Vísir - 07.07.1979, Blaðsíða 19

Vísir - 07.07.1979, Blaðsíða 19
19 VÍSIR Föstudagur 6. júli 1979 hljómplcxta vikurmar Kristján Ró- bert Krist- iánsson skrifar Towníey - Townley John Townley er einn hinna fjölmörgu tónlistarmanna sem skotið hafa upp kollinum aö undanförnu. Hann er þó enginn nýgræö- ingur i tónlistinni, þvi hann hefur sungiö og samiö lög i tiu ár. Townley hefur spilaö nokkuö opinberlega, en aðallega á smá- stööum. Hann þvældist um heiminn i nokkur ár og auk ýmissa smástarfa vann hann sér fyrir mat meö þvi aö syngja á götuhornum og smábullum. Nú rekur Townley útgáfu- fyrirtæki sem hann kallar Flying Duck Music. Fyrir um þaö bil ári slðan gekk hann inn á skrifstofur EMI viö Manchester Square og bauð þeim herrum er þar stjórnuöu aö hlusta á tónlist sina. Þeir þáðu boöiö og eftir aö hafa heyrt hvaö To«y haföi upp á að bjóöa, buöu þeir honum samning á staönum. Samningurinn hljóöaöi ekki bara upp á litla piötu eins og oft er meö byrjendur, heldur stóra plötu og átti undirbúningur aö hefjast strax. Townley segir svo frá sam- skiptum sinum við EMI: ,,Ég haföi fariö til fjölmargra hljómplötufyrirtækja áöur en ég kom til EMI. Þeir skildu strax hvaö mig langaði aö gera og buðu mér aö vinna meö Chris Rainbow sem upptökustjórn- anda. Þaö sem gladdi mig mest var aö þeir gáfu mér tækifæri til John aö hafa áhrif á stjórnunina.” Þess má geta að Chris Rainbow er einnig söngvari og lagasmiöur. Honum fórst starfið mjög vel úr hendi og út- koman var plata sem kallast einfaldlega „Townley”. A plötunni eru tiu lög og eru þau öll eftir Townley sjálfan. Margir þekktir hljóðfæra- leikarar aöstoöa Townley á plötunni og þeirra á meöal eru trommuleikararnir Dave Mattacks úr Fairport Convent- ion og Henry Spinetti, bassa- leikarinn Charlie McCracken, og saxófónleikarinn Dick Morrissey. Sjálfur spilar Townley á fjöldann, allan af hljóöfærum enda haföi hann eitthvaö fengist viö sessionstörf áöur. Tónlistarflutningur er óaöfinnanlegur og tónlistin þægileg popp-tónlist i svipuöum anda og Gerry Rafferty og Ian Matthews. Textar eru nokkuö góöir, en þó nokkuö mismunandi þó krefjast nokkrir töluveröar umhugsunar. Það er nokkuð erfitt aö telja upp einhver lög sem skara fram úr þvi þau eru flest jafngóö, en þau sem hrifa undirritaöan mest eru „To love you”, „Dream”, „Woman of age” og „Shine on”. John Townley á framtiöina fyrir sér sem tónlistarmaöur og ekki er útilokaö aö hann nái heimsfrægö fljótlega. KRK. útvarp Útvarp i dag kl. 13.30 í vikulokin Það er ætlunin að auka beinu útsending- una en vera minna með niðursoðið efni sagði Kristján E. Guðmunds- son stjórnandi þáttar- ins. Annars munum viö ræöa viö Sæma rokk um feril hans og komum viö þá meðal annars inn á viöskipti hans við Fisher. Meö þessu veröur aö sjálfsögöu spiluö rokktónlist. Viðmunum hafa samband viö Neskaupstaö ogathugahvaö sé um aö vera á hátiöinni þar. Lögö veröur þraut fyrir áheyr- endur og þeir hvattir til aö hringja. Siöan munum viö ræöa viö tvo unga menn sem ætla aö opna nýjan skemmtistaö fyrir ung- linga. Og einnig veröur talaö viö Jóhann Pétursson vitavörö. Aölokum mágeta þessaöeitt gamalt og nýtt mál veröur á dagskrá en þaö er eftir hverju er fariö er fólki er ekki hleypt inn á skemmtistaöi vegna klæöa buröar. Rætt veröur viö nokkra veitingahúsastióra og þeir spurðir eftir hverju þeir fari viö aö banna fólki inngöngu á veitingahús vegna klæöaburöar. Af hverju þurfa menn að vera meöbindi, i jakkafötum o.sv.fr. Þaðer spurning hvort þarna sé ekki um þjóðfélagslegt atriöi aö ræöa. Meö Kristjáni eru þau Edda Andrésdóttir, Olafur Hauksson og Guöjón Friöriksson. Þátturinn tekur 2 tima og 30 mfn i flutningi. Sæmi rokk og Didda á fullu en rætt veröur viö Sæma I þættin- um „1 vikulokin”. Framhalds- leikritíd Á sunnudag verður fluttur annar þáttur framhaldsleikritsins „Hrafnhettu" eftir Guð- mund Daníelsson. Nefn- ist hann „Ástkona og and- skoti". Leikstjóri er Klemenz Jónsson og með aðalhlutverk fara Helga Bachmann, Arnar Jóns- son og Þorsteinn Gunnarsson. Flutningur þáttarins tekur 70 min. I fyrsta þætti geröist þaö helst aö Niels Furhmann skrifari hjá Schested sjóliösforingja, veröur ástfanginn af Appolónlu Sch- warzkopf öðru nafni Hrafn- hettu. Hann veröur manni aö bana I sjálfsvörn og mál skipast þannig aö hann hefur hug á aö komast burt frá Danmörku. 