Vísir - 21.07.1979, Síða 9
r
.*..*.•:**.■*.* m », * ■» ’
•Vfc V»«.»
332&I.
VÍSIR
Laugardagur 21. júli 1979.
<
//Ég er mjög óánægður með þróun ferðamála að
undanförnu og þessi óeðlilegu vinnubrögð sem
þessi viðskipti byggjast nú á. Ég er líka satt að
seg ja oröinn þreyttur á áralangri baráttu við kerf ið
sem hefur allt að því kostað mig æruna og tel því
að rétti tíminn sé kominn til að draga sig í hlé. Ég
lít á starf mitt sem brautryðjendastarf á sviði
ferðamála enda búinn að starfa að þessum málum
á þriðja áratug. Mest allan þann tima hef ég rekið
Sunnu sem stærstu ferðaskrifstofu landsins og full-
yrði/ að Sunna hefur með brautryðjendastarfi sínu
gefið þúsundum islendinga kost á að ferðast til
útlanda sem þeir annars hefðu ekki haft möguleika
á. En á meðan Freddie Laker var aðlaður af Breta-
drottningu var ég ofsóttur af yfírvöldum hér á
landi."
Þanig komst Guðni í Sunnu að orði er Helgarblað-
ið hafði samband við hann vegna hinnar óvæntu
ákvörðunar hans að draga sig út úr öllum viðskipt-
um á sviði ferðamála. Guðni hefur vissulega verið
umdeildur maður á umliðnum árum og á undan-
förnum vikum hafa mörg spjót beinst beinst að
honum úr ýmsum áttum. Guðni hefur að vonum
ýmislegt við þróun þessara mála að athuga eins og
fram kemur í viðtalinu.
//Árangur almenningi til
góðs"
„Ég get ekki látið hjá liða,
svona i upphafi að minnast
aöeins á brautryðjendastarf
Sunnu á sviði ferðamála, —
sagði Guðni þegar við hittumst
siðasta daginn sem hann sat i
stól framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins. — „Fyrsta beina
flugið frá Islandi til Spánar var
á minum vegum árið 1957 og
fyrsta þotuflugið til Spánar var
á vegum Sunnu árið 1968. Með
þvi að stofna til leiguflugs beint
til sólarlanda fyrir meira en
tveimur áratugum lagði Sunna
grundvöll að þvi að sólarferöir
urðu almenningseign. Auk þess
rak Sunna um langt árabil
leiguflug til Norðurlanda og
Englands og gerði þannig
þessar ferðir, sem voru dýrar,
einnig að almenningseign.
Fyrir fáum árum lögðu
stjórnvöld þröskuld í veg fyrir
þessa starfsemi og komu í veg
fyrir að áframhald yrði á
þessari þróun. Árangurinn varð
samt almenníngi til góðs að
minu viti, þvi að upp á síðkastið
hafa komið til alls konar sérfar-
gjöld á þessum flugleiðum sem
hafa auðveldað almenningi
ferðalög þangað.”
,/Allt flug á einni hendi"
„Nú er allt flug á milli Islands
og útlanda á einni hendi og það
hefur sina kosti og sfna galla.
Eins og nú er komiö á feröa-
markaðinum tel ég heppi-
legast að Flugleiðir annist
sjálfar á einu bretti allt sólar-
landaflug og selji siðan ferða-
skrifstofunum ákveðið sæta-
magn I flugið. Samkeppni
ferðaskrifstofanna lægi þá aðal-
lega i hinum mismunandi hót-
elum og þjónustu við farþegana
á erlendri grund. Með svoleiðis
skipulagi tel ég að hægt sé að
nýta betur leiguflugiö til hags-
bóta fyrir alla og komá i veg
fyrir óeðlileg undirboö og
óraunhæf kjör á sólarlanda-
ferðum. Ég tel það siðferðislegt
réttlætismál, að allir farþegar
• ,,Er oröinn þreyttur á baráttunni við kerfiö...”
• ,,Ég lít á starf mitt sem brautryðjendastarf”
• ,,Á meðan Laker var aðlaður var ég ofsóttur99
„Baráttan hefur
allt ad þvi kostad
mig æruna”
— Helgarblaöiö ræöir viö Guöna í Sunnu
sem sitja i sömu flugvél og fái
sömu" ferð á sama gististað
borgi eitt og sama verð.
