Vísir - 21.07.1979, Page 12
12
VÍSIR
Laugardagur
21. júli 1979.
FRÆGÐIN KOM
ÞEIM í OPNA
SKJÖLDV
Sagt frá poppstúlkunum
Amii Stcwart, Anitu Ward,
Lene Lovich og Rickie Lee
Jones
vinsældum sinum eftir meö ööru
lagi, „Say When” sem einnig
haföi talsvert gott upp Ur krafs-
inu.
Þá er aöeins ógetiö þeirrar
listakonu sem fer sinar eigin
leiöir I diskó- og nýbylgjutlm-
um, bluesrokkstúlkunnar
Rickie Lee Jones. Lag hennar
„ChuckE. ’s In Love” fór ofár-
lega á bandarlska vinsældalist-
ann fyrir nokkrum vikum og
gagnrýnendur keppast viö aö
hæla henni fyrir plötu slna. Og
fyrir mi'na eigin parta verö ég
aö játa aö Rickie og Lene eru
mér miklu meira aö skapi en
Amii og Anita sem þó eru allra
góöra ummæla veröar.
Amii Stewart
Tvögömul lögsem höföu bor-
ist heiminum á öldum ljósvak-
ans i' fjölda ára lögöu grunninn
aö vinsældum Amii Stewart.
Þvi fyrra „Knock On Wood”
eftir Cropper og Floyd hafa
margir spreyttsig á gegnum ár-
in en þaö hefur ekki áöur veriö
fært I diskóklæöi. Seinna lagið,
„Light My Fire” geröu The
Doors frægt á slnum tima. En
þótt þessi lög hafi lagt grunninn
að vinsældum Amii er ekki þar
meö sagt aö hlutur hennar
sjálfrar, kynæsandi rödd og
leikræn túlkun, sé ekki með I
spilinu — aö ógleymdum rlf-
legum skammti af heppni.
Fyrir rúmu ári var Amii allt I
senn söngkona, leikari, dansari
i uppfærslu á söngleiknum
„Bubbling Brown Sugar” i
London. Leikstjórinn, Barry
Leng, hreifst mjög af leik- og
sönghæfileikum Amii og stuöl-
aði aö upptöku með Amii þar
sem hún söng lögin „Touched
A upphafsárum Bltlanna má þvl
sem næst segja aö popptónlistin
hafi verið einkaeign karlmanna.
Það breyttist þó fljótt þótt hlutur
kvenna i popptónlistinni yrði ekki
verulegur fyrr en nokkuð var liðið á átt-
unda áratuginn. Það sem af er þessu ári
hafa konur sett meiri svip á popptónlistina en
nokkru sinni fyrr og ef tölfræðilegar niðurstöður
lægju fyrir um vinsælustu lög ársins meö tilliti til
þess hvort flytjandi væri karl- eöa kvenkyns væri
ekki ósennilegt aö kvenfólkið hefði þar yfirhöndina.
Tvö stúlkubörn, Donna
Summer og Debbie Harry, hafa
einkum notiö mikilla vinsælda
og sú siöamefnda, söigkona
hljómsveitarinnar Blondie, hef-
ur komið öllum tveggja laga
plötum sinum á topp breska
vinsældalistans. Donna Summ-
er hefur á hinn bóginn unnið þaö
frækilega afrek aö eiga lög
númer eitt og þrjú á þeim
bandariska — og vinsældir
hennar þareru hreint ótrúlegar
þessa stundina. Raunar eru
Blondie og Donna fulltrúar
þeirra tveggja tónlistarstefna
sem eru svo að segja alls ráö-
andi á vinsældalistum I ár,
diskótónlistarinnar og ný-
bylgjurokksins.
Fjórar aðrar söngkonur hafa
lika átt mikilli og ef til vill
óvæntri velgengni aö fagna
þetta sumariö og um þær er ætl-
unin aö hafa nokkur orö. Þetta
eru þær diskópæjurnar Amii
Stewart og Anita Ward, ný-
bylgjustúlkan Lene Lovich og
blues-rokkstelpan Rickie Lee
Jones.
Tvennt eiga þessar stúlkur
sameiginlegt fyrir utan þaö aö
Lene
Lovich
vera hátt skrifaöar i poppinu
um þessar mundir, þær eru all-
ar tiltölulegaungar og þær hafa
allar gefiö út aöeins eina
LP-plötu.
Amii Stewart er vafalítiö sú
þeirrastúlknanna fjögurra sem
þekktust er hér á landi. Lag
hennar „Knock On Wood” var
löngu oröiö rumpuvinsælt hér i
diskótekum og óskalagaþáttum
þegar þaö þaut eins og byssu-
brennt upp bandarbka og
breska vinsældalistann. Þessu
lagi fylgdi Amii eftir - með lagi
The Doors, „Light My Fire”
sem nú er ofarlega á breska vin-
sældalistanum.
Anita Wardkom,sá og sigraði
eins og Iþróttafréttamenn segja
gjarnan þegar einhver slær
óvænt I gegn. Hún söng lagið
„Ring My Bell” inn á plötu i
vor og þaö rauk af staö i átt aö
toppnum og staðnæmdist ekki
fyrr en á hæsta tindinum, núm-
er eitt bæði I Bandarikjunum og
Bretlandi.
Lene Lovich nýbylgjustúlkan
i hópnum hefur undarlega
sterkan persónulegan stll og
hann fleytti henni á topp breska
listans fyrir nokkru. Lagið hét
„Lucky Number” og hún fylgdi
Amii Stewart
Rickie Lee Jones