Vísir - 16.11.1979, Blaðsíða 16
VÍSIR
Föstudagur 16. nóvember 1979
Umsjón:
Katrin Páls-
dóttir
„Söngvar Sigfúsar verða ekki
skilgreindir, aðeins lifaðir”.
Lögin
hans Slg-
fúsar
- á LjóDakvöldi Tón-
llstarfélagslns
„Hver hefur ekki fundiö hjá sér
þörf aö taka undir með Sigfúsi
Halldórssyni og syngja með hon-
uin söngva hans og fundið þar
fagurt samspii tilfinninga og tón-
unar þeirra. Sigfús syngur okkur
söngva sina og við stöldrum við,
hlýðum á um stund og tökum sið-
an undir fullum hálsi, þvi söngv-
ar hans eru slegnir þeim galdri,
er ekki verður skilgreindur, að-
eins lifaður, galdri er aðeins góð
tónskáld hafa á vaidi sinu".
Þetta segir Jón Asgeirsson tón-
skáld um Sigfús Halldórsson, en
lögin hans hljóma i Austurbæjar-
biói á morgun á Ljóðatónleikum
Tónlistarfélagsins. Tónleikarnir
hefjast klukkan 14.30.
A tónleikunum koma margir
okkar bestu einsöngvarar fram,
t.d. ölöf Harðardóttir, Anna Júlia
Sveinsdóttir, Ingveldur Hjalte-
sted, Sigurveig Hjaltested, Snæ-
björg Snæbjarnardóttir, Guð-
mundur Guðjónsson, Kristinn
Hallsson og Garðar Cortes.
A efnisskránni eru eingöngu
lögin hans Sigfúsar við ljóð eftir
t.d. Tómas Guðmundsson, Sigurð
Einarsson, Davið Stefánsson, Vil-
hjálm frá Skáholti, örn Arnar-
son og Sigurð frá Arnarholti.
Þá syngur Ólöf Harðardóttir
lag Sigfúsar við ljóð Indriða G.
Þorsteinssonar, Vegir liggja til
allra átta, sem nú hefur slegið
enn einu sinni i gegn i diskó-út-
setningu Gunnars Þórðarsonar.
Tónleikarnir á morgun eru
fyrir styrktarfélaga Tónlistar-
félagsins, en þeir verða endur-
teknir þann 24. nóvember klukk-
an 14.30 i Austurbæjarbiói.
—KP.
Lelkbrúðu-
land heim-
sækir Eyjar
Brúðurnar i Leikbrúðulandi
leggja land undir fót um helgina
og skemmta krökkum i Vest-
mannaeyjum. Tvær sýningar
verða á morgun og tvær á sunnu-
dag I Eyjum.
Vegna þessa ferðalags falla
sýningar á Frikirkjuvegin-
um niður um helgina.
Það er Gauksklukkan sem
krakkarnir i Eyjum fá að sjá, og
eru þetta siöustu sýningar á
leiknum fyrir áramótin. Nú verð-
ur byrjað af fullum krafti að æfa
jólaleikritið, en fyrstu sýningar á
þvi verða 24 og 25.nóvember.
—KP.
Jiaiiar um ren
Karlmannslns’,
- seglr Slgrlöur
Þorvaldsdóttir
um vaxlff, sem
Lelkfélag
Mosfellssveltar
frumsýnir I kvöld
Leikmyndina hefur Sigurður
Finnsson gert, en aðstoðarmað-
ur leikstjóra er Aðalheiður Erna
Gisladóttir.
önnur sýning á Vaxlifi verður
i Hlégarði á sunnudagskvöld
klukkan 21 og þriðja sýning á
fimmtudag á sama tíma.___kp
,,í leikritinu er varpað fram
spurningu um réttlætismái og
fjallað er um réttindi og skyldur
fólks, sérstaklega þó rétt karl-
mannsins”, sagði Sigrfður Þor-
valdsdóttir ieikstjóri Vaxlifs,
sem Leikfélagið i Mosfellssveit
frumsýnir i kvöld I Hlégarði.
Vaxlif er eftir Kjartan Heið-
berg. Það var frumsýnt á Nes-
kaupstað i vor á fimmtiu ára af-
mæli kaupstaðarins.
Höfundur var um tima kenn-
ari á Neskaupstað, en stundar
nú nám við Háskóla Islands.
