Vísir - 28.07.1979, Qupperneq 25

Vísir - 28.07.1979, Qupperneq 25
a Laugardagur 28. júli 1979. 25 YFIR NEW YORK brennandi flakinu til aö ná hin- um meövitundarlitla dreng. „Okkur tókst aö gripa hann og velta honum upp úr snjónum til aö slökkva eldinn i fötunum,” sagöi annar þeirra siöar. „Aöur en hann missti meövitund spuröi hann, „Hvaö geröist?”” Bráöabirgðalíkhús Nokkrum klukkustundum siöar gat drengurinn sest upp i rúmi sinu á sjúkrahúsinu þar sem honum haföi veriö komiö fyrir, fótbrotnum og meö alvar- leg brunasár á brjósti, baki og handleggjum, og lýst þvi sem gerst haföi. „Ég man,” sagöi hann, „aö ég var aö horfa út um gluggann á flugvélinni á snjóinn sem þakti alla borgina. Þaö var svo fall- egt, alveg eins og mynd úr ævin- týrabók.” „Allt i einu varö ógurleg sprenging, vélin byrjaöi aö hrapa og fólkið i vélinni æpti og veinaði. Svo skall vélin á jörð- ina. Þaö er allt sem ég man, þangað til ég vaknaöi hérna. í Flatbush stræti böröust slökkviliösmenn ásamt mönn- um úr strandgæslunni og hjálparsveitum frá landher, flugher og flota, við að koma i veg fyrir aö eldurinn breiddist út og koma á einhverju skipu- lagi á slysstaðnum. Verslunum, sem skömmu áöur höföu verið iöandi af lifi og baðaöar ævin- týraljóma jólaljósanna, var breytt i bráðabirgöalikhús. Póstvagnar sem höföu veriö önnum kafnir viö aö aka út hin- um gifurlega jólapósti, voru nú látnir flytja blóðvökva á slys- staöinn. A sama tima haföi Con- stellation flugvélin falliö til jaröar á Miller velli, litlum her- flugvelli, á Staten eyju sem liggur gegnt Brooklyn handan New York flóa. Clifford Beuth var einn af sjónarvottunum. „Annar hreyflanna á hægri væng sprakk I loft upp” sagöi hann. Siðan sprakk hinn hreyfillinn og ég sá gínandi op á skrokknum.” Rómversk kaþólskur prestur á eyjunni sagöi aö hann teldi aö litlu hefði munað aö flugmann- inum hefði tekist aö nauðlenda flugvélinni eftir áreksturinn) „Mér varö litiö upp,” sagöi hann, „og sá vélina stefna I átt aö Miller velli. Hún virtist láta aö stjórn. Skyndilega varö sprenging og annar vængurinn féll af og vélin steyptist til jarð- ar.” Brakið dreiföist um allan völl- inn. Sviöinn hreyfill lá 200 metra frá undnu stélinu og hundraö metrum þaöan mátti greina samanvöölaöan flugvélarbúk- inn eins og svart ör i hvitum snjónum. Likamar höföu sést falla i is- kaldan sjóinn þegar spreng- ingin reif upp skrokk 'flugvélar- innar i aöfluginu aö Miller velli. Strandgæslan á Staten eyju sendi 21 bát til þess aö kanna hvort nokkur hefði komist lifs af. Sex manns fundust en þeir létust allir áöur en þeim varö komiö á sjúkrahús. Enginn haföi hugmynd um hve há tala látinna var oröin. Lögreglan lokaöi svæöinu um- hverfis Flatbush stræti á meöan slökkviliösmenn og hjálpar- sveitir börðust viö aö ná likum úr brennandi flaki þotunnar og leituöu fólks i logandi og löskuö- um byggingunum umhverfis. Tafir uröu viö björgunarstarf- ið, vegna forvitinna áhorfenda og kviðafullra ibúa hverfisins sem óttuöust að skyldmenni þeirra heföu farist i vítiseldun- um sem geisuöu eftir flugslysiö. Allt umhverfis slysstaöinn var snjórinn þakinn blóöi. Mörgum klukkustundum siöar kom yfir- lýsing frá lögreglumanni i lik- húsinu i Brooklyn: „Viö höfum ekki ennþá nokkra hugmynd um hversu margir hafa farist. Enn erverið aö safna saman likams- hlutum. Allt og sumt sem við getum sagt á þessu stigi málsins er aö þeir eru um eitt hundraö og af þeim hafa veriö borin kennsl á 59. Hér rlkir algjör ringulreið.” Munaði mjóu Meöal hinna látnu var talið aö væri Sir Edmund Hillary sem manna fyrstur varð til þess að stiga fæti á tind Everest, ásamt félögum sinum Desmond Doig * enskum rithöfundi og Sherpa að nafni Khumjo Chumbi. Þeir höföu veriö i Chicago þar sem þeir sýndu höfuöleöur, sem taliö var aö væri af yeti,þ.e. hinum sagnfræga „Hræöilega snjó- manni”, og höföu áætlaö aö fara til New York um morguninn. En þeir höföu ekki veriö meö vélinni. „Ég var meö farseðlana i vasanum,” sagöi Sir Edmund, „en ég haföi svo mikið aö gera aö ég komst ekki. Eini ljósi punkturinn i drung- anum sem lagðist yfir New York I kjölfar flugslyssins, var hin giftusamlega björgun drengsins litla. Meö foreldra sina sér viö hliö á sjúkrahúsinu virtist honum stööugt fara fram. „Þegar ég er oröinn friskur pabbi,” sagöi hann. „Þá vil ég aö þú farir meö mig I útilegu.” Viðræður f lugstjórnarmanna En útilegurnar hans