Vísir - 04.10.1979, Qupperneq 23

Vísir - 04.10.1979, Qupperneq 23
VtSZR Fimmtudagur 4. október 1979 Umsjón: Halidór ^Reynisson Þeir GuOni Rúnar Agnarsson og Asmundur Jónsson hafa nú veriö meö Afanga stanslaust i fimm ár og er engan bilbug á þeim aö finna. Utvaro kl. 22.50: FENGUR í JFÖNGUM Þeir félagar Guöni Rúnar Agnarsson og Ásmundur Jónsson bæta enn einum „Afanganum” i safnið i kvöld, en þáttur þeirra er með lifseigara efni i útvarpinu og hefur verið þar stanslaust á dag- skrá siðan 1974. Þessir þættir hafa oft verið hvalreki á fjörur tónlistaráhuga- manna og þá ekki sist vegna þess hvað viða þeir félagar hafa komiö við i tónlistarkynningu sinni, eða allt frá indverskri trúartónlist og yfir I klassik. „Afangar” hefjast kl. 22.50 i kvöld og vonandi fá tónlistar- áhugamenn þar einhvern feitan bitann eins og svo oft áður. Flmmtudagslelkrltlð kl. 21.30: Það er erfitt að vera hvítur sauður! „Hviti sauðurinn I f jölskyldunni! ’ nefnist fimmtudags leikritið sem flutt verður i kvöld en það er eftir L.du Garde Peach og Ian Hay. Fjallar það á gamansaman hátt um fjölskyldu sem gert hefur gimsteinaþjófanö að sérgrein sinni. Sonurinn Pétur vill hætta þessari vafasömu iðju og fá sér „heiðarlega atvinnu”. En þaö er margt sem þarf að taka tillit til, ekki sist þegar maður er oröinn skotinn I fallegri stúlku... býöandi þessar leikrits er Hjörtur Halldórsson né leikstjóri GIsli Halldórsson. 011 eru hlut- verkin i höndum leikfélaga i leik- félagi Sauöárkróks og er þaö ánægjuleg tilbreytinga að fá einstöku sinnum að heyra i leikurum utan af landi. Með helst hlutverk fara Kristján Skarphéöinsson, Jóhanna Björnsdóttir, Arnfriöur Arnadóttir, Haukur Þorsteinsson og Hafsteinn Hannesson. —HR. Otvaro ki. 21.10: Vafasamar sögur úr réttum „Ég ætla að draga upp svip- myndir úr göngum og réttum og reyna að lýsa þvi andrúmslofti sem rikir I smalaskálunum” sagði Guðlaugur Tryggvi Karls- son hagfræðingur en i kvöld kl. 21.10 verður hann með þátt sem nefnist Úr göngum og réttum I haust. Guðlaugur sagöist hafa farið inn að Landmannalaugum s.l. laugardag og á móti leitarmönn- um sem þá voru komnir i Jökul- gil. Hafi hann siðan fylgst meö þeim alveg niður I Landrétt og hefði hann náð á segulband þeirri stemmingu sem rikti i rekstrin- um og væri þar m.a. mikill söng- ur og veisluglaumur, en venju- lega væru haidnar veislur á þeim bæjum sem reksturinn færi fram- hjá. „Svo er ein vafasöm saga sem ég náði I einum skálanum og lýsir hún vel þvl andrúmslofti sem rik- ir þar þegar karlmenn, ungir sem aldnir koma saman” sagöi Guð- laugur Tryggvi og tók aö siöustu fram að einnig læsi hann smá- texta úr Innansveitarkróniku Laxness, er lýsti vel samskiptum manna og málleysingja. —HH ® ftEM’ ' Wr ^ Reksturinn kemur I réttir: t kvöld fáum viö aö heyra vafasamar sögur úr réttunum I þætti Guölaugs Tryggva Karlssonar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan. 16.20 Tónleikar. 17.05 Atriöi úr morgunpósti endurtekin. 17.20 Lagiö mitt. Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. 19.35 Daglegt mál. Arni Böðvarsson flytur þáttinn. 19.40 tslenskir einsöngvarar og kórar syngja. 20.00 Maöur og náttúra: Um hvali og hvalveiöar. Evert Ingólfsson tók saman þáttinn. Lesari: Anna Einarsdóttir. 20.30 Frá tónlistarhátiö i Björgvin I vor. Norski pianósnillingurinn Robert Riefling leikur tvær sónötur eftir Beethoven i E-dúr op. 109 og dúr op. 110. 21.10 Ur göngum og réttum i haust. Guölaugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur bregður upp nokkrum svip- myndum úr leitum og rétt- um landsmanna. 