Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 10
KÖRFUKNATTLEIKUR
10 B ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
24. 02. 2001
1
3 5 8 5 0
3 17 25 29
11Einfaldur1. vinningur
í næstu viku
Tvöfaldur
1. vinningur
í næstu viku
21. 02. 2001
11 15 24
31 36 43
32 46
Byrjunarliðið í liði aldarinnar íkarlaflokki er þannig skipað:
Jón Sigurðsson, KR, Jón Kr. Gísla-
son, Keflavík (lengst af), Teitur Ör-
lygsson, UMFN, Valur Ingimundar-
son, UMFN, Tindastól, og Pétur
Guðmundsson (lengst af í NBA).
Varamenn: Þorsteinn Hallgrímsson,
ÍR, Pálmar Sigurðsson, Haukum
(lengst af), Kolbeinn Pálsson, KR,
Torfi Magnússon, Val, Símon Ólafs-
son, Ármanni (lengst af), og Einar
Bollason, KR (lengst af).
Einar Bollason var valinn þjálfari
aldarinnar og Friðrik Ingi Rúnarsson
aðstoðarþjálfari aldarinnar og þeir
Jón Otti Ólafsson og Leifur S. Garð-
arsson urðu fyrir valinu sem dómarar
aldarinnar.
Lið aldarinnar hjá konum var
kynnt í leikhléi í bikarleik kvenna.
Í bakvarðarstöðum í byrjunarliði
eru Björg Hafsteinsdóttir úr Kefla-
vík, sem er ein af sigursælustu leik-
mönnum deildarinnar og mesta
þriggja stiga skytta, með 495 slíkar
körfur, en það er helmingi meira en
næsti leikmaður. Með henni var
Linda Jónsdóttir úr KR en hún var
lykilleikmaður KR á gullaldarárum
liðsins á áttunda og níunda áratugn-
um, mikil skytta og frábær varnar-
maður auk þess að hafa sennilega
skorað flest hraðaupphlaupsstig í
kvennakörfuknattleik. Linda Stef-
ánsdóttir er annar af framherjum
liðsins, einn besti varnarmaður í sögu
kvennakörfuknattleiks og frægust
fyrir að stela boltanum úr höndum
mótherja sinna. Með henni var kynnt
Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, bar-
áttujaxl sem aldrei gefst upp, en hún
keppti með KR í leiknum á laugar-
daginn. Miðherji í byrjunarliðinu er
Anna María Sveinsdóttir úr Keflavík,
sem kynnt var sem goðsögn í
kvennakörfuknattleik, leiðtogi innan
vallar sem utan auk þess að eiga flest
met í tölfræðinni. Sjálf gat Anna
María ekki tekið við viðurkenning-
unni því á þriðjudeginum í síðustu
viku átti hún sitt annað barn.
Aðrar í liðinu eru vinnuþjarkurinn
og baráttujaxlinn Emelía Sigurðar-
dóttir úr KR, Erla Reynisdóttir úr
Keflavík og Alda Leif Jónsdóttir, sem
leikur nú með Holbæk í Danmörku,
móðir hennar Kolbrún Leifsdóttir,
ÍS, Hafdís Helgadóttir úr ÍS, Hanna
B. Kjartansdótttir, KR, og Erla Þor-
steinsdóttir, Keflavík.
Mikill heiður fyrir mig
Það kom ekki á óvart að Pétur
Guðmundsson yrði fyrir valinu sem
körfuknattleiksmaður aldarinnar en
hann er sá íslenski körfuknattleiks-
maður sem hefur náð lengst í íþrótt-
inni. Pétur er eini Íslendingurinn sem
hefur leikið í NBA-deildinni en hann
lék á árum áður með Portland og LA
Lakers.
„Þetta er mikill heiður fyrir mig og
gaman að fá svona viðurkenningu. Ég
veit ekki hvort ég hafi átt sérstaklega
von á þessu en þetta eru verðlaun
sem erfitt er að segja til um hver eigi
að fá. Utan Íslands hef ég náð lengst
allra körfuknattleiksmanna og það
hefur örugglega skipt sköpum í þessu
vali,“ sagði Pétur í samtali við Morg-
unblaðið eftir að hafa tekið á móti við-
urkenningu sinni.