uröu ekki fleiri. A þeim tima sem það haföi tekið hann aö brjótast út úr brennandi flakinu haföi hann andaö aö sér banvænum logum sem nærri eyðilögðu i honum lungun. Átta læknar og tólf hjúkrunar- konur lögöu nótt viö dag til aö reyna að bjarga lifi hans. En án árangurs. Tveimur sólarhring- um eftir slysiö var hann látinn. Viö andlát hans var tala lát- inna oröin 134— 128 i flugvélun- um og sex á jöröu niðri. Þaö var sex manns fleira en þegar tvær vélar, frá sama flugfélagi, rák- ust saman yfir Grand Canyon. Hvernig gat þetta hafa gerst? Harmleikurinn var rifjaður upp þegar flugmálastjórn Bandarikjanna gaf út 110 blaö- siöna upptöku af samræðum flugumferöarstjóranna á Idle- wild, La Guardia og i flug- stjórnarmiöstööinni I New York sem hafði yfirumsjón meö allri flugumferö innan 180 milna raaiuss frá borginni. Skömmu eftir að áreksturinn haföi átt sér staö kallaöi aö- flugsstjórnin á La Guardia i flugturninn. Aöflugsstjórn: Ég held viö séum I vandræöum meö Konna. Þaö er eitthvaö aö. Hann hreyf- ist alls ekki. Hann gæti hafa rekist á aöra flugvél. Flugturn: Allt i lagi. Aöflugsstjórn: Einmitt, New York, halló, New York. Idlewild: Aöflugsstjórn hér. Stéliö af DC8 þotunni iokar hér gatnamótum I Brooklyn. Nokkru aftar á myndinni má greina hluta úr öörum væng vélarinnar sem hefur stöövast á trjástofni og enn aftar brennandi fjölbýlishús. t skjóli regnhlifar iiggur Stephen Baltz aivarlega slasaöur. Fótbrot- inn og illa brenndur var hann sá eini sem komst Hfs af úr flugslys- inu. Gleöin vegna björgunar hans varöi þó skammt, þvi hann lést slöar á sjúkrahúsi af brunasárunum. Aðflugsstjórn La Guardia: Er einhver frá ykkur viö Flatbush? Idlewild: Biddu aöeins, nei ekki frá okkur. La Guardia: Viö misstum samband viö flugvél, þaö hlýtur eitthvaö aö vera aö hjá honum. Idlewiid: Biddu aöeins, þaö gæti veriö ein af okkar. La Guardia: Hvernig flugvél er þaö? Idlewild: DC 8 frá United. La Guardia: í hvaöa hæö? Okkar var i fimm (5000 fet). Idlewild: Guö minn góður, okkar var lika i fimm. Þessi hljóöritun sýndi hvernig slysiö haföi komiö flugum- feröarstjórunum fyrir sjónir, þegar deplarnir tveir á radar- skerminum runnu saman og hurfu siðan. Hver átti sökina? A meöan lögfræðingar undir- bjuggu málssóknir fyrir hönd ættingja hinna látnu og rann- sóknarnefnd flugslysa hóf störf sin gátu menn þó verið þakklát- ir fyrir aö slysiö varö ekki enn umfangsmeira. Constellationvélin haföi hrap- aö niöur á flugvöll þegar hún heföi alveg eins getaö hrapaö niöur I þéttbýlt ibúöarhverfi. Og þó svo aö DC 8 þotan heföi eyöilagt kirkju, valdiö skemmd- um á nokkrum bifreiöum og byggingum, þá var rétt aö gera sér grein fyrir þvi aö minnstu haföi munaö aö hún lenti á skólabyggingu sem I voru um 1700 börn og fjölfarinni verslunargötu. Sérfræðingar sem rannsökuöu aöflugsleiöir aö flugvöllunum viö New York fundu ekkert at- hugavert viö aöflugsútbúnaö vallanna né störf flugumferöa- stjóranna. Þeir skýröu frá þvi aö biösvæði flugvéla sem væru á leiö til lendingar á flugvellina tvo væru aöákilin af þriggja milna breiöu belti sem engin flugumferö væri um. Frum- rannsóknir bentu hinsvegar til þess aö þotan heföi villst inn á þetta svæöi. Mannleg mistök Sú varö einnig lokaniöurstaða rannsóknarinnar. Dómsúr- skuröur var kveöinn upp i júni 1962 — 18 mánuöum eftir aö slysiö hafði átt sér stað. Þá voru kröfur á hendur flugfélögunum tveimur og bandarisku rikis- stjórninni vegna vanrækslu samtals orönar yfir 8 milljaröar islenskra króna. Allri sökinni var skellt á áhöfn DC 8 þotunnar. Rannsóknin leiddi I ljós aö hún haföi látiö hjá liöa aö tilkynna um bilun i mót- tökutæki I loftsiglingabúnaðin- um og aö þegar áreksturinn átti sér staö var vélin komin 9 milur af leiö. Einnig kom í ljós aö flughraöi vélarinnar var 346 mílur á klukkustund i staö 207 sem heföi veriö eölilegur hraöi fyrir vél i 5000 feta hæö. Þannig uröu mistök örfárra manna til þess aö á meöan snjórinn féll hægt til jaröar á götum New York, þar sem gleö- in rikti manna á meöal viö jóla- innkaupin, viö undirleik jólalag- anna, aö 134 menn, konur og börn fórust og enn fleiri áttu um sárt aö binda vegna missis ættingja og vina. Slökkviliösmenn aö störfum viö brak úr DC 8 þotunni þar sem þaö liggur á viö og dreif á götu I Brookiyn. Slysiö varpaöi dökkum skugga á jólagleöi Ibúa New York.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.