Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 3
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 B 3
HK-ingar, sem byrjuðu leikinn afmiklum krafti í upphafi, náðu
ekki að halda aftur af Seltirningum
sem höfðu yfirhönd-
ina allan síðari hálf-
leikinn og unnu
sanngjarnan og
mikilvægan sigur
sem kemur þeim vel í toppbarátt-
unni. Það var fyrst og fremst frá-
bær markvarsla Hlyns Morthens,
markvarðar Gróttu/KR sem lagði
grunninn að sigri Seltirninga. Hann
átti stórkostlegan leik, varði alls 21
skot en þar af voru mörg hver úr
mjög erfiðum færum, hraðaupp-
hlaupum og þar sem leikmenn HK
voru komnir í gegnum vörnina og
áttu að því er virtist „aðeins“ eftir
að smeygja boltanum framhjá Hlyni
markverði Morthens. Þá lék Hilmar
Þórlindsson vel í liði Gróttu/KR,
sjálfstraustið geislaði af honum og
naut hann sín greinilega vel í þess-
um leik.
HK-ingar voru að vonum von-
sviknir í leikslok á Seltjarnarnesi.
Þeir náðu að fylgja eftir góðum bik-
arúrslitaleik með sigri á Aftureld-
ingu í síðustu umferð en þrátt fyrir
vilja til góðra verka gegn Gróttu/
KR dugði það ekki til. Framundan
er erfið barátta við falldrauginn,
sem virðist vera búinn að koma sér
þægilega fyrir í Kópavoginum. Það
þarf lítið kraftaverk til að koma í
veg fyrir það að HK fylgi félögum
sínum í Breiðabliki niður í 2. deild,
en liðið er 6 stigum á eftir ÍBV og
Stjörnunni þegar aðeins 6 umferðir
eru eftir. Hlynur Jóhannesson
markvörður lék best í liði HK og
varði alls 18 skot. Þá var Samúel
Árnason funheitur þegar hann kom
inní hægra hornið í síðari hálfleikn-
um og skoraði 5 stórglæsileg mörk.
Annars var undarlegt að Páll Ólafs-
son, þjálfari HK, skyldi ekki sjá
ástæðu til að nota nýja leikmanninn,
Osvaldo Povea, í þessum leik. Sér-
staklega þegar tekið er tillit til þess
að gamla kempan Sigurður Sveins-
son lék ekki með HK-ingum í þess-
um leik, Sverrir Björnsson fann sig
ekki nægilega vel og liðið vantaði
sárlega skyttu hægra megin.
Hlynur
lokaði
á HK
LEIKMENN HK náðu ekki að
fylgja eftir góðum sigri á Aftur-
eldingu þegar þeir komu í heim-
sókn til Gróttu/KR á Seltjarn-
arnes og unnu nauman sigur,
23:21. Leikurinn var ekki sér-
lega vel leikinn, en hann var
engu að síður bráðfjörugur, HK
skoraði fyrstu þrjú mörkin en
eftir að heimamönnum hafði
tekist að brjóta ísinn og skora
sitt fyrsta mark á 8. mínútu tók
það þá ekki nema 5 mínútur að
jafna leikinn í 4:4 og bæta enn
um betur og voru einu marki yfir
í leikhléi, 9:8.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Þrátt fyrir fálmkenndan sóknar-leik til að byrja með náði Fram
tveggja marka forystu en um miðj-
an fyrri hálfleik
voru Mosfellingar
búnir að stilla
strengi sína í vörn-
inni. Skömmu síðar
varð síðan sóknarleikurinn líflegri
og tvístraði stundum vörn Fram
enda snerist taflið við þegar Bjarki
Sigurðsson og Savukynas Gintaras
fóru í gang af alvöru. Flest marka
Fram komu hins vegar eftir einka-
framtak Gunnar Bergs Viktorsson-
ar og Vilhelms Gauta Bergsveins-
sonar þegar sóknarleikur Fram var
alveg við að stöðvast.
Eftir hlé var sama upp á teningn-
um en það má segja Fram til hróss
að Mosfellingum tókst aldrei að
hrista þá af sér. Yfirleitt skyldu að-
eins tvö eða þrjú mörk liðin að svo
að þegar rúmar tíu mínútur voru til
leiksloka kom meiri spenna í leik-
inn. Markverðir fóru að verja aftur
og því allt eins mögulegt að leikar
yrðu jafnir. Af því varð hins vegar
ekki og Afturelding seig aftur fram
úr á síðustu mínútunum.
