Vísir - 21.07.1979, Blaðsíða 8

Vísir - 21.07.1979, Blaðsíða 8
vtsm Laugardagur 21. júli 1979. Útgefandi: Reykjaprenth/f Framkvcmdastjóri: DavfA GuAmundsson Ritstjórar: Úlafur Ragnarsson HörAur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra (rétta: Guðmundur G. Pétursson. BlaAamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar Salvarsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigúrðsson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörn'sson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R, Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: SfAumúla 8. Sfmar 86411 og 82260. AfgreiAsla: Stakkholti 2-4 sfmi 86611. Ritstjórn: SfAumúla 14 sfmi 86611 7 llnur. Askrift er kr. 3300 á mánuAi innanlands. VerA I lausasölu kr. 180 eintakiA. .Prentun BlaAaprent h/f FRESTUN VANDA OG FEIODARFLAN Rfkisstjórnin hefur nú búiö til gálgafrest til 1. október til þess aö finna iausn á oliu- hækkunarvandanum á meðan verðbóigan nálgast 50%. Þá hefur nú blessuð ríkis- stjórnin okkar tekið enn einu sinni ákvörðun um bráðabirgða- lausn eins þáttar efnahagsvand- ans/ sem hún er búin að vera að reyna að koma sér saman um að leysa f rá því að hún settist í ráð- herrastólana. Að þessu sinni er notuð aðf erð strútsins, að stinga höfðinu í sandinn og neita að viðurkenna staðreyndir eins og þá, að olíu- verðið er hátt og því verður ekki breytt. Engu virðist skipta þótt olíu- og orkumálasérfræðingur stjórnarinnar, Ingi R. Helgason, lögfræðingur, sem ómissandi er i hverri olíunefnd, hafi sent út boðskap sinn og fullyrt, að olíu- verðhækkanirnar muni halda áfram um næstu framtíð. Ef díselolíuhækkunin, sem nú þarf að taka tillit til væri stundarfyrirbrigði og verðið lækkaði aftur í haust væru að- gerðir ríkisstjórnarinnar skiljan- legar. En svo er ekki. Raunverulegt kostnaðarverð hvers lítra af díselolíu er nú 156 krónur en í stað þess að láta það gilda er ákveðið að hækka verðið aðeins upp í 137 krónur og olíufélögunum svo sagt að tala við Seðlabankann, sem muni út- vega þeim peninga fyrir því sem á vantar. Og hvar á að taka pen- ingana? Jú, annað hvort að láta prenta fleiri verðlausa seðla eða biðja enn einu sinni um lán í út- löndum, væntanlega gengis- tryggt lán, sem hækkar strax á næstu vikum með gengissiginu, sem þessi sama ríkisstjórn hef ur ákveðið. Ekki kæmi það Vísi á óvart, þótt leitað yrði eftir láni frá arabalöndunum, eins og fyrr hef ur verið gert, og þannig tekið lán hjá olíuf urstunum til þess að greiða hækkanirnar, „sem þeir hafa ákveðið á olíunni. Þegar gasolíulítrinn fór í 103 krónur gaf ríkisstjórnin út- gerðarmönnum það fáheyrða fyrirheit að hún skyldi sjá um að lítrinn hækkaði ekki til skipanna. Til þess að standa við þetta lof- orð er ákveðið að hækka olíugjald um 8% og F framhaldi af því hækkar olíuhækkunin laun sjó- manna um 3%. Þetta miðar að því að létta út- gerðinni byrðarnar, en hvers vegna er ekki eitt látið yfir alla ganga. Hvað til dæmis um al- mennan iðnað, sem notar geysi- legt magn af þessari sömu dísel- olíu? Þessar aðgerðir eru jafn mikið fikt og aðrar aðgerðir ríkis- stjórnarinnar. Vandanum er frestað í stað þess að leysa hann og að þessu sinni er fresturinn til 1. október. Þá á að selja olíuna aftur á raunverði, segir stjórnin, hvað sem verður, þegar sá dag- ur rennur upp. Ráðgjafarstofnun ríkisstjórn- arinnar, Þjóðhagsstof nun, segir nú að verðbólgan nálgist nú 50% og Tíminn skýrir f rá því, að olíu- hækkanirnar nú muni hækka vísitöluna um 7-8%, svo að aug- Ijóst er að sama feigðarflaninu verður haldiðafram í efnahags- málunum enn um sinn. — Aldrei skal rifast i kvik- myndahúsi, sagði indverski spekingurinn Amir Mandidadú eitt sinn, en hann var uppi á ofanveröri sjöttu öld. Rit hans fundust fyrir þremur árum i hól nokkrum 1 héraðinu Diskódeskó i Indlandi. Spjöldin voru hins vegar orðin máð og þessi setn- ing um kvikmyndahúsin var sú eina sem hægt var aö