Vísir - 21.07.1979, Blaðsíða 20

Vísir - 21.07.1979, Blaðsíða 20
vtsm Laugardagur 21. júli 1979. hœ kidkkar! 20 Umsjón: Anna Brynjúlfsdóttir Krakkar í Húsafelli Þessir strákar eru þarna í heita kerinu við sundlaugina í Húsafelli. Áreiðanlega hafa einhver ykkar farið þangað í sumar eða kannske eigið þið eftir að fara þangað. Þar er skógur og þar er gott að tjalda. öllum krökkum fjnnstgáman að vera í útilegu í tjaldi. Strákarnir á myndinni heita Rúnar Kristinsson og Gunnar Ágúst Hall- dórsson og þeir eru báðir níu ára. Stelpan á litlu myndinni heitir Ragn- heiður Lóa Björnsdóttir og hún var líka í heita kerinu. Ragnheiður Lóa er 5 ára. Henni fannst voða gaman í Húsafelli. Þegar við erum stödd i Húsafellslandi erum við komin all-nálægt Eiríks- jökli. Eiríksjökull er 1675 m á hæð og hefur fjallið orðiðtil viðgos undir jökli á ísöld. Eiríksjökull er hæsta f jall á vesturhelm- ingi Islands. í skriðum Eiríksjökuls að norðan er klettadrangur þverhnípt- ur og hár, sem heitir Ei- ríksgnípa. Sagan segir, að einn útilegumanna úr Surtshelli hafi flúið und- an byggðamönnum og klifið upp bjargið, en svo nærri komust þeir hon- um, að þeir hjuggu undan honum annan fótinn. Á jökullinn og gnípan að draga nafn af Eiríki þessum. Eiríksjökull er norðan Langjökuls, en úr eldvörpum við norðvest- urjaðar Langjökuls er Hallmundarhraun komið. í Hallmundarhrauni eru stærstu hraunhellar á ls- JRagnheiður Lóa, fimm ára. landi, Surtshellir, Stefánshellir og Víðgelm- ir. I norðvestanverðu Hallmundarhrauni er hraungjóta, sem kölluð er Eyvindarhola. Þar er sagt, að Fjalla-Eyvindur hafi haft fylgsni sitt. Húsafell er innsti bær í Borgarf jarðarsýslu og næstur jöklum. f Húsa- fellslandi er birkiskógur allvíðáttumikill. Frá Húsafelli iiggur vegur suður um Kaldadal, fyrst og fremst sumarvegur fyrir jeppa, en fólksbif- reiðir komast þar oftast. í landi Húsafells er eyðibýlið Reyðarfell, sem virðist hafa verið stór- býli, en fór feyði á 15. öld. Bæjarrústirnar, sem standa sunnan vegar,um 1 km vestan við Húsa- fellsbæ, hafa verið grafnar upp á vegum Þjóðminjasafns og gefa góða hugmynd um húsa- skipan meiri háttar bæja á 14. og 15. öld. Rúnar og Gunnar Agúst, báðir nlu ára. Vlsismyndir: AB. Gleymni töframadurinn Tóti töframaður gat alls ekki munað að hvaða skrá stóri lykillinn gekk. „ „ Ég verð að spyr ja ein- hvern", sagði hann og fór út í sælgætisbúðina. Hún Sigríður, sem af- greiddi, sagði. „Því miður, ég get ekki hjálp- að þér. var mjög alvarlegur á svip og brosti aldrei. Hann leit þungbrýnn á Tóta. „Þessi lykill", sagði hann. „Reyndu að opna hausinn á þér. Þá yrði kannske eitthvert gagn að þér." Tóti klappaði sam- an höndunum. „Allt í lagi", sagði Tóti. „Ég ætla að spyrja lög- regluþjón." „Ég man ekkert að hvaða skrá þessi lykill gengur" sagði Tóti. Lögregluþjónninn svar- aði: „Þú ert ómögulegur töframaður. Aldrei gleymi ég neinu." Og hann hélt áfram göngu sinni. Tóti andvarpaði. Gat virkilega enginn hjálpað honum. Þá kom skóla- stjórinn labbandi. Hann „Það er rétt. Minnið er í höfðinu á mér. Ég verð að opna það." Hann setti stóra lykil- inn upp t sig og sneri hon- um. Allt í einu mundi hann allt það, sem hann hafði vitað áður. Hann hljóp ánægður á eftir skólastjóranum. „Þú þarft nú ekki að vera svona strangur á svipinn", kallaði hann. „Ég man nú eftir því, þegar þú varst strákur, að þú skrópaðir í skólan- um og hrekktir hús- mæðurnar með því að skipta um tau á snúrun- um." Tóti flýtti sér aftur í sælgætisbúðina. „Vertu glöð", sagði hann við frú Sigríði. „Ég man eftir þér, þegar þú varst alltaf kát og f jörug. Þá gafstu krökkunum oft auka sælgæti. Gefum þeim gott núna. Hann tók stóra krukku með sælgæti og flýtti sér út. Hann mætti lögregluþjóninum. „Þú spilaðir einu sinni svo vel á fiðlu", sagði hann hlæjandi. Náðu nú í fiðluna og við skulum öll dansa. Og brátt sáu þorpsbúar skemmtilega sjón. Skóla- stjórinn og töframaður- inn voru að dansa á græna torginu og lög- regluþjónninn lék á fiðl- una. Rétt hjá stóð hún frú Sigríður í sælgætisbúðinni og rétti öllum börnum, sem komu, nóg af sæl- gæti. Tóti töframaður missti aldrei minniðaftur. f stað þess hjálpaði hann öllum til þess að muna, hvernig þau hefðu verið þegar þeir voru ungir og brátt varð fólkið í þessu þorpi hamingjusamasta fólkið í öllu landinu. Einn hlutur er stakur á myndinni. Hver?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.