Vísir - 21.07.1979, Blaðsíða 11

Vísir - 21.07.1979, Blaðsíða 11
VISIR .'Laugardagur 21. jiili 1979 11 íréttagetraun krossgótan 1. Hverjir uröu Evrópu- meistarar í bridge í karlaf lokki? 2. Fljúgandi furðuhlut- ur sást yfir landi einu í Evrópu í vikunni og mörg hundruð manns gáfu skýrslu um atvikið, þar á meðal starfsmenn flug- turnsins við flugvöll höfuðborgarinnar. Hvaða land var þetta? 3. Hvaða lið er nú efst í fyrstudeildarkeppninni í knattspyrnu? 4. í lesendadálki Vísis skrifar þekkt kona í vik- unni og segist vera: „fat, nice and juicy". Hvaða ágætiskona lýsir sjálfri sér þannig? 5. Breytingar hafa orðið á fossi einum íslenskum, einhverjum þeim fræg- asta. Breytingarnar urðu vegna þess að það hrundi úr berginu við fossinn. Hvaða foss er þetta? 6. Hvað heitir formaður Landssambands isl. út- vegsmanna? 7. Nú er unnið að stofn- un nýs sparisjóðs í Reykjavík og er til- gangurinn að beita sér fyrir aðstoð við aðila, sem tengjast baráttunni við áfengisvandamálið. Hvað á sparisjóðurinn að heita? 8. Forseti nokkur í S- Ameriku, i rauninni ein- ræðisherra, var hrakinn frá völdum í vikunni. Hvað heitir hann? 9. Um helgina verður haldin „útihátíð sumars- ins" að Kolviðarhóli, Kol '79. Hverjir standa fyrir hátíðinni? 10. Fræg söngkona hefur verið kölluð fyrir rétt í New York vegna meintra brota á innf lytjenda- lögunum. Hvað heitir söngkonan? 11. Hver skoraði mark Skagamanna gegn IBK í bikarleiknum i knatt- spyrnu á miðvikudag- inn? 12. Hvað heitir iþrótta- fréttaritari útvarpsins? 13. Steypustöðvar hafa verið nokkuð í fréttum í vikunni. Hvers vegna? 14. Skólaheimili nokkru í V- Ba rðastra nda r sýs I u hefur nú verið lokað. Hvað heitir heimilið? 15. Undursæt, bandarísk súkkulaðisöngkona hef- ur nú ákveðið að ganga í hjónaband. Hvað heitir stúlkan? Spurningarnar hér að ofan eru allar byggðar á fréttum í Vísi síðustu dagana. Svör eru á bls. 23. spuiningaleikur 1. Hversu mörg lönd eiga landamæri að Hollandi og hvaða lönd eru það? 2. Verða Þjóðhátíðin í Eyjum og Verslunar- mannahelgin sömu helg- ina? 3. Hvaða pláneta í okkar sólkerfi hefur tólf tungl? 4. Hversu margir leik- menn eru í ísknattleiks- liði 6, 9 eða 11? 5. Hvað heitir áin, sem rennur úr Þingvalla- vatni? 6. í hvaða borg voru Sameinuðu þjóðirnar stofnaðar: Brussel, Lon- don, AAoskvu, Genf eða San Francisco? 7. I þessum mánuði var frumsýnd nýjasta James Bond-myndin. Hvað heit- ir hún? 8. Hverjir reykja mest allra þjóða i Evrópu? 9. AAeð því að víxla eftir- farandi stöfum og þeim, sem næstir koma í staf- rófinu, kemur nafn þekktrar poppstjörnu: DKSNAA INGAA. Hver er stjarnan? 10. f hvaða landi er hin helga borg AAekka?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.