Vísir - 16.11.1979, Blaðsíða 1
Mikiar óspektir unglinga í Breiðhoiti:
Hindruðu umlerð 09
réðusi ð Iðgreglu
Stór hópur barna og unglinga hafði uppi miklar
óspektir við Norðurfeli í Breiðholtshverf i í gærkvöldi.
Hópurinn hindraði bilaumferð, réðst á lögreglulið með
snjókasti ög braut rúður í lögreglubíl og strætisvagni.
Tilkynnt var til lögreglunnar
um klukkan hálf tiu i gærkvöldi,
a& búiö væri aö hlaöa upp snjó,
þar sem akbraut er þrengd viö
Noröurfell. Þegar lögreglan
kom á staöinn, biöu þar margir
bilar, er ekki komust leiöar
sinnar vegna þessara hindrana.
Lögreglan kallaöi til snjó-
ruöningsmenn borgarinnar.
Þegar fariö var aö ryöja
götuna, réöst hópurinn aö lög-
reglu og ruöningsmönnum meö
snjókúlnaskothriö og reyndi aö
hindra moksturinn. Lögreglu-
maöur fékk glerharöan snjó-
bolta i annaö augaö og varö að
flytja hann á slysadeild.
Þrátt fyrir þetta tókst aö opna
götuna fyrir umferö á nýjan
leik, en sú dýrð stóö ekki lengi,
þvi aö enn létu unglingarnir til
skarar skriða. Þótt mikiö lög-,
regluliö væri komiö á staðinn,
neituðu snjóruöningsmenn aö
koma aftur á vettvang meö tæki
sin, þar sem mikil slysahætta
skapaðist aö vinna viö ruöning
inni i krakkagerinu. Haföi þá
veriö ráöist að strætisvegni meö
snjóboltaskothriö og rúöa brotin
- i honum, auk þess sem rúöa var
brotin i lögreglubfl á sama hátt. -
Lögreglan tók hóp af ung-
lingum i sina vörslu og voru þeir
flestir 14 til 15 ára gamlir. Eftir-
litsmaður Strætisvagnanna,
sem Visir ræddi viö i morgun
sagöi að varla væri farandi um
þennan stað meö vagna, ef ein-
hver snjór væri, vegna óláta
barna og unglinga. 1 gærdag
höfðu farþegar, er fóru úr
vögnunum á þessum staö. mætt
höröum árásum frá börnum,
sem voru i snjókasti og að
sinum dómi væri þaö spursmál,
hvort hægt væri aö halda áfram
ferðum þarna nema foreldrar
gripu i taumana.
—SG
Ráöist var aö strætisvagni og rúöa brotin i vagninum og einnig i lögreglubil.
(Visism GVA)
Ástandiö eöiiiegt
f M.H. í dag:
voru mðt-
mælin vegna
misskilnings?
/,Kennsla er í fullum
gangi og ástandið er full-
komlega eðlilegt. Það urðu
smáinnanhúsárekstrar í
gær og ég sé enga ástæðu
til að skrifa langar blaða-
greinar um þetta"/ sagði
Heimir Pálsson konrektor í
Menntaskólanum við
Hamrahlið. Kennsla féll
niður í nokkra tíma i gær-
dag vegna mótmælaað-
gerða nemenda.
Að sögn Heimis voru nemendur
aö mótmæia reglum um viövist-
arskyldu. Kennarafundur felldi i
gær tillögur um breytingar á
reglunum, eins konar málamiöl-
un nemenda og kennara. Nem-
endur fréttu um úrslit kennara-
fundarins og fóru þá i setuverk-
fall í mótmælaskyni.
„Viö héldum fund meö nem-
endum í gær og fór vel á meö okk-
ur og var ákveöiö aö halda áfram
fundarhöldum bæði þessa önn og
næstu”.
— En hvers vegna þessi óá-
nægja nemenda. Eru reglurnar
strangar?
„Ekki fæ ég séö þaö. Þær eru
alla vega ekki strangari en mæt-
ingareglur á almennum vinnu-
stööum. Viö veröum náttúrulega
aö halda uppi vissum aga.
Ég held satt aö segja að óá-
nægjan stafi aöallega af misskiln-
ingi.”
^ATA.
Sklpveriar á Grundfirðingi III viðbragðsstöðu:
Lögreglan tilbúin
aö stökkva um borð
//Það er allt óbreytt. Lögreglan á vakt á bryggj-
unni og áhöfnin i bátnum tilbúin í róður/ um leið
og lögreglan líturaf þeim"/ sagði Páll Cecilsson/
verkstjóri í Fiskverkun Soffaníasar Cecilssonar
á Grundarfirði við Vísi í morgun.
Eins og fram hefur komiö i
VIsi, var Grundfirðingur II
stöövaöur meö sýslumannsvaldi
fyrr i þessari viku, er hann var
aö leggja frá landi til hörpudisk-
veiða í Breiöafiröi.
Soffanias Cecilsson sagöi viö
Vísi i gær, aö lögreglan heföi
skipun um aö stökkva I bátinn
um leið og landfestar yröu
leystar.
„Lögreglan sagöi, að þaö væri
mannrán, ef fariö yröi meö þá
út. En það er ekki rétt, efþeir.
koma meö friviljugir. Það á
bara aö skrá þá á bátinn”.
— KS
Lögregian á Grundarfirði á
bryggjunni, albúin til að
stökkva um borð i Grundfirðing
II, um leið og iandlestar verða
leystar. Visismynd Bæring
Ceciisson.