1 öörum þætti kemur vinnu- veitandi Nielsar, Pétur Raben aömiráll til sögu.nnar og þar Klemenz Jónsson leikstjóri framhaldslcikritsins. segir frá nánari kynnum þeirra Hrafnhettu. Laugardagur 7. júli 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.20 Bæn. 7.25 Ljósaskipti: Tónlistar- þáttur i umsjá Guðmundar Jónssonar pianóleikara. (endurtekinn frá sunnu- dagsmorgni). 8.00 Fréttir. Tónleikar. 8.15Veöurfr. Forustugr. dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 óskalög sjúklinga: Asa Finnsdóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir). 11.20 Barnatfmi: Viö og barnaáriö.Stjórnandi: Jak- ob S. Jónsson. Hvernig hafa aðrir þaö? Ýmislegt um börn i öörum löndum. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. •• 13.30 1 vikulokin.Stjórnandi: Kristján E. Guömundsson. Kynnir: Edda Andrésdóttir. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Vinsælustu popplögin. Vignir Sveinsson kynnir. 17.20 Tónhorniö: Guörún Birna Hannesdóttir stjórnar þættinum. 17.50 Söngvar I léttum dúr. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 „Góöi dátinn Svejk” Saga eftir Jaroslav Hasek i þýöingu Karls Isfelds. Gisli Halldórsson leikari les (21). 20.00 Gleöistund, Umsjónar- menn: Guöni Einarsson og Sam Daniel Glad. 20.45 Einingar. Umsjónar- menn: Kjartan Arnason og Páll A. Stefánsson. 21.20 Hlööuball. Jónatan Garöarsson kynnir amer- iska kúreka- og sveita- söngva. 22.05 Kvöldsagan: „Grand Babylon hóteliö” eftir Arn- old Bennett. Þorsteinn Hannesson les þýöingu slna (8). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir Dagskrá morgundags 22.50 Danslög. (23.35 Frétt- ir). 01.00 Dagskráriok. SUNNUDAGUR 8. júli 8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn Einarsson bisk- up flytúr ritningarorö og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir. Forustu- greinar dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlög. Hljóm- sveit Pers Lundquists leik- ur. 9.00 A faraldsfæti. Birna G. Bjarnleifsdóttir stjórnar þætti um útivist og feröa- mál. Rætt um hugsanlega hættu á náttúruspjöllum af völdum feröamanna. 9.20 Morguntónleikar. a. Sónata f g-moll fyrir flautu og sembal.ogSónata i C-dúr fyrir flautu, sembal og fylgirödd eftir Bach. Jean-Pierre Rampal, Robert Veyron-Lacroix og Jean Huchot leika. b. Sjö smálög (Bagatellen) op. 33 eftir Beethoven. Alfred Brendel leikur á pianó. 10.00 Fréttir. Tónleikar. 10.10 Veöurfregnir. 10.25 Ljósaskipti. Tóniistar- þáttur i umsjá Guömundar Jónssonar pianóleikara. 11.00 Messa I' Egilsstaöa- kirkju. (Hljóör. 6. mai). Pretur: Séra Vigfús Ingvar Ingvarsson. Organleikari: Jón Ölafur Sigurðsson. 12.10 Dagskráin. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.20 Framhaldsleikritiö: „Hrafnhetta” eftir Guö- mund Danielsson. 14.30 Miödegistónleikar: Frd tónlistarhátiðinni f Brati- slava sL haust. 16.00 Fréttir. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Gengið um Reykjavlk- urflugvöll á sunnudegi.Pét- ur Einarsson ræöir viö Gunnar Sigurösson flugvall- arstjóra og nokkra elstu starfsmenn flugvallarins. 17.20 Ungir pennar. Harpa Jósefsdóttir Amin sér um þáttinn. 17.40 Dönsk popptónlist. Sverrir Sverrisson kynnir Shit og Channel — fyrri þáttur. 18.10 Harmonikulög. Garöar Olgeirsson leikur. Tilkynn- ingar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Af hverju er veriö aö byggja? Þáttur um hús- byggingar, fjallaö um sögu þeirra og rætt viö húsbyggj- endur. Umsjón: Anna ólafsdóttur Bjw-nsson. 20.00 Frá útvarpinu i Frank- furt. Sinfóniuhljómsveit út- varpsins I Frankfurt leikur, Václav Neuman stj. a. „Li- bussa”, forleikur eftir Bed- rich Smetana. b. „Skógar- dúfan”, sinfóniskt ljóö eftir Antonin Dvorak. 20.30 Frá hernámi islands og sty rjaldarárunum siöari. Pétur Ólafsson les frásögu si'na. 21.05 Mazúrkar eftir Chopin. Arturo Benedetti Michel- angeli leikur á pianó. 21.20 Ot um byggöir — annar þáttur. Gunnar Kristjáns- son rekur stuttlega sögu þorpanna á útveröu Snæ- fellsnesi (Ólafsvikur, Hellissands og Rifs) og ræö- ir viö athafnamann I Ólafs- vik. 21.40 Frá hallartónfeikum i Ludwigsborg sl. sumar. Kenneth Gilbert leikur á sembal Svitu i' a-moll eftir Jean-Philippe Rameau. 22.05 Kvöldsagan: „Grand Babylon hóteliö” eltir Arn- old Bennett. Þorsteinn Hannesson les þýöingu sina (9). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Létt músik á siðkvöldi. Sveinn Magnússon og Sveinn Arnason kynna. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.