„Loksins kom heill góður leikur
hjá okkur eftir langan tíma þar sem
við gerum frábæra hluti því við eig-
um að vera á meðal efstu liða,“ sagði
Ólafur H. Gíslason, markvörður
Aftureldingar, sem tók stöðu Reyn-
is Þórs Reynissonar, sem lá heima
veikur. Ólafur, sem er í unglinga-
landsliðinu, átti góðan leik og til alls
líklegur í framtíðinni. „Auðvitað
kemur maður í manns stað. Ég hef
komið nokkrum sinnum inn á í vetur
og finn mig ágætlega, sérstaklega á
heimavelli og ég hlakkaði að takast
á við þetta hlutverk. Ég ætla að
reyna láta Reyni hafa fyrir því að fá
markið aftur.“ Bjarki og Gintaras
voru einnig mjög sprækir og þegar
Magnús Már Þórðarson á línunni
fór líka í gang varð fátt um svör í
vörn Fram. Galkauskas Gintas var
einnig góður, sérstaklega í vörninni.
Það var ekki eins létt yfir leik-
mönnum Fram. „Þetta var einfald-
lega lélegt hjá okkur, sérstaklega
varnarlega og sóknin var einhæf
enda hin liðin búin að læra inn á
leikkerfin okkar. Sóknin gekk út á
að láta tvo til þrjá leikmenn um flest
en það gengur bara ekki upp í heil-
um leik, sérstaklega ef vörnin geng-
ur heldur ekki upp,“ sagði Gunnar
Berg, sem ásamt Vilhelm hélt sókn-
arleik Fram á floti enda skoruðu
þeir félagar tvo þriðju marka Fram.
Sebastian Alexanderson markvörð-
ur varði oft vel. Fram er þó enn í
öðru sæti deildarinnar. „Menn tapa
einhverjum leikjum á tímabilinu,
það er öruggt, en þá er mikilvægt
að hafa karakter til að hafa sig upp
úr þeirri lægð. Við stefnum að því
að vera á toppnum en bakslag eins
og við fengum hér í kvöld ætti að
vera okkur góð lexía og við ættum
að læra af henni til að koma sterkari
í næsta leik,“ bætti Gunnar Berg
við.
Fram slapp vel með
þriggja marka tap
ÞRIGGJA marka sigur Aftureldingar á Fram í Mosfellsbænum á
sunnudaginn, 24:21, var síst of stór því það var ekki bara að Mos-
fellingar næðu að sýna sínar bestu hliðar heldur var leikur Fram af-
leitur, sóknin hriplek og sóknarleikurinn með afbrigðum einhæfur.
Samt voru Mosfellingar án nokkurra lykilmanna en aðrir leystu þá
af hólmi með góðum árangri.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Valsmenn höfðu verið stranda-glópar á Akureyri í ríflega sól-
arhring. Þeir voru mættir til leiks
snemma á sunnudaginn en dómar-
arnir sýndu ekki
sömu fyrirhyggju
og voru veðurteppt-
ir í Reykjavík. Því
var leiknum frestað
og án efa hefur þessi töf ekki verið
gestunum til framdráttar. Þeir hófu
þó leikinn af krafti gegn ágengri
vörn KA og voru yfir í byrjun. Í
stöðunni 2:3 tóku heimamenn kipp
og skoruðu fjögur mörk í röð; stað-
an 6:3. Eftir það má segja að KA
hafi haft fastatak á þessum leik.
KA-menn héldu forskotinu nokk-
uð örugglega það sem eftir lifði
fyrri hálfleiks og breytti engu þótt
Petkevicius og Eradze verðu sitt
vítaskotið hvor í marki Vals. Sævar
Árnason og Guðjón Valur Sigurðs-
son léku skínandi vel í hálfleiknum,
skoruðu þá 4 mörk hvor og liðs-
heildin var sterk í vörn og sókn.
Markús Máni og Daníel Ragnars-
son skoruðu 7 af 9 mörkum Vals en
staðan í leikhléi var 13:9.
