Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 2
HANDKNATTLEIKUR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Mikið gekk á í Víkinni á laug-ardagskvöldið þegar Vals-
stúlkur sóttu Víkinga heim í 1. deild
kvenna. Liðin skipt-
ust á að eiga góða og
slæma kafla svo að
allt valt á hvort liðið
myndi fara verr út
úr því ásamt skrautlegri dómgæslu.
Það urðu Víkingsstúlkur því stöllur
þeirra úr Val náðu með mikilli bar-
áttu góðri forystu, þraukuðu svo út
leikinn og sigruðu 23:21.
Víkingar byrjuðu betur en þá tók
Hafrún Kristjánsdóttir úr Val til
sinna ráða þegar hún ýmist skoraði
sjálf eða fékk vítakast. Um miðjan
fyrri hálfleik gekk síðan allt upp
hjá Víkingum og sjálfstraustið var
gott en um miðjan síðari hálfleik
seig verulega á ógæfuhliðina þegar
Valsstúlkur skoruðu fimm mörk í
röð. Ekki vantaði viljann hjá Vík-
ingum til að vinna upp muninn en
stressið var of mikið og Valsstúlkur
ekki á því að gefa tommu eftir.
Dómarar kórónuðu í lokin skraut-
lega dómgæslu sína sem þó bitnaði
lengi vel jafnt á liðunum og þá til
skiptis en þeir máttu líka þola háðs-
glósur og reiðiþrungnar athuga-
semdir frá áhorfendum.
„Ég er svo reið að ég veit ekki
hvað ég á að segja,“ sagði Helga
Torfadóttir, markvörður Víkinga,
eftir leikinn en hún náði sér ekki á
strik og munar um minna. „Við
börðumst vel og það gekk vel til að
byrja með en ég vil helst ekki segja
neitt um dómara. Þeir eiga ekki að
reyna að leika aðalhlutverk í leikn-
um en það getur vel verið einhver
vitleysa hjá mér. Það var erfitt að
rífa sig upp eftir að tapa þremur
leikjum í röð en samt gekk það upp
fyrir leikinn. Okkur tókst samt ekki
nógu vel upp og það verður bara að
halda áfram að reyna, úrslita-
keppnin framundan.“ Kristín Guð-
mundsdóttir, Guðbjörg Guðmanns-
dóttir og Gerður Beta
Jóhannsdóttir voru bestar hjá Vík-
ingum.
„Okkur langaði meira til að vinna
og við vorum líka með betra lið,“
sagði Hafrún, sem sýndi mikil til-
þrif í leiknum. „Við vorum mjög
stressaðar án þess að ég viti alveg
hvers vegna og við náðum aldrei að
fara almennilega fram úr þeim. Við
getum ekki náð nógu langt til að fá
heimaleik í úrslitakeppninni svo að
við ætlum bara að komast eins
langt og við mögulega getum,“
bætti Hafrún við en hún, Árný B.
Ísberg og Kolbrún Franklín ásamt
Berglindi Írisi Hansdóttur voru
bestar hjá Val.
Skrautlegt í Víkinni
Stefán
Stefánsson
skrifar
Haukastúlkur komu vel stemmd-ar til leiks og greinilegt að þær
ætluðu ekki að láta í minni pokann í
annað skiptið á
rúmri viku gegn ís-
landsmeisturum
ÍBV. Auður Her-
mannsdóttir skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Hauka og
gaf tóninn fyrir það sem koma
skyldi. Haukastúlkur náðu góðri for-
ystu í byrjun leiksins og voru Eyja-
stúlkur ekki alveg með á nótunum.
En Sigbjörn Óskarsson, þjálfari
ÍBV, stappaði stálinu í sínar stelpur
og komu þær sterkar til baka og
náðu að jafna um miðbik hálfleiksins
og í framhaldi af því að komast yfir.
Staðan í leikhléi var 11:8, Eyjastúlk-
um í vil og má þar þakka markverði
þeirra, Vigdísi Sigurðardóttur, fyrir
ásamt ágætis vörn.
Haukastúlkur voru ekki búnar að
játa sig sigraðar því þær skoruðu 5
mörk gegn 1 í upphafi síðari hálfleiks
og var staðan allt í einu orðin 12:13,
Haukum í vil. En Eyjastúlkur settu
þá í gír með Anítu Andreasen sterka
í horninu og Vigdísi í markinu og
náðu að komast aftur inn í leikinn.
Haukastúlkur voru aldrei langt und-
an og komust yfir aftur í stöðunni
16:17. Síðustu mínútur leiksins voru
æsispennandi og Tamara Mandzic
innsiglaði sigur Eyjastúlkna með
vítakasti þegar skammt lifði leiks.
Haukastúlkur voru óheppnar í
leiknum og skutu meðal annars 3
sinnum í stöng úr vítaköstum sem
telur í leik sem þessum. Bestar
Haukastúlkna voru þær Tinna B.