Hann hefur sent frá sér eitt leik-
rit áður, Grenið, sem nú er sýnt
i Þorlákshöfn. Það hefur einnig
verið leikið i útvarp.
1 leiknum eru fjórar persónur,
Baldur, Alla, Matti og Rósa.
Tóif leikarar taka þátt i sýning-
unni en hún er sett upp á mjög
nýstárlegan hátt.
Tólf leikarar fara með hlutverk fjögurra persóna I leikritinu Vaxlíf.
F.v. Sigurður Finnsson, Sigriöur Þorvaldsdóttir og Kjartan Heið-
berg, höfundur Vaxlifs. Vlsismyndir GVA.
„DISA ER
FEIMIN 0G.
VHIKVÆM SAL”
- segir Andrés indrlðason um aðaipersónuna
I veröiaunabók slnnl Lyklabarn
,,Ég skrifaði söguna á fremur
skömmum tima i vor, en ég var
búinn að vera með hugmyndina
i kollinum lengi og leggja þetta
niður fyrir mér”, sagði Andrés
Indriðason, en bók hans.Lykia-
barn, hlaut barnabókaverðiaun
Máls og menningar i ár.
Andrési er barnaefni hugleik-
ið. Hann hefur skrifað nokkur
leikrit sem flutt hafa verið m.a.
i útvarp og sjónvarp. Einnig
hefur hann nýlokið við að gera
kvikmynd fyrir börn, Veiðiferð .
„Aðalpersóna sögunnar er
Disa, sem er tiu ára Reykjavik-
urstúlka. Hún flytur i nýtt hverfi
ásamt foreldrum sinum og
bróður. Disa er feimin og við-
kvæm sál. Ég reyni að lýsa þvi
hver áhrif vistaskiptin hafa á
hana. Þungamiðjan i sögunni er
samband stúlkunnar við for-
eldra sina. Þau vinna bæði úti
og það hefur orðið til þess aö
börnin eru hornrekur. Það vant-
ar allt tilfinningasamband milli
Disu og foreldra hennar ”, sagði
Andrés.
Teiknisögurnar alls
ráðandi.
„Mér finnst það ánægjuefni
að Mál og menning hafi stofnað
til þessarar samkeppni, vegna
þess að það hlýtur að vera
hvatning fyrir þá sem eru að
bauka við að skrifa barnabæk-
ur. Þróunin er i þá veru, þvi
miður, að barnabókum hefur
farið fækkandi á markaðinum.
A sama tima verða teiknisög-
urnar ráðandi. Þrátt fyrir það
að þær séu margar hverjar
ágætar, þá er þróunin sú að
textinn fer að skipta æ minna
máli, sjónin fer að verða sög-
unni rikari”, sagði Andrés.
Alls koma nú út sjö barna-
bækur hjá Máli og menningu I
ár. Það eru m.a. bók eftir Ar-
mann Kr. Einarsson, Jóhönnu
Alfheiði Steingrimsdóttur,
Gunnar M. Magnúss , Valdisi
óskarsdóttur, Asrúnu Matthías-
dóttur og Sigriði Eyþórsdóttur.
—KP.
%
Andrési er barnaefni hugleikið, en hann hefur gert leikrit fyrir út-
varp og sjónvarp. Hér er hann I góðum félagsskap jólasveinsins.
Þjóðdansafélagið hefur fariö með sýningar slnar viöa um lönd og hlotið
mikið lof fyrir.
SÖNGDANSAR 0G
KAUPSTADARALL
- Þjóödansafélaglö helmsækir Akureyri
Þjóðdansafélag Reykjavíkur Þjóðdansafélagið hefur farið
heldur i sýningarferð út á land með sýningar sinar viða um lönd
um helgina og sýnir á Akureyri á t.d. til Bandarikjanna, Kanada,
morgun. Sýningin hefst i Sam- Þýskalands, Austurrikis og Norð-
komuhúsinu klukkan 20.30. urlanda, og hlotið mikið lof fyrir.
Dansflokkurinn er skipaður 24
dönsurum. Stjórnandi er Kolfinna Þetta er i fyrsta sinn sem Þjóð-
Sigurvinsdóttir. dansafélagið sýnir á Akureyri, en
Sýningunni verður skipt i þrjá sýningin er með þeim stærstu
hluta, söng, dansa, kaupstaðar- sem hópurinn hefur haldið.
ball og gömlu dansana. —KP.