Í seinni hálfleik komu yfirburðir
KA betur í ljós. Vörnin var sterk og
sóknarleikurinn slípaður. Valsmenn
reyndu að klippa hægri vænginn út
og tóku síðan Guðjón Val úr um-
ferð. KA-menn juku þó forskotið,
breyttu stöðunni úr 14:12 í 17:12 og
síðan 20:14. Sóknarleikur Vals var
vandræðalegur. Hornamennirnir
óvirkir, Sigfús Sigurðsson nýttist
illa á línunni, Markús hélt áfram að
skora en Daníel fékk lítið að spila.
Bjarki Sigurðsson og Júlíus Jón-
asson voru teknir fram yfir hann í
skyttustöðu. Í stöðunni 22:16 voru
heimamenn með unninn leik í hönd-
unum en Geir Sveinsson kom þá inn
á línuna og stappaði stálinu í sína
menn og uppskeran kom smám
saman í ljós. KA komst þó í 23:18 en
þá komu þrjú mörk í röð frá Val;
staðan 23:21 og Valsmenn léku
maður á mann. Heimir Árnason
skoraði mikilvægt mark fyrir KA,
Markús þrumaði í þverslá af vítalín-
unni og þótt Geir minnkaði muninn
í 24:22 skömmu síðar var sigur KA
ekki í hættu og leyfðu þeir Guðjóni
Val að skora sirkusmark í lokin.
Lið KA var sterkara í þessum
leik, jafnt og ákveðið. Ávallt kom
maður í manns stað. Hörður Flóki
var traustur í markinu, Sævar og
Guðjón Valur sterkir í fyrri hálf-
leik, Heimir og Stelmokas í þeim
seinni og vörnin hélt velli. Markús
Máni var langfremstur Valsmanna
og skoraði 9 mörk. Hvorki Valdi-
mar Grímsson né Valgarð Thorodd-
sen náðu sér á strik í hægra horn-
inu, línan nýttist illa og sú
ráðstöfun að nánast frysta Daníel á
bekknum í seinni hálfleik gafst ekki
vel. Dómarar leiksins voru liðinu
ekki hliðhollir en skýringanna á
tapinu er þó frekar að leita í leik
liðsins. Valsmenn sitja eftir í 6. sæti
deildarinnar en keppnin er jöfn og
með betri nýtingu á mannskapnum
ætti liðið að geta mjakað sér ofar.
Átta sigrar KA í röð
Morgunblaðið/Kristján
Andrius Stelmokas, leikmaður KA, skorar eitt fjögurra marka sinna gegn Val á Akureyri í gær-
kvöld án þess að Valdimar Grímsson eða félagar hans komi vörnum við.
KA-menn endurheimtu þriðja
sætið með sigri á Valsmönnum í
gærkvöld, 25:22. Þetta var átt-
undi sigurleikur KA í röð og má
segja að lykillinn að velgengn-
inni felist í breidd liðsins og fjöl-
breyttu leikskipulagi. Atli Hilm-
arsson þjálfari er óragur við að
reyna nýja hluti og í síðustu
leikjum hefur hann teflt fram
æði framliggjandi vörn, villtri en
þó skipulagðri. Verulega skorti
hins vegar á breiddina í Valslið-
inu í þessum leik og varla fyrr
en í lokin að aðrir leikmenn en
Markús Michaelsson færu að
láta að sér kveða.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
DÓMARARNIR sem áttu að
dæma leik KA og Vals á sunnu-
dagskvöldið komust ekki vegna
þess að hætt var að fljúga norður
um miðjan dag.
„Þetta voru mistök,“ sagði
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, í gær. Hann
sagði að dómararnir hefðu átt
pantað með flugi klukkan fimm
síðdegis en um það hefði verið
rætt að fylgjast með veðurspá og
fara fyrr ef hún væri slæm. Það
hefði hins vegar gleymst. „Við
tökum þessa áhættu aldrei varð-
andi Vestmannaeyjar, þá fara
dómarar á sama tíma og liðið.
Valsmenn fóru hins vegar
óvenju snemma norður því flest
liðin fara með fimmvélinni. Þetta
kennir okkur – ef til vill – að það
væri rétt að setja þetta í reglu-
gerð hjá okkur,“ sagði Einar.
Mistök