Vísir - 18.07.1979, Blaðsíða 8

Vísir - 18.07.1979, Blaðsíða 8
8 VÍSIR Miðvikudagur 18. júli 1979. /""'IT' utgefandi: Reykjaprenth/f Framkvæmdastjóri: Davifi Gufimundsson Ritstjórar: ólafur Ragnarsson Hörfiur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar Salvarsson, Halldór Reynisson, lilugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigurðsson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Otlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Sfðumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreifisla: Stakkholti 2-4 slmi 86611. Ritstjórn: Sifiumúla 14 sfmi 86611 7 Ifnur. Askrift er kr. 3.500á mánuði innanlands. Verð 1 lausasölu kr. 180 eintakið. „Prentun Blaðaprent h/f Nauðsyn löggæslu í Þörsmðrk Sjálfsagt er að stuðla að ferðum náttúruunnenda i Þórsmörk og til annarra staða i óbyggðum, en þegar hundruð unglinga eru farin að leggja undir sig slika staði um helg- ar með drykkjulátum og sukki verður að taka þar upp löggæslu. Þótt sumarið sé heldur hrá- slagalegt og fátt um sólskins- stundir,að minnsta kosti sunnan heiða.láta ferðagarpar það ekki á sig fá. Ferðafélags- og Útivist- armenn nota hverja stund til ferða um óbyggðirnar og útlend- ingar feta í fótspor þeirra, þótt ekki hafi útlitið verið árennilegt að undanförnu. Ánægjulegt er til þess að vita, að landsmenn gangi þannig á vit náttúru landsins og njóti þess að hvílast í skauti hennar, f jarri ys og þys þéttbýlisins. Hitt er aftur á móti verra, að stórir hópar ungmenna eru nú farnir að þyrpast til stórbrotn- ustu og f egurstu staðanna til þess fyrst og fremst að fá að leika lausum hala við drykkjuskap og sukk. Þórsmörk, sem ekki fór var- hluta af slíkum samkomum hér áður fyrr, hefur að mestu verið laus við ágang uppivöðslusamra unglinga síðustu árin enda yfir- leitt verið haldið uppi einhverri löggæslu á svæðinu og reynt að hafa eftirlit með ferðum fólks þarna inn í óbyggðirnar. Nú streymir unga fólkið á þessar slóðir að því er virðist til þess að losna undan eftirliti for- eldra og lögreglu og hafa alvar- leg slys orðið þar hvað eftir ann- að. Vísir ræddi í gær við nokkra að- ila, sem tengdir eru þessum mál- um og kom meðal annars fram, að löggæsla hefur verið felld niður í Þórsmörk í sumar í sparn- aðarskyni. Framkvæmdastjóri Ferðafé- lags fslands sagði að mikil brögð væruað því að ferðamenn ækju ölvaðir á bílum sínum á svæðinu með alvarlegum afleiðingum og ætti öflug löggæsla á svæðinu að geta komið í veg fyrir slíkt hættuspil. Lögregluvarðstjóri á Hvols- velli sagði er Vísir ræddi við hann, aðgífurlega mikið væri um óhöpp og slys í Þórsmörk á sumrin en fæst af þeim kæmi'st í hámæli. Oft væri skammt milli lífs og dauða, tjón á eignum væri mjög mikið og sá tollur, sem Krossá tæki af mannslífum væri hörmulegur, Hann kvað ástandið hafa versnað mikið með aukinni umferð iila búinna einkabíla inn í Þórsmörk og virtust margir líta á það sem nauðsynlegan hluta af ferðalaginu að sullast á bílunum í vötnunum á svæðinu og þeysa á þeim upp um f jöll. Sýslumaðurinn í Rangárvalla- sýslu benti á, að tveir skógar- verðir hef ðu verið ráðnir í sumar til þess að hafa eftirlit í Þórs- mörk og leiðbeina ferðamönnum og í haust væri ætlunin að athuga málin með tilliti til þeirrar reynslu, sem fengist eftir veru skógarvarðanna í Þórsmörk. Þessi nýja skipan hefur ekki gefið góða raun, að mati þeirra aðila, sem gerst þekkja til í Þórsmörk, og er því nauðsynlegt að gripið verði til annarra ráða, Augljóst er, að þörf er á lög- gæslu á svæðinu um helgar yfir sumarið, þegar þarna eru um eða yfir eitt þúsund manns í einu, og er því bráðnauðsynlegt að dóms- málaráðuneytið endurskoði af- stöðu sína til þessa máls sem fyrst. Raufarhðfn: „Sjðnarsviptir að gamla reykhðmum” - segir Gréfar ólaflur Jónsson „Okkur hér á Raufarhöfn finnst sjónarsviptir aft gamla reykháfi sildarverksm iftju rikisins”, sagfti Grétar ólafur Jónsson grásleppuútgerftar- maftur og fréttaritari VIsis þar á staftnum i spjalli vift blaftiÐ. Grétar sagfti aft nú væri verift aft vinna aft þvi aft rifa þennan gamla reykháf sem notaftur heffti veriö þegar slkiarbræftsl- urnar voru kolakyntar. Hann heffti hins vegar ekki verift not- aftur i fjölda ára og i miklum jaröskjálftum fyrir fáum árum heffti verift farift aft molna úr honum. Einkum væru þaft sjó- mennirnir sem sæju eftir honum þvi hann heföi veriö notaftur til viftmiftunar þegar siglt var inn I höfnina. Grétar sagfti i öftrum fréttum, aftenn heffti mönnum ekki verift bætt veiöarfæratjónift sem þeir uröu fyrir vegna hafissins i vet- ur. Sjálfur heffti hann misst 102 net og væri beint fjárhagstjón sitt um 3,5 milljónir króna. Ýmsir aörir hefftu þó tapaft mun meiruog væri þaft eingöngu fyr- ir góftvild lánardrottna aft þeir væru ekki þegar komnir undir hamarinn. Bjargráftasjóftur ætti aft bæta tjónift en óvist væri hvenær hann geröi þaö og eflaust yrfti þaft allt of seint. Grétar sagfti aft þrátt fyrir þessi áföll væru menn bjartsýn- irá Raufarhöfnog héldu ótrauö- ir til hafs á ný í leit aft fiski. —HR Hér hefur nifturrifsstarfinu miftaft vel og reykháfurinn stendur ekki nema hálfur eftir. Vfsismyndir — GÓJ Sjómönnum á Raufarhöfn er nokkur eftirsjá eftir þessum mikla reykháfi sem trónaft hefur yfir staftnum þeim til leiftbeiningar þegar þeir komu aft landi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.