Vísir - 18.08.1979, Side 16
,,NÓTTIN HEFUR ALLTAF
VERIÐ MINN DAGUR”
.____\_;_ _______
— SEGIR SKÁLPIÐ NORÐLENSKA, KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK
J^J|5JJ^^Laugardagur 18. ágúst 1979
Guð er mikill kómiker.
Þegar ég vinn, er ég til hliöar viö tilveruna.
Ég naga mig I handabökin yfir aö
hafa þrætt ánamaök upp á öngul.
Fólk gengur um meö samanbitn-
ar tennur af því það er svo hrætt
viö að missa út úr sér vingjarn-
legt orö.
er skáld og söngvari og yrkir
þessa söngva, sem ég var aö tala
um áðan. Þaösem vakti fyrirmér
meö þessu leikriti var aö skrifa
ævintýri án innrætingar og vera
ekki að predika einhverja sand-
kassaformúlu”.
Saga sálarinnar
En það er von á öðru verki frá
Kristjáni.
„Ég hef veriö í tíu ár aö fást við
hugmynd og tók mig til i vetur og
vann stanslaust að þvi i þrjá
mánuði að koma henni i endan-
legtform”, segirhann. „Égvænti
þess aö sú bók komi út i haust.
Raunar má tengja þetta verk
barnaári, þvi þetta er saga sálar-
innar. Sálin kemur utan úr
„Mér finnst þaö undarlegt að
þjóö, sem hefur undir sér allt At-
lantshafið og auk þess gott land,
skuli ekki geta lifaö. Aftur á móti
rdcur Eyþór i Lindu álika súkku-
laðiverksmiðju og þetta þjóðfélag
er af mikilli prýði. — Við þyrftum
raunar ekki nema tvo slíka karla
tii að kippa þessu öllu i lag.
Mér leiðist aUur áróður og hef
ógeö á pólitik. Finnst hún frá-
munalega óekta og fölsk og ein-
hvern veginn er eins og alþingi
þroski menn ekki mikiö. Ég er lit-
iðhrifinn af þvi að aðrir en maður
sjálfur taki ákvörðun um hvað er
manni fyrir bestu og ef guð al-
máttugur og gæti tekið tfl sin eitt-
hvað af því fólki sem heldur að
þaðgetisagtöUum fyrir verkum,
þá væri hann þarfur.
að veröa foreldri eftir aUan þenn-
an tima?
,,Þaö jafnast ekki á við neitt
sem ég hef upplifað”, segir
skáldiö frá Djúpalæk, og augun,
sem eru einkennilega lik augum
Austurlandabúa, hverfa i sam-
blandi af brosi og einhverju öðru.
Viö látum spjallinu lokið og ég
kveð og geng út i sólina. Um hana
segir Kristján” Ef það er einhver
'hlutur á tslandi sem virkilega
gleður alla menn, hlýtur það að
vera sólin”
Hann er ekki þjóðsaga, — svo
mikið er vist.
En á timum eins og nú þegar
það heyrir til undantekninga að
hitta einhvern sem þorir að vera
maöur, er Kristján frá Djúpalæk
ævintýri. — jm
Þá var ég ekki eins gáfaður og ég er núna.
■V"
VÍSIR Laugardagur
18. ágúst 1979
Frá þvi ég var barn hef ég vitaö aö þaö er til maður aö nafni Kristján sem kennir sig viö Djúpalæk.
Vinsælustu dægurlögin f útvarpinu voru viö texta eftir hann og I bókaskápnum voru Ijóöabækur meö
þessu nafni á kilinum. Siöar heyröi ég aö hann tryöi á endurholdgun og ræddi opinskátt um atvik frá
fyrri tilverustigum sem hann teldi sig muna glöggt. Skemmtilegar sögur hafa og borist að noröan
eins og þegar gömul kona kom til Kristjáns, sagöi aö forstjóri elliheimilisins ætti afmæli á næstunni
og baö hann aö gera vísu I nafni vistfólksins til aö flytja i hófinu. Og Kristján kvaö:
„Arúm saman okkar þú
ellistyrkinn hirtir
Hér viö saman söfnumst nú
sem þú ekki myrtir”
Eitt sinn kom skáldiö á vörubilastööina Stefni og baö um bil. Afgreiösiumaöurinn sagöi aö hann
fengi ekkibilnema hann geröi visu og Kristján sagöi aöbragöi:
„Vörubilastööin Stefnir
stendur polli hjá
ökuþórar illa gefnir
aka henni frá”.
