Vísir - 04.10.1979, Side 5
Carrington lávarður, utanrikis-
ráðherra Breta, setti i gær skæru-
liðum þjóðernissinna blökku-
manna Ródesíu úrslitakosti á
ráðstefnunni um Ródesiumálið,
er staðið hefur yfir i London að
undanförnu.
Lagði hann fram drög að
stjórnarskrá fyrir Zimbabve-
■ Lokuöu móöurina ■
S inni í 24 ár !
79 ára gömul kona, sem
var' fangi eiginmanns sins
og dóttur i 24 ár, innilokuð i
skitugri ibúð i Alsirborg, er
nú laus úr prisundinni.
Komið var að konunni
hálfnakinni, útataðri i saur,
i ibúöinni, sem full var af
rotnandi úrgangi, en ná-
grannarnir höföu kvartað
undan ólyktinni.
Hjónin voru frönsk og lá
engin skýring fyrir á þvi,
hversvegna maðurinn, 78
ára, og dóttirin, 52 ára,
höfðu hagað sér svona.
Rétlarhöld yflr
andðfsmönnum
Eftir margra mánaða frestanir
virðast yfirvöld Tékkóslóvakiu
hafa ákveðið að halda áfram rétt-
arhöldum yfir tiu andófsmönnum
mannréttindabaráttunnar/ sem
handteknir voru i mai fyrir hinar
og þessar sakir.
Meðal þessara tiu er hið kunna
leikritaskáld, Yaclav Havel, sem
nýtur mikils álits erlendis, en
verk hans eru bönnuð i Tékkó-
slóvakiu. — Tveir eru úr hópi
þeirra, sem stóðu að „Charter
77”-mannréttindahreyfingunni.
A alla tiu hafa verið bornar
sakir, sem geta varðað allt að tiu
ára fangelsi.
Stunglö upp á Carter
tll Nóbeisiauna
Jakob Sverdrup, for-'
stöðumaður norsku Nóbels-
stofnunarinnar, skýrir frá
þvi, að stungið hafi verið
upp á 56 mönnum til friðar-
verðlauna Nóbels, en þau
verða kunngerð 17. október
næsta.
Meðal þeirra er Jimmy
Carter, Bandarikjaforseti,
fyrir sinn þátt i þvi að
koma á friðarsamningum
milli Egypta og Israela.
Nú bjóðum við fjölbreytt úrval af gólfdúk- Byggingavörudeila
um frá DOMCO á ótrúlega hagstæðu verði.
Einnig fjöldi annarra gólfdúka. Otal litir og
munstur — margir verðflokkar.
Simi 10600
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Jóhannes Páll páfi kom i gær til
Filadelfiu, vöggu sjálfstæðis
Bandarikjanna, og varaði Banda-
rikjamenn við þvi, að þeir mættu
ekki misnota frelsi sitt til ósiðlegs
lifernis.
Hann tók af allan vafa um það,
að hann fylgir hinni gömlu hefð
rómversk-kaþólskra um einlifi
presta, og fordæmdi allar til-
hneigingar til þess að hagga við
afstöðu kristinnar kirkju til kyn-
lifsins, en þær hefðu það allar
sameiginlegt að innleiða frelsi,
sem réttlætti hvaða hegðun, sem
vera skyldi.
Páfinn brýndi og fyrir prestum
að þeir hefðu unnið kirkjunni eiða
um að þjóna henni til æviloka og
gætu ekki hætt prestsskap. Vitað
er, að páfi hefur stöðvað um 1.000
kaþólska presta, sem snúist hefur
hugur og viljað losna frá prest-
skap og einlifinu. Sagt er, að páfi
hafi i huga að setja nýjar reglur
jafnvel enn strangari en þær, sem
Páll VI páfi setti, um möguleika
presta til þess að snúa aftur til
venjulegs lifs.
Heimlla metsölu
á kornl tll Sov-
étríkjanna
RódesíuráDsiefnunnl
FUCllS
Bandarikjastjórn tilkynnti, að
heimiluð hefði verið metsala á
kornmat til Sovétrikjanna á
næstu tólf mánuðum.
Landbúnaðarráðuneytið gerði
kunnugt, að Rússar mættu kaupa
allt að 25 milljón smálestir af
hveiti og mais.
A fundi með fréttamönnum var
sagt, að leyfið hefði veriö sam-
þykkt fyrir þessari sölu, vegna
metkornuppskeru í Bandarikjun-
um á þessu ári og kornvöruskorts
i Sovétrikjunum.
í fyrra seldu Bandarfkjamenn
Rússum 15 milljón smálestir af
kornvöru og er það mesta árssala
hingað til.
Veður i sumar spillti mjög upp-
skeru Sovétmanna og er talið, að
kornframleiðsla þeirra hafi fallið
úr 237 milljón smálestum 1978
(sem var metár) niður i 180 mill-
jón smálestir þetta árið.
Ekki var búist við þvi, að þessi
sala hafi áhrif á verölag á hveiti,
eins og gerðist i fyrra.
Páfinn aftekur með öllu að leysa
presta undan einlifisheitinu og
varar fólk við að hagga afstöðu
kaþólsku kirkjunnar til
kynlifsins.
Ródesiu, og veitti fulltrúum ráð-
stefnunnar 5 daga frest til þess að
fallast á hana. Ef þeir hafna
henni, „held ég ekki, að hægt sé
að halda þessu áfram” sagði
utanrikisráðherrann.
Tillögur Breta hafa flestar áður
verið samþykktar af Abel
Muzorewa, biskupi og forsætis-
ráðherra Salisbury-stjórnar-
innar, en hafa hinsvegar að
geyma mörg atriði, sem leiðtogar
skæruliðahreyfinganna hafa
hafnað á þeim tæpa mánuði sem
ráðstefnan hefur staðið.
sæmdur orðu
Klaus Fuchs, njósnarinn
breski, sem sveik kjarn-
orkuleyndarmál i hendur
Sovétmönnum, var um
mánaöamótin sæmdur
æðstu orðu Austur-Þýska-
lands. Karl Marxoröunni.
Dr. Fuchs hefur dvaliö i
A-þýskalandi siðan hann
fór frá Bretlandi 1959.
Hann fékk orðuna fyrir
„störf I þágu verkalýðs-
hreyfingarinnar”, eins og
ADN-fréttastofan skýröifrá
þvi, en hann hefur starfað
að kjarnorkurannsóknum I
A-Þýskalandi, þartil hann
fór á eftirlaun fyrr á þessu
ári.
Hann var dæmdur 1949
fyrir njósnir i þágu Rússa i
14 ára fangelsi og afplánaöi
9 ár.
Páfinn gallharður
á elnlífi presta
Dregur tll úrsllta á