en meðaltal Norður- landanna var 0.2125%. Nefnt er sem skýring að hús eru hér nýrri, smærri og oftar úr steinsteypu en víðast annars staðar. Enginn lést í bruna hér á landi síðastliðið ár en í meðalári bíða tveir bana í brunaslysum. Meðaltal áranna 1994-1996 var 0,55 dauðsföll á 100.000 íbúa en á Norðurlöndum 1,67 dauðsföll á 100.000 íbúa. Stærsti áhættuhópur vegna banaslysa í eldsvoðum eru karlar á aldrinum 50-70 ára. Þrír karlar far- ast fyrir hverja konu og er með- alaldur þeirra 42 ár en meðalaldur kvenna 39 ár. Íkveikjur ollu 36% allra bruna á Íslandi í fyrra. Eldsupptök voru rakin til rafmagns og rafmagns- tækja í 25% tilvika og til reykinga í 3% tilvika en eldsupptök voru óþekkt í 12% bruna. Fjórfalt meira brunatjón í fyrra en í meðalári Brunatjón nam 2,4 milljörðum HJÁLMAR Árnason, formaður iðn- aðarnefndar Alþingis, segir að árs- ins 2001 verði minnst sem upphafs- árs vetnisvæðingar íslensks samfélags. Hann segir að óðum styttist í það að fyrstu verkefnum Íslenskrar nýorku á þessu sviði verði hrundið í framkvæmd. Á und- anförnum vikum hafi blaðamenn frá erlendum fjárfestingartímaritum komið gagngert hingað til lands til þess að fjalla um verkefnið og það styttist í það að vetnisknúin ökutæki verði farin að sjást hérlendis. Í næstu viku koma til landsins fulltrú- ar frá DaimlerChrysler, sem á 16% hlut í Íslenskri nýorku, og fulltrúar Iveco, en bæði eru fyrirtækin stór- tækir framleiðendur strætisvagna. Í byrjun næsta mánaðar stendur Ís- lensk nýorka fyrir alþjóðlegri vetn- isráðstefnu hér á landi. Þar er búist við að greint verði í smáatriðum frá framgangi þessara mála og næstu skrefum. Styttist í vetnisvæðingu íslensks samfélags  Verkefni/D1 RAFIÐNAÐARMENN hjá Norðurorku, Rafveitu Akur- eyrar, hafa boðað verkfall 21. febrúar nk. náist samningar ekki. Fyrir rúmu ári tóku raf- iðnaðarmenn hjá Norðurorku þá ákvörðun að flytja sig úr Starfsmannafélagi Akureyrar yfir í Félag rafiðnaðarmanna á Norðurlandi og um leið í Raf- iðnaðarsamband Íslands. Und- anfarna mánuði hafa staðið yfir viðræður milli RSÍ og Launa- nefndar sveitarfélaga um gerð nýs kjarasamnings. Kröfur RSÍ eru þær að gerður verði samskonar samningur um þessi störf og RSÍ hefur þegar gert við önnur sveitarfélög. Þetta hefur launanefndin ekki fallist á. Málið var tekið fyrir á fundi miðstjórnar RSÍ 16. febrúar sl. og þar var samþykkt að styðja beri rafiðnaðarmenn og greiða verkfallsstyrki frá fyrsta verk- fallsdegi. Truflanir ef eitthvað bilar Franz Árnason, forstjóri Norðurorku, segir að næst verði fundað í deilunni á mánu- dag. „Þetta er í fyrsta sinn sem þessir menn semja undir merkjum RSÍ en þeir voru áður í Starfsmannafélagi Akureyr- arbæjar. Þeir hafa því kannski miklar væntingar en launa- nefndin hefur ramma sem hún þarf að uppfylla.“ Alls eru þetta átta rafiðnað- armenn. Franz segir að verið sé að kanna hver áhrif verkfalls geti orðið. Meðan mennirnir voru í Starfsmannafélagi Akur- eyrarbæjar störfuðu þeir undir formerkjum um réttindi og skyldur opinberra starfs- manna. Franz segir að ekki sé hætta á rafmagnsleysi í bænum nema vegna bilana og þær séu fátíð- ar. „Því lengur sem fyrirbyggj- andi viðhald er trassað því meiri hætta er á alvarlegum bilunum. Ég vona nú ennþá að menn nái saman,“ segir Franz. Rafiðnaðarmenn hjá Norðurorku Verkfall boðað 21. febrúar SALA á kindakjöti jókst um 4,4% á síðasta ári. Sala á svínakjöti jókst hins vegar aðeins um 2,2%, en sl. ár hefur sala á svínakjöti að jafnaði aukist mun meira en á kindakjöti. Söluaukning svínakjöts árið 1999 var t.d. 20,6%. Sala á ali- fuglakjöti jókst um 9,7% í fyrra, en sala á nautakjöti dróst saman um 1,2%. Sala á hrossakjöti jókst um 22,8% milli ára, en sala á hrossakjöti sveiflast oft mikið milli ára. Í fyrra nam kjötframleiðsla alls 22.248 tonnum, þar af var tæpur helmingur kindakjöt eða 9.668 tonn. Framleiðsluaukningin nam 5,5%. Heildarsala kjöts á innan- landsmarkaði nam 19.513 tonnum, en það er 4% aukning frá 1999. Framleiðsla á mjólk nam 104.024 þúsund lítrum í fyrra og dróst saman frá fyrra ári um 3%, en þá var nokkur offramleiðsla á mjólk. Sala á mjólk miðað við pró- teinmagn nam 105.852 þúsund lítr- um, sem er aukning um 2,2%. Sé salan reiknuð á fitugrunni er sala 97.922 þúsund lítrar, sem er sam- dráttur um 1%. 4,4% sölu- aukning á kindakjöti Sala á kjöti jókst í fyrra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.