Vísir - 18.08.1979, Page 19
19
VÍSIR
Laugardagur 18. ágúst 1979
hLjómplcxta vikimnai
Kristján Róbert
Kristjánsson
skrifar:
Silent letter
America
1 lok sIBasta áratugs komu
fram hljómsveitir oglistamenn,
sem notuBu kassagitarinn sem
aöalhljóðfæri. Frægastir þeirra
voru Crosby, Stills,, Nash &
Young og America.
ÞaB voru þrir ungir banda-
riskir piltar, sem komu saman i
Englandi áriö 1969 og kölluðu
sig America.
Þessir piltar voru Gerry
Buckley, Deway Bunnell og Dan
Peek. Þeir störfuöu saman i tæp
þrjú ár án þess aö vekja veru-
legaeftirtekt. Þeir gáfu Ut sina
fyrstu LP-plötu áriö 1971, sem
hét einfaldlega „America”.
En þaö var ekki fyrr en i byr j-
un 1972, aö þeir fengu uppreisn
æru, er lag af plötu þeirra frá
fyrra ári sló i gegn og varð met-
sölulag af plötu þeirra beggja
vegna Atlantshafsins. Þaö lag
var ,,A HorseWith No Name”,
sem er mjög i anda Neil Young.
Gagnrýnendur voru óvægir og
héldu þvi fram aö þeir væru i
einu og öllu aö stæla CSNY.
Þrátt fyrir aíít mótíæti, heldu
þeir ótrauðir áfram og geröu
góöar plötur.
A þriðju plötu þeirra fengu
þeir sér til aðstoðar upptöku-
stjórann, George Martin, sem
einnig er frábær Utsetjari.
Martin haföi m.a. unnið með
The Beatles á meðan þeir störf-
uðu. Hann kynnti America fyrir
ýmsu nýju og þeim likaði vel
hvað hann hafði fram að færa.
Enn í dag starfar hann með
þeim.
Fyrir um það bil tveimur ár-
um sendu þeir frá sér saman-
safnsplötuna „America’s
Greatest Hits” sem inniheldur
hit-lög eins og „Ventura High-
way”, Muskrat Love”, „Tin
Man”, „Sister Golden Hair” svo
og þeirra fyrsta „A Horse With
No Name".
Þar næst gáfu þeir Ut hljóm-
leikaplötu og stuttu siðar sagði
Dan Peek skilið við America.
NU eru þeir tveir saman,
Gerry Beckley og Deway Bunn-
ell sem Ameriea, ásamt aðstoð-
arhljómsveit. Þeir hafa nýlega
sent frá sér plötusem ber heitið
„Silent Letter”. Þessi plata er
þeirra besta siðan „America”,
fyrsta platan, og sýnir það aö
þeir Beckley og Bunnell geta vel
verið án Dan Peek.
Eins og áður kom fram
stjórnar George Martin uRitöku
og sér um allar útsetningar og
er þáttur hans á plötunni frá-
bær.
Platan hefst á laginu „Only
game in town” kraftmikið lag
og magnað, sem jafnframt er
eina lagið sem þeir semja ekki
sjálfir. önnur lög plötunnar eru
„typisk” America-lög i hæsta
gæöaflokki.
Gullfalleglögeins og „All My
Life”, „High in the City” og
„All Around” auka gildi plöt-
unnar.
„Foolin’” sem er eftir Beck-
ley og einn af Fataar bræðrun-
um, en Ricky Fataar var i
Beach Boys, er létt og skemmti-
legt lag, sem fellur sérstaklega
vel inn I stemmingu plötunnar.
Annars er varla hægt að finna
þar veikan punkt.
Hljóðfæraleikur hefur aldrei
verið betri en nú hjá þeim félög-
um og komast þeir Wiilie
Leacox trommuleikari og David
Dickey bassaleikari frábærlega
frá sinu samstxrfi. Og með
menn i sama gæðaflokki og
þessa sér til aðstoðar, þarf
hljómsveitin America ekki að
kviða framtiðinni'
—KRK.
eldhúsiö
Umsjón:
Þórunn 1.
Jónatans-
dóttir
Austur-
risk
nauta-
steik
Nautasmásteik er
ljúffengur og fljótlegur
réttur borinn fram með
laussoðnum hrisgrjón-
um og hrásalati t.d.
agúrkusalati með epl-
um.
Uppskriftin er fyrir 4.
500 gr. nautafille, eða annar
meyr vöðvi
Matarolia eða smjörliki
1 laukur
1 rauð paprika
1 græn paprika
salt
pipar
paprikuduft
4 tómatar
Skerið kjötið i fremur stóra
teninga. Hitið mataroliu eða
smjörliki á pönnu ásamt kjöt-
inu. Hreinsið paprikuna, skerið i
strimla og setjið saman við
kjötið. Kryddið með salti, pipar
og papriku,.Leggið"Tok á ponn-
una og látið kráuma þar til kjöt-
ið er orðiö meyrt.
* Fláið tómatana þannig aö þið
bregðiö þeim augnablik I sjóð-
andi vatn, við það losnar hýöið
auðveldlega. Látið tómatana
krauma með i nokkrar minútur.
AGÚRKUSALAT
MEÐ EPLUM
Salat:
1 gúrka
salt
1/2 salathöfuð
2 epli
Kryddlögur:
2 dl edik
1 dl vatn
3/4 dl sykur
pipar
Skolið agúrkuna og skerið !
þunnar sneiðar t.d. með osta-
skera og leggið i skál. Stráið
salti yfir og látið liggja um
stund. Hreinsið salatið og rifið
það niður i skálina. Skerið eplið
i þunna báta og blandið öllu
saman.
Hrærið eða hristið saman
edik, vatn, s'ykur og pipa'r þar til
sykurinn er bráönaður,. Blandið
kryddleginum saman við salat-1
ið. Skreytið með klipptri stein-
selju.