Pétur er að velta fyrir sér að hverfa
aftur til Bandaríkjanna en þar hefur
hann verið meira og minna síðan
keppnisferli hans lauk. Pétur tók við
þjálfun Vals/Fjölnis í úrvalsdeildinni
fyrir tímabilið í haust en var leystur
undan samningi snemma á leiktíð-
inni.
„Ég er jafnvel að hugsa um að fara
út til Bandaríkjanna og klára skól-
ann. Ég stefni á að fara í íþrótta- og
markaðsfræði og læra það hvernig á
að koma körfuboltanum á framfæri.
Mér þykir vænt um íþróttina og vil
sjá að hún gangi vel. Ég ætla kannski
að þjálfa eitthvað með en sem stend-
ur hef ég meiri áhuga á að vera kynn-
ir fyrir íþróttina,“ sagði Pétur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pétur Guðmundsson með viðurkenningu sína sem leikmaður aldarinnar. Anna María Sveinsdóttir
gat ekki verið viðstödd, þar sem hún eignaðist sitt annað barn í sl. viku.
PÉTUR Guðmundsson og Anna María Sveinsdóttir voru útnefnd
körfuknattleiksmenn aldarinnar á Íslandi en KKÍ stóð fyrir vali á
leikmönnum og liðum aldarinnar og tilkynnti um það á bikarúrslita-
leikjunum um helgina. 50 manna dómnefnd stóð að vali karlaliðsins
og 25 völdu lið aldarinnar í kvennaflokki.
Pétur og Anna
María leikmenn
aldarinnar
Henning sagði slæmt að Hanna B.Kjartansdóttir, sem gegnt hef-
ur lykilhlutverki hjá KR í vetur,
skyldi ekki vera með
vegna veikinda. „Það
var slæmt að hafa
ekki Hönnu en það
stappaði stálinu í
hinar og við urðum að klára leikinn
án hennar en við vorum búin að fá
Heather Corby frá Kanada og hún
skilar sínu hlutverki stórkostlega,
spilaði af skynsemi og var að ljúka
sóknum sínum vel,“ bætti þjálfarinn
við og sagði þetta ekki verða síðasti
bikarinn í vetur. „Það er opinbert
markmið okkar að vinna allt, sem er í
boði svo að við höldum okkar við það.
Það er mjög gott að þjálfa þetta lið,
mesta breytingin er sú að stelpurnar
eru hreinskilnar og láta mann vita ef
maður er að gera eitthvað, sem
kannski ekki ætti að gera og það er
mjög gott. Svo er mikill metnaður.“
Búin að bíða síðan 1997
„Þetta er æðislegt, yndilegt að
koma aftur og ná titli enda er ég búin
að bíða síðan 1997,“ sagði Guðbjörg
Norðfjörð Elíasdóttir, KR-ingur, en
hún hefur nú spilað átta bikarúrslita-
leiki. Hún sagðist aldrei hafa verið í
vafa um sigur. „Við komum hingað og
áttum allan leikinn. Við fundum strax
þegar við komum inn í Laugardals-
höllina í dag að sjálfstraustið og
stemmningin öll var okkar megin, við
vorum allan tímann vissar um að við
myndum vinna þennan leik því við
sáum líka að sjálfstraust þeirra var
mjög brothætt. Við fórum því strax í
leikinn til að taka hann,“ bætti Guð-
björg við en lið hennar tapaði í síð-
ustu viðureign við Keflavík. „Við höf-
um unnið þær tvisvar í deildinni en
þær okkur einu sinni, sem var í síð-
asta leik, en þá voru þær ný búnar að
fá Kanann og við eins og áhorfendur í
þeim leik svo að við ætluðum að gera
alveg út um þennan leik. Við höfum
æft vel þessa vikuna og þá hérna í
Höllinni, sem var fyrir vikið okkar
heimavöllur í dag.“
Óörugg vegna lítils fyrirvara
„Mér líst vel á Ísland og ég býst við
að þetta verði gott ár hjá okkur,“
sagði KR-ingurinn Heather Corby,
sem gekk til liðs við vesturbæinga í
síðustu viku og átti góðan leik á laug-
ardaginn. „Ég var svolítið óörugg um
hvernig félögum mínum hjá KR litist
á að fá leikmann með litlum fyrir-
vara, sérstaklega í svona mikilvæg-
um leik eins og bikarúrslitum en við
náðum vel saman, eyddum góðum
tíma saman eftir að ég kom og þetta
gekk. Þetta var ekki auðveldur leik-
ur. Það var pressa á okkur allan leik-
inn þó að við höfum yfirleitt haft um
tíu stiga forskot en það gat brugðið til
beggja vona. Annars fannst mér leik-
urinn góður og frábær stuðningur frá
áhorfendum og starfsmönnum KR og
góður þjálfari,“ bætti Corby við.