Þaö er þvi meö nokkurri eftirvæntingu sem ég nálgast heimili viömælanda míns. Ég veit aö hann
er skáld og aö hann er ekki sporgöngumaöur hversdagslegra lifsviöhorfa. — En hvernig maöur
skyldi hann vera?
A sólbjörtum morgni i júli ber ég aö dyrum hjá þessum manni sem ég var nærri farin aö halda aö
væri þjóösaga.
Texti: Jónina Michaelsdóttir
Myndir: Gunnar V. Andrésson
„Hefurðu alltaf heitið Jónina?
Mér finnst þú endilega heita eitt-
hvað annað”, segir hann við mig
þegar við tökumst i hendur.
— Hvaö finnst þér ég heita?
„Ég man það ekki”.
Hann er hár og grannvaxinn og
hefur fas og limaburð ungs
manns.
Viðgöngum til stofu. Um leið og
hann kemur sér makindalega fyr-
ir i horni sófans lýsir hann van-
trausti á svona viðtöl.
„Ég er maöur höfundarréttar-
ins”, segir hann. „Svona greiner
húsbóndalaus. Það veit enginn
hvað er mitt og hvað er þitt. Ef
vel tekst til, segir fólk: ,,Ansi er
blaðamaðurinngóður að taka við-
töl” en ef það tekst miöur veröur
sagt: „Ósköp hefur hann Kristján
veriö Úla upplagður”.
(Égtel raunar að þessusé öfugt
fariðenlæt það liggja milli hluta).
Guð er komiker
„Lifið er grin”, segir Kristján
frá Djúpala*. „Og guð er mikill
kómiker”, bætir hann viö.
— Hvernig lýsir það sér aöal-
lega?
„Til dæmis með því aö búa til
fólk eins og Islendinga. Þarna
fóru skeggjaðir ruddar noröan úr
Noregi á prömmum yfir til Ir-
lands og stálu þessum fallegu
ungu stúlkum sem voru við-
kvæmar, skáldlegar og dultrúað-
ar. Þessir heimsku barbarar fóru
með þær hingað á þetta eyöisker
ogáttumeð þeim börn. Þauerföu
kergjuna og ruddaskapinn annars
vegar og tilfinningabrimiö, dul-
trúna og skáldskapargáfuna hins
Undir glerboröi I stofu skáldsins er athyglisvert steinasafn.
Mitt ffaðirvor
Ef öndvert allt þér gengur og undan halla fer, skal sókn I huga hafin og hún mun bjarga þér. Viö getum eigin ævi I óskafarveg leitt, og vaxiö hverjum vanda, sé vilja beitt.
Þar einn Ieit naktar auönir, sér annar blómaskrúö. Þaö veröur sem þú væntir. Þaö vex, sem aö er hlúö. Þú rækta rósir vona i reit þíns hjarta skalt, og búast viö þvi besta, þó blási kalt.
Þó örlög öllum væru á ókunn bókfell skráö, þaö næst úr nornahöndum sem nógu heitt er þráö. Ég endurtek i anda þrjú orö viö hvert mitt spor: Fegurö, gleöi,friöur - mitt faöirvor. K.f.D.
vegar. Þessir eiginleikar hafa
erfst gegnum kynslóöirnar og eru
þjóðareinkenni á Islendingum
enn i dag. I einni manneskju
getur þetta kostaö skelfileg átök
þvi þessir eölisþættir fara ekki
saman.
Islendingar eru engum likir.
Þaö þekkist ekki með öörum
þjóðum, að venjulegur bóndi eða
verkamaöur risi upp og skapi
listaverk, máli mynd, skrifi bók
eöa skeri i tré eins og hér er al-
gengt.
Kommúnistar og
heittrúarmenn
— Ertu hamingjusamur?
,,Já, ég er það. Mér finnst svo
skemmtilegt að lifa”.
— Alltaf fundist það?
„Nei. Sem ungur maður var ég
þunglyndarú Þaö var vegna þess
aðég var ekki eins gáfaður og ég
er nú na. Gá fa ður m a öur hlýtur aö
vera glaður þvi hann skilur
meira. Hann veit að hiö illa er
ekki endilega frá hinu illa. Menn
eru auðvitað fæddir meö misjafn-
lega góöan heila. Sálin velur sér
heila við hæfi. En menn verða
Hka gáfaöriaf að lesa góöar bæk-
ur. Það hef ég til dæmis oröið af
þvi aö lesa Einar Pálsson.