21.30 Leikrit Leikfélags Sauðárkróks: „Hviti sauö- urinn i fjölskyldunni” eftir L. du Garde Peach og Ian Hay Þýðandi: Hjörtur Halldórsson. Leikstjóri: Gisli Halldórsson. Persónur ogleikendur: JakobWinter / Kristján Skarphéðinsson. Petrina Winter / Jóhanna Björnsdóttir. Engilfna / Arnfriöur Arnardóttir. Séra Black / Haukur Þorsteins- son. Samúel Jackson / Haf- steinn Hannesson. Alisa Winter / Helga Hannesdótt- ir. Pétur Winter / Erling öm Pétursson. Jón Preston / Jón Ormar Ormsson. Stjana / Kristin Dröfn Arnadóttir. 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. 22.50 Afangar. Umsjónar- menn: Asmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. Nlagnús er óspilltur lll sðiarinnar og hlarlans Magnús Magnússon ráöherra úr Eyjum er furöu óspilltur til sálarinnar og sýnist jafnvel vera einn um þaö I núverandi rikisstjórn, sem svo er enn nefnd af formsástæöum og ekki er á annarra færi en lög- fræöinga aö útskýra. Þaö er blessun að hafa svona menn á ráðherrastóli. Barnsleg ein- lægni hans veröur oft og einatt til þess aö þjóöin finnur hinn eiginlega þef af pólitiskum hræringi rikisstjórnarflokk- anna. t uppákomur og yfirlýsingar annarra ráöherra veröur aö ráða eins og sá gamli góöi lög- reglustjóri Napóleons, Fouché, væri á pólitiskri gandreiö I stjórnarráöi lslands. A bak viö allt sem sagt er eru aðrar og dýpri meiningar en ráöa má meö einföldum textaskýringum, jafnvel þótt norrænufræðingar væru fengnir til pólitiskrar textarýni. Hegöan Magnúsar Magnús- sonar er á annan veg farið. Hiö stóra barnslega hjarta hans stendur þjóöinni opiö. Þar er engu haldiö leyndu, ekki einu sinni óttanum viö aö missa ráðherrastólinn. Hinir karl- manniegri ráöherrar reyna á hinn bóginn aö ieyna slikum til- finningum og tala þá fremur þvert um hug sér en afhjúpa hinar viökvæmu taugar er taka völdin fram yfir prinsippin. Magnús Magnússon hefur siö- ustu daga i mikilli ákefö opnaö það leyndarhólf hjarta sins, er hefur aö geyma hina viökvæmu strengi til valda og viröingar, leyndarhólf, sem allir eiga en flestum tekst aö hafa meö sjálf- um sér. Ráðherrann keppist viö aö skýra þjóöinni frá öllum frumvörpunum, sem hann hyggst leggja fram á fyrstu dögum þingsins og gefur meö þvi I skyn aö trú hans á langdvöl I musterinu, sem Jónas reisti utan um æðstu stjórn landsins, sé brostin. Venja er aö ráöherrar biöa með frumvörp sin til þings og ganga lengst meö þvi að gefa til kynna aö þeir hafi eitt og annaö i pokahorninu. Þegar spurt er um efnisatriöi sveipa þeir sig huliðshjúpoggerasig gilda meö þvi aö segja mönnum aö biöa framsöguræöunnar á Alþingi. En Magnús Magnússon er nú orðinn svo hræddur um ráöherralif sitt að hann óttast ekki annaö meir en eftirmaöur hans veröi sestur i stólinn áöur en honum tekst aö leggja frum- vörpin, sem nú liggja í drögum á skrifborðunum f ráöuneyti hans, fyrir Alþingi. Suma af þessum pappírum hiaut hann sjálfur i arf frá Gunnari Thoroddsen og má nú ekki til þess hugsa aö þingleiðtogi stjórnarandstööunnar taki viö þcim aftur meö ábótum. t barnslegri einlægni sinni keppist Magnús Magnússon þvi viö aö halda blaöamannafundi nú dagana fyrir þingsetningu til þess aö kynna þau frumvörp sem útlit er fyrir aö lögð veröi fyrir þingiö af hálfu hans ráöu- neyta. Þennan hreinleika sálar- innar veröur aö meta viö ráöherrann úr Eyjum, sem Vil- mundur skaut af simstööinni beint upp i ráöherrastói. En þessi tæra sálarlega einfeldni vísar á angan af viöbrenndum pólitiskum graut. Ýmsir af þingmönnum Al- þýöuflokksins eru I ofanálag farnir aö gefa út yfirlýsingar um nýja úrslitakosti, aö þeir veröi farnir úr rikisstjórninni innan tveggja vikna, ef...! Þess- ir úrslitakostir voru mönnum mánaöarlegt tilefni aöhláturs allt þingið I fyrra og svo viröist sem hinn vasklegi ungi þing- flokkur lýöræðissinna öra jafnaöarmanna ætli ekki aö taka þessa skemmtun frá þjóö- inni á þvi þingi, er senn hefst. Vel fer á þvi. Svarthöföi

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.