Hauksdóttir og Harpa Melsted sem
sýndu oft og tíðum ágætis takta.
Hjá Eyjastúlkum spilaði Vigdís
Sigurðardóttir glimrandi vel, varði
alls 21 skot og þar af 1 vítakast í
leiknum. Einnig lék Anita Andr-
easen vel ásamt Tamöru Mandzic.
„Þessi leikur minnti á bikarúr-
slitaleikinn um daginn og mikil
spenna allt til loka. Ég tel að þetta
séu tvö sterkustu liðin í deildinni í
dag og þeir leikir sem eftir eru eiga
eftir að verða hörkuleikir. Hvað leik-
inn í kvöld varðar þá kláruðum við
ekki færin okkar og sendingafeilar
voru tíðir í fyrri hálfleik og við fórum
með 3 mörk á bakinu í hálfleik. En
við komum sterkar til leiks í síðari
hálfleik og sigurinn hefði getað dott-
ið báðum megin í dag en þær unnu,
því miður. Hvað framhaldið varðar
verðum við að fá hungrið og barátt-
una í leik okkar og þá kvíði ég engu,“
sagði Harpa Melsted, fyrirliði
Hauka, við Morgunblaðið.
Fyrirliði Eyjastúlkna, Vigdís Sig-
urðardóttir, var kát í leikslok. „Ég
var svolítið hrædd fyrir leikinn og
hélt að við værum saddar eftir að
hafa unnið þær í bikarúrslitunum en
dæmið gekk upp í dag og því er ég
virkilega sátt. Hvað framhaldið
varðar þá eru tveir leikir eftir og ef
við klárum þá erum við í góðum mál-
um í úrslitakeppninni,“ sagði Vigdís.
Morgunblaðið/Sigfús G Guðmundsso
Gunnleyg Berg, færeyski línumaðurinn í liði ÍBV, í hörðum slag við Brynju Steinsen í leiknum í
Vestmannaeyjum í gærkvöld. Eyjastúlkur sigruðu, rétt eins og í bikarúrslitaleiknum á dögunum.
Endurtekið
efni í Eyjum
NÝKRÝNDIR bikarmeistarar ÍBV endurtóku leikinn frá því í Laug-
ardalshöll á dögunum og sigruðu topplið Hauka, 20:19, í hörkuleik í
1. deild kvenna í Vestmannaeyjum í gærkvöld. Spennan var ekki
síðri en í bikarúrslitaleiknum á dögunum en með þessum sigri er
ÍBV komið í annað sætið, fjórum stigum á eftir Haukum og tveimur
stigum á undan Fram.
Skapti Örn
Ólafsson
skrifar
Mikil barátta var í báðum liðum,enda mikilvægi leiksins mikið
og Grótta/KR varð hreinlega að
vinna til að eiga
möguleika á að vera í
hópi fjögurra efstu
liða deildarinnar
þegar úrslitakeppn-
in hefst. Fjarvera Öllu Gorkorian í
undanförnum leikjum hefur sett
stórt strik í reikninginn hjá þeim en
á móti hefur komið að þær Jóna
Björg Pálmadóttir og Ágústa Edda
Björnsdóttir hafa vaxið mjög í fjar-
veru hennar og áttu þær báðar prýð-
isgóðan leik gegn Fram á laugardag.
Framarar höfðu fimm marka for-
skot í leikhléi en Gróttu/KR stelpur
komu sterkar til síðari hálfleiks og á
fyrstu 12 mínútum hálfleiksins náðu-
þær að jafna leikinn, 22:22. En það
krafðist mikillar orku, þær náðu ekki
að brjóta ísinn og komast yfir, heldur
misstu Framara fjórum mörkum
fram úr sér, 28:24.
Með sigrinum náðu Framarar að
tryggja sér það að verða í hópi fjög-
urra efstu liða deildarinnar þegar
úrslitakeppnin hefst og leika því
heima í fyrsta leik. Framarar eiga í
mikilli baráttu við ÍBV og Stjörnuna
um að ná öðru sætinu í deildinni en
fyrir þessa 16. umferð var það aðeins
ÍBV sem átti möguleika á að ógna
Haukum í toppsætinu.
Svanhildur Þengilsdóttir átti frá-
bæran leik í liði Fram og var ótrú-
lega öflug í vörninni, varði m.a. fjög-
ur skot á mikilvægum augnablikum í
síðari hálfleiknum. Hjá Gróttu/KR
var Ágústa Edda best.
Andleysi
fyrir norðan
Leikur KA/Þórs og ÍR í hand-knattleik kvenna sem fram fór á
laugardag var hvorki spennandi né
skemmtilegur og
mikið áhugaleysi
ríkti meðal flestra
leikmanna liðanna.
