Vísir - 07.07.1979, Blaðsíða 2
vtsm
Laugardagur 7. júli 1979
Verdid hér er sambærilegt >
við þaö lægsta í Evrópu
Rætt viö Þórð Magnússon fjármálastj.Frihafnarinnar
Fríhöfnin á Keflavik-
urflugvelli er viðkomu-
staður allra flugfarþega
til og frá landinu. Þar er
úrval af tollfrjálsum
varningi á boðstólum og
þótt húsakynnin séu ekki
stór fer þarna fram
gífurleg verslun. Á síð-
asta ári varð veltan tæpir
tveir milljarðar króna og
söluaukning það ár var
21% í dollurum talið. Frí-
höfnin hefur verið tals-
vert i fréttum að undan-
förnu vegna dularfullrar
kjaradeilu sem þar kom
upp svo og vegna lög-
reglurannsóknar sem
fram fer á ýmsum þátt-
um í rekstrinum á undan-
förnum árum. Helgar-
blaðið ræddi við Þórð
Magnússon fjármála-
stjóra Fríhafnarinnar og
spurði fyrst um tildrög
þess að hann réðist þar til
starfa.
„Ég varrá&inn fjármálastjóri
Fríhafnarinnar frá 15. júli i
fyrra og var það gert eftir aö
sérstök nefnd hafði gert úttekt á
rekstri fyrirtækisins. Siðan
hefur verið starfandi sérstök
Frihafnarnefnd sem i eiga sæti
þeir Hannes Guðmundsson frá
varnarmáladeild utanrikis-
ráöuneytisins, Guðmundur
Magnússon frá rikisendurskoö-
un og Gunnlaugur Sigmundsson
frá fjármálaráðuneytinu. Utan-
rikisráðuneytið hefur yfirum-
sjón með Fríhöfninni fyrir hönd
rikisins, en nefndin er eins og
hver önnur stjórn i fyrirtækinu.
— Hvar starfaðir þú áöur?
„Eftir próf frá Háskólanum
árið 1974 var ég tæp tvö ár i
framhaldsnámi I rekstrarhag-
fræöi i Minnesota University
meö fjármálastjórn og milli-
rikjaverslun sem sérgrein. Sið-
an fór ég að vinna hjá Otflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins. Þar
vann ég einkum við útflutning á
ullarvörum, vörusýningar er-
lendis, markaðskannanir og
fleira”.
Þröngt á þingi
Þégar komiö er inn i verslun
Frihafnarinnar er hægt aö
kaupa margs konar varning.
Þórður er spurður hvort þarna
sé ákveðin deildaskipting.
„Deildaskipting var tekin upp
15. september siöastliðinn. Aður
haföi verslunin veriö rekin sem
ein heild og starfsmenn afgreitt
hvar sem var. Nú eru þarna
þrjá deildir og yfirmaður i
hverri deild. Einnig afgreiða
starfsmenn nú að mestu i sinum
ákveðnu deildum.
Einn deildarstjóri er yfir
þeirri deild sem selur vörur yfir
afgreiðsluborð, myndavélar, út-
vörp, postulin, ilmvötn, skart-
gripi og fleira en siöan er sér-
hæfing innan deildarinnar. Þá
er sér brottfarardeild fyrir á-
fengi, tóbak og sælgæti og loks
sér komudeild fyrir sælgæti,
ilmvötn, áfengi og tóbak. Fastir
starfsmenn eru 30 i versluninni,
átta á lager og jafnmargir á
skrifstofu”.
— Eru einhverjar breytingar
fyrirhugaðar á húsnæði Fri-
hafnarinnar?
„Húsnæðið er alltof litið og
býöur ekki upp á neinar breyt-
ingar. Sérstaklega er þröngt i
komuversluninni og einnig i
brottfarardeild þar sem selt er
áfengi og tóbak.
Brottfarir og komur farþega-
véla hafa færst mjög saman og
þvi fara mun fleiri um á
skömmum tima en var. Þetta
skapar vanda við afgreiðslu og
eykur hættu á rýrnun vegna
þrengsla. Hins vegar á nú að
byggja sérstakt hús fyrir lager-
inn sem dreifður er á þrjá staði
og aöstaða öll ófullnægjandi.