Þunglyndi fyrri ára hélst i
hendurvið þrennt: erfiði, trúleysi
og hinn undarlega ávana komm-
únista að vera alltaf eins og
hengdur upp á kross. Abyrgð og
þjáning hvildi svo þungt á þeim.
Það var sami alvörustrekkingur
hjá kommúnistum eins og er hjá
heittrú arm önnum ”.
— Er ekki skyldleiki með
þeim?
„Viö megum ekki blanda sam-
an heimspeki þýskra gyðinga og
tilfinninganæmi gáfaöra alþýöu-
manna á Islandi, einsog Tryggva
Emilssonar. Það var llfsnauösyn-
legt á kreppuárunum að berjast
fyrir mannsæmandi launum og
það sem sprettur upp úr slikri
baráttu á ekkert skylt viö
trúarbragöasérviskugyðinga úti I
heimi.
Ég er fæddur kommúnisti en of-
trú á ákveöið pólitiskt kerfi lam-
aöi gáfur mlnarlengi vel. Slik trú
irengir og lokar öllum teiðum til
ekari skilnings og þvl hlýtur
frelsi undan oki sllkra ákveðinna
skoöana að leiða til hamingju.
Þegar ég gekk. úr stjórnmála-
samtökum á sinum tima kostaði
þaö vinslit, — en ég varð frjáls”.
Skólakerfið er andlegt
álag
— Hvað finnst þér mikilvæg^
ast?
„Aö vera glaður og stlga ekki
ofan á lifandi llf. Ég naga mig 1
handabökin yfir þvi að hafa þrætt
ánamaök upp á öngul. Mér finnst
erfiðara að sætta mig við það eftir
þvl sem ég verð eldri.
Þaö er likn ellinnar aö veröa
næmari fyrir tfllu og njóta smá-
atriðanna. Jafnvel eyrað verður
næmara fyrir tónlist og hjartaö
kannski ofurlltið viðkvæmara”.
— Er þetta ekki svipaö og mað-
ur skynjar veröldina á bernsku-
árum?
„Jú, llklega. Börn eru ákaflega
tilfinninganæm og opin en þjóðfé
lagið kælir þau og mótar þau I
einhvernbeinserk sem þau ganga
i fram á gamals aldur. Skólakerf-
ið er andlegt álag. Það er undir-
búningur undir baráttu um verð-
lausar krónur og fánýta hluti,
eins og þá sem við tyllum I kring-
um okkur. Fólk vinnur svo mikið
að það hefur ekki tíma til að lifa,
sjá og heyra.
Þetta er ein ástæðan fyrir þvi,
að Islendingar drekka meira og
verr en aðrir menn. Þeir hafa
ekki tima til aö verma glösin, þeir
eru að flýta sér svo mikiö”.
Nóttin er minn dagur
— Hvenær sólarhringsins
finnst þér best að vinna?
„Nóttin hefur alltaf veriö minn
dagur. Þá er kyrrðin svo mikil.
Þó truflar það mig ekki að hafa
umgang því ég heyri ekki eftir að
ég er byr jaður að vinna. — Þá er
ég til hliðar við tilveruna.
Annars er allt I einu að vakna
skilningur á þvl, að listamenn
þurfi að lifa, — það linnst mér af-
ar merkilegt. Þessi starfsstyrkur
sem menn fá gefur þeim ákveðið
sjálfstraust og réttiætir þá goðgá
að fullorönir menn sitji og skrifi
eða vinni að annarri listgrein.
Það hefur þótt eitthvað skrýtið
við þann mann sem er ekki aö
selja eitthvaö, gera við bil eða
veiða fisk.
I vetur vannst mér vel. Tii
dæmis skrifaði ég ævintýri fyrir
börn sem verður flutt i barnatima
útvarpsins I ágúst. Það er með
söngvum. Leikkonan sem var svo
eiskuleg að lesa þetta fyrir mig
varð svo „inspireruð” af ljóöun-
um að hún samdi lög viö þau.
Þetta er merkilegt. List kemur
einhvern veginn að mannsheilan-
um eins og segulbandi. Einhverj-
ir ósýnilegir englar eru að syngja
sér til gamans og vita ekkert af
þvi að það lendir á segulbandi i
einhverjum mannsheila.
