Vísir - 18.07.1979, Qupperneq 16
VÍSIR
Mi&vikudagur 18. júli 1979.
Ensk rigning.
„VIL HAFA LJÚBW
NIEB f MVNDINNI”
- seglr Feter Schmldt. myndllstsrmehur
islenskt sjðnvarpslelkrlt í undirbúningi:
UNGU STÚLKURNAR
FLYKKJAST AD
„Þaö hefur verið geysileg aö-
sókn. Yfir 80 unglingsstúlkur
hafa þegar sótt um hlutverkiö,”
sagöi Gu&laugur Arason höf-
undur sjónvarpsmyndar, sem
nú er I undirbúningi, en sjón-
varpiö augiýsti eftir 13 ára
stúlku til aö leika eitt hlutverk
myndarinnar.
Guðlaugur sagði, að vinnu-
heiti leikritsins væri „Heima-
höfn” en endanlegt nafn væri
enn ekki ákveðið. Þetta er eitt
þeirra leikrita, sem varð fyrir
valinu að loknu námskeiði sem
sjónvarpið hélt I vetur fyrir höf-
unda. 6 verk voru valin til sýn-
inga, og verða þrjú þeirra tekin
upp i haust. „Heimahöfn” er
fyrstþeirra,en siðan verða unn-
in verk eftir Steinunni Sigurðar-
dóttur og Davið Oddsson.
Sjómannslif og annað
lif
Leikritið fjallar um hjónin
Olgu og Hannes, sem standa i
skilnaði. Hannes er tæplega
fertugur togarasjómaður, en
Olga er fáum árum yngri barn-
fóstra. Þau eiga tvö börn, Elsu
13 ára og Helga 10 ára. i mynd-
inni verður lýsing á sjómanns-
lifi og borgarllfi og hvernig
þessir tveir heimar verða til
þess að skilja að viðhorf hjón-
anna og lifsmunstur.
Hannes rýkur á dyr eftir ó-
venju hatrammt rifrildi, en siö-
ar gerast óvæntir atburðir sem
hafa ýmsar breytingar i för með
sér.
Myndin mun væntanlega taka
um klukkustund i flutningi og
verður hún tekin upp að hluta til
um boð i togara á hafi úti. Guð-
laugursagðiað þetta yrði fýrsta
sjónvarpsleikritið sem gert yrði
hér i lit, þar sem blandað væri
saman kvikmynd og upptöku i
stúdiói. Þetta hefði verið gert i
svarthvitu, en tækjakostur hefði
ekki leyft það hingað til í lit.
Eitt hlutverk ákveðið
Þráinn Karlsson mun fara
með hlutverk Hannesar, en önn-
ur hlutverkaskipan er enn ekki
ákveðin. Leikstjóri er Lárus
Ýmir Óskarsson og mun hann
næstu dagana ræða við umsækj-
endur um hlutverk Elsu.
Æfingar eiga að hefjast fljót-
lega upp úr næstu mánaðamót-
um og kvikmyndun fer fram i
ágúst og september.
Fyrsta leikritið
Guðlaugur Arason hefur
skrifað þrjár skáldsögur: Vind-
ur, vindur, vinur minn: Vikur-
samfélagið og Eldhúsmellur.
„Heimahöfn” verður fyrsta
leikritið, sem sýnt er eftir hann,
en þó segist hann hafa skrifað
nokkur leikrit áður, „bara
svona fyrir sjálfan mig.”
„Það er mjög skemmtilegt og
fróðlegt að vinna við þetta,”
sagði hann. „Þetta verkefni er
auðvitað mjög ólikt þvl sem ég
hef áður verið að fást við og
ýmislegt sem þarf að taka tillit
til. En það er gaman að kynnast
þessum miðli á þennan hátt og
ég er búinn að semja við leik-
stjórann um að fá að fylgjast
með áfram, þótt handritið sé til-
búið, og sjá hvernig þetta þró-
ast.”
— SJ
Gu&laugur Arason er höfundur fyrsta sjónvarpsleikritsins sem tek-
iö veröur upp i sumar.