Hún kemur frá Manitoba í Kanada
en lék síðast á Spáni í byrjun ársins.
„Þetta var eins og ég bjóst við að
koma til Íslands nema hvað ég bjóst
við að það yrði kaldara hérna því það
er miklu kaldara þaðan sem ég kem,“
sagði Corby og finnst mikill áhugi hjá
íslenskum körfuknattleikskonum.
„Hér er mesti munurinn miðað við
Spán að það er mikill munur á milli
bestu leikmanna og þeirra slakari en
ég hef aldrei séð leikmenn leggja eins
mikið á sig og hérna. Það eru meira
en fimmtán stelpur á æfingum, sem
er frábært því á Spáni var allt niður í
sex leikmenn á æfingum. Hér vilja
allir spila og það er gaman.“
Fjarvera Hönnu
stappaði í okkur stálinu
„Ég er svo rosalega stolt af KR-
ingum og liðinu mínu að ég er alveg
orðlaus,“ sagði Kristín B. Jónsdóttir,
fyrirliði KR, sem tók við bikarnum á
laugardaginn en hún slapp samt ekki
við frekari viðtal. „Við gáfum strax
tóninn í byrjun og það munar mjög
mikið um það til koma stemmningu í
hópinn hjá okkur því það þjappaði
okkur enn meira saman og er því enn
mikilvægara. Keflavík er með sterkt
lið og það er ekkert gefið á móti þeim
en við höfum samt náð að taka þessa
tvo bikara og við ætlum líka að vinna
þá sem eftir eru.“
Kristín sagði að gott að fá Heather
Corby, nýjan leikmann, inn í þennan
leik en Hanna B. Kjartansdóttir, sem
lá veik heima hefði samt haft áhrif á
leikinn. „Corby er nýkomin og stóð
sig mjög vel þrátt fyrir mjög stuttan
undirbúningstíma. Það vantaði samt
Hönnu en fjarvera hennar stappaði
bara stálinu enn betur í okkur og við
komum enn ákveðnari til leiks því við
ætluðum að vinna leikinn fyrir hana,“
bætti Kristín við.
Henning Henningsson,
þjálfari bikarmeistara KR
Slógum
þær út
af laginu
„VIÐ náðum strax í upphafi að slá þær út af laginu og ná undirtök-
unum í leiknum, það skipti öllu máli og við héldum haus allan leik-
inn,“ sagði Henning Henningsson, þjálfari KR-stúlkna, eftir leikinn.
„Það var ætlunin, við höfum notað þessa pressuvörn, sem við not-
uðum í leiknum núna og það á ekki að koma neinu liði á óvart því
þetta er einfaldlega okkar leikur. Við ætluðum því að ná forystu
strax og þetta var mjög spennandi og mjög góður leikur af okkar
hálfu. Við vorum að pressa allan leikinn og það er erfitt að spila á
þessum hraða, sérstaklega þegar komið er í úrslitaleik.“
Eftir
Stefán
Stefánsson
Á FJÖRUTÍU ára afmælishátíð
Körfuknattleikssambands Íslands,
sem fram fór á laugardaginn, var
forseta Íslands afhent fyrsta ein-
takið af bókinni Leikni framar lík-
amsburðum, saga körfuknattleiks á
Íslandi í hálfa öld.
Bókin hefur verið lengi í vinnslu
og sagði Skapti Hallgrímsson, höf-
undur verksins, að það hefði alltaf
verið skoðun sín að bækur mættu
ekki vera áberandi leiðinlegar. Með
það að leiðarljósi ritaði hann bók-
ina, sem er 416 síður í A4 broti.
Bókin er mikið og vel myndskreytt
og kennir þar ýmissa grasa.
Sérstök ritnefnd að sögu KKÍ var
skipuð fyrir nokkru og vann hún
með höfundi að verkinu. Í nefndinni
voru Gunnar Gunnarsson, Guð-
mundur Þorsteinsson, Ríkharður
Hrafnkelsson, Jón Eysteinsson og
Rúnar Gíslason.
Afmælis-
bók KKÍ