Þetta ævintýr er um hagamýs,
sem mér þykja ákaflega falleg og
skemmtileg dýr. Ég hef reynt að
lita eftir þeim og hef tekið eftir að
þær eru ákaflega músikalskar,
eins ogmeirihlutinn af dýrum er.
Mér finnst það reyndar einnig
einkenni á góöu fólki að það er
músikalskt.
Músin, sem leikritið snýst um
geimnum og sest aö I fræi I
móðurskauti, þar sem hún byr jar
aöverða fyriráhrifum sem halda
áfram eftir að barnið fæðist. Bók-
in er með skírskotun til eigin
reynslu og nær til fimm ára ald-
urs. Ég vil raunar segja, að hún
sé til varnar sálinni”.
— Er þetta ljóð?
„Þetta er ljóðrasnn texti, að
mestu leyti stuölaður. Þetta verk
er óllkt öllu öðru sem ég hef gert
og þvi sem allir aðrir hafa gert
llka, — vona ég”.
Listamenn eru
öðruvisi.
— Hvernig liður þér þegar verk
þln eru orðin aimenningseign og
þú heyrir aðra segja eða syngja
þaö sem þú hefur hugsað?
„Mérfinnst ánægjulegt að geta
lagt mönnum orðá tungu. Stund-
um hefur mér tekist aö yrkja
þannig, aðþaö hefur orðiö fólki til
gagns I andstreymi og það er á-
kaflega góð tilfinning”.
— Eru listamenn frábrugönir
ööru fólki?
„Já, listamenn eru öðruvisi.
Allar sveiflur virka sterkar á þá
en aöra menn og taugakerfiö er
næmara. Ég er að eðlisfari opin-
skár og einlægur og mér finnst
alltof mikið af fólki sem gengur
um frosið með samanbitnar tenn-
ur af þvi það er svo hrætt um að
missa út úr sér vingjarnlegt orö.
Það erumargir menn á tslandi
sem eru listamenn I eöli sinu, en
hafa ekki tjáningarform. Þaö er
eins og segir I ljóöi eftir Stefán frá
Hvítadal.
Eru kaldsár örlög þln,
eru að vlsu llka mln,
aö hljóta bæði heyrn og sýn
hjartarlm, en vanta máliö.
Þetta eru skelfileg örlög og
sltkir menn verða drykkjumenn”.
Alþingi þroskar menn
ekki mikið
— Hvaö finnst þér um lands-
málin?
Boð
Aðan lagöi
ókunn hönd
laufblaö fölnaö
í lófa minn
Boð hvers, ég spuröi
berð þú mér?
Samvisku þinnar,
var svarið.
K.f.D.
Hins vegar held ég að menn
eins og Svarthöföi og FIosi Ólafs-
son geri þjóöinni mikið gagn.
Mest fyrir hvað þeir eru
skemmtilegir”.
Kærleikur besta upp-
eldisaðferðin
— Mér er sagt, að þiö hjónin
hafið eignast son eftir margra ára
hjónaband sem sé afburöa náms-
maður. Taki hér hæstu próf sem
hafa verið tekin.
„Þaö er rétt. Hann er alinn upp
með fólki sem kann að tala, þvi
hér kemur mikiö af fólki sem er
auðugtaf andlegum verömætum.
Enhannerauk þessmjög dugleg-
ur, enda nær enginn árangri án
fyrirhafnar.
Viö hjónin eignuöumst þennan
dreng, sem nú er orðinn tvitugur
maöur, eftir tuttugu og þriggja
ára bið. Viö trúum þvi bæði, að
fóstur verði fyrir verulegum á-
hrifum þegar I móðurllfi, og það
skipti máli hvernig hugsanir og
liöan móður eru yfir meðgöngu-
timann. Fóstriö þarf umönnun
með góðum hugsunum og óskum
ekki slður en barniö eftir að það
er fætt. Sonur okkar hefur orðið
allt það sem við óskuðum okkur.
Hann er frjáls i hugsun og honum
hefuraldrei viljandi verið innrætt
neitt. Ég held að kærleikur sé
besta uppeldisaðferöin og ég tel
aö þessidrengur hafistaðið af sér
ótrúlega sterk innrætingaröfl I
samfélaginu”.
— Var ekki stórkostleg reynsla