VIsismynd:GVA
„Égbráméri ferðalagtil Túnis
fyrir fáeinum árum, og keypti
þar i rælni vatnslitakassa til að
gefa sjálfum mér. Litirnir lágu
svo ósnertir I marga mánuði, en
einhvern tlmadatt imig að stinga
penslinum i þá, og siðan hef ég
varla snert á öðru.”
Þannig fórust myndlistar-
manninum Peter Schmidt orð,
þegar við hittum hann niöri I
Galleri Suðurgötu 7 eftir opnun
sýningar þar á vatnslitamyndum
hans. „Aður en ég sneri mér að
vatnslitunum hafði ég fengist við
listsköpun af ýmsu ööru tagi,
hreyfiskúlptúra, kvikmyndagerð,
óhlutbundna list, teikningu og svo
framvegis. Nú hef ég snúið mér
að mestu að hlutbundinni mynd-
list. 1 raun er ekki svo mikill
munur á hlutbundinni og óhlut-
bundinnilist. Hlutbundin mynder
I mlnum augum óhlutbundin
mynd i dulbúningi landslags, eða
annars, sem við könnumst við úr
umhverfinu. Óhlutbundin mynd
er eins oglag án ljóðs. Ég vil hins
vegar hafa ljóðið, orðin, með.”
Flúði frá Þýskalandi
fyrir strið
Þetta er i annað sinn sem
Scmidtheldursýninguá Islandi. I
fyrra sáu forráðamenn Galleri
Suðurgötu sýningu á myndum
hans iLondon, og buðu honum að
koma með hana hingað. Myndirn-
ar, sem nú eru sýndar, hafa verið
gerðar eftir að fýrri sýningin var
haldin, og eru þær allar til sölu.
Peter Scmidt fæddist i Þýska-
landi, en flúði þaðan rétt aður en
Heimsstyrjöldiri siðari hófst.
Hann lagði leið sina til Englands,
og stundaöi nám við Slade-lista-
háskólann þar. „Þrátt fyrirnafn-
ið tel ég mig frekar Englending
en Þjóðverja” sagði hann.
Starfar með hljóm-
listarmanninum Brian
Eno
Schmidt hefur starfað talsvert
með tónlistarmanninum Brian
Eno, enda verið í vinfengi
við hann i sex ár. Eno hefur til
dæmis notað vatnslitamyndir
hans á plötuumslög, meðal ann-
ars á umslagið sem er utan um
nýjustu plötu Enos.
Einnig var Schmidt með I
Galleriinu samsafn af spjöldum,
sem hann og Eno gáfu út til leið-
beiningar fyrir listamenn. A einu
þessara spjalda stendur: „Vertu
samkvæmari sjálfum þér.” A
öðru: „Vertu ósamkvæmari
sjálfum þér.” „Þetta gætu virst
mótsagnakenndar leiðbeiningar,
og eru það lika, en það skiptir
engu máli þvi að báðar geta þær
verið hjálplegar listamanni,
„sagði Schmidt „Báðar eiga rétt
á sér — eða hvorug, ef manni býð-
ur svo við að horfa.”
„Mála eftir minni”
„Ég horfi aldrei á fyrirmynd-
ina þegar ég er að mála.” sagöi
Scmidt þegar hann fylgdi okkur
meðfram veggjum i Suður-
götunni. „Ef ég sé eitthvað, sem
mig langar til aö breyta I mynd,
bið ég með að mála. þangað til ég
er kominn burt.Þá kalla ég fram
myndina, og vinn svo eftir minni,
„Ég mála alltaf eftir minni, þvi a& annars þvælast of mörg smáatriöi
fyrir,” segir myndlistarma&urinn Peter Schmidt, sem nú heldur sýn-
ingu I Galleri Suöurgötu 7.
Þessá mynd ger&i Schmidt eftir aö hann fór til Akureyrar i fyrra.
Myndir GVA
aö öðrum kosti þvælast of mörg
smáatriði fyrir. Það er mjög
erfitt tæknilega að mála með
vatnslitum. Yfirleitt bætist lag á
lag ofan áður en myndin er full-
kláruð, og er þvi nauösynlegt aö
skipuleggja hana fyrirfram i hug-
anum. Þrátt fyrir alla skipulagn-
ingu litur myndin svo auðvitaö
öðruvisi út en hugmyndin, en um
það þýðir vist litið aö fást.”
— AHO