„Nýir aðilar „kaupa" sig
inn á markaðinn"
Fjársterkir aðilar eru nú að
ryðjast inn á ferðaskrifstofu-
markaðinn. Þeir ráða yfir
gildum sjóöum almennings-
samtaka, sem núna eru óspart
notaðir til þess að borga
milljónatugi eða jafnvel
hundruð milljóna með sölu og
„gjöfum” á sólarlandaferðum
sem eins konar herkostnaður
þessara aðila sem eru að brjót-
ast inn á markaðinn á þennan
hátt.Min stefna hefur verið sú,
að taka ekki þátt I þessum leik,
hvorki með óeðlilegum undir-
boðum eða „gjöfum” né öðru
sliku. Ég hef enda ekkert fjár-
hagslegt bolmagn né vilja til
slikra hernaðarútgjalda.
Ég tel þvi að fyrir Sunnu sé
ekki um annað að ræða en að
endurskipuleggja starfsemina
og draga saman seglin meöan
þetta markaðsástand varir og
efnahagsástæður almennings
þannig að lftið er til skiptanna
umfram brýnustu lifsnauð-
synjar.”
„Mín barátta hefur oft
verið hörð"
„Nú tel ég, aö þróun ferða-
mála hafi tekið svo örum og
snöggum breytingum siðustu
mánuðina að timamót séu I
þessum efnum. Þess vegna held
ég að rétti timinn sé til þess
kominn fyrir mig að hætta. Er
það hvort tveggja að ég erfitt
með að aðlaga mig að þessum
breytingum og þeim nýju við-
horfum sem nauðsynlegt er að
tileinka sér til að geta haldið
áfram i slagnum. Auk þess tel
ég, að þeir sem að koma til með
að halda starfseminni áfram i
breyttri mynd með nýjum við-
horfum hafi þá meiri möguleika
til að starfa með þeim aðilum
sem koma til með að gera þær
breytingar sem ég spái að
almennt verði gerðar i ferða-
málum á næstunni.
Min barátta hefur oft verið
hörð eins og alþjóö veit og fá
vopn verið spöruð af „kerfinu”
i viðureigninni við mig Það ei
þvi kominn timi til aö ég yfirgefi
þessa ljónagryfju sem ég hef
barist i. Og eitt veit ég, aö þótt
kerfiskóngarnir hafi eytt
miklum kröftum, fyrirhöfn og
herkostnaði I þessa baráttu við
mig á ferðamálasviðinu, að stór
hluti af almenningi á Islándi
hefur oft hugsað hlýtt til min i
þessari baráttu enda margir
notið góðs af henni.
Ég þori aö fullyrða að vegna
brautryðjendastarfs Sunnu i
leiguflugi hafa tugir þúsunda
Islendinga á liðnum árum átt
þess kost að skreppa til útlanda
sér til ánægju og tilbreytingar,
sem annars hefðu ekki átt á þvi
möguleika. A þessum tima-
mótum er ég þakkíátur
ótöldum tryggum viðskipta-
vinum Sunnu, sem þrátt fyrir
ofsóknir opinberra aðila og oft á
tiðum skipulagt nið og róg
hafa haldið tryggð við fyrir-
tækið I gegnum árin, margir
hverjir I meira en tvo áratugi.
Ég vona að þó ég hætti störfum
verði þar ekki breyting á og aö
þúsundir ánægðra viðskipta-
vina Sunnu verði það áfram um
ókomin ár.”
„Langar ekki í þessa
Ijónagryfju aftur"
Við spyrjum nú Guðna hvað
hann hyggist taka sér fyrir.
hendur eftir að hann yfirgefur
ferðamálabransann.
„Ég hef ekki ákveðið það
þegar til langs tima er litið, en
eitt er vist, að mig langar ekki
I þessa ljónagryfju aftur. Ég get
að visu aldrei endurheimt ær-
una, sem reynt hefur verið að
reyta af mér af opinberum aöil-
um og stofnunum. Ég læt mér
það I léttu rúmi liggja, þvi æra
sumra þeirra sem reyttu er
ekki upp á marga fiska, þótt
titlarnir séu finir.
Með haustinu mun ég snúa
mér að búrekstri á jörö forfeöra
minna 1 Borgarfirði. Þar er
fallegt stóð — nokkrir tugir
gæðinga. Ég held að svona til
tilbreytingar sé ágætt að hvila
sig um sinn með þvi að um-
gangast þær gáfuðu skepnui;
hestana. Vonandi verð ég þar
ekki fyrir neinum i kerfinu”.
Texti: Sveinn Gudjónsson Myndir: Pórir Guðmundss. f
••••••••••••••••••••••••«•••••••••••••••••••••••••••••••••••
1
!