lesa. Engu að siður hefur verið stofnaður sérstakur trúflokkur i New York sem hefur Mandidadú fyrir herra sinn og leiðtoga. Maður nokkur aö nafni Colvitio kvaöst hafa fengiö vitr- un frá Mandidadú sem bauð honum að gerast umboðsmaður sinn á jörðunni. Hefur Colvitlo siðan sankað að sér hjörð af fylgismönnum og eru haldnar fjölmennar samkomur i New York og nágrenni. Ekki haföi ég hugmynd um að hreyfing þessi heföi teygt anga sina til íslands fyrr en ég fékk heimsókn manns og konu hing- aö á blaðið fyrir nokkrum dög- um. Maðurinn hafði orö fyrir þeim og kvaðst vilja koma nokkrum upplýsingum um hreyfinguna Mandidadú á framfæri við þjóðina, enda væri brýnt að þjóöin þekkti sinn vitjunartlma. Konan sat hjá og hlustaði á manninn meö mikilli andakt en lagöi ekkert til málanna. Ræða mannsins, sem kvaðst heita Stupidus innan hreyfingarinnar, var eitthvaö á þessa leið: „Viö konan min og ég vorum stödd i biói i New York og fórum aö rffast. Konan sagöi aö aöal- leikarinn héti Carlo Ponti en ég vissi að þetta var enginn annar en Fellini sem lék manninn með grimuna. En þegar við vorum að rifast sneri maöur á næsta bekk fyrir framan sér viö og sagöi: Aldrei skal rifast I kvik- myndahúsi. Við hættum að rifast og eftir enga peninga. Viö sendum þá til leiðtogans i New York, hans Colvitlo.” Nú dámaði mér ruglið i manntetrinu en þó mundi ég eftir að hafa séð myndir fyrir skömmu af svinfeitum manni með dökk sólgleraugu,i ame- riskum blöðum. Undir myndun- um stóð að Colvitlo hefði sett eina milljón dollara i tryggingu fyrir rétti vegna rannsóknar á meintum skattsvikum hans. Tekið var fram að fáum tækist að botna upp eða niður i stefnu hans og boðun. Þessi upprifjun hressti mig talsvert og ég spurði hjúin eins og þeir gera i útvarpinu, hvort það væri eitthvaö sem þau vildu taka fram að lokum. „Viö viljum óska að allir Is- lendingar komi i Mandfdadú. Þá finna þeir allir frið en það er svo mikill ófriður hér, allir að rifast meö orðum og i huganum. Viö sitjum og reykjum á kvöldin og spilum á gitara og hugsum um allt fólkið sem á svo bágt, bæði hér og I Afriku. Með þvi að hugsa gott til allra veröa allir betri, en þeir sem koma i hreyfinguna verða hólpnir.Allir sem ganga inn i Mandidadú hér þurfa ekki að borga neitt.bara að gefa fimmtiu þúsund krónur á mánuði til Colvitlo svo hann geti hjálpað þeim sem eiga bágt. Nú skilur þú um hvað máliö snýst,” sagði maðurinn og horfði biöjandi á mig. Ég átti engin svör við þessari spakvitru ræðu og hummaði bara i vandræöum minum. Hjú- in risu upp og kvöddu. Vonandi kæmi góð grein i blaðinu um þetta. Ekki veitti af þvi,alltaf væru einhverjir á móti friði og þeir berðust gegn hreyfingunni. Þvi væri nauösynlegt að sann- leikurinn kæmi i ljós. Ég var þeim hjartanlega sammáía. — SG Mandidadú bióið kom hann til okkar og bauð okkur á samkomu. Þar kynnt- umst við fólkinu i Mandidadú og siðan höfum viö aldrei rifist i biói. Nú eigum við að útbreiða trúna hér á landi.” Ég var svolitla stund að átta mig eftir aö maðurinn haföi lok- ið ræðu sinni og sagðist ekki hafa orðiö mikiö var viö rifrildi i bióum hér. „Þaö skiptir ekki máli. Það eru svo margir sem rifast i huganum þótt þeir tali ekki upp- hátt. Skiluröu ekki að þetta er friður og innri ró sem við boð- um. Allir sem ganga i hreyfing- una fá frið og ró, ekki bara I bió heldur lika i vinnunni og heima,” svaraði hann og leit friðelskandi á mig. Þótt ég væri litlu nær þóttist ég skilja allt og spuröi hvernig aö boðun trúarinnar færi fram. „Við látum prenta litla bækl- inga. Hér er til dæmis einn sem heitir „1 biói friðarins”. Þetta gefum viö fólki ókeypis en biöj- um það að gefa okkur nokkrar krónur upp i prentunarkostnað- inn. Svo ræktum við lika gulræt- ur og seljum og það er margt fleira sem við seljum. Það þurfa allir peninga núna en við viljum krákustígur Sæmundur Guðvinsson blaðamaður skrifar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.