Sóknarleikur var
einhæfur og hugmyndasnauður enda
rötuðu aðeins þrjátíu skot í netið og
þar af voru átta vítaskot. Lokatölur
urðu 17-13 og náði KA/Þór að landa
sínum fyrsta heimasigri í vetur og er
liðið nú með sex stig í næstneðsta
sæti en ÍR-stelpurnar eru enn án
sigurs.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik en í stöðunni 6-6 náðu KA-
stúlkurnar góðum leikkafla og skor-
uðu þrjú mörk í röð fyrir leikhlé. Í
upphafi síðari hálfleiks gerðu svo
heimastúlkur nánast út um leikinn
og komust í 13-7. Á þeim kafla léku
ÍR-ingar manni færri í sex mínútur
og aðeins markvarsla Aldísar
Bjarnadóttur hélt þeim á réttum kili.
Hún varði m.a. sex skot í röð frá
vinstri-hornamönnum KA í hálf-
leiknum. Heimastúlkur urðu fyrir
miklu áfalli um miðjan síðari hálfleik
er Eyrún Gígja Káradóttir var borin
sárþjáð af velli með slitin krossönd í
hné. Var hún tæp fyrir leikinn og því
furðuleg ákvörðun að láta hana spila
leik sem skipti afar litlu máli. Eftir
þetta atvik hægðist mjög á leiknum
og liðin skiptust á að skora allt til
loka hans. Aðeins markverðir KA-
liðsins sýndu sitt rétta andlit í leikn-
um og var Rósa María Sigbjörns-
dóttir best hjá þeim. Hjá gestunum
var Aldís góð í markinu en einnig átti
Anna Margrét Sigurðardóttir fínan
leik en hún bar sóknarleik liðsins
nánast á herðum sér allan leikinn.
Mikilvæg-
ur sigur
Framara
Framarar unnu mikilvægan sig-
ur á Gróttu/KR, 31:29, í 16. um-
ferð 1. deildar kvenna í hand-
knattleik þegar liðin mættust í
Safamýri á laugardag. Framarar
höfðu yfirhöndina allan leikinn,
Grótta/KR náði að saxa á for-
skot þeirra og jafna en vantaði
jafnan herslumuninn til að kom-
ast fram úr Frömurum.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Einar
Sigtryggsson
skrifar
STEINGRÍMUR Jóhann-
esson, knattspyrnumaður úr
Vestmannaeyjum, hafnaði í
gærkvöld tilboði frá Íslands-
meisturum KR og þar með er
ljóst að hann leikur ekki með
Vesturbæjarfélaginu næsta
sumar. Steingrímur fékk til-
boðið í hendur í gær og lét
KR-inga vita um hæl að hann
hefði ekki áhuga á að leika
með þeim. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er
Steingrímur með tilboð í
höndunum frá 1. deildarliði
Stjörnunnar og miklar líkur
virðast á því að hann leiki
með Garðabæjarliðinu á
komandi tímabili.
Steingrím-
ur hafnaði
tilboði KR
ÞORKELL Guðbrandsson, varn-
arjaxl í Aftureldingu, var fjarri góðu
gamni á sunnudaginn því hann lá
veikur heima er lið hans fékk Fram í
heimsókn.
EINAR Gunnar Sigurðsson, Mos-
fellingurinn sem hefur átt við þrálát
meiðsli að stríða, kom inná í fyrsta
sinn hjá Aftureldingu síðan síðasta
keppnistímabili lauk. Hann lék ein-
göngu í vörninni og það var ekki auð-
velt að komast framhjá honum.
PÁLL Þórólfsson úr Aftureldingu
sat á varamannabekknum á sunnu-
daginn því hann var einnig meiddur.
LEIK Hauka og ÍR í 1. deild karla í
handknattleik sem fram átti að fara
annað kvöld hefur verið frestað til 9.
mars. Haukar óskuðu eftir frestun
vegna Evrópuleiks þeirra gegn
Sporting Lissabon um næstu helgi.
HULDA Bjarnadóttir skoraði 6
mörk um helgina þegar lið hennar,
Skjern, tapaði fyrir Skovbakken,
27:24, í dönsku 2. deildinni í hand-
knattleik.
MICHAEL Carrick frá West Ham
bættist í gær í hóp þeirra sem neyðst
hafa til að draga sig út úr enska
landsliðshópnum í knattspyrnu
vegna meiðsla. Þá er tvísýnt um
hvort Paul Scholes, leikmaður
Manchester United, geti spilað.
IAN Holloway var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri QPR, í staðinn
fyrir Gerry Francis sem sagði starf-
inu lausu fyrir skömmu.
ENSKIR fjölmiðlar skýrðu frá því
í gærkvöld að Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, hefði átt
fund með forráðamönnum Barce-
lona á föstudaginn. Wenger er sagð-
ur efstur á óskalistanum hjá forseta
Barcelona sem vill nýjan mann fyrir
næsta tímabil.
FÓLK