Það var metið að endur-
greiðslutimi þeirrar fjárfesting-
ar væri þrjú ár”.
Mjög dregiö úr
rýrnun
Eitt af þvi sem gagnrýnt hef-
ur veriö i rekstri Frihafnarinn-
ar á liðnum árum er hin gifur-
lega rýrnun sem þar hefur átt
sér stað. Þórður er næst spuröur
hvernig tekist hafi til við að
draga úr þessari óeðlilegu rýrn-
un.
„A siðasta ári var rýrnunin
ekki nema um 1% af veltu og
kom helst fram i þeim deildum,
sem við rýrnun má búast eöa i
s jálfsafgreiðslunum ’ ’.
— Er þaö rétt, að sumir
starfsmenn Frihafnarinnar hafi
umboð fyrir vörur sem þar eru
seldar?
„Ég kannast við viss fjöl-
skyldutengsl tveggja starfs-
manna við tvo umboðsaðila
fyrir vissar vörur. Þær fá hins
vegar ekki betri útstillingu en
annar varningur sem þarna er
seldur”.
— Hafa gjaldeyrisskil Fri-
hafnarinnar batnað?
„Hlutfall gjaldeyris það sem
af er árinu er 43% og það er tals-
vert meira en á siðastliðnum ár-
um”.
Hækka þarf hlut
íslensku krónunnar
Oft heyrist yfir þvi kvartað að
vöruverð i Frihöfninni fari ört
hækkandi og i sumum tilfellum
borgi sig ekki að versla þar.
Varla er ástæðan sú að hin is-
lenska óðaveröbólga nái til
þessa varnings. Um þetta atriði
sagði Þórður:
„Verðhækkanir endurspegla
kostnaðarhækkanir og verðlag I
samkeppnisfrihöfnum i Evrópu.
Markmið okkar er að geta keppt
við þær og svo verslanir erlend-
is. Frihöfnin i Amsterdam hefur
verið talin ódýrust i Evrópu og i
flestum tilfellum er veröiö I
Keflavik fyllilega sambærilegt.
Frihöfniná Luxemborgarvelli
er nýr keppinautur sem virðist
miða sina verðlagningu algjör-
lega viö okkur. Það er litið hægt
að gera viö þvi, en þar er vöru-
úrval hins vegar mun takmark-
aöra en hjá okkur”.
— Er ekki oröið timabært að
hækka þá upphæð sem kaupa
má fyrir I Islenskum krónum?
„Við viljum fá þessa upphæð
hækkaöa, enda dugar hún engan
veginn fyrir þeim lágmarks-
skammti sem hinn almenni
feröamaður kaupir fyrir, en nú
má greiða með 10 þúsund krón-
um islenskum við brottför og
komu. Viðskiptaráðuneytið
hefur hins vegar ekki heimilað
hækkun. Þó hefur raungildi
þessarar upphæðar siminnkaö
frá þvi sem upphaflega var mið-
að við.
— Hvað ætti upphæðin að
hækka mikið?
„Þótt þessi upphæð yrði
hækkuð upp i 16-18 þúsund krón-
ur myndi það ekki aöeins auka
heildarsöluna við brottför
heldur jafnframt sölu i erlend-
um gjaldeyri. Ferðafólk þarf
nokkurn hvata til aö vera reiöu-
búið að greiða allháar upphæöir
i erlendum gjaldeyri.
Þið leggið drjúgt á vörurn-
ar?
„Alagningin á sterkum vinum
er almennt um 100% en talsvert
minni á léttum vinum og svo
dýrustu tegundunum. Hins veg-
ar er álagning verulega lægri i
öðrum vöruflokkum. Rikis-
endurskoðun hafði gagnrýnt
fjolda tegunda i sömu vöru-
flokkum og hefur tegundum
venð fækkað án þess að úrvalið
mmnki i raun”.
— í hverju er mest sala?
” ®r mest selt af áfengi og
oo<La r ^°.mudeildin er með um
3o